Tíminn - 06.09.1977, Síða 12

Tíminn - 06.09.1977, Síða 12
12 Þriðjudagur 6. september 1977 MYRKURI NEW YORK Menn lögðu sig fram við að stela nógu. hluta New York, lulla bilarnir áfram, með allt i botni útvarp og viftur. Neðanjarðar þjóta lestirnar. A Kennedyflugvelli og á La Guardia er striöur straumur flugvéla. Bió, leikhús og veitingahús, allt er fullt. Og i lyftum stórhýsanna fara fram mannflutningarnir miklu. Það er sem allir ibúar i New York dóii i tyrknesku baöi. 20:37. Snardautt á Indian Point Klukkan fer aö nálgast 20:37. Á rafstöðinni á Indian Point, sem staðsett er i 45 km fjarlægö frá New York i norðri, gengur lifið sinn vanagang. Tæknimenn og rafmagnsfræðingar geispa yfir mæliskifum og biöja guð i hljóði um regn. Rafstöðin er kjarnorkuknúin og einkafyrir- tækið „Consolidated Edison” sér allri New York náðarsam- legast fyrir rafmagni. — Nei, hver fj... hrópa tæknimenn- irnir, þegar eldingu lýstur niður i tvær aðalspennistöðvarnar og grilla raflinurnar bókstaflega. Nálar mælitækjanna sturlast. Það er allt snardautt á Indian Point. Tæknimennirnir segja Verðir laganna höfðu yfir- fullt að gera, og versta áfallið fyrir Ibúa i New Yorkvar alls ekki rafmagnsleysiö, heldur slök viðbrögð lögreglunnar, en af 25 þúsun meðlimum hennar gáfu aðeins 8 þús. sig út i hasarinn. Það var ekki fyrr en i dögun aö þeir voru orðnir um 11 þúsund. Og neyðarbjöllur lög- reglunnar hringdu án afláts. Hundrað köll á minútu. Það var á þessu andartaki, sem sjálf- boðaliðarnir komu til sögunnar. — Þá skorti ekki kjark, strák- ana, sagði lögreglan siðar, og það var stórkostlegt aö sjá þá leggja til atlögu við lýðinn einkennisbúningslausa, og óvopnaða fyrir utan tréprik. Við gerðum okkur grein fyrir hætt- unni, þvi að múgurinn var hamslaus. Hann hræddist hvorki sirenur okkar né skammbyssur. Enginn vildi sleppa þvi, sem hann einu sinni hafði hreppt. Menn vörðu stuld sinn meö brotnum flöskum, hnifum og spýtum. Aöeins nokkrir grátkarlar báðu okkur með tárin i augunum að fá að halda þýfi sinu. Þeir væru ekki annað en aumir atvinnu- leysingjar. t Brooklyn vörðu kaupmenn verzlanir sinar sjálfir. Loksins komust þau I feitt. Lögreglan fáliðuð Kveikt i verzlunum. Ekki var hikað við að skjóta á slökkviliðs- mennina. Má segja að New York sé sjúk? Ef ekki, hvað á þá að kalla brjálæðið, sem greip um sig i þessari sögufrægu borg, þegar hún varð rafmagnslaus á dögunum? Og hverjum má svo kenna um myrkrið og hryllinginn samfara þvl? Máttarvöldun- um eða manninum á bak við „Consoli- dated Edison” Charles F. Luce? Harmleikurinn hefst á þvi, að hvað af ööru missa birtu sina og ýl: hverfi, stræti og húsaþyrp- ingar. Siðustu ljósin eru að slökkna við „Trade Center” nálægt höfninni. Eftir nokkur augnablik verður New York á valdi myrkurs og ofbeidis. Stjórnleysi mun rikja og sjálfri Ameriku blöskrar ránsandinn. Hún skammast sin fyrir aö sjá New York-búa viti svipta i 25 klukkustundir. Undir svipuöum kringumstæöum árið 1965 gerð- ist ekkert þvilikt. Nú ganga ránsmenn um i þúsundatali, handtökur skipta hundruöum, byssukúlurnar fljúga og fólk deyr drottni sinum. Brjálæðið byrjar Sumir ránsmannanna voru ósköp venjulegir heim- ilisfeður. Þeir gengu þarna á milli verzlana með konur sinar og börn og létu greipar sópa. — Tækifærið er of gott til þess að sleppa þvi, sögðu þeir. Aðrir voru skuggalegri ásýndum og hótuðu að kreista allan safa úr iðrum New York borgar. Menn hikuðu ekki viö aö leita i brunarústum stórverzl- ana og matvælamarkaða, ef eitthvað heillegt heföi oröið eftir ogheyra mátti litil börn hrópa, að jólin væru komin! Þau óku út i handvögnum fleiri kilóum matvæla og fóru ekkert leynt meö þaö. — Carter vill ekkert láta okkur fá. Tökum allt! Þau héldu vel orð sin og stálu öllu. Heit og rök stemming Nóttin breiðir sig yfir New York borg. Fjólublár himinninn og leiftur eldinganna minnir á ævintýraófreskju.fe! loftgóðum, einangruöum og teppalögðum ibúðum Manhattan er lifiö bæri- legt. Upp á 38. hæð Waldorf hótelsins fær Frank Sinatra sér einn litinn fyrir matinn, á meöan hann hinkrar eftir sinni heittelskuðu Barböru. En i hverfum Jamaicamanna og i Bronx, Brooklyn og Harlem eru menn að drepast úr hita: 32 gráður segir mælirinn:! Svitinn rennur i striöum straumum og skitalyktin og oliubrælan ætlar alla lifandi að drepa. Inn um opna gluggana sér maður skina i mjólkurlitaða sjónvarpsskjái. Menn hlamma sér niður i djúpa stóla, láta fætur hanga yfir stól- bökin og renna isköldum kjór um kritarlitar tennur og nautnalegar varir. Sumir segðu að þetta þamb væri nú heldur mikið af þvi góöa. A börunum er einnig þjórað hávaðalaust. Enginn hefur áhuga á að tala, hitinn er svo kæfandi. Eftir hreinan vitisdag höfðu menn vonazt eftir svölu kvöldi. En sú von lætur á sér standa. Nóttin verður hræðilega löng. 1 neðanjarðargöngunum, sem tengja Manhattan og aðra

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.