Tíminn - 31.08.1977, Page 9
Miövikudagur 31. ágúst 1977
9
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur
Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og
auglýsingar Sföumúla 15. Simi 86300. Verð í lausasölu kr.
70.00. Askriftargjald kr. 1.300 á mánuöi.
BlaOaprent h.f.
Er allt með
felldu?
Þegar er fréttir bárust af óstöðugleika i gengis-
málum Norðurlanda var það ljóst að slikt myndi
hafa áhrif á stöðu islenzku krónunnar og sam-
keppnisaðstöðu útflutningsgreinanna. Vegið
meðalgengi islenzkrar krónu hefur nú verið lækk-
að um 1,7% til samræmis við danska og norska
gjaldmiðla, þannig að aðstaða islenzks útflutn-
ings á ekki að versna t.d. i fisksölusamkeppninni
við Norðmenn.
Ætla má að óhagstæðum áhrifum gengisbreyt-
inganna á Norðurlöndum sé með þessu bægt frá
bajardyrum Islendinga. Það var reyndar þegar
áður ljóst, að gengisfelling út af fyrir sig myndi
ekki leysa þann vanda sem upp virðist kominn i
hraðfrystiiðnaðinum. Atburðirnir i frystihúsun-
um nú undanfarna daga hafa vakið mikla athygli,
en öll ástæða er til að ætla að þar þurfi til aðrar
aðgerðir.
Ástæður þess vanda sem kominn er upp i hrað-
frystiiðnaðinum á Suður- og Suðvesturlandi virð-
ast mismunandi. í fyrsta lagi er um að ræða hrá-
efnisskort, sem meðal annars hefur leitt til þess
að frystihúsin hafa neyðzt til að beita yfirboðum
til að fá afla til verkunar. Að nokkrum hluta mun
þessi hráefnisskortur til kominn vegna friðunar-
aðgerða, og gerðu menn sér að sjálfsögðu frá
upphafi grein fyrir þvi að til sliks gæti komið. í
öðru lagi hafa ákvarðanir um fiskverð einstakra
tegunda miðazt við það að auka sókn i þær fisk-
tegundir, sem standa betur að vigi en t.d. þorsk-
urinn, en frystihúsin fá ekki meira verð fyrir
þessar fisktegundir á mörkuðum erlendis þó að
flotanum sé ætlað meira verð fyrir þær.
Að sönnu hafa frystihúsin á þessu timabili orðið
að taka á sig margvíslegar kostnaðarhækkanir af
erlendum sem innlendum toga, en almenningur
leggur ekki trúnað á að vinnulaun skipti mestu i
þvi efni. Svo hátt er kaupgjaldið ekki i fiskvinnslu
nema siður væri.
Loks virðist það ljóst, að hraðfrystiiðnaðurinn
á Suður- og Suðvesturlandi hefur dregizt aftur úr
samanborið við framvinduna annars staðar á
landinu á undanförnum árum. Á sinum tima lað-
aðist fjármagn til þessa landshluta, en þegar frá
liður kemur i ljós, að arðsemi fyrirtækjanna er
ekki með þeim hætti að þau geti öll staðið á eigin
fótum. Við þetta bætist samkvæmt nýlegum upp-
lýsingum, að i rekstri þessara fyrirtækja er ekki
gætt þeirrar nýtni og sparsemi sem annars stað-
ar er fyrir hendi. Skrifstofukostnaður er þannig
tæplega helmingi meiri i fiskverkunarfyrirtækj-
um á þessu svæði en t.d. á Vestfjörðum.
Hér standa forráðamenn hraðfrystihúsanna
þvi greinilega að nokkru frammi fyrir vanda sem
þeim ber sjálfum að leysa.
Almenningur hefur fylgzt með þvi, að gengi
hraðfrystiiðnaðarins hefur verið mjög gott á sið-
ustu árum og fram á þetta ár. Alþýðan i landinu
spyr þvi nú hvað hafi orðið af öllum þeim ábata.
Fólkinu verður ekki sagt að almannasjóðir eigi
fortakslaust að bera tapið þegar hagnaði er ráð-
stafað hömlulaust á annan veg i góðum árum.
Þaðer hlutverk áætlunarbúskapar og almanna-
sjóða að styðja heilbrigt framtak einstaklinga og
samtaka til sjálfsbjargar.en ekki að standa til
lengdarundir óarðbærum fyrirtækjum. 1 undir-
stöðugreinum þjóðarbúsins verður allt að vera
með felldu.
__ &
Fengu ókeypis
auglýsingu
Kynþáttahatarar í Bretlandi gripa
til ofbeldisverka
MIKLAR ÓEIRÐIR brutustut
I London I fyrrakvöld, þegar
árlegri kjötkveöjuhátiö þar-
búandi Vestur-Indiubúa lauk.
Segir i fréttum frá Bretlandi,
aö um 200 þúsund manns hafi
tekiö þátt i hátiöinni aö þessu
sinni og lögreglan hafi hand-
tekiö á þriöja hundraö manns I
götubardögum.
Þessir atburöir rifja óheit-
anlega upp fyrir mönnum
árekstrana, sem uröu I ööru
hverfi i London svo og i
Birmingham fyrir hálfum
mánuöi, þegar átök uröu milli
andstæöinga litaöra innflytj-
enda i Bretlandi annars vegar
og stuöningsmanna þeirra
hins vegar. Aö vissu marki má
lita á atburöina s.l. mánu-
dagskvöld sem svar þeldökkra
i Bretlandi gegn auknum
áróöri brezkra nazista, sem
vilja losa landiö viö innflytj-
endur fra Asiu- og Afrlkulönd-
um.
REYNDAR VIRÐAST fjöl-
miölar i sumar yfirleitt hafa
gefiö fréttum af ný-nazistum
og fasistum meira rúm og
meiri tima en oft áöur. Sem
dæmi um fréttir af þessum
félagsskap má nefna auglýs-
ingu bandariska nazista-
flokksins, sem vakti mikla at-
hygli, en hún var þess efnis aö
hver hvitur maöur, sem færöi
flokknum höfuö svarts „af-
brotamanns” fengi jafnviröi
40 þúsund Isl. króna fyrir vik-
iö. Þá má nefna þýzka kvik-
mynd um Hitler, sem hefur
fengiö metaösókn, en um 500
þús. Vestur-Þjóöverjar sáu
hana fyrsta sýningamánuöinn
og létu sig ekki muna aö
standa langtimum saman I
biörööum til aö fá aö sjá þessa
„heimildamynd” um Hitler.
Þykir myndin draga nokkuö
taum Hitlers og hefur hún orö-
iö tilefni mikilla blaöaskrifa i
Þýzkalandi r I sumar. Enn
mætti nefna vaxandi vel-
gengni ný-nazista I Þýzka-
landi og á Italiu
ÞESSUM FRÉTTUM ber þó
aö taka meö nokkurri gagn-
rýni, þvi fylgi þessara flokka
hefur trúlegast ekki aukizt I
sama hlutfalli og aukning
fréttanna. Rök má leiöa aö
þvl, aö hér sé frekar um
auglýsingaherferö aö ræöa — »
hálfgert hálmstrá» er fran}- *
Frá árekstrunum I Bretlandi
I mánuöinum
tiöarhorfur eru óglæsilegar.
Sem dæmi um þetta er ágætt
aö lita á starfsemi brezka
flokksins National Front
(NF), en I honum eru
kynþáttarhatarar, sem hafa
þaö atriöi helzt á stefnuskrá
sinni, aö losa Bretland viö hin-
ar tvær milljónir litaöra
manna sem þar búa og hindra
enn frekari flutning þeirra til
landsins.
Fyrir nokkru birtust fréttir
af árekstrum NF og hins
vinstri sinnaöa Trotskyista
flokks — Verkalýösflokks
sósialista — á forsiðum blaöa
og timarita I Bretlandi sem og
. — Þaö var nauðsynlegt aö
lem ja okkur leiö inn á forsíöur
blaöanna, sagöi einn af for-
ystumönnum NF. — Viö erum
skyldugir til aö koma NF inn
af götunum jafnvel þótt þaö
kosti ofbeldi, svaraöi Verka-
lýösflokkur sósialista. Og
þannig fékk NF miklu meiri
auglýsingu en þeir sjálfir áttu
jafnvel von á, þvf á fundinn
sem þeir boöuöu til, komu ein-
ungis um 500 manns. Eftir
bardagana milli vinstri
manna og lögreglunnar
komst fundurinn hins vegar i
sviðsljósið. Þessi fundur,
sem var I Lewisham I Lond-
on, haföi þær afleiðingar aö
214 vtru handteknir, 110
særðirogþaraf um helming-
ur lögreglun»enn, brotnir
búöagluggar og góö auglýs-
ing fyrirfundinn i Birmingh-
am, sem vat tveim dögum
siöar. Þar voru og 31 lög-
reglumaöur særöist.
ÞAÐ MA SEGJA, aö bæöi
Trotskyistarnir og NF hafi
lagt út I þessi ævintýri til að
gri'pa siöasta hálmstráiö, þvi
báöum þessum öfgahreyfing-
um hefur vegnaö mjög illa
meö friösamari aöferöum.
Hvorugur flokkurinn hefur
fengið atkvæöamagn svo vert
sé aö tala um, og hefur þaö
slöur en svo aukizt, enda þótt
NF hafi reyndar gert það aö-
eins betur i Birmingham en
venjulega.
Leiötogar NF gera sér
grein fyrir, aö þeir hafa misst
af hinu gullna tækifæri til aö
afla flokknum vinsælda, en
þaö var timabilið sem hófst
áriö 1974 og er óöum aö renna
út nú. Þá byrjaði mikiö at-
vinnuleysi i Bretlandi og verö-
bólga fór upp úr öllu valdi.
Þeim tókst ekki aö koma sök-
inni á litaöa innflytjendur og
hafa þeir þvi tekiö til þess ráös
aö reyna öfgaleiöina.
Aö hluta er hér um aö ræöa
mistök NF varöandi leiðtoga,
en þeir hafa ekki veriö færir
um aö finna neinn, sem gæti
stjórnað flokknum af festu.
En þaö er fleira en skortur á
foringjum, sem hefur valdið
þessu fylgisleysi. Kjósendur
hafa veriö hræddir viö aö láta
atkvæöi sitt til flokks sem hef-
ur eins mikla trú á Hitler og
tlmabili nazista i Þýzkalandi
ogNF.Hitler er nefnilega enn I
manna minnum I Bretlandi,
enda voru þeir ófáir, sem
misstu ættingja I styrjöldinni.
Sem^ dæmi um fylgisleysi
NFmataka tökur frá kosning-
unum áriö 1970, en þá fengu
þeir 3,6% atkvæöanna. 1
febrúarkosningunum árið 1974
hlutu þeir 3,3% og i október-
kosningunum sama ár 3,1%.
Frá þeim kosningum hefur
þeim aö visu vegnaö aöeins
betur og hafa fengið 4,6% aö
meöaltali I öllum kosningum
slöan.
ENDA ÞÓTT framtlöar-
horfur brezkra nazista séu
ekki ýkja bjartar, er þó samt
full ástæöa til aö vera á varö-
bergi gagnvart ný-nazistum.
Sérstaklega á þetta viö I
Þýzkalandi, en þar viröist
vera grunnt niöur á stuðning
viö slik samtök. ! þvi sam-
bandi má benda á, aö yngsta
kynslóðin I Vestur-Þýzka-
landi, fær ekki góöa fræöslu
um nazistaárin I sögu iands-
ins. í nskoöanakönnun sem
var geröb þar meöal nemenda
á táningaaldri i sumar þegar
sýningar höföu hafizt á kvik-
myndinni, sem sagt var frá
hér I byrjun bárust mörg
furöuleg sv’r. Einn mundi aö
Hitler heföi veriö sá, sem
„byggöi hraöbrautirnar” og
annar hélt aö Hitler heföi
veriö „örlátur, þýzkur kon-
ungur”! MÓL
JS