Tíminn - 04.09.1977, Blaðsíða 14

Tíminn - 04.09.1977, Blaðsíða 14
14 Sunnudagur 4. september 1977 Fáem-orð um tveggja skrokk HENTA í VIÐ ISLA Nýja brimróörarskipiö, sem sagt er frá f greininni. Þaö er auöséö aö mikiö pláss er á þilfarinu og skipiö er stööugt i sjó, stööugra en smáskip yfirleitt eru. Um aldir réru tslend- ingar úr brimþungum sandi og grýttri vör. Áraskipin héldu til miða og færðu björg i bú, fæðu og kaupeyris var aflað við hin örðug- ustu skilyrði. Menn gengu yfir heiðar i ver- ið siðla vetrar til ver- tiða og höfðust við i gr jótbyrgjum við ströndina. NU er þessi miöalda sjósókn lögö af. Hafnir hafa veriö gerö- ar. Araskipiö, sem gekk frá strönd fyriropnu hafi var blind- gata, sem einfaldlega lá ekki lengra. Hafnir, sjálfgeröar, eöa geröar af manna höndum, uröu forsenda nýrrar tækni. íslenzkir trillubátar gamaldags? Vélbátar komu til sögunnar og þeir hafa sifellt veriö aö stækka siöan og afli hefur auk- izt. Eigi aö siöur er enn viöa róiö úr brimgaröi til fiskjar. Ekki aöeins hér á landi, þar sem smábátar eru notaöir, ýmist til handfæraveiða, eöa til grá- sleppuveiöa. Báturinn er sjósettur frá ströndinni og hann er dreginn á land aö aflokinni veiöiferö. Þessi útvegurer þó aöeins lit- iö brotaf útgeröá Islandi. Flest smáskip ganga úr höfnum, sem að visu eru misgóöar. Eigi að siöur er þaö staö- reynd, aö smábátar, eöa trillur eru vanþróuö veiöiskip á marg- an hátt hér á landi. Trillan, sem margir nefna sálarskip þjóöarinnar, er i raun og veru ekki annað en gamli teinæringurinn, eöa sexæring- urinn með stýrishúsi og vél. Bátarnir eru úr tré (yfirleitt), vatnssósa og viöhaldsfrekir, og þeir ganga aöeins hluta ársins, hinn hlutinn fer til viðhalds og endurbóta. Ekkert hefur verið gertaf hálfu stjórnvalda, — mér vitanlega — til þess aö hanna nýjan smábát til fiskveiða, þótt það væri sannarlega vert verk. Tréfjagler, stál og álbátar heföu marga kosti, umfram tré- skipin, sem bæöi eru svo viö- kvæm og viöhaldsfrek. Trillan árabátur með stýrishúsi og vél Það er æöi mikiö rannsóknar- efni og merkilegt, hvers vegna skip hafa i rauninni breytzt svo litið gegnum tiöina. Halldór Laxnesshefur bentá, að þaö sé ekki hægt aö smiöa ljótar flugvélar, þvi þær geta ekki flogiö. Vondir hönnuöir fá þarna eðlisfræöilegt aðhald — sem betur fer. Þetta kann að vera ástæöan fyrir dræmum nýjungum i skipagerð. Skipin veröa aö geta ferðazt um hafiö af nægjanlegu öryggi. Samterum viölíklega of bundin gömlum hugmyndum til þess aö geta fitjað upp á ein- hverju alveg nýju. Baldvin Jónsson i Sylgju er mikill snillingur. Honum tókst aö smiöa dúnhreinsunarvél. Þaö höföu margir reynt áöur, rnenn sem áttu björg sina og hag undir dúntekju og þvl aö hreinsa dúninn og selja. Þaö var illt verk að hreinsa dún. Þessir menn vissu allt um dún, og þaö var liklega þess vegna, sem þeir gátu aldrei búiö til nothæfa vél. Baldvin Jónsson var snilling- ur í höndunum og tæknimaöur fram I fingurgóma, og hann vissi ekkert um dún,vnema aö hann fór vel i sænginni sem hann haföiofan á sér á nóttunni. Þess vegna tókst honum fyrst- um manna aö smiöa nothæfa vél, sem nú er notuö viöa um heim i æöarvarpslöndum. Þessi tvö dæmisýna okkur, aö hugmyndafræöilegt aöhald kemur frá fornum starfsvenjum og eðlisfræöinni sjálfri. Araskipin fslenzku urðu til af sjálfu sér. Þau urðu aö verá létt og góð i sjó, og þegar komið var að landi varö aö vera unnt aö draga þau á land með mann- afla. Nýr brimróðrarbátur Enbrimróörarbáturinn er svo sannarlega ekki búinn að syngja sitt slöasta vers. Viöa um heim eru fiskveiöar stundaöar frá ströndinni, og þótt þær séu ekki alls staðar arösamar, þá er sjórinn samt sú eina björg sem tiltæk er. Aöur en skipin steyttu I vör- inni varð, ef um mikinn afla var aöræöa,aö seila. Fiskurinn var dreginn á táknunum upp á leiðuról og hann siöan dreginn á land sérstaklega, eftir aö búiö var aö koma skipinu sjálfu á þurrt. Þessi vinnubrögö voru viö- höfö á íslandi allt fram til 1930 og ef til vill lengur. — Opna skipiö heyrir nú sögunni til að mestu og merkilegra nýj- unga varekkiaö vænta úr þeirri átt. Vélbátar sem ganga frá höfn- um hafa komið I þeirra stað. Margt hefur verið gert til þess aö þróa lifskjör fiskimanna, sem búa við frumstæöar aö- stæðuroghafa Islendingar tekiö þátt I þessu starfi. Hafa þeir bæöi smíöaö skip fyrir frum- stæöar þjóöir i fiskveiöum og eins hafa islenzkir sjómenn starfað aö þvi aö kenna fisk- veiðarog sjóvinnu I öörum lönd- um. Astæöa fyrir þessu greinar- korni er ekki sú aö ræöa al- mennt um þróun fiskveiöa, heldur að vekja athygli á nýju skip sem FAO Matvælastofnun Sameinuðu þjóöanna hefur látið hanna til fiskveiða úr hafnleys- um, þvinú viröist allt I einu búið aö ryöja nýjan veg, þar sem menn töldu flestir aö ekki yröi lengra komizt. Er taliö að þetta nýja skip geti leyst af hólmi 20 „opin skip”, eða eintrjáninga hjá vissum þjóðum Afríku, sem einkum eru hafðar i huga. Menn nefna þetta Gifford bát- inn. Gifford báturinn er hannaöur til þess að róa af ströndinni, úr ruddri vör, eða úr sandi. Hann hefur tvo skrokka, sem tengdir eru með þilfarspalli. Hann er rúmlega 11.5 metra langur og 6 metra breiöur (38x20 fet). Báturinn er smiöaö- Ný söluskrá komin út hringið eða skrifið og fáið eintak endurgjaldslaust DitAIMAn Ikeifunni 11 ] Auglýsið í Tímanum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.