Fréttablaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 30. mars 2006 13
Okkar verð Fullt verð
Nike erobik skór 5.000 kr. 9.990 kr.
Conway gönguskór 4.990 kr. 9.990 kr.
Puma skór 4.000 kr. 8.000 kr./9.990 kr.
Sundskýlur, Adidas-Nike-Speedo 1.000 kr./1.500 kr. 2.500 kr./3.500 kr.
Barnaflíssett 1.200 kr. 2.990 kr.
Spalding körfuboltar 1.000 kr. 1.990 kr.
Adidas fótboltaskór 3.000 kr. 5.990 kr.
Northland töfflur 2.000 kr. 4.990 kr.
Barnakuldagallar Catmandoo 3.600 kr. 7.990 kr.
Flíspeysur 1.600 kr. 3.990 kr.
Rucanor innanhússkór 1.000 kr. 3.990 kr.
BRETLAND, AP Dómar féllu í Bret-
landi á þriðjudag í máli þriggja
Kínverja sem voru ábyrgir fyrir
því að hópur kínverskra skelfisk-
veiðimanna fórst á norðvestan-
verðu Englandi fyrir tveimur
árum.
Lin Liang Ren, 29 ára, hlaut
fjórtán ára fangelsisdóm en kær-
asta hans og frænka hans hlutu
styttri fangelsisdóma. Þau þrjú
þóttu hafa þrælað veiðimönnun-
um miskunnarlaust í vinnu.
Veiðimennirnir voru að tína
skelfisk í fjöru þegar flæddi að og
þeir lokuðust inni.
Talið er að alls hafi 23 skelfisk-
veiðimenn látið lífið, en lík tveggja
þeirra fundust aldrei. -gb
Þrír Kínverjar í Bretlandi:
Báru ábyrgð á
láti 23 manna
SKELFISKPOKAR Lögreglan í Bretlandi
leitaði árangurslaust fyrir tveimur árum að
skelfiskveiðimönnum sem drukknuðu við
tínslu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Full-
trúaráð Sjálfstæðisfélaganna í
Vestmannaeyjum hefur kynnt lista
flokksins fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor.
Elliði Vignisson bæjarfulltrúi
er efstur en síðan koma Páley
Borgþórsdóttir lögfræðingur, Páll
Marvin Jónsson líffræðingur,
Gunnlaugur Grettisson skrifstofu-
stjóri, Arnar Sigurmundsson fram-
kvæmdastjóri, Ásta Halldórsdótt-
ir sjúkraliði og Jóhanna Kristín
Reynisdóttir húsmóðir. - shá
Sjálfstæðisflokkurinn í Eyjum:
Sjö konur og
sjö karlar á lista
Portúgali dæmdur Dómstóll í Bristol
á Englandi dæmdi í gær portúgalskan
verkamann á tvítugsaldri fyrir morð
á barnshafandi kærustu sinni. Hinn
sakfelldi, Hugo Quintas, neitaði að hafa
ætlað sér að drepa Hayley Richards, en
hann skar hana á háls. Hann hélt því
fram að hún hefði ögrað sér með því að
segja að hún svæfi hjá öðrum manni.
BRETLAND
Neita að halda fund Stjórnvöld í
Sádi-Arabíu tilkynntu í gær að þau ætli
sér ekki að halda næsta leiðtogafund
Arababandalagsins, sem halda á árið
2007. Engar skýringar voru gefnar á
synjuninni.
SÁDI-ARABÍA
BANDARÍKIN, AP Þótt gáfuð börn
virðist bera af öðrum börnum í
mörgum atriðum, þá hefur ný
bandarísk rannsókn sýnt fram á
að sá hluti heilans sem stjórnar
hugsun þroskast hægar í þeim en
öðrum börnum. Niðurstöður rann-
sóknarinnar eru birtar í vísinda-
tímaritinu Nature í dag.
Heilabörkurinn þykknar hjá
börnum og þynnist síðan á ný, og
sýndi rannsóknin að þessi þróun
gerist hægar hjá börnum með
hærri greindarvísitölu. Þykkastur
varð börkurinn hjá afburðagáfuð-
um börnum um 11 ára aldur, um
níu ára aldur hjá börnum með
góða greindarvísitölu, en um sex
ára aldur hjá meðalgreindum
börnum.
Elizabeth Sowell sem starfar
við Kalíforníuháskóla, sagði nið-
urstöðurnar sannfærandi, en
minnti á að ekki er hægt að segja
hvort þykknun heilabarkarins
valdi afburðagáfum, eða hvort því
sé öfugt farið. Þó eru niðurstöð-
urnar mikilvægar fyrir rannsókn-
ir á börnum sem þjást af heila-
sjúkdómum. - smk
Ný rannsókn á gáfuðum börnum birt í vísindatímaritinu Nature:
Heilar afburðagáfaðra þroskast seinna
NÁMSHESTUR Bandarískir vísinda-
menn telja sig hafa uppgötvað
mikilvægan þátt í þroska gáfaðra
barna.
DÓMSMÁL Karl og kona voru í gær
dæmd í Héraðsdómi Vesturlands
fyrir að hafa í fórum sínum fíkni-
efni og vopn, en lögreglan gerði
upptækar fimm byssur á heimili
fólksins auk tæplega 80 gramma
af kannabis og lítilræðis af kóka-
íni.
Byssurnar fimm voru af ýmsum
gerðum, Colt skammbyssa, Rem-
ington haglabyssa, Enfield riffill,
Brno riffill og startbyssa. Þá fund-
ust einnig hnífar, byssuhljóðdeyfir
og mikið magn skotfæra. Konan
var dæmd til að greiða 400 þúsund
krónur en karlinn 150 þúsund. Auk
þess þurfa þau að greiða sakar-
kostnað. -mh
Með vopn og fíkniefni:
Dæmd fyrir
vopnaeign