Tíminn - 04.09.1977, Blaðsíða 40

Tíminn - 04.09.1977, Blaðsíða 40
I * 18-300 Auglýsingadeild Tímans. f 'ls&WMi v Marks og Spencer HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI UNDIRFATNAÐUR Nútima búskapur jamimn haugs Guðbjörn Guöjónsson Heildverzlun SfAumúU Sfmar B5694 & 8529S Tíminn rædir vid Húnboga Þorsteinsson, sveitarstjóra í Borgarnesi Miklar framkvæmd- irí MÓL-Reykjavík. I Borgarnesi stendur blómleg byggð, eins og þeir vita sem þangað hafa komið. Um þessar mundir standa þar yfir meiri framkvæmdir en margur gæti ætlað á ekki stærri stað. Til að fá sem gleggstar upplýsingar og yfirlit yfir þessar framkvæmdir sneri Tíminn sér til Húnboga Þorsteinssonar, sveitarstjóra i Borgarnesi og spurði hann um þær framkvæmdir, sem nú er unnið við í Borgarnesi. leiguíbúðirnar tilbúnar til af- hendingar og hefur verkið gengið alveg samkvæmt áætlun. Það er búið að selja sex af ibúðunum, en hreppurinn ætlar að eiga hinar þrjár, sem eftir eru. Stækkun skólans — Við munum reyna að fá fjár- veitingu á næstu fjárlögum, svo að hægt verði að hefja fram- kvæmdir þegar á næsta ári við stækkun skólans en það hefur nú um nokkuð skeiö verið i undir- búningi. Arkitektarnir Ormar Þór Guömundsson og örnólfur Hall hafa verið ráðnir til að teikna þessa viðbyggingu og hafa frumteikningarnar verið sam- þykktar af skólanefndinni, kennurum og hreppsnefnd. Unnið verður áfram að teikningum. þessu ári er ætlunin að ljúka að mestu fyllingu i þetta svæði og ganga frá skolplögnum, sem liggja þarna i gegn. Einnig á að ljúka frágangi á garði sjávar- megin og undirbyggingu götu þar. Það er búið að úthluta flest- um lóðum á þessu svæöi og fara byggingaframkvæmdir aö hefjast þar. — Þá má nefna nýtt ibúöar- hverfi i Bjargslandi en á s.l. vetri var úthlutað lóðum undir 44 ibúðir á þvi nýja svæði. Er hér mest um aö ræða einbýlishús og raðhús, en einnig var úthlutað einni lóð undir tólf ibúða fjölbýlishús. Þar hafa framkvæmdir staðið yfir i sumar en jarðvegsskiptum undirbygg- ingu gatna.holræsa- og vatnslögn um verður lokið að mestu áöur en ibúðarbyggingar hefjast. — 1 sumar var byrjað að undir- búa Helgugötu og Gunnlaugsgötu undir varanlegt slitlag. t Helgu- götu þurfti aö skipta um jarðveg og allar lagnir, sem voru orðnar mjög lélegar. t Gunnlaugsgötu þarf einnig að skipta um jarðveg Hiinbogi Þorsteinsson, sveitar stjóri Það kemur til að breyta mjög hagkvæmni þeirra hitaveitu sem við i Borgarnesi erum með i undirbúningi sérstaklega vegrla þess hve hún veröur dýr, þar sem aðveituæöin er mjög löng. Nýi leikskólinn verður tekinn i notkun nú I haust Leiguibúðirnar verða tiibúnar til afhendingar á næstunni. Sundlaug í haust — Aö undanförnu hefur verið unnið við að ganga frá sundlaug- inni og standa vonir tii aö hægt verði að taka hana I notkun i haust, svona i október eða nóvember sagði Húnbogi Þor- steinsson. — Það sem hér er um að ræöa er aö byggt er yfir eldri sundlaug og hún mjög endurbætt. — Þessi sundlaug er í sömu byggingu og iþróttahúsið en stefnt er að þvi aö ljúka við iþróttasalinn og taka hann i notkun á fyrrihluta næsta árs. Þessi framkvæmd er vissulega háö þvi aö viðunandi fjárveiting fáist á næstu fjárlögum. Til þessa hafa meir en 100 milljónir farið i þetta verk en sveitarfélagið greiöir rúman helming kostnaðarins. tþróttahúsið og sundlaugin munu koma til meö að gerbreyta allri aðstöðu hér til innanhúss- iþrótta og til ýmiss konar félags- starfsemi. Nýr leikskóli — Það er ætlunin að ljúka bygg- ingu leikskóla á þessu ári og taka hann i notkun nú i haust. Það veröur gengið frá girðingu um- hverfis lóð skólans og þangað flutt leiktæki af Svarfhólslóðinni en þar er leikskólinn nú til húsa. — 1 þessum nýja leikskóla verður aöstaöa fyrir 80 börn á dag, en skólinn verður tviskiptur þannig að 40 börn verða þar i einu. Húsnæðið i Svarfhóli veröur hins vegar tekið til notkunar i þágu grunnskólans i Borgarnesi, eða svo er alla vega áformaö. — Við reiknum þó varla með að fjárveitingin til skólans dugi til að ganga frá lóðinni i ár til fullnustu. Leiguibúðirnar — Seint i þessum mánuði eöa i þeim næsta, þ.e. október, verða Gatnagerðarfram- kvæmdir — 1 sumar hefur mikið verið unnið aö gatnagerðarfram- kvæmdum. Gatan á uppfylling- unni austan Brákarbrautar, hefur hlotið nafniö Bjarnarbraut. A og lagnir, eða a.m.k. að einhverju leyti. Hitaveitan — Nú er komið fordæmi fyrir þvi að rikissjóður veiti til- hliðranir i sambandi viö tolla og söluskatt af efni til hitaveitna. — S.l. vor lauk borun hitavatns- holu við Laugarholt i Bæjarsveit. Borunin sem var framkvæmd með jaröbornum Narfa, bar góðan árangur. Sjálfrennsli úr borholunni er um 30 sekúndulitr- ar og má reikna með aö þetta vatnsmagn megi allt að þvi tvö- falda meö dælingu. Talið er að hola sem var boruð i Bæ i Bæjar- sveit i fyrra geti gefið milli 20 og 30 sekúndulitra við dælingu og er þar með tengiö talsvert meira vatnsmagn heldur en Hitaveita Borgarfjaröar þarf að nota i byrjun. — Þaö var á s.l. vetri, að béejar- stjórn Akraness óskaði eftir við- ræöum um aðild Akraness að hitaveitu hér ofan úr Borgarfirði. 1 október á siðasta ári skipaði iðnaðarráðuneytið Edgar Guð- mundsson, verkfræðing til að at- huga alla möguleika varöandi hitaveitu fyrir Borgarnes, Hvanneyri og Akranes. Hefur hann siðan verið haföur með i ráðum i sambandi við þessi mál. — Undanfarið hafa svo staðið yfir samningar milli stjórnar Hitaveitu Borgarf jarðar og bæjarstjórnar Akraness um þessi mál og bendir flest til að um sam- .vinnu þessara aðila verði að ræða i sambandi við hitaveituna þótt enn séu mörg mál óleyst i þessu sambandi. — En komi ekkert óvænt fyrir þá má reikna með að fram- kvæmdir við hitaveituna hefjist á næsta ári og mun framkvæmda- timinn standa yfir til 1979, þannig Frh. á bls. 39

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.