Tíminn - 06.09.1977, Qupperneq 23
Þriðjudagur 6. september 1977
23
glýsingar
.. og textinn á aó vera svona:
"Get bætt vió mig nokkrum
vönum vikingum.
flokksstarfið
VÍSIR
Skaftfellingar
Héraðsmót framsóknarfélaganna i V-Skaftafellssýslu verður
haldinn i Leikskálum i Vik i Mýrdal laugardaginn 10. september
og hefst klukkan 21.00.
Avörp flytja Vilhjálmur Hjálmarsson menntam.ráðh. og
Jón Helgason alþm. Guðmundur Jónsson óperusöngvari
syngur, og hin frábæra eftirherma, og grinisti Jóhann
Briem skemmtir. Dansað til kl. ? Framsóknarfélögin.
© íþróttir
Marteinn Geirsson, sem stóð á
linu að öllum likindum getað
varnað marki. — Ég var tilbú-
inn að taka á móti knettinum, en
Arni breytti þá stefnu knattar-
ins þannig að hann fór i hitt
hornið sagði Marteinn.
Belgiumenn gerðu siðan út
um leikinn á 61. min. þegar hélt
Coutant átti skot að marki af 20
m. færi — Arni varði, en hann
hélt ekki knettinum, sem fór til
Raoul Lamvert, sem skoraði af
stuttu færi — 4:0.
Guðmundur ekki á skot
skónum
Guömundur Þorbjörnsson,
hinn ungi miðherji Vals fékk
tvö gullin marktækifæri i siðari
hálfleik, en ekki náði hann að
nýta þau og var eins og að töfra-
mátturinn væri horfinn úr skón-
um hans. Guðmundur fékk
fyrra tækifærið á 60. min., þegar
Atli Eðvaldsson skallaði til Guð-
mundar, sem stóð i dauðafæri.
Guðmundur hitti knöttinn illa og
sendi hann beint i fangið á Pfaff,
markverði. Guðmundur skaut
siðan langt fram hjá úr dauða-
færi, eftir að hann hafði fengið
sendingu frá Asgeiri Sigurvins-
syni, en þeir Asgeir og Guö-
mundur léku þá gegn tveimur
varnármönnum Belga og var
Asgeir búinn að draga þá til sin,
þegar hann sendi knöttinn til
Guðmundar.
— SOS
© Ffaff
— Ég er ekki óánægður með
leik okkar gegn Belgum, en aftur
á móti var sigur þeirra of stór —
þeir fengu mörk af ódýrari gerð-
inni, sem við heföum átt að geta
komið i veg fyrir. Belgiumennirn-
ir höfðu snerpuna og hraðann yfir
okkur. Þeir léku þó ekki vel, enda
vantaði 5 af fastaleikmönnunum
þeirra og munar um minna.
Erfiður leikur
Marteinn Geirsson, sagði aö
leikurinn gegn Belgum hefði
verið erfiöur fyrir sig. — Ég fékk
það hlutverk að hafa gætur á
Lambert og elta hann allan leik-
inn og það var erfitt, sagði
Marteinn.
—sos
0 Veiöihornið
asta og þriðja stærsta vatnið hér
á landi.
I flestum vatnanna á Vest-
fjörðum er liklega silungur, eins
og reynslan er af byggðavötn-
um, þó að veiðiskapur sé óviða
stundaður i' heiöavötnum nema
stopult, vegna þess hve afskekkt
þaueru. 1 sumum vatnanna sem
hafa samband viö sjó, b.e. sil-
ungur gengur i þau úr sjó, hefur
veriö góð veiöi og súms staöar
ákaflega gjöful veiði. Sem dæmi
má nefna vötnin i Aðalvik og
Fljótavatni meðan byggð var
þar og reyndar siðar, því að
fólk, sem þarna á jaröir, heldur
á þessar slóðir á hverju sumri.
A Vestfjöröum er liklega að
tiltölu meira um straumvötn en
i öðrum landshlutum. Þar eru
meira en sextiu lax- og silungs-
ár. I meirihluta þeirra er ein-
göngu göngusilungur, urriði eða
bleikja og mest sjóbleikja, þeg-
aráheildina erlitið. Það er eöli-
legt þar sem Vestfjaröaárnar
eru yfirleitt stuttar og með lágt
hitastig, frameftir sumri, m.a.
vegna leysingavatns í þeim.
Meðal góðra laxveiðiáa eru:
Laugardalsái ögurvikurhreppi,
Langadalsá og Hvannadalsá,
sem falla i Nauteyrarós,
Staðará og Viðidalsá i Stein-
grimsfirði. Þá koma Hrófá og
árnar i' sunnanverðri Stranda-
sýslu: Krossá, Vikurá, Hvalsá,
Bakkaá, Laxá i Hrútafirði og
Hrútaf jarðará. Fyrir utan þess-
ar eru fjölmargar aðrar ár, en
framangreindar upplýsingar
eru úr Veiðimanninum. Veiði-
horninu þætti ekkert að þvi ef
veiðimenn og/eða leigutakar áa
á Vestfjörðum skrifuðu Veiði-
horninu linu og greindu frá veið-
inni i sumar. —áþ
© Vængir
reynd i gegn um Vinnuveitenda-
sambandið, sagði Guöjón enn-
fremur, en sem sagt, ástandiö
er óbreytt. Þá sagði Guöjón að
auðvitað hlytist allverulegt t jón
af þessu fyrirfyrirtækið, en von
væri um að úr rættist. Ekki
kvaðst Guðjón vita á hvaöa for-
sendum flugmenn Vængja
kæmu ekki til vinnu nú, hann
hefði ekki aðgætt það. Við upp-
haf deilunnar, þegar flugmenn
koma ekki til vinnu vegna veik-
inda, afþökkuðu þeir hins vegar
læknisaðstoð, sem Vængir buöu
þeim.
Að sögn Kristins Snælands á
Flateyri kemur þaö sér mjög
illa á Vestfjöröum þegar flug
hjá Vængjum fellur niður með
þessum hætti. Sagði Kristinn að
þjónusta Vængja hafi mikiö aö
segja fyrir þá sem vantar að fá
vörur og varahluti að sunnan i
fljótheitum, en alltslikt se mun
tafsamara þegar ekki er flogið
hjá Vængjum, a.m.k. fyrir þau
byggöalög sem næst liggja þeim
flugvöllum sem Vængir fljúga
reglubundið á.
© Tony Knapp
heppnin væri á bandi þeirra, en
ekki okkar. Við fórum illa meö
færinokkar,en þeir skoruðu aftur
á móti mörk, sem voru mjög
ódýr, sagði Knapp. — Ég ásaka
strákana ekki, þeir léku vel, en
heppnin var ekki á bandi þeirra.
Það þýðirekkert aö leggjast und-
ir feld þótt aö dæmið hafi ekki
gengið upp i Brussel — heldur að
snúa bökum sama og berjast. Við
erum alltaf á réttri leið og erum
að ná góðum tökum á þvi, sem viö
erum að gera, sagði Knapp.
—SOS
Aðalskoðun bifreiða
í Reykjavík
í septembermánuði
Fimmtudagur 1. sept. R-39001 til R-39400
Fösludagur 2. sept. R-39401 til R-39800
Mánudagur 5. sept. R-39801 til R-40200
Þriðjudagur 6. sept. R-40201 til R-40600
Miðvikudagur 7. sept. R-40601 til R-41000
Fim mtudagur 8. sept. R-41001 til R-41400
Föstudagur 9. sept. R-41401 til R-41800
Mánudagur 12. sept. R-41801 til R-42200
Þriðjudagur 13. sept. R-42201 til R-42600
Miðvikudagur 14. sept. K-42601 til R -43000
Fimmtudagur 15. sept. R-43001 til R-43400
Föstudagur 16. sept. R-43401 til R-43800
Mánudagur 19. sept. R-4380I til R-44200
Þriðjudagur 20. sept. R-44201 til R-44600
Miðvikudagur 21. sept. R-44601 til R-45000
Fimmtudagur 22. sept. R-45001 til R-45400
Föstudagur 23. sept. R-45401 til R-45800
Mánudagur 26. sept. R-45801 til R-46200
Þriðjudagur 27. sept. R-46201 til R-46600
Miðvikudagur 28. sept. R-46601 til R-47000
Fimmtudagur 29. sept. R-47001 til R-47400
Föstudagur 30. sept. R-47401 til R-47800
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Borg-
artúni 7, og verður skoðun framkvæmd
þar alla virka daga kl. 08:00 til 16:00.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardög-
um. Festivagnar, tengivagnar og far-
begabvrgi skulu fylgja bifreiðum til skoð-
unar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé gild.
Athygli skal vakin á þvi, að skráningar-
númer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni
til skoðunar á auglýstum tima verður
hann látinn sæta sektum samkvæmt um-
ferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð
hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að
máli.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
31. ágúst 1977
Sigurjón Sigurðsson.
Allir þeir sem birta smáauglýsingu i VÍSI á meóan sýningin Heimilió’77
stendur yfir, veróa sjálfkrafa þátttakendur í smáauglýsingahappdrætti
VÍSIS.
Vinningurinn - Philips litsjónvarpstæki - veróur dreginnút 15-9-77
Smáauglýsing i VÍSI er engin
sma
auglýsing
sími 86611