Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 14

Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 14
F í t o n / S Í A FIMMTUDAGUR 30. mars 200614 FLÓÐHESTUR Þessi þriggja mánaða dverg- flóðhestur syndir við hlið móður sinnar í bandarískum dýragarði í Nebraska. Krílinu hefur verið haldið frá gestum garðsins frá fæðingu, en á föstudag geta gestir garðsins fyrst fengið að sjá það. FRÉTTABLAÐIÐ/AP RIO DE JANEIRO, AP Hneykslismál varð fjármálaráðherra Brasilíu að falli nú í byrjun vikunnar. Ant- onio Palocci neyddist til þess að segja af sér eftir að upp komu ásakanir um að hann hafi stund- um sótt veislur í húsi nokkru í höf- uðborginni, þar sem þrýstihópar buðu stjórnmálamönnum aðgang að vændiskonum. Í húsið bárust einnig peninga- fúlgur í ferðatöskum, og leikur grunur á að það fé hafi óspart verið notað til að hafa áhrif á stjórnmálamennina. Palocci harð- neitaði þessum ásökunum, en hneykslið magnaðist um allan helming þegar upplýsingar um bankareikninga lykilvitnis í mál- inu láku til fjölmiðla frá ríkis- bankanum Caixa Economica Fed- eral. Málið hefur grafið nokkuð undan trausti Brasilíumanna á forseta sinum, Luiz Ignacio Lula da Silva, fyrrverandi verkalýðs- leiðtoga sem sigraði með yfir- burðum í forsetakosningum árið 2002. Forsetinn mátti þó varla við því að þetta mál kæmi upp, því á síðasta ári missti hann þegar tölu- vert af trúverðugleika sínum eftir að fyrrverandi samherji hans sak- aði flokkinn um að hafa fjármagn- að kosningabaráttu með ólögleg- um hætti og að hafa afhent stjórnarandstæðingum á þingi fastar peningagreiðslur fyrir að styðja lagafrumvörp. - gb Hneykslismál skekur brasilísku ríkisstjórnina og grefur undan trausti á forsetanum: Ráðherra sakaður um mútuþægni MANTEGA, SILVA OG PALOCCI Luiz Ignacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, stendur þarna á milli núverandi og fráfarandi fjármálaráðherra. Myndin er tekin þegar Guido Mantega, sem er vinstra megin við forsetann, tók við embættinu af Antonio Palocci. FRÉTTABLAÐIÐ/AP RÍKISENDURSKOÐUN Ríkisendur- skoðun telur að ekkert nýtt hafi verið lagt fram í máli Vilhjálms Bjarnasonar, aðjúnkts við Háskóla Íslands, vegna sölu á 45,8 prósenta hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. til hins svokallaða S- hóps, í fréttaskýringaþættinum Silfur Egils um miðjan febrúar. Í niðurstöðu samantektar vegna „nýrra“ gagna og upplýsinga um sölu á Búnaðarbanka Íslands segir að Ríkisendurskoðun telji að ekk- ert nýtt hafi verið lagt fram í mál- inu sem stutt geti víðtækar álykt- anir sem Vilhjálmur hafi dregið af þeim gögnum sem hann hafi lagt fram og þeim óformlegu upplýs- ingum sem hann telji sig búa yfir. Þvert á móti þyki liggja fyrir óyggjandi upplýsingar og gögn um hið gagnstæða. Vilhjálmur greindi frá því í þættinum að hann byggi yfir gögn- um og upplýsingum sem gætu varpað nýju ljósi á söluna á tæp- lega 46 prósenta hlut ríkisins í Búnaðarbankanum til S-hópsins í ársbyrjun 2003. Í framhaldi af umræðum á opinberum vettvangi, meðal annars á Alþingi, og yfirlýs- ingu Ríkisendurskoðunar um að honum væri ókunnugt um nýjar upplýsingar í málinu átti Vilhjálm- ur fund með Ríkisendurskoðun og lagði fram gögn sem hann taldi að vörpuðu nýju ljósi á málið. Í framhaldi af þessu kannaði Ríkisendurskoðun málið betur og óskaði meðal annars álits Stefáns Svavarssonar, löggilts endurskoð- anda. Stefán komst að þeirri nið- urstöðu að ekki væri hægt að full- yrða að þýski bankinn hefði ekki fjárfest í Eglu hf. á árinu 2003 og það sjáist ekki með beinum hætti að bankinn hefði fjárfest í fyrir- tækinu enda væri hann í fullum rétti þegar hann sundurgreindi ekki fjárfestingu í hlutabréfum. „Ég fékk að renna yfir þetta í gær áður en það var gengið frá þessu og ég er mjög ánægður með margt. Þetta hrekur ekki margt af því sem ég hef sagt en ég ætla ekki að segja orðinu meira að sinni,“ sagði Vilhjálmur í gær og kvaðst ekki vita hvort og þá hvert framhald yrði á málinu af hans hálfu. „Þetta staðfestir það sem við höfum áður sagt að í þessu máli er í raun ekki um neitt að tala. Vil- hjálmur hefur ekki sýnt fram á neitt og það hefur ekkert komið fram sem styður það sem hann hefur sagt. Þetta hafa eingöngu verið ásakanir út í loftið,“ segir Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers. ghs@frettabladid.is VILHJÁLMUR BJARNASON „Þetta hrekur ekki margt af því sem ég hef sagt,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla Íslands. Engar nýjar upplýsingar Ríkisendurskoðun telur að Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt hafi ekki komið fram með neinar nýjar upplýsingar vegna sölunnar á 45,8 prósenta hlut ríkisins í Búnaðarbankanum til S-hópsins. GENGIÐ FRÁ SÖLUNNI ÁRIÐ 2003 Geir H. Haarde, þáverandi fjármálaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, Ólafur Ólafsson, einn forsvarsmenna S-hópsins og Peter Gatti, bankastjóri Hauck & Aufhauser. SVÍÞJÓÐ Danir og Íslendingar eru bestir í að nýta sér upplýsingatækni á Norðurlöndum. Báðar þessar þjóð- ir auk Finna standa framar en Svíar. Norðmenn standa hins vegar verr. Þetta kom fram í sænska viðskipta- blaðinu Dagens Industri. Bandaríkjamenn, Singapúrbúar og Danir skipa efstu þrjú sætin yfir tuttugu upplýsingatæknivæddustu þjóðirnar í heiminum. Þetta kemur fram á lista sem Alþjóða efnahags- stofnunin í Sviss, WEF, hefur tekið saman. Íslendingar eru í fjórða sæti, Finnar í fimmta, Svíar í átt- unda og Norðmenn í 13. sæti. - ghs Upplýsingatækni: Íslendingar og Danir fremstir Lenti út af í hálku Bíll lenti út af skammt frá Blönduósi í fyrrakvöld. Ökumaður bílsins var einn í bílnum og slasaðist hann ekki. Mikil hálka var á veginum auk þess sem skyggni var lítið. LÖGREGLUFRÉTT NÍGERÍA, AP Fyrrverandi forseti Líb- eríu, Charles Taylor, sem ákærður er fyrir stríðsglæpi, var fluttur frá Nígeríu til heimalands síns í gær, en hann var handsamaður á þriðju- dagskvöldið í Nígeríu þegar hann reyndi að flýja landið. Stríðsglæpadómstóll í Síerra Leóne bjó sig í gær undir móttöku Taylors, en friðargæsluliðar Sam- einuðu þjóðanna áttu að flytja hann frá Líberíu til Síerra Leóne. Komi til réttarhalda yfir honum, verður hann fyrsti fyrrverandi Afríkuleið- toginn sem svarar til saka fyrir stríðsglæpi. Taylor hefur búið í vellystingum í Nígeríu síðan árið 2003, þar sem honum var veitt pólitískt hæli. - smk Fyrrverandi forseti tekinn: Charles Taylor reyndi að flýja land CHARLES TAYLOR Fyrrverandi forseti Líberíu sem ákærður er fyrir stríðsglæpi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.