Tíminn - 31.08.1977, Qupperneq 3
Miövikudagur 31. ágúst 1977
3
Hætta verður
yfirborgunum
KEJ-Reykjavik — „Það er ekki
rétt, sem haft er eftir Þóröi ólafs-
syni, formanni verkalyösfélags-
ins hér í Þorlákshöfn, aö ekki hafi
verið haft neitt samráö við verka-
lýösfélögin út af stöövun frysti-
húsanna. Við héldum fund meö
þeim á Selfossi og geröum grein
fyrir þvi aö viö neyddumst til aö
stööva reksturinn. Það var siöan
aö ráöi verkalýösmanna, að
ákveðið var að segja ekki upp öllu
starfsfólki, heldur aðeins hluta
þess”, sagöi Páll Andreasson,
framkvæmdastjóri Meitilsins i
Þorlákshöfn, i samtali viö blaðiö i
gær.
Þá sagði Páll, að ástæðan fyrir
þvi aö nú væri unniö að breyting-
um i húsi félagsins væri tviþætt,
að hafa eitthvað að gera fyrir
mannskapinn, sem ekki hefur
verið sagt upp, og að koma á
þeirrihagræðingu sem unnt væri,
þrátt fyrir að þeir hefðu engin
efni á þessum framkvæmdum og
þá ekki að borga fólkinu laun.
Sagði Páll, að sjálfsagt kysi
verkalýðsforinginn að öllum yrði
sagt upp og öll vinna lægi niðn.
Hjá Meitlinum er nú unnið a
vélaverkstæði,i mjölbrseðslu og
saltverkun, auk þess sem fasta-
fólk i frystihúsinu heldur enn
launum.
Páll sagði, að vafalaust mætti
margt betur fara i rekstri frysti-
húsanna en það réði þó ekki úr-
slitum i þessum efnum. Ástæöan
fyrir þvi að frystihúsin fara hall-
oka fyrir frystihúsum annars
staðar á landinu sagði Páll, aö
væri breytilegt hráefni, mikiö af
karfa og ufsa, yfirborganir sem
yrði að stöðva,langt væri að sækja
á miðin og stopult hráefni. Taldi
Páll að ekki væri nokkurt réttlæti
að bera þetta saman við t.d. Vest-
firðina, þarsemyfirleitter miklu
styttra á miðin og aflinn nær allur
þorskur. Auk þess þekktust þar
ekki yfirborganir á fiski, sem Páll
kvað ekki ná nokkurri átt, enda
væri hráefniskostnaðurinn allt of
mikill fyrir og raunar fiskverðinu
fremur um aö kenna en launum
starfsfólks frystihúsanna, hversu
illa reksturinn gengur nú.
Gengissamræmingin, sem varð
i gær, sagði Páll, að hefði ekkert
að segja i vanda frystihúsanna.
Þá sagði hann, að gengisfelling 1
meira mæli væri aðeins gálga-
festur og jafnvel likleg til að
auka aðeins á ójöfnuðinn. Hitt
kvað hann lifsnauðsynlegt að
finna einhverja úrlausn á málinu,
og fyrsta skrefið væri sennilega
að koma alveg i veg fyrir yfir-
borganir á hráefni. Sagði hann,
að Þjóðhagsstofnun væri nú að at-
huga málið og ekkertyrði ákveðið
fyrr en niðurstöður þeirrar rann-
sóknar lægju fyrir.
veiðihornið
Ytri-Laxá
— Veiðin er nokkru betri en i
fyrra og hefur lax veiðst fyrir
ofan nýja stigann sem byggður
var 1975, sagði Ámi Jónsson á
Sölvabakka i samtali við Veiði-
hornið. — Hins vegar virðist
stiginn vera svolítið gallaður og
sennilega vantar eitt þrep i
hann, þvi fiskur safnast saman
fyrir neðan hann.
Arni sagði að niu laxar hefðu
veiðzt fyrir ofan stigann, en
samtals hafa veiðzt60 til 70 lax-
ar i ánni i sumar. Fyrsti laxinn
fyrir ofan stiga veiddist um
mánaðamótin júli-ágúst,
— Hvortog hvenær farið verð-
ur i viðgerð á stiganum veit ég
ekki, en það gefurauga leið að
það þýðir ekki að byggja fjög-
urra milljón króna stiga og láta
aðeins vanta herzlumuninn á að
hægt sé að nota hann, sagði
Arni. — Það eru tvær stangir nú
iánni, en þegar veiði vex verður
aö sjálfsögðu hægt að fjölga
þeim. Þegar svæðið fyrir ofan
stigann opnast aukast að mun
þeir möguleikarsem við höfum.
1 Veiðihorninu i fyrra var það
haft eftir Arna, að veiðifélagið
Flúðir hefði byggt stigann, sem
hann minntist á.Það er ekki rétt
með farið. Landeigendur
byggðu hann, en Flúðir hefur
unnið mikið við ræktun i ánni.
Laxá i Aðaldal.
Síðasti veiðidagurinn i Laxá i
Aðaldal er i dag. Að sögn Helgu
Halldórsdóttureru um 1800 lax-
ar komnir á land. A sama tima i
fyrra voru rétt um 1300 laxar
komnir á land og til gamans má
geta þess, aö 2. september 1975
höföu 1412 laxar veriö komnir á
land.
— Þyngsti laxinn sem veiðzt
hefur i sumar er 23 pund, sagöi
Helga. — Eftir þvi sem veiði-
mennirnir segja mér, þá er áin
frekar vatnslitil,
Helga sagði, aö laxinn væri
frekar smár og meöalþyngd
verður þvi ekki eins góð og i
fyrra, en þá var hún 10.2 pund.
1 gær voru Akureyringar að
veiða i Laxá, og þegar Helga
taldi þá upp mátti heyra nöfn
eins og Jóhann Kristjánsson,
en hann er meö afkastameiri
laxveiðimönnum á Akureyri.
Mikið hefur komið af 6 og 7
punda löxum á land i sumar úr
Laxá.
Elliðaárnar
Friðrik hjá Stangaveiðifélagi
Reykjavikur sagði Veiðihorninu
að það væru komnir eitthvað um
1020 til 1030 laxar. Að meðaltali
fást úr Elliðaánum um fimmtán
laxar á dag. Stærstu laxarnir,
sem hafa fengizt i sumar vógu
sextán pund hvor um sig. Annar
fékkst 10. ágúst i Neðri-Móhyl á
Blue Charm flugu og var það
Kristján Smith að verki. Hinn
stóri laxinn fékkst rétt eftir opn-
un.Þaö varhængur sem fékkst i
fossinum svo hafa veiðzt nokkr-
ir 15 punda laxar. Veiðin er tals-
vertlakari eni fyrra, en þá voru
komnir á land á sama tima tals-
vert yfir 1300 laxar.
Friðrik sagði að veiði hefði
verið allsstaöar dræm að
undanförnu á Suðurlandi, en
vatnið hefur verið óvenju súr-
efnisdauft, en nú um sl. helgi
hefur eitthvað rótazt upp i án-
um. Þannig tiltók Friðrik
Grimsá, en hún hefur verið dauf
þar til nú rétt fyrir skömmu að
hún tók einhvern kipp.
Laxá i Dölum.
Þá hafði Veiðihornið samband
við Helga Jakobsson veiðivörð
við Laxá i Dölum. Helgi sagði
okkur að veiöin væri fremur
dræm og eru rétt um 300 laxar
komnir á land. Meðalþyngd
taldi hann vera um 9 pund, en
þeir þyngstu eru rétt um 14
pund. Nú veiðir forstjóri Pepsi
Cola i Bandarikjunum í ánni, og
sagði Helgi hann hafa komið
galvaskan með tvo laxa fyrir
hádegi.
— Ain er i miklum vexti, sagði
Helgi, — og erfitt að veiða. Þá
snjóaöi hér i fjöll i morgun og
tekur laxinn ekki vel i kuldan-
um. Lengi vel var veiðin dræm
vegna þurrka og litils vatns i
ánni, en nú hefur sem sagt skipt
yfir.
Sá stærsti sem hefur komið á
land, vóg 18pund, en Helgi kvað
veiðina ætla að verða nokkru
minni en i fyrra. Hins vegar
gæti vel oröið breyting á i þeim
málum, ef siðustu vikurnar
yrðu betri hvað veðurlag snert-
ir.Siðastiveiðidagurinn iLaxá i
Dölum er 20. september. — áþ
Gaulverjabær i Flóa. Ljósmynd: Páll Jónsson
Fréttir úr Gaulverjabæjarhreppi:
Von til, að síma-
martröðinni í
Flóanum linni
SJ-Reykjavik — 29. ágúst var
höfuðdagurinn og var þaö álit
margra áður fyrr að veðra -
breytingar væri von um
höfuðdagsleytið sagöi Stefán
Jasonarson, fréttaritari Timans i
Vorsabæ þegar hann heimsótti
ritstjórnarskrifstofur okkar i vik-
unni. — Ég hef heyrt aldraða
inenn segja það nú, að siðasta
höfuðdagsár hafi verið eitthvert
það bliðasta og bezta hér um slóö-
ir á þessari öld og jafnvel meiri
og betri hey á Suðurlandi nú en
oftast áður.
— 1 minni sveit eru mikil og góö
hey sagði Stefán, og má segja að
þurrkdagarnir i byrjun ágúst hafi
skipt sköpum um magn heyfengs-
ins.
Hófleg væta og hlý veörátta aö
undanförnu hafa örvað sprettu i
görðum og graslendi og bætt upp
fremur hart vor.
Að loknum heyönnum gafst tóm
til að „slappa af” og allmargir
bændur fóru i sumarfri með fólki
sinu. Jafnvel eru dæmi þess að
búandfólk i sókninni hafi skroppiö
út fyrir pollinn.
Nú i vikunni hefur kvenfélagið
ákveðið hópferð inn á Hveravelli.
Skemmtileg nýbreytni var það
siðast þegar messað var i Taul-
verjabæjarkirkju, að sóknar-
presturinn sr. Valgeir Astráðs-
son, kom riðandi til kirkjunnar
ásamt 30-40 hestamönnum frá
Eyrarbakka og Stokkseyri. Eftir
messu fjölmenntu hesta-
mennirnir i félagsheimilið og
fengu kaffi hjá kvenfélagskonum.
þannig var i ferðinni séð um bæði
andlegar og likamlegar þarfir
ferðafólksins.
— Fyrst ég er farinn aö segja
fréttirúrsveitinnivilég geta þess
að simasamband hér i hreppnum
er frámunalega lélegt um þessar
mundir.Það er aö sjálfsögðu ekki
nema gott eitt að segja um af-
greiösluna i simstöðinni i Gaul-
Framhald á bls. 19.
Frá Masanga i Ljónafjöllum.
Tveir íslendingar
við störf meðal holds-
veikra í Ljónafjöllum
Sjöunda dags aöventistar hafa
með höndum öflugt hjálparstarf
fyrir þróunarlöndin og þau land-
svæði sem hart veröa úti vegna
náttúruhamfara. Hjalparstarfið
hefur mörg járn i eldinum viöa
um lönd um þessar mundir.
Akvörðun hefur verið tekin um
að hjálpa Afrikurikinu Chad til að
kenna bændum betri landbúnaö-
arhætti. Hjalparstarfið mun veita
sem svarar 50 milljónum isl.
króna til að kenna áveitutækni i
þurrkasvæöinu Shael 1 Chad. Þrir
starfsmenn á vegum hjálpar-
starfsins annast þjálfun 150
bænda nálægt bænum Ndjamena.
Notuð er tæki sem bændurnir geta
aflaö sér, s.s. vatnsdælur, sem
uxar snúa og plógar og er vatni
veitt úr Chariánni til þurra en
frjósamra landa um 100 km frá
þurrasta hluta Sahel-eyðimerkur.
Aætlun þessi kom til fram-
kvæmda á siðasta ári. A regntim-
anum verður ræktaöur mais og
hrisgrjón, en kartöflur, hveiti og
grænmeti á hinum langa þurrka-
tlma. Eftir fjögur ár mun hjálp-
arstarfið leggja þetta ræktunará-
form undir samvinnustjórn
bændanna. Þetta er langtimaá-
ætlun um aö fæöa hungrað fólk á
Shad-svæðinu.
1 Afriku eru þúsundir holds-
veikra manna og njóta þeir litill-
ar aðhlynningar. Hjalparstarf að-
ventista rekur holdsveikra-
sjúkrahúsið Masanga I Sierra Le-
one, og er það eina sjúkrahúsiö i
þvi landi, sem sinnir holdsveik-
um. Holdsveiki er hræðilegur
sjúkdómur og enn hræöilegri
vegna fákunnáttu fólksins.
Starfsfólk sjúkrahússins fer um
nærliggjandi héruö til að láta
fólkinu i té fræðslu um orsakir og
eöli sjúkdómsins. Við sjúkrahúsið
starfa tveir lslendingar, Eric,
sjúkraþjálfari og Harri læknir,
báðir synir Júliusar Guðmunds-
sonar fyrrv. forstöðumanns að-
ventista á tslandi. Þetta eru að-
eins tvö dæmi um það sem hjálp-
arstarf aðventista er aö vinna að.
Mörg verkefni eru á döfinni.
Fjársöfnun stendur yfir hér á
landi vegna hjálparstarfsins
fram til septemberloka. Þeir sem
safna á vegum hjálparstarfsins
hafa meöferöis sérstök kynn-
ingarblöð og innsöfnunarlista.