Tíminn - 30.08.1977, Blaðsíða 21

Tíminn - 30.08.1977, Blaðsíða 21
Þriöjudagur 30. ágúst 1977 21 íþróttir Erfitt 14 tíma ferðalag til Hollands: Langfer ðabíls tj óri rataði ekki á vegum Belgiu og Hollands — „Erfiðasti áfanginn er yfirstiginn” sagði Jens Sumarliðason Heimsmeistara- keppnin í knattspyrnu Það voru þreyttir landsliðs- menn i knattspyrnu sem stigu út úr langferðabíl sinum i Hoilandi á sunnudagskveldi eftir 14 tima erfitt ferðalag frá Keflavikur- flugvelli. Nokkrar tafir urðu á ferðaiaginu frá tsiandi til Lúx- emborgar vegna verkfalls ensku flugumferðarstjóranna, en þegar komið var til Lúxem- borgar var ekið til Hollands gegnum Belgiu og þurftu lands- liðsmenn okkar að þvælast með langferðabil i átta tima og var það mest því að kenna að bif- reiðastjórinn átti i erfiðleikum með að rata um vegi Belgiu og Hollands. — Ég vil nú segja, að erfiðasti áfanginn sé yfirstiginn sagði Jens Sumarliðason, i stuttu spjalli við Timann i gær. Jens var mjög ánægður með dvalar- stað landsliðsins, sem er á mjög skemmtilegum stað stutt fyrir utan Nijmegen. — Við hefðum ekki getað fengið betri dvalar- stað, sagði Jens. Eins og kemur fram hér að of- an, er Jens ekki smeykur við landsleikina við Holland og Belgiu, þvi hann segir að erfið- asti áfangi ferðarinnar sé yfir- stiginn. Landsleikurinn gegn Hollandi fer fram á miðviku- dagskvöldið á velli sem tekur um 30 þúsund manns i sæti. Hol- ■ lendingar reikna með að milli 15 I og 30 þúsund áhorfendur komi á leikinn. * Rensenbrink ekki með I Hollendingar hafa valið 16 I manna landsliðshóp sinn og var " Rob Rensenbrink, hinn frábæri leikmaður, sem leikur með I belgiska liðinu Anderlecht, ekki I valinn i hópinn. Astæðan fyrir þvi er að hann hefur átt við meiðsli að striða og ■ hefurhann ekki leikið tvo siðustu I leikina með Anderlecht liðinu I I Belgiu sagði Asgeir Sigurvins- ■ son. SOS Asgeir skoraði | tvö glæsimörk i — þegar Standard Liege vann stórsigur (4:0) í belgísku bikarkeppninni trú á þvi, aö landsliðið muni . standa sig I leikjunum gegn Hol- I landi og Belgiu. Hann sagði aö sá I timi væri liðinn, að við þyrftum I að óttast mikla ósigra. Landsliðið hefuröðlastgóða reynslu gegnum I árin og leikmennirnir, farnir að I þekkja all vel hvorn annan og I orðnir góöir vinir. Guðgeir Leifsson tók i sama . streng og sagði, að óneitanlega I væri það hagur Islands að þeir I Johan Cruyff, Johan Neskens og I Rob Rensenbrink skyldu ekki leika með hollenzka liðinu. Þessir I menn hafa verið lykilmenn hol- I lenzka liðsins undanfarin ár, I sagði Guðgeir. — Landsleikirnir gegn Hollandi og Belgiu leggjast ágætlega I mig, og hef ég trú á því að við stöndum okkur, sagði Asgeir Sigurvinsson er hann kom frá Belgíu á sunnu- dagskvöldið, en með honum komu einnig þeir Marteinn Geirsson og Guðgeir Leifsson. Ásgeir var i eldlinunni á sunnu- daginn, en þá vann Standard Liege stórsigur, 4:0 yfir Bornon i belgisku bikarkeppninni og skoraði hann tvö af mörkum liös- ins. — Ég skoraði fyrra markiö með skalla en það síðara með ágætu langskoti, sagði Asgeir. Marteinn Geirsson og félagar hans hjá Royal Union unnu einnig sigur i bikarkeppninni (3:1). Marteinn Geirsson Asgeir Sigurvinsson Marteinn sagði, að hann væri mjög ánægður að hitta strákana i landsliðinu og sagðist hann hafa Sigmundur O. Steinarsson skrifar frá NIJMEGEN í Hollandi Tony Knapp sést hérna stjórna landsliðinu á æfingu f Reykjavik. Hann stjórnaði fyrstu æfingunni i gær i Hollandi og tvær æfingar verða hjá landsliðinu i dag. Knapp hefur nóg að gera Teitur Þórðarson Teitur og Matti mættir til leiks — en þeir fengu hins vegar ekki frí til að leika gegn Belgíu Teitur Þórðarson og Matthias Hallgrimsson komu hingað til Hollands frá Sviþjóð I gær og fóru þeir beint á æfingu lands- liðsins. Þeir Teitur og Matthias fengu leyfi frá liðum sínum til að leika með landsliðinu gegn Hollandi, en sfðan verða þeir að vera mættir til Svlþjóðar, þar sem þeir eiga að leika með lið- um sinum um helgina. — Auðvitað er það leiöinlegt að geta ekki verið með lands- liðshópnum, þegar farið \ ■írður til Belgiu, sagði Teitur Þóiðar- son viö komuna til Hollar.ls. Allir leikmenn islenzka lanot- liðsins voru þá mættir til leiks nema Jóhannes Eðvaldsson og er hugurinn mikill hjá strákun- um. Þeir eru ákveðnir aðselja sig dýrt i þeim erfiöu landsleikj- um, sem framundan eru. SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.