Tíminn - 26.08.1977, Qupperneq 3
Föstudagur 26. ágúst 1977
3
Nálega bylting í prentnámi á íslandi:
Grænlendingar vitja íslands:
25 konur í boðsferð og
2 nemar í búnaðarfræðum
Norrænt samband verksmiðjufólks:
Aðalfundur hald-
inn á Húsavík
GV-Reykjavik — Nordiska
Fabriksarbetarefederationen,
sem er samband 13 landssam-
banda verkafólks i Danmörku,
Finnlandi, Noregi, Sviþjóö og ís-
landi heldur aöaifund sinn á
Húsavfk i dag og á morgun. Fé-
lagsmenn innan þessa norræna
samband eru 397.794 talsins.
Aðalfundirnir eru haldnir til
skiptis i aðjldarlöndunum, og er
þetta i annað skipti, sem aðal-
fundur sambandsins er haldinn á
íslandi.
Fundinn sitja alls 35 fulltrúar,
þar af 10 frá Danmörku, 9 frá
Finnlandi, 6 frá Noregi, 6 frá
Sviþjóð og 3 frá tslandi. Aðal-
fundarfulltrúarnir munu ásamt
mökum sinum, ferðast til Mý-
vatns á laugardag og til Akureyr-
ar á sunnudag, en heim halda þeir
á mánudaginn.
Iðnskólinn fær nýja
offsetvél til umráða
áþ-Reykjavfk.— 1 fyrradag var
Iðnskólanum i Reykjavik afhent
ný offsetvél, en með tilkomu
hennar gjörbreytist kennsla
nema i prentiðn hér á landi.
Þarna er um að ræða
Planeta-Brillant vél frá Aust-
ur-Þýskalandi. Vegna atorku
verzlunarfulltrúa sendiráðsins
fékkst vélin á hálfvirði og einnig
sendu þjóðverjar menn hingað
til lands til að setja vélina upp.
Eftir er að koma fyrir ýmiss-
konar tækjabúnaði, og á hafnar-
bakkanum i Reykjavik biður
hluti búnaðarins. Stefnt er að
þvi, að allt verði tilbúið fyrir
fyrsta stepember. í ár verður
námsefni nemendanna gjör-
breytt og verður mjög svipað
þvi, sem gerist á hinum Norður-
löndunum.
— Hingað til hafa nemar i
Iðnskólanum aðeins fengið
kennslu i hæðarprenti, en núna
kemur offsetprentun, bókband
og ljósmyndun i námsskrána,
sagði Öli Vestmann kennari við
Iðnskólann i samtali við Timann
i gær. — Við fengum sérstaka
fyrirgreiðslu hjá verzlunar-
fulltrúa Austur-Þjóðverjanna,
og afhenti hann vélina i gær.
Þetta er offsetprentvel af
Planeta gerð. Vélin er mjög
fullkomin, og er hún framleidd
hjáeinniraf elztuverksmiðjunum
i þessari grein. Vélin gjörbreytir
kennslu i bókiðnaðinum, þvi
offsetið ryður sér meir og meir
til rúms. Við fengum vélina á
hálfvirði, og er það verzlunar-
fulltrúanum að þakka. A
Framhald á bls. 2 3.
F.I. Reykjavik. — Komur
Grænlendinga á vegum Bún-
aðarfélagsins hafa verið heldur
tregar I sumar og kemur margt
til. Póstsamgöngur hafa gengið
mjög erfiðlega, bréf eru jafnvel
margar vikur á leiðinni og rit-
símaþjónusta hefur engin verið
á Grænlandi nú upp á siðkastið.
Aðeins tveir til þrir menn, sem
ég hef haft milligöngu um, hafa
komið hingað til lands, sagði
Gisli Kristjánsson hjá Búnaðar-
félagi tslands, þegar Timinn
innti hann eftir ferðum Græn-
lendinga til íslands í sumar.
En Gisli minnti ennfremur á,
að þann 5. september n.k., væru
væntanlegar á vegum Kven-
félagasambands Islands 25
grænlenzkar konur, en eins og
menn muna kannski, þá bauð
Kvenfélagasamband Islands
einni grænlenzkri konu i fyrra á
norrænt kvenfélagasambands-
þing i Reykjavik.
Tveir nýir grænlenzkirnemari
landbúnaðarfræðum eru og
væntanlegir i haust, en hér á
landi ljúka grænlenzkir búfræð-
ingar alltaf lokaprófi.
Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum árum, er hingaö kom hópur Grænlendinga á kynnisferð.
Arsþing A.T. A.
sett 1 dag
170—180 erlendir þátttakendur
Góður loðnuafli:
80 þúsund tonn,
fita mest
gébé Reykjavik — Loðnubátarnir
hafa aflað vel að undanförnu, og
er heildaraflinn nú orðinn rétt
rúmlega áttatiu þúsund Iestir.
Loðnumiðin eru enn á svipuðum
slóðum og áður, eða út af Vest-
fjörðum, en einnig munu þrír bát-
ar hafa verið við veiðar á austur-
svæðinu, eða við Kolbeinsey.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins i gær, er það einmitt loðna frá
austursvæðinu, sem hefur mesta
fituinnihald eða allt að 19,4%.
Feitasta loðnan, sem veiddist á
sumarvertíðinni i fyrra var þó
örlitiö feitari, eða 20,8%.
Fituinnihaldið i loðnunni er
veiðist út af Vestfjörðum er svip-
að og áður, en bilið þó breiðara.
19,4%
Hefur hún mælzt vera 15-18%.
Alls hefur Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins borizt um 180
loðnusýniá þessari vertið, en sem
kunnugt er, er verið ákvarðað af
fituinnihaldi loðnunnar.
Um kl. 18 i gær, höfðu niu skip
tilkynnt loðnunefnd um 5.220
tonna afla frá miðnætti á mið-
vikudag. Sólarhringinn áður
fengu alls átta skip 2.780 tonn.
— Þegar svona kippir koma i
veiðina, verður nokkuð örðugt
með löndun og t.d. biða einhverjir
bátar á Siglufirði eftir aö komast
að. Aðrir bátar fóru á Faxa-
flóahaf nir og einnig var vitað um,
að Sigurður RE væri á leið til
Vestmannaeyja með afla, sagði
Andrés Finnbogason hjá loðnu-
nefnd i gær.
Verzlunarfulltrúi þýzka alþýðuveldisins, Alfred Muhlmann afhendir Sveini Sigurðssyni,
skólastjóra Iðnskólans, nýjuoffsetvélina.
MÓL-Reykjavik. — Það munu
hátt i 250 manns sitja þingiö og
þar af um 170 til 180 útlendingar,
sagði Jón Hákon Magnússon,
blaðafulltrúi 23. ársþings A.T.A.,
sem haldið verður á Hótel Loft-
leiðum um helgina.
— Þingið verður sett kl. 14.30 á
morgun, sagði Jón, er Timinn
ræddi við hann i gær. Þar flytja
ávörp Guðmundur H. Garðarss-
on, formaður islenzku samtak-
anna, Geir Hallgrimsson, for-
sætisráðherra, dr. Joseph Luns,
frkv.stj. Atlantshafsbandalags-
ins, Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra, H.F. Zeiner Gunder-
sen, norskur hershöfðingi og for-
maður hermálanefndar NATO,
Isaac C. Kidd, flotaforingi og dr.
Karl Mommer, forseti A.T.A.
— Þingið mun svo standa yfir
alla helgina og fram á hádegi á
mánudag, en þá munu erlendu
gestirnir sumir hverjir fara i
skoðunarferðir um nágrenni
Reykjavikur.
A.T.A. er skammstöfun fyhrir
Atlant.ic Traty Association, sem
eru samtök áhugamanna um
NATO og vestræna samvinnu.
FBMNAR ÁRÆDDU EKKI
í JÓN OG GUÐLAUGU
— í 2. umferð telex-keppmimar
MÓL-Reykjavik. önnur umferð
telex-OIympiumótsins verður
tefld sunnudaginn 4. september
n.k. og tefla íslendingar þá við
Finna, en þetta er úrsláttar-
keppniog einungis átta þjóðir eru
eftir i henni.
Skáksamband Islands hefur
valið tiu skákmenn til að taka
þátt i keppninni, en teflt er á átta
borðum. I fyrstu umferð, þegar
Island keppti við England, var
keppt i kvenna- og unglingaborði,
sem var samkomulagsatriði, en
Finnar eru ófúsir að hafa þann
háttinn á nú. Sennilega er ástæð-
an sú, segir i frétt frá Skáksam-
bandi tslands, að íslendingar eiga
Norðurlandameistarana i báðum
greinum, þau Guðlaugu Þor-
steinsdóttur og Jón L. Arnason.
Sveitin sem hefur verið valin,er
skipuð eftirtöldum mönnum:
1. borð: Friðrik Ólafsson,
stórmeistari
2. borð: Guðmundur Sigurjóns-
son, stórmeistari
3. borð: Ingi R. Jóhannsson,
alþjóðl. meistari
4. borð: Jón L Árnason, tslands-
meistari
5. borð: Helgi Ólafsson, Reykja-
vikurmeistari
6. borð: Margeir Pétursson
7. borð: Ingvar Ásmundsson
8. borð: Magnús Sólmundarson
Varamennn verða þeir Björgvin
Viglundsson og Bragi Halldórs-
son.
Viðureignin við Englendinga
fór fram 30. april s.l. og lauk
henni með jafntefli 4:4 en tslend-
ingar unnu á stigum. 2. umferðin
verður tefld sunnudaginn 4. sept.
eins og áður greinir og hefst hún
kl. 9 árdegis, en teflt verður til
klukkan 5, eða i átta klukkustund-
ir. Teflt verður i samkomusal Út-
vegsbanka tslands við Lækjatorg
(gengið inn frá Hafnarstræti) og
verður þar rúm fyrir nokkurn hóp
áhorfenda.
Þær viðureignir, sem koma til
með að vekja mesta athygli i
þessari umferð, er milli V-Þýzka-
lands og Sviþjóðar, svo og milli
tslands og Finnlands, þó landinn
séöllusigurstranglegri. Rússland
teflir við Ástraliu, þ.e. sterkasta
og veikasta sveitin. Þá teflir Hol-
land við Portúgal og ætti
fyrrnefnda sveitin, með góðkunn-
ingja okkar Timman i farar-
broddi, ekki eiga i miklum erfið-
með Suður-Evrópubúana.
Joseph Luns, framkvæmdastjóri
NATO.
Aðildarrikin eru 14 og hér á landi
eiga Samtök um vestræna sam-
vinnu aðild að A.T.A. Þetta er 23.
ársþing samtakanna og hið
fyrsta, sem er haldið hér á landi.