Fréttablaðið - 30.03.2006, Síða 28
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR28
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.016 +0,24% Fjöldi viðskipta: 258
Velta: 2.210 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 60,60 +0,33% ... Alfesca
4,00 -0,25%... Atorka 6,05 +0,00% ... Bakkavör 52,70 +0,77% ...
Dagsbrún 6,89 +0,58% ... FL Group 22,30 +0,45% ... Flaga 3,11
+0,32% ... Glitnir 18,20 0,00% ... KB banki 835,00 +0,36% ... Kög-
un 74,90 +0,00% ... Landsbankinn 25,60 -0,39% ... Marel 74,10
+1,51% ... Mosaic Fashions 17,70 +0,00% ... Straumur-Burðarás
17,60 +0,57% ... Össur 114,50 +0,00% Klukkan 14.00 í gær.
MESTA HÆKKUN
Marel 1,51%
Icelandic Group 1,16%
Bakkavör 0,77%
MESTA LÆKKUN
Vinnslustöðin -2,44%
Atlantic Petroleum -1,76%
Avion -0,49%
Seðlabanki Bandaríkjanna hefur
hækkað stýrivexti um 0,25 pró-
sent. Almennt var búist við hækk-
ununum. Stýrivextir í Banda-
ríkjunum voru eitt prósent fyrir
tuttugu mánuðum en standa í dag í
4,75 prósentum og hafa ekki verið
hærri síðan í apríl árið 2001.
Greint var frá ákvörðuninni
að loknu fyrsta vaxtaákvörðunar-
fundi Bens Bernanke, seðlabanka-
stjóra Bandaríkjanna, en stýri-
vaxtahækkunin er liður í að koma
í veg fyrir verðbólgu í Bandaríkj-
unum.
Fjármálasérfræðingar búast
almennt við að stýrivextir hækki
fljótlega um 0,25 prósent og verði
það síðasta hækkunin í bili. - jab
Bandaríkjamenn
hækka stýrivexti
BEN BERNANKE Þetta er fyrsta stýrivaxta-
hækkun hins nýráðna seðlabankastjóra
sem tók við af Alan Greenspan.
Í nýlegri greiningu
norska bankans Skagen
Fondene er vaxtastefna
Seðlabanka Íslands gagn-
rýnd og sögð ýta undir
ójafnvægi á fjármála-
mörkuðum. Óeðlilegt sé
að taka mið af verðbólgu
með húsnæðisverði.
Seðlabankinn, sem í dag
birtir ákvörðun um stýri-
vexti, segir gagnrýnina
óréttmæta.
„Seðlabanki Íslands ýtir undir
ónauðsynlegan óróleika á fjár-
málamarkaði með því að miða
vaxtaákvarðanir við vísitölu
neysluverðs sem felur í sér hús-
næðisverð,“ segir Torgeir Høien,
sérfræðingur norska bankans
Skagen Fondene, í nýlegri skýrslu
um íslensk efnahagsmál. Hann
segir hækkanir stýrivaxta árin
2004 og 2005 hafa verið óþarflega
miklar en þær hafi ýtt undir hátt
gengi krónunnar og með því lagt
grunninn að hraðri veikingu henn-
ar að undanförnu.
„Um þetta hefur nú farið fram
umræða, en ég er ekki sannfærður
um að það sé rétt hjá norska bank-
anum að Seðlabankinn hafi elt
þetta blint,“ segir Guðmundur K.
Magnússon, prófessor í hagfræði
við Háskóla Íslands. „Bankinn
hefur reiknað hvort tveggja og
tekið mið af því.“ Guðmundur telur
frekar hafa ýtt undir óstöðugleika
hversu lítil áhrif stýrivaxtaákvarð-
anir Seðlabankans hafi haft á útlán
og vaxtakjör í
landinu. „En
við spurning-
unni um hvort
notast eigi við
vísitölu með
eða án hús-
næðisverðs er
ekki til ein-
hlítt svar. Það
getur komið
sér vel í einn
tíma og illa í
annan,“ segir hann. Arnór Sig-
hvatsson, aðalhagfræðingur Seðla-
bankans, segir verðbólgumarkmið
Seðlabankans miðast við vísitöl-
una í heild. „Bankinn er hins vegar
ekki að bregðast við liðinni verð-
bólgu, þar sem húsnæðisverðbólga
er ráðandi, heldur við verðbólgu
sem bankinn sér fram undan,“
segir hann og kveður húsnæðis-
verðbólgu ekki endilega vera hluta
af þeirri mynd. „Ljóst er að hús-
næðisverðbólga mun hjaðna og
annars konar verðbólga færist í
vöxt í staðinn. Þá benda rannsókn-
ir til að húsnæðisverðbólga sé leið-
andi vísbending um annars konar
verðbólgu. Gagnrýnin er því ekki
réttmæt, nema að bankinn væri
eingöngu á horfa á það sem liðið er
í stað þess sem er fram undan.“
olikr@frettabladid.is
SEÐLABANKI ÍSLANDS Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir gagnrýni Skagen Fondene á
stýrivaxtastefnu bankans óréttmæta. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
TORGEIR HØIEN Torgeir
er sérfræðingur Skagen
Fondene.
Segir Seðlabankann taka
mið af rangri vísitölu
Sparisjóður Skagafjarðar, sem
áður nefndist Sparisjóður Hóla-
hrepps, tapaði þrettán milljónum
króna á síðasta ári samanborið við
sex milljóna króna tap árið áður.
Eigið fé sparisjóðsins nam um 42
milljónum í árslok og voru heild-
areignir 652 milljónir.
Um þessar mundir stendur yfir
stofnfjárútboð þar sem í boði eru
54 milljónir og hafa núverandi eig-
endur forkaupsrétt. Stærsti stofn-
fjáreigandinn er Fiskiðja Sauðár-
króks með 26,1 prósents hlut. - eþa
Sparisjóður Skaga-
fjarðar selur stofnfé
SAUÐÁRKRÓKUR Í VETRARSÓL Sparisjóður-
inn tapaði þrettán milljónum.
Ísland er í fjórða sæti af 115 yfir
tæknivæddustu ríki heims sam-
kvæmt lista sem Alþjóða efna-
hagsráðið (WEF) tók saman, og
lækkar um tvö sæti milli ára. Í
þriðja skipti á fimm árum eru
Bandaríkin í efsta sæti listans,
sem það ríki sem stendur fremst í
upplýsinga- og fjarskiptatækni,
en Singapúr og Danmörk koma í
næstu sætum á eftir. Finnland er í
5. sæti, Svíþjóð í 8. sæti og Noreg-
ur í því 13.
Stofnunin leggur ýmsa þætti til
grundvallar við sínar mælingar,
til dæmis hversu fljót ríki eru að
tileinka sér tækninýjunar, fjár-
festingar í upplýsingatækni,
útbreiðslu netsins og farsíma,
gæðum raungreinakennslu, stöðu
upplýsingatækni í menntakerfi og
atvinnulífi.
Skýrslan sýnir glöggt að Norð-
urlöndin og Asía standa fremst
hvað upplýsingatækni varðar. - eþa
BANDARÍKIN FREMST Ísland er í fjórða sæti
yfir ríki sem standa fremst í upplýsinga- og
fjarskipatækni.
Ísland fjórða tækni-
væddasta ríki heims
Lokað vegna starfsmannaferðar, í tilefni 50 ára afmælis fyrirtækisins,
Opnum hress og kát 4. apríl.
STOFNAÐ 1956
dagana 30.mars – 3.apríl
Eins og kerlingarbækur
Nassim Nicholas Taleb, bandarísk-
ur prófessor í fjármálafræðum,
gefur lítið fyrir kenningar og
módel í nútímafjármálafræð-
um og segir að fjármálavísindi
séu tóm bábilja. Telur hann
að stjörnuspeki geti nýst betur
við að byggja upp eignasafn.
„Fjármálafræði ganga út á öryggi
þrátt fyrir það að ekkert í heimi
sé öruggt,“ segir Taleb í viðtali
við þýska blaðið Handelsblatt
og bendir á að engar aðferðir á
fjármálamarkaði verji hlutabréfaverð
fyrir bankakreppu eða hryðjuverkum.
Það séu fremur ófyrirséðir atburðir
sem stýri þróun hlutabréfaverðs en
útsjónarsemi sjóðsstjóra að mati
prófessorsins.
Ekki eyland
Einhver kann að spyrja sig: Er hr. Taleb
að líka að tala um íslenskan fjármála-
markað og verðbréfadrengina okkar?
Atburðir undanfarna daga sýna svo
ekki verður um villst að Ísland er ekki
eyland á fjármálamörkuðum, og þeir
kunna að hafa haft langtímaáhrif á
íslenskan hutabréfamarkað. Getur
ef til vill verið að spákonan Sigríður
Klingenberg geti gefið almenningi
betri ráðleggingar um fjárfestingar
en sjóðsstjórar innlendra hluta-
bréfa hjá Kaupþingi?
Peningaskápurinn...
Á þriðjudag var tilkynnt um kaup
Actavis á rúmenska samheita-
lyfjafyrirtækinu Sindan, sem er
leiðandi í þróun og framleiðslu
samheita-krabbameinslyfja í Evr-
ópu. Sindan framleiðir 31 lyf, er
með tíu í þróun og mun markaðs-
setja sex ný lyf á árinu. Þá dreifir
félagið 73 öðrum lyfjum í Rúmen-
íu og koma um 55 prósent af heild-
artekjum af dreifingu en 45 pró-
sent af sölu á eigin framleiðslu.
Róbert Wessman, forstjóri Acta-
vis, segir Sindan falla vel að starf-
semi Actavis. Með kaupunum opn-
ist leið inn á ört vaxandi markað
fyrir samheita-krabbameinslyf
sem Actavis hefur ekki verið
starfandi hingað til.
Fyrirhuguð kaup Actavis á
króatíska samheitalyfjafyrirtæk-
inu PLIVA voru meðal þess sem
rætt var á aðalfundi Actavs á
þriðjudag. Með þeim yrði Actavis
þriðja stærsta samheitalyfjafyrir-
tæki heims. „Margir lykilhluthaf-
ar og -starfsfólk PLIVA hafa tekið
okkur vel. Forstjóra fyrirtækisins
þykir tilboðið of lágt en við höfum
sagt að við myndum hugsanlega
hækka verðið ef hann gæti sýnt
fram á að fyrirtækið væri meira
virði. Á sama tíma erum við að
ræða við þá hluthafa og hags-
munaaðila sem raunverulega eiga
fyrirtækið svo þetta ferli mun
taka nokkrar vikur í viðbót,“ sagði
Róbert Wessman.
Í ræðu Björgólfs Thors Björ-
gólfssonar, stjórnarformanns
Actavis, á aðalfundinum kom
meðal annars fram að aukið fjár-
magn í umferð hafi þrýst upp
gengi bréfa félaga í Kauphöll
Íslands án sýnilegra breytinga á
starfsemi þeirra. Við þessar
aðstæður sé hætta á að skamm-
tímahagsmunir hafi óheppilega
mikil áhrif á hlutabréfamarkað-
inn. Fyrir fyrirtæki eins og Acta-
vis sem gengur í gegnum miklar
breytingar og vaxi hratt sé ekki
heppilegt að vera skráð á markað
þar sem gengi félaga ræðst of
mikið af von fjárfesta um skjót-
fenginn gróða.
- hhs
Styrkja sig í Austur-Evrópu
MARKAÐSPUNKTAR
Greiningardeildir bankanna búast
almennt við 0,5 prósenta hækkun stýri-
vaxta í dag. KB banki segir sömuleiðis
líkur á 25 punkta hækkun vaxta á þriðja
ársfjórðungi.
Gengi hlutabréfa lækkaði um rúmt pró-
sent í Ísrael í gær eftir að Ehud Olmert,
starfandi forsætisráðherra landsins, lýsti
yfir sigri Kadimaflokksins í þingkosning-
unum í Ísrael í gær.
Hlutabréfaverð í Kauphöllinni í Osló í
Noregi hafa hækkað mest af hlutabréfa-
vísitölum í kauphöllum Norðurlandanna
á fyrsta ársfjórðungi.
ICEX-15 6.016 +0,24%
Fjöldi viðskipta 258
Velta 2.210 milljónir
Mesta hækkun
Marel 1,51%
Icelandic Group 1,16%
Bakkavör 0,77%
Mesta lækkun
Vinnslustöðin -2,44%
Atlantic Petroleum -1,76%
Avion -0,49%