Fréttablaðið - 30.03.2006, Side 33
Því hefur löngum verið logið upp á
strútinn að hann stingi hausnum í
sandinn þegar vandi steðjar að.
Spurningin er hvort þessi lýsing
eigi ekki stundum betur við okkur
Íslendinga, þegar við hugum að
stöðu okkar meðal siðaðra þjóða.
Vissulega er nauðsynlegt að hafa
stoltið í lagi og bera sig mannboru-
lega. Við getum kinnroðalaust litið
framan í útlendinga þegar ýmis
svið mennta, vísinda og athafnalífs
ber á góma. Við höfum náð góðum
árangri í almennri menntun og
eigum nokkra framúrskarandi
frumkvöðla. Samt er enn eitthvað
sem vantar. Einhvern hvata vantar
í skólakerfið til að vekja áhuga á
raungreinum og örva frumkvöðla-
hugsun. Aðilar innan menntakerf-
isins hafa haft áhyggjur af þessu
og margar ályktanir verið gerðar.
T.d. má benda á drög að nýrri
stefnu Vísinda- og tækniráðs til
næstu þriggja ára. En ráðið telur
nauðsynlegt „að við eflingu grunn-
og framhaldsskóla verði áhersla
lögð á að efla kennslu í raun- og
tæknigreinum og fjölga ungu fólki
í slíku námi“. Sömu áherslur er að
finna í drögum að nýjum náms-
skrám fyrir grunnskóla. Spurning-
in er: Hvernig ætlum við að fara að
þessu? Þá kemur upp í hugann
samlíkingin hér í upphafi. Ekki er
nægilegt að innleiða sumt úr
menntakerfi nágrannaþjóða, en
hundsa aðra undirstöðuþætti. Í
öllum tæknivæddum löndum er að
finna tæknisöfn og vísindastofur
(science centers), sem hafa fyrst
og fremst það hlutverk að auka
áhuga ungmenna á öllu sem lýtur
að tækni, vísindum og tækniþróun.
Við Íslendingar höfum einarðlega
litið framhjá þessu við uppbygg-
ingu á okkar menntakerfi. Afleið-
ingin er að koma okkur í koll. Nú
þurfum við að taka okkur á, brjóta
odd af oflætinu og fara að fordæmi
annarra siðaðra þjóða.
Hafinn er undirbúningur að
stofnun tæknisafns hérlendis. Fyr-
irmyndin er í meginatriðum hin
erlendu tæknisöfn, einkum hjá
næstu nágrönnum. Greinarhöfund-
ur hóf vinnu við þetta verkefni
fyrir þremur árum, en nú er undir-
búningsvinnan einkum í höndum
Ferðamálanefndar Austur-Flóa, í
samráði við menntamálaráðuneyti.
Líkur eru á góðu samstarfi við stór-
fyrirtæki í atvinnulífinu. Mikið
starf hefur verið unnið við kannan-
ir og kynningar og væntanlega fara
einhverjir áfangar að líta dagsljós-
ið. Sérfræðingar vinna að gerð
áætlana varðandi stofn- og rekstr-
arkostnað. Reiknað er með að á
þessu ári liggi fyrir nægilega mikl-
ar og góðar upplýsingar til að hægt
verði að gera áætlanir, og síðan að
hefja framkvæmdir. Þá gætum við
hugsanlega rétt úr kútnum að
þessu leyti og lyft haus úr sandi. Þá
hefðum við náð mikilvægum
áfanga í eflingu raungreinamennt-
unar. Gerum Tæknisafn Íslands að
veruleika sem fyrst!
Nánar um Tæknisafn Íslands á
www.floi.is.
Höfundur er rekstrarstjóri.
Tæknisafn Íslands - tökum á í menntamálum
UMRÆÐAN
MENNTAMÁL
VALDIMAR ÖSSURARSON
Við höfum náð góðum árangri
í almennri menntun og eigum
nokkra framúrskarandi frum-
kvöðla. Samt er enn eitthvað
sem vantar.
Eins og alkunna er, þá verður kosið
í sveitarstjórnir þann 27. maí.
Erlendir ríkisborgarar hafa rétt til
þess að kjósa í sveitarstjórnar-
kosningum eftir lágmarks búsetu í
landinu. Norðurlandabúum nægir
að hafa búið á Íslandi í þrjú ár en
fimm ára búseta er skilyrði fyrir
þegna annarra landa.
Rúmlega fjögur þúsund erlend-
ir ríkisborgarar munu hafa kosn-
ingarétt í sínu sveitarfélagi í vor.
Alþjóðahúsið hyggst gera sitt til að
vekja athygli innflytjenda á kosn-
ingunum. Fyrst ber að nefna að
næsta tölublað Eins og FÓLK er
flest, blaðs Alþjóðahússins, verður
tileinkað kosningunum og gefið út í
lok apríl. Þar gefst stjórnmála-
flokkunum færi á að kynna sig,
farið verður yfir reglur varðandi
kosningarétt og kjörgengi og fjall-
að um hlutverk sveitastjórna.
Alþjóðahúsið verður jafnframt
með fundaröð í byrjun maí þar sem
fulltrúum stjórnmálaflokkanna
verður boðið að kynna sig almennt.
Tíu almennir fundir verða haldnir
á tíu tungumálum og í lokin verður
framboðsfundur vegna borgar-
stjórnar þar sem oddvitum flokk-
anna verður boðið að vera með
framsögu. Einnig er vert að nefna
það að félagsmálaráðuneytið er að
gefa út bæklinga á tíu tungumálum
með upplýsingum um kosningarétt
og kjörgengi og hefur einnig opnað
vefinn kosningar.is, þar sem hægt
er að finna margvíslegan fróðleik
um kosningarnar. Ég vonast til
þess að stjórnmálaflokkarnir og
raunar öll framboð til sveitar-
stjórna í landinu hugi sérstaklega
að þessum hópi kjósenda og geri
sér far um að kynna málefni og
stefnu og almennt fyrirkomulag
sveitarstjórnarkosninga.
Þá vonast ég einnig til þess að
framboðin hugi að þessum stækk-
andi hópi kjósenda í stefnuskrám
sínum og komi til móts við þeirra
þarfir ekki síður en annarra hópa
samfélagsins.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Alþjóðahússins ehf.
Nýir
kjósendur
UMRÆÐAN
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
EINAR SKÚLASON
Rúmlega fjögur þúsund erlend-
ir ríkisborgarar munu hafa
kosningarétt í sínu sveitarfélagi
í vor. Alþjóðahúsið hyggst gera
sitt til að vekja athygli innflytj-
enda á kosningunum.
FIMMTUDAGUR 30. mars 2006 33
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er
tekið á móti efni sem sent er frá Skoð-
anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari
leiðbeiningar.