Fréttablaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 36
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR36
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Rósa Eiríka Ingimundardóttir
(Thorsteinsson), Baltimore, Mary-
land, Bandaríkjunum, lést á Har-
bor Hospital, Baltimore, Maryland,
laugardaginn 25. mars. Útför hefur
farið fram í kyrrþey.
Sigurður Georgsson hæstaréttar-
lögmaður, Sunnuvegi 27, Reykja-
vík, lést mánudaginn 27. mars.
Pollý Anna Einarsdóttir, frá
Siglufirði, Fannarfelli 12, Reykjavík,
lést á Landspítala Fossvogi sunnu-
daginn 19. mars. Útför hefur farið
fram í kyrrþey.
Á hverju ári veitir menningar- og ferða-
málanefnd Hafnarfjarðarbæjar hvatn-
ingarverðlaun ferðaþjónustunnar. Að
þessu sinni komu verðlaunin í hlut Sig-
urbjargar Karlsdóttur sem hefur í fimm
ár rekið álfagöngufyrirtækið Horft í
hamarinn. Hún er að vonum ánægð með
verðlaunin og þakklát fyrir meðbyrinn
sem fylgir slíkri viðurkenningu.
„Þetta hefur heilmikla þýðingu fyrir
mig og hvetur mig áfram. Mörg góð fyr-
irtæki í ferðaþjónustu hafa fengið
hvatningu á undan mér svo ég tek þess-
um verðlaunum fagnandi.“ Aðspurð
segir Sigurbjörg að verðlaununum fylgi
engin áþreifanleg veraldleg gæði en
unir glöð við heiðurinn sem hún segir
ekkert síðri. „Svo fékk ég voða fína
styttu,“ bætir hún hlæjandi við.
Hafnfirðingar og fleiri kannast vel
við álfagöngufyrirtækið og rauðu álfa-
húfuna sem Sigurbjörg ber á göngum
sínum um hraunið. „Ég byrjaði með fyr-
irtækið sumarið 2001 og býð núna upp á
gönguferðir allan ársins hring. Ég fór á
námskeið í Auðarverkefninu og má eig-
inlega segja að það hafi skipt meira máli
en nokkuð annað í upphafi. Þátttakan í
verkefninu hjálpaði mér mjög mikið í
byrjun og ég er afskaplega stolt af því
að hafa verið með.“ Sigurbjörg segir
einnig að Hafnarfjarðarbær hafi stutt
við bakið á sér meðal annars með því að
styrkja litla sýningu sem hún setti upp
árið 2004. „Þótt styrkirnir hafi ekki
verið stórkostlegir þá munar um þá. Það
er mikilvægt að maður finni að maður
hafi meðbyr.“
Þegar blaðakona spyr Sigurbjörgu
hvernig fyrirtækið gangi ber hún því
vel söguna. „Þetta er ekki mitt aðal-
starf eða af þeirri stærðargráðu að ég
geti lifað á því en fyrirtækið gengur
alveg ágætlega. Fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu taka tíma að þróast og svo þarf
líka að kynna það almennilega. Álfa-
gönguferðirnar eru heldur engin fjölda-
ferðamennska þótt ég fái nú stundum
stóra hópa af erlendum ferðamönn-
um.“
Sigurbjörg segir viðskiptavinina
mjög ánægða og að hún hafi sjálf
afskaplega gaman af starfinu sínu. „Ég
segi sögur af álfum, huldufólki og
Hafnfirðingum. Þetta er allt öðruvísi
ferð en margt annað sem er í boði
meðal annars vegna þess að þetta er
gönguferð og um þennan fallega bæ.
Fólkið sem kemur í göngurnar hefur
mismunandi ástæður fyrir því. Sumir
vilja einlæglega kynnast álfunum en
aðrir koma vegna þess að þetta er öðru-
vísi og skrítið.“ Viðskiptavinirnir koma
úr öllum áttum og segir Sigurbjörg til
dæmis að síðasta vetur hafi nokkur
hundruð grunnskólabörn komið í göngu
og á gamlársdag hafi hún farið um álfa-
byggðir með níutíu Rússum.
SIGURBJÖRG KARLSDÓTTIR: HVATNINGARVERÐLAUNAHAFI FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
Þakklát fyrir meðbyrinn
SIGURBJÖRG KARLSDÓTTIR Finnst mikill heiður í því að hljóta hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar í
Hafnarfirði sem hún segir hvetja sig áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Elísa Kristbjörg Rafnsdóttir,
Skálagerði 3, Reykjavík, lést á
heimili sínu mánudaginn 27. mars.
Sigurður G. Þormar er látinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Ástríður Guðný Sigurðardóttir,
Vallargötu 9, Keflavík, lést á hjúkr-
unarheimilinu Hlévangi, Keflavík,
sunnudaginn 26. mars.
Guðrún Brynjúlfsdóttir lést á
elliheimilinu Grund föstudaginn
17. mars. Útför hefur farið fram.
Vilborg Tryggvadóttir, hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni, Reykjavík, áður
til heimilis í Austurbrún 6, lést
mánudaginn 27. mars.
LÉON BLUM (1872-1950)
LÉST ÞENNAN DAG
„Frjáls maður er sá sem
óttast ekki að fylgja
hugsunum sínum til enda.“
Léon Blum varð þrisvar sinnum
forsætisráðherra Frakklands.
Á þessum degi árið 1949 samþykkti Alþingi aðild
Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Í kjölfarið braust
út órói við Alþingishúsið þar sem þúsundir manna
höfðu safnast saman til að mótmæla inngöngunni.
Hart hafði verið deilt um málið á Alþingi í nokkra
daga. Atkvæðagreiðslunni lauk klukkan 14.30 og
hafði þingfundur þá staðið yfir frá deginum áður.
Atkvæðin féllu svo að 37 þingmenn voru tillögunni
samþykkir en allir tíu þingmenn Sameiningarflokks
alþýðu – Sósíalistaflokksinss, tveir þingmenn
Alþýðuflokks og einn þingmaður Framsóknarflokks-
ins voru á móti tillögunni. Tveir framsóknarþing-
menn sátu að auki hjá við atkvæðagreiðsluna.
Fólkið sem mótmælti fyrir utan Alþingi meðan
á þessu stóð vildi að aðildin að Atlantshafsbanda-
laginu yrði lögð í dóm þjóðarinnar. Mikill hiti var í
mönnum sem köstuðu steinum og mold að Alþing-
ishúsinu með þeim afleiðingum að rúður brotn-
uðu. Lögreglan ásamt svokölluðu varaliði lögreglu,
sem mestmegnis var skipað ungum og hraustum
sjálfstæðismönnum, hóf að lumbra á mótmælend-
unum. Átökin enduðu með því að lögreglan beitti
táragasi til að dreifa mannfjöldanum.
Nokkrir menn hlutu skrámur eftir átökin en
enginn slasaðist alvarlega.
ÞETTA GERÐIST > 30. MARS 1949
Táragasi beitt við Alþingishúsið
AUSTURVÖLLUR OG ALÞINGISHÚSIÐ
MERKISATBURÐIR
1816 Hið íslenska bókmennta-
félag er stofnað. Félagið
gefur út Skírni sem er elsta
tímarit á Norðurlöndum og
hefur komið út síðan 1827.
1858 Hymen Lipman fær einka-
leyfi á blýanti með áföstu
strokleðri.
1867 Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, William H. Seward,
kaupir Alaska fyrir 7,2
milljónir Bandaríkjadala.
1934 Eldgos hefst í Grímsvötnum
í Vatnajökli og stendur það
í tvær vikur. Gosinu fylgir
hlaup í Skeiðará.
1954 Fyrsta neðanjarðarlest Kan-
adabúa opnar fyrir almenn-
ingi í borginni Toronto.
1985 Staðfest er að mótefni
gegn alnæmisveirunni hafi
í fyrsta sinn fundist í blóði
Íslendings.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ágústa Þyrí Andersen
Fjallalind 66, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn
31. mars kl. 13.00.
Þór Guðmundsson
Willum Þór Þórsson Ása Brynjólfsdóttir
Örn Þórsson Regína Björk Jónsdóttir
Valur Þórsson Helga Margrét Vigfúsdóttir
Willum Þór Willumsson
Brynjólfur Darri Willumsson
Þyrí Ljósbjörg Willumsdóttir
Daníel Helgi Arnarson
Ísar Logi Arnarson
Ernir Þór Valsson
Viktor Orri Valsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Geir U. Fenger
Lynghaga 7, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 28. mars.
Pétur U. Fenger Sigrún Guðmundsdóttir Fenger
Anna Kristín Fenger Herjólfur Guðjónsson
Ida Hildur Fenger Jóhannsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og tengdasonur,
Kristján G. Þorvaldz
Lómasölum 10, 201 Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 31. mars kl. 15.00.
Guðlaug R. Skúladóttir
Skúli Kristjánsson Þorvaldz Ingibjörg Sif Antonsdóttir
Atli Hrafn Skúlason
Ólafur Steinar Kristjánsson Sarah Anne Shavel
Ágústa Þórðardóttir
Ólafur Steinar Björnsson Mjöll Þórðardóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
vinur,
Guðmundur Geir Ólafsson
Grænumörk 3, Selfossi,
sem lést á Heilbrigðistofnun Suðurlands þriðjudaginn
21. mars, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
laugardaginn 1. apríl kl. 11.00.
Erla Guðmundsdóttir Gunnar Guðnason
Ólafur Þ. Guðmundsson Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Ingunn Guðmundsdóttir Sigurður Karlsson
Soffía Ólafsdóttir
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Óskar Vigfússon
Álfaskeiði 3, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn
31. mars kl. 15.00.
Nicolina Kjærbech Vigfússon
Valborg Kjærbech Óskarsdóttir
Óskar Ásbjörn Óskarsson Hjördís Ólöf Jónsdóttir
Ómar Óskarsson Erla María Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar,
Sólons Lárussonar
járnsmiðs og kennara.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu Reykjavík.
Ragnar, Gísli Grétar, Nella, Einar og Theodór Sólonsbörn
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
bróðir,
Knútur Kristján Gunnarsson
bólstrunarmeistari
andaðist í Lundi, Svíþjóð, 17. júní 2005. Útförin fer fram
frá Akraneskirkju mánudaginn 3. apríl kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á
Sjúkrahús Akraness.
Kristín Ólöf Marinósdóttir
Ragnar Már Knútsson
Gunnar Örn Knútsson
Elsa Björk Knútsdóttir
Rósa Knútsdóttir
Sigríður Knútsdóttir
Kristín Ólöf Knútsdóttir
Knútur Kristján Knútsson
Marinó Knútsson
Ragnar Gunnarsson
Erna Gunnarsdóttir.