Fréttablaðið - 30.03.2006, Qupperneq 54
54 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MARS
27 28 29 30 31 1 2
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
20.00 Keflavík og Skallagrímur
mætast í úrslitakeppni Iceland
Express-deildarinnar í körfubolta í
Keflavík. Þetta er þriðji leikur liðanna
en staðan í einvíginu er 1-1.
■ ■ SJÓNVARP
18.30 Súpersport á Sýn.
18.35 Inside the PGA á Sýn.
Golfþáttur sem bragð er að.
19.00 Gillette Sportpakkinn á
Sýn. Ferskur íþróttaþáttur.
19.25 Áfangastaður Þýskaland
á Sýn. Fylgst með leið Englands og
Trinidad og Tobago á HM 2006 sem
fram fer í Þýskalandi.
19.50 Keflavík og Skallagrímur
á Sýn. Bein útsending frá þriðja leik
liðanna í undanúrslitum Iceland
Express-deildar karla í körfubolta.
21.40 Saga HM á Sýn. HM 1958
sem fram fór í Svíþjóð.
23.40 Keflavík og Skallagrímur
á Sýn. Endursýning frá þriðja leik
liðanna í undanúrslitum Iceland
Express-deildar karla..
Mikið hefur gengið á hjá handknattleiks-
manninum unga, Arnóri Atlasyni, síð-
ustu vikur. Það byrjaði allt með því að
honum var tjáð af félagi sínu, Magde-
burg, að hans nærveru væri ekki óskað
næsta vetur og því mætti hann byrja að
leita sér að nýju félagi. Þótt hann ætti
ár eftir af samningi sínum við félagið
þá myndi Magdeburg ekki standa í vegi
fyrir honum fyndi hann sér nýtt félag.
Arnór hefur rætt við tvö þýsk úrvals-
deildarfélög á síðustu vikum en þau eru
samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
Lübbecke, sem Þórir Ólafsson leikur,
með og félag þeirra Einars Hólm-
geirssonar og Alexanders Peterssons,
Grosswallstadt.
„Ég er nú ekki til í að staðfesta hvaða
félög þetta voru en bæði sigla frekar
lygnan sjó í úrvalsdeildinni. Ég átti
ágætar viðræður við bæði félög en
hef ákveðið að setja öll mín mál í
smá biðstöðu þar sem Hildebrand,
framkvæmdastjóri Magdeburg,
hefur dregið í land með að
Magdeburg hafi ekki áhuga á að
nota mig og segist núna aldrei
hafa sagt nokkuð í þá áttina.
Þetta er alveg magnað,“ sagði
Arnór sem hefur átt ágætis
samstarf við þjálfarann sem
tók við af Alfreð Gíslasyni,
Ghita Licu, en liðið hefur
aðeins tapað einum leik undir
hans stjórn.
Licu hefur verið að gefa
ungu strákunum hjá félaginu
tækifæri og Arnór sér því fram á
að eiga ágætis möguleika á næstu
leiktíð fái Licu að halda áfram með
liðið en það skýrist væntanlega eftir
úrslitahelgina í bikarnum hver
hans örlög verða.
Arnór segir að verði Licu
áfram búist hann fastlega
við því að verða áfram hjá
Magdeburg. Ef ekki muni
hann ræða við arftaka
Licu áður en hann tekur
ákvörðun um framhaldið
og því sé biðstaða fram
undan. Arnór er annars
nýbyrjaður að hreyfa sig á
ný eftir aðgerð á liðþófa og
vonast til að vera með í undan-
úrslitum bikarsins sem fram fer
eftir tvær vikur.
ARNÓR ATLASON: FRAMKVÆMDASTJÓRI MAGDEBURG BÚINN AÐ SKIPTA UM SKOÐUN
Verð líklega áfram hjá Magdeburg
> Ekkert mótframboð
Guðmundur Ágúst Ingvarsson verður
væntanlega endurkjörinn formaður HSÍ
með lófaklappi á föstudag. Guðmundur
hefur lýst því yfir að hann sækist eftir
endurkjöri og eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst er ekki von á neinu mót-
framboði. Um tíma var talið að Ásgeir
Jónsson myndi taka slaginn við Guð-
mund en af því verður líklega ekki en
engu að síður er búist við því að Ásgeir
taki sæti í stjórn
HSÍ en einhverjar
breytingar verða
á stjórninni og
Pálmi Matthíasson
mun að sögn ekki
sækjast
eftir áfram-
haldandi
sæti í
stjórn.
FÓTBOLTI Danski framherjinn Allan
Dyring skrifaði í gær undir tveggja
ára samning við FH en hann kemur
frá Fredericia í heimalandi sínu.
Þá hefur varnarmaðurinn Peter
Matzen komið frá Vejle og skrifaði
hann undir eins árs samning en FH
hefur misst sterka leikmenn frá
síðasta tímabili.
Fyrirliðinn frá því í fyrra,
Heimir Guðjónsson, hefur lagt
skóna á hilluna og verður aðstoð-
armaður Ólafs Jóhannessonar
þjálfara eftir að Leifur Sigfinnur
Garðarsson fór til Fylkis. Nýi fyr-
irliðinn, Auðun Helgason, verður
ekki með í sumar eftir kross-
bandaslit og þá fór Allan Borg-
vardt til Viking í Noregi. Þá fór
Jón Þorgrímur Stefánsson í HK og
Dennis Siim hélt aftur til Dan-
merkur.
Í staðinn hefur FH nú fengið þá
Dyring og Matzen, auk Sigurvins
Ólafssonar frá KR. Þá endur-
heimtir liðið Davið Þór Viðarsson
sem hélt til Lokeren í Belgíu án
þess að ná að festa sig í sessi hjá
liðinu, aðallega vegna meiðsla.
„Mér líst mjög vel á mennina.
Ég sá Allan reyndar ekki spila en
við höfum mjög góð orð um hann.
Okkur leist vel á það sem Peter
sýndi á æfingum hjá okkur og
erum ánægðir með að fá hann.
Dyring er með góða tölfræði og
við fengum góðar upplýsingar um
hann,“ sagði Ólafur Jóhannesson,
þjálfari FH, við Fréttablaðið í
gær.
„Hópurinn okkar er fullmótað-
ur, mér líst mjög vel á hann. Við
erum ekki að leita að leikmönnum
en allir góðir leikmenn eru vel-
komnir í FH. Þó býst ég ekki við
því að neinn komi. Dennis Siim er
með samning í Danmörku og hefur
lýst yfir áhuga sínum að koma en
ég efast um að hann sé á lausu, ef
hann væri það myndi ég þó glaður
vilja fá hann í FH,“ sagði Ólafur.
„Dyring er öðruvísi leikmaður
en Borgvardt. Að sjálfsögðu verð-
ur talað um að hann eigi að fylla í
hans skarð en þannig er það í bolt-
anum að það kemur enginn alveg
eins leikmaður í staðinn fyrir
annan. Borgvardt stóð sig mjög
vel hjá okkur og ég vona að þessi
geri það líka. Þeir verða eflaust
bornir saman en þeir eru ekki eins
leikmenn og því er það kannski
óréttmætt,“ sagði Ólafur.
Matzen kom til æfinga hjá
Keflavík áður en FH fékk hann til
sín. „Við vissum af Matzen áður en
Keflavík fékk hann til sín. Hann
kemur tvímælalaust til með að
styrkja okkur,“ sagði Ólafur að
lokum.
hjalti@frettabladid.is
Íslandsmeistararnir eru komnir
með fullskipað lið fyrir sumarið
FH-ingar tryggðu sér í gær tvo danska leikmenn og þar með er sumarkaupum lokið í Kaplakrika. Íslands-
meistararnir hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku en hafa nú fyllt lið sitt af góðum leikmönnum.
KÁTIR Í KRIKANUM Það var stemning hjá Ólafi Páli, Allan Dyrin og Tómasi Leifssyni í gær en
Íslendingarnir skrifuðu undir nýjan samning við FH á sama tíma og Allan.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sýnt á NASA við Austurvöll
Miðvikudagur 12. apríl
Laugardagur 15. apríl
Miðvikudagur 19. apríl
Miðasala í síma 575 1550,
verslunum Skífunnar og www.midi.is
SÍÐU
STU
SÝN
INGA
R
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar
Keflavíkur taka á móti Skalla-
grími í þriðja leik liðanna í undan-
úrslitum Íslandsmótsins í körfu-
bolta í kvöld. Liðin hafa unnið sinn
leikinn hvorn á heimavelli en þrjá
leiki þarf til að komast í úrslitin.
Einar Bollason var enn að ná sér
niður eftir æsilegan sigur hans
manna í KR gegn Njarðvík þegar
Fréttablaðið fékk hann til að spá
fyrir um leik kvöldsins.
„Þetta verður rosalegur leikur
og ég er miður mín að komast ekki
á hann, en því miður hef ég öðrum
hnöppum að hneppa. Það hefur
ekkert komið mér á óvart í þessu
einvígi. Keflvíkingar eru þrefald-
ir Íslandsmeistarar og hafa alla
tíð farið langt á óbilandi sjálfs-
trausti. Þeir hafa snúið leikjum
við vegna þessa en þeir verða að
passa sig þar sem stutt er í dramb-
ið. Keflavík er með frábæran
þjálfara og frábæran leikmanna-
hóp og ég sé þá varla tapa leik
nema vegna síns eigin hugarfars.
Þeir gætu klúðrað þessu sjálfir,“
sagði Einar, en bætti við að hann
væri alls ekki að gera lítið úr
Borgnesingum.
„Skallagrímur er með frábært
lið og ég bað til Guðs að KR fengi
þá ekki í undanúrslitunum, ég er
mjög hrifinn af liðinu. Þeir eru
með marga mjög snjalla leikmenn,
frábæran Kana og miklar skyttur.
Valur er einnig góður þjálfari og
honum hefur tekist að búa til stór-
skemmtilegt lið. Axel Kárason er
til að mynda maður sem ég hef
lengi haldið upp á, hann er einn
vanmetnasti maður deildarinnar
og á að vera fyrir löngu kominn í
landsliðið,“ sagði Einar.
„Ég held að úrslit þessa einvíg-
is ráðist í þessum leik. Það er oft
sagt um fimm leikja einvígi að
úrslitin ráðist í þriðja leik en það
þarf auðvitað alls ekki að vera. En
það læðist að mér sá grunur að
það lið sem komist í 2-1 vinni ein-
vígið. Hvort liðið það verður er
mjög erfitt að segja til um,“ sagði
Einar sem spáir Skallagrímsmönn-
um sigri í leiknum og jafnframt í
einvíginu.
„Íslandsmeistararnir eru með
hefðina með sér en að sama skapi
er engin pressa á Borgnesingum.
Ég held að Skallagrímur hafi áttað
sig á því að Keflavík er alls ekki
óvinnandi vígi og með þá vitnesku
í farteskinu gegn Keflavík, þá
giska ég á að stóri bróður hafi
betur gegn litla bróður. Ég held að
Skallagrímur muni brjóta blað í
sögu körfuboltans nú í vetur,“
sagði Einar og vitnaði í þjálfara
liðanna, Val og Sigurð Ingimund-
arsyni. Valur er eldri og þjálfar
Skallagrím en Sigurður Keflavík
og því er fjölskyldustoltið einnig í
húfi í leiknum.
- hþh
Körfuboltaspekúlantinn Einar Bollason spáir í viðureign Keflavíkur og Skallagríms:
Stóri bróðir mun hafa betur
SKOTTILRAUN Sverrir Þór Sverrrisson reynir að skora gegn sterkri Skallagrímsvörn í fyrsta
leik liðanna sem Keflvíkingar unnu á heimavelli. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
Leikið heima og heiman
Ekkert verður af því að kvennalið Vals í
handknattleik kaupi útileikinn af rúm-
enskum andstæðingi sínum í undan-
úrslitum áskorendakeppni Evrópu. Fyrri
leikur liðanna fer því fram í Rúmeníu en
hinn síðari í Höllinni.
Hefur
sé› DV
í dag?
flú
Þrír fluttir á
sjúkrahús
á Króknum
í fl tti
j
DRYKKJUKEPPNI FÓR ÚR BÖNDUNUM
DV 2x10 29.3.2006 20:55 Page 1