Tíminn - 04.09.1977, Side 1
vörubila
Sturfu-
grindur
Sturtu
dælur
Sturtu- -
drii
Hermanni Jónassyni reistur
minnisvarði á Ennishöfða
Kás-Reykjavik. Á
sýslunefndarfundi
Strandasýslu árið 1976
var kosin 3ja manna
nefnd, sem kanna átti á
hvern hátt Stranda-
menn gætu á veglegan
hátt minnzt hins virta
stjórnmálaskörungs og
fyrrverandi þingmanns
Strandamanna, Her-
manns Jónassonar.
Nefndin komst að sam-
komulagi um að reisa
Hermanni minnisvarða
uppi á Ennishöfða á
Ströndum, en þar er
mjögfallegtog viðsýnt.
Fyrrnefndar upplýsingar fékk
Timinn hjá Rúnari Guðjónssyni,
sýslumanni Strandamanna, en
hann hefur ásamt fleiri forvígis-
manna sýslunnar staBiö aö
þessum aögerðum.
Hann sagöi, aö Sigurjdn
Ólafsson myndhöggvari heföi
veriö fenginn til aö gera tillögu
aö minnisvarðanum. Sigurjón
hefði skilaö tillögu sinni á sl.
vetri, og heföi hún veriö ein-
róma samþykkt i nefndinni.
Vonir stæöu til aö Sigurjón
gæti hafið frekari undirbúning
verksins i vetur, og jafnvel lokiö
þvi á næsta sumri.Rúnar sagöi,
aö Sigurjón heföi gert lauslega
áætlun um kostnaö og geröi ráö
fyrir aö hann yröi nálægt 1400
þús. króna. Sú tala hefði að visu
breytzt mikiö siöan, m.a. vegna
nýrra efnisþátta sem kæmu inn
ivæntanlega úrlausn verkefnis-
ins.
Rúnar lagöi á þaö áherzlu aö
lokum, aö allur fjárstuöningur
varöandi gerö minnisvarðans
væri vel þeginn, frá brottflutt-
um Strandamönnum sem öör-
um. Sýsluskrifstofan á Hómavik
tekur á móti fjárframlögum, en
einnig er hægt aö leggja þau inn
á sparisjóösbók númer 972 i úti
búi Búnaðarbankans á Hóma-
vik.
Sigurjón Ólafsson, myndhöggvari, viö likan af tillögu sinni aö
minnisvarðanum um Hermann Jónasson, sem standa skal á
Ennishöfða.
Vinnuslys í Kópavogri:
Annar látinn — hinn
enn í lífshættu
Kás-Reykjavik. Eins og sagt var
frá i blaðinu i gær, varð mjög al-
varlegt vinnuslys um kl. 18.30 á
föstudag, við háhýsi sem Bygg-
ung h/f er aö reisa i Kópavogi, en
þar hrundu vinnupallar á fimmtu
hæöhúsinsmeö þeim afleiðingum
að tveir menn féllu til jarðar.
Voru þeir báðir fluttir á gjör-
gæzludeild Borgarspitalans mikið
slasaðir. Annar mannanna lést
stuttu eftir komuna þangað, en
hinn er enn i lifshættu og hefur lit-
il breyting orðið á liðan hans siö-
an. Ungur piltur sem var að vinna
með þeim bjargaðist naumlega.
Rannsóknarlögregla rfkisins
sér um rannsókn þessa máls.
Rifshöfn aö
verða of lítil
SJ-Reykjavik — í sumar hefur
veriö unnið að því að dýpka
iandshöfnina við Rif á Snæfells-
nesi, einkum innsigiinguna. Haf-
izt var handa við dýpkunina i júli
og lýkur verkinu einhverntima i
þessum mánuði. Innsiglingin
veröur fimm metra djúp og
verður sums staðar dýpkað um
rdmlega tvo metra. Aætlað er að
dælt verði úr höfninni 35.—37.000
teningsmetrum af sandi.
Unniö hefur veriö aö hafnarbót-
um viö Rif undanfarin ár, og m.a.
var lokið viö kvi fyrir smærri
báta fyrr á þessu ári. Þá er verið
að malbika og ollubera svæðiö viö
höfnina upp að þjóöveginum.
Rifshöfn hefur veriö talin góö
höfn og batnar hún aui viö
hafnarbæturnar, en er þó orðin
fuUlitil aö sögn Leifs Jónssonar,
hafnarstjóra i Rifi.
Um 20 smærri bátar hafa veriö
gerðir út frá Rifi I sumar. Stærri
skipin koma ekki mikiö aö á
sumrin, en i vetur voru 17 bátar
50—350 tn aö stærð geröir út frá
Rifi. Byggöin i Rifi hefur vaxiö
mjög undanfarin ár, en fyrir
áratug var þar aðeins visir aö
þorpi, og ekki er langt siöan þar
var einn bær. Nú búa á annað
hundraö manns i Rifi.
Rif á Snæfellsnesi. —
Hellissand.
Frá Rifshöfn er ekki nema dálítill spölur út á
Kemur sér fyrir landgræösluna!
MELSKURÐARVEL
AF NÝRRI GERÐ
— hefur reynzt með ágætum
KEJ-Reykjavík — Það er óhætt
að segja, að vélin lofar góðu, og
nú er unnið á henni I Norður-
Þingeyjarsýslu, en hún mun sið-
an veröa notuð austur í Land-
eyjum, sagöi Stefán H. Sigfús-
son hjá Landgræöslunni, þegar
Timinn spurði hann frétta af
nýju melskurðarvélinni. Stefán
tók það fram, að vélin væri ekki
ný I þeim skilningi, að hún er
sett saman úr eldri vélum.
Sagði hann vélina hafa veriö
hugarfóstur þeirra hjá Land-
græöslunni og Ólafs Egilssonar
á Hnjótiogfyrstsmíðuölhitteö-
fyrra, reynd sl. sumar og endur-
bætt I vetur.
Um gerö vélarinnar sagöi
Stefán, aö hún væri samsett úr
gamalli greiöusláttuvél, sem
sett er á vörulyftara aftan á
dráttarvél. Er þá hægt aö
stjórna skuröarhæðinni meö
lyftaranum og skera rétt neöan-
viö axiö. Fyrir aftan greiöuna
er siöan poki sem axið safnast i
og er þá ekki annaö eftir en aö
losa úr honum á vagn eða eitt-,
hvað þvi um likt.
For sætisráðherrahj ón-
in sænsku koma í dag
Heimsækja Eyjar á morgun
Forsætisráðherra Svla, Thor-
björn Falldin, og kona hans,
Solveig, koma I opinbera heim-
sókn til islands i dag.
Dagskrá heimsóknar sænsku
forsætisráðherrahjónanna
veröur með þeim hætti, aö i
kvöld bjóöa Geir Hallgrlmsson
og kona hans til kvöldverðar að
Hótel Sögu. A morgun veröur
fariö til Vestmannaeyja og lit-
azt um þar, en siðan haldið til
Búrfells. Þaðan veröur farið til
Skálhoits, Gúílfoss og Geysis.
Ferðinni lýkur á Þingvöilum. A
þriðjudaginn verða fundir með
forseta Islands og forsætisráð-
herra og boð til Bessastaða. Sið-
ar um daginn veröur blaða-
mannafundur I Norræna húsinu,
en um kvöldið bjóða sænsku for-
sætisráðherrahjónin til kvöld-
verðar aö Þingholti.
Meöan fundirnir standa á
þriðjudaginn heimsækir frú Sol-
veig Falldin Árbæjarsafniö.
Heimsókninni lýkur á miö-
vikudag, og halda sænsku for-
sætisráðherrahjónin þá aftur til
Sviþjóðar.
Thorbjörn Falldin.