Fréttablaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 12
12 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR
�����������������
��������������������
������������������������ ������������
����������������������������������������
��� ����������� ���������������������
����������������������������
�������� ������
��������������������������������������� �������������������������������
��������������������������������������� ������������
��������������������������������������������������������������������������������������� ���������������������
���������
������������
��������
���������
��������
��������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
�������������������������������������������������������������������������� ������������������������������� ����������������
SÓLMYRKVI Þessi tíu ára drengur var aug-
ljóslega frá sér numinn yfir sólmyrkvanum
sem hann sá í Akkra í Gana í gær. Skóla-
börn flykktust út á götur til að fylgjast með
sólmyrkvanum, en svartamyrkur féll yfir
Gana um miðjan dag í gær. Sólmyrkvans
varð vart frá Brasilíu til Mongólíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FUGLAFLENSA Bandarískir vísinda-
menn telja sig hafa fundið ástæð-
una fyrir því að mannskæða H5N1
fuglaflensuveiruafbrigðið sé enn
ekki farið að smitast frá manni til
manns.
Inflúensuveirur sem ráðast á
fólk leggjast yfirleitt á frumur
hátt í öndunarveginum, sem eykur
þá líkurnar á því að þær berist á
milli manna við hósta og hnerra.
Fuglaflensuveiran festir sig hins
vegar við frumur djúpt í öndunar-
vegi manna að sögn vísindamanna
frá Háskólanum í Wisconsin, en
niðurstöður rannsóknar þeirra
voru nýverið birtar í vísindatíma-
ritinu Nature. Þar af leiðandi á
veiran ekki mjög greiða leið
manna í millum, sem aftur minnk-
ar líkurnar á stökkbreytingu.
H5N1 afbrigði fuglaflensuveir-
unnar hefur fundist víða í Evrópu,
Afríku og Asíu og hefur orðið yfir
100 manns að bana, að sögn
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn-
ar. Samkvæmt tölum stofnunar-
innar hafa um 180 manns smitast
af veirunni síðan hún kom upp á
ný árið 2003, og hafa yfir 100
þeirra látist. Þó virðist fólk enn
þurfa að handleika sýkta fugla til
að smitast.
Vísindamenn óttast að ef veir-
an stökkbreytist svo að hún geti
smitast frá manni til manns, geti
hún valdið heimsfaraldri og orðið
milljónum manna að bana. - smk
Vísindamenn rannsaka hegðun fuglaflensuveirunnar:
Sest að neðarlega í öndunarvegi
FUGLAMARKAÐUR Í KÍNA Sölumaður
safnar saman kjúklingum á hænsnamark-
aði í Kína, en fuglaflensa hefur fundist þar í
landi sem víðar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
INDLAND, AP Indverskur læknir og
aðstoðarmaður hans voru í gær
dæmdir í tveggja ára fangelsi
fyrir að hafa notað ómskoðun til
að kanna kyn fóstra, en talið var
að foreldrarnir hefðu síðan notað
upplýsingarnar til að láta eyða
meyfóstrum. Læknirinn sagði
óeinkennisklæddri lögreglukonu
að hún gengi með stúlku og sagði
að hægt væri að „sinna því“.
Þó fóstureyðing sé heimil í Ind-
landi, er bannað með lögum að
greina kyn fóstra. Talið er að
hundruð þúsunda meyfóstra sé
eytt árlega því dætur teljast meiri
fjárhagsleg byrði en synir. - smk
Indverskur læknir dæmdur:
Mátti ekki kyn-
greina fóstur
HEILSA Svifryk hefur ítrekað mælst
yfir heilsuverndarmörkum und-
anfarna daga í Reykjavík. Lítill
raki er í andrúmsloftinu þessa
dagana og veður þurrt og kalt.
Undanfarin kvöld og nætur
hafa rykbindiefni verið lögð á
helstu umferðargötur borgarinn-
ar. Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands að dæma verð-
ur þurrviðri næstu daga og því
útlit fyrir að magn svifryks í and-
rúmslofti verði áfram yfir heilsu-
verndarmörkum. - sdg
Yfir heilsuverndarmörkum:
Mikið svifryk
í Reykjavík
UMFERÐ Í REYKJAVÍK Í Reykjavík eru 50 til
60 prósent svifryks uppspænt malbik.
LAUNAMÁL Mikil gremja er meðal
starfsmanna álvers Norðuráls á
Grundartanga, en þeim finnst það
óréttlátt, ef fyrirtækið ætlar sér
ekki að borga bónusgreiðslur
vegna uppsetningar á nýjum
bræðslukerjum í álverinu. Starfs-
menn fyrirtæk-
isins eru undir
miklu álagi á
meðan á breyt-
ingum í höfðuð-
stöðvum fyrir-
tækisins
stendur.
Starfsmenn
fengu 45 þús-
und króna kaup-
auka þegar upp-
setning nýrra
kerja fór fram síðast. Þeir starfs-
menn sem voru með meira en
þriggja ára starfsreynslu fengu 58
þúsund krónur.
Þetta var því umtalsverð búbót
fyrir starfsmenn fyrirtækisins.
Forsvarsmenn Norðuráls hafa
ekki enn tekið ákvörðun um það
hvort starfsmenn fá bónusgreiðsl-
ur, en uppsetning kerjana er hálfn-
uð. Breytingum verður að öllum
líkindum lokið í haust.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa
þegar sett sig í samband við verka-
lýðsfélagið á Akranesi sem nú
vinnur að lausn deilunnar, með
forsvarsmönnum Norðuráls.
Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness,
fundaði ásamt trúnaðarmanni
starfsmanna með fulltrúum Norð-
uráls fyrir viku. Þar kom fram
skýr krafa um að starfsmenn
fengju bónusgreiðslu fyrir það
aukna álag sem fylgir uppsetn-
ingu kerjanna. „Gremja starfs-
manna er vel skiljanleg. Á fundin-
um kom skýrt fram að eigendur
Norðuráls hygðust ekki greiða
umrædda bónusgreiðslu. Norður-
ál hefur í mörg ár skilað miklum
hagnaði og því er það skiljanleg
krafa starfsmanna að þeim sé
umbunað fyrir mikið álag, vegna
þess að framlag starfsfólksins er
einn af hornsteinum fyrirtækis-
ins, og grundvallarástæða þess að
fyrirtækinu gengur vel,“ segir
Vilhjálmur.
Ragnar Guðmundsson, for-
stöðumaður fjármála- og stjórn-
sýslusviðs Norðuráls, segir end-
anlega ákvörðun fyrirtækisins
ekki liggja fyrir, hvað bónus-
greiðslurnar varðar. Hann segist
hafa orðið var við gremju meðal
starfsmanna, en á fundinum fyrir
viku voru allar hliðar málsins
ræddar til hlítar. „Þessi mál eru til
athugunar og það hefur ekki verið
tekin ákvörðun um það hvort bón-
usgreiðslur verða greiddar. Upp-
setningu kerjanna er ekki lokið og
því er enn nægur tími til þess að
komast að niðurstöðu í þessu máli.
Einhverjir virðast hafa skilið
stöðu mála þannig, að tekin hafi
verið ákvörðun um að bónus-
greiðslur verði ekki greiddar. Það
er ekki rétt.“
magnush@frettabladid.is
Starfsmenn Norðuráls eru
gramir og heimta bónus
Meira en 350 starfsmenn Norðuráls krefjast þess að fá bónusgreiðslur vegna álags hjá Norðuráli. Misskiln-
ingur að búið sé að ákveða að greiða ekki bónus, segir forstöðumaður fjármála- og stjórnsýslusviðs.
UTANRÍKISMÁL Geir Haarde utan-
ríkisráðherra opnaði formlega
nýjan sendiherrabústað í Berlín í
fyrradag en bústaðurinn er að
heita má alíslenskur að innan sem
utan.
Var húsið teiknað af þeim Denn-
is Davíð Jóhannessyni og Hjördísi
Sigurgísladóttur en tillaga þeirra
vann fyrstu verðlaun í hönnunar-
samkeppni sem haldin var fyrir
þremur árum. Þau hönnuðu jafn-
framt allar innréttingar inni í hús-
inu.
Annar húsbúnaður og skreyt-
ingar í húsinu eru að mestu hand-
unnin íslensk smíð.
- aöe
Sendiherrabústaður í Berlín:
Bústaðurinn er
íslensk hönnun
VILHJÁLMUR
BIRGISSON
UNNIÐ Í KERSKÁLANUM Á GRUNDARTANGA Mikil fjöldi félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness vinnur í álveri Norðuráls en þeir krefjast
þess að bónusgreiðslur verði greiddar fyrir aukið álag vegna uppsetningar á bræðslukerjum í álverinu. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE