Tíminn - 16.08.1977, Qupperneq 6

Tíminn - 16.08.1977, Qupperneq 6
6 Þriðjudagur 16. ágúst 1977 — Þori að veöja að hann er aö bjóða i mat. # — Hrjótið þér i svefni? # — Giftingar til hægri, skilnaðir vinstra megin. „Flóttamaðurinn” segir frá bernsku sinni - móðirin mótmælir frásögninni Hver man ekki eftir David Janssen, sem lék dr. Kimble i sjónvarpsþættinum ,,A flótta” — ranglega sakaður fyrir morð. David, sem leik- urium þessar mundir einka- spæjara i sjónvarpsmynda- flokknum „Harry O”, hefur komið miklum erjum af stað innan fjölskyldu sinnar og það frammi fyrir alþjóð, með þvi að láta mörg berleg orö falla um æsku sfna i sjón- varpsviðtali nýlega. David heldur þvi fram, að honum hafi verið fleygt inn á drengjahæli í barnsæku, vegna þess að móðir sin hafi ekki verið fær um að gæta sin sem skyldi. Er David var spurður að þvi, hvort barna- verndarnefnd hefði komið inn i málið, játaði hann þvi og sagði að nefndin hefði fellt þann dóm, að móðirin gæti ekki annazt hann og þess vegna hafi hann verið sendur á heimili fyrir drengi. Móðir Davids, Berniece Janssen fyrrverandi dansari, hefur aðra sögu að segja. Hún seg- izt ekki hafa trúað sinum eigin eyrum er hún heyrði ummæli Davids, vegna þess að hún telur sig hafa verið syni sinum góð móðir. Hún útskýrir málin á þann veg, að þegar David hafi verið 7 ára gamall hafi hún skilið við föður hans. Þau mæðginin fluttu þá til Kaliforniu, og þar sem hún hafi orðið að ganga undir erfiðan upp- skurð kom hún David fyrir á McKinley drengjaskólanum. Þarhafihann dvalizt I mesta lagi 6-7 mánuði á mcðan hún var að ná sér eftir uppskurð- inn, en alltaf komið heim til sin um hverja helgi. David fullyrðir aftur á móti, að McKinley hafi verið heimili hans i 4-5 ár.— Hvað i ósköp- unum hefurkomið honum til þess að segja allt þetta, end- ar móðir hans á því að segja. David hefur ekki gefið neitt út á þessi ummæli móður sinnar — svo sitt má hverj- um sýnast. David er fráskilinn, en hér birtum við mynd af honum og fyrrverandi eiginkonu hans — Dani Greco. Á hinni myndinni er hann með móð- ur sinni, en sú mynd mun að öllum likindum vera tekin er þau mæðginin voru sáttari við hvort annað en þau 'eru nú.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.