Tíminn - 16.09.1977, Blaðsíða 10

Tíminn - 16.09.1977, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 16 . september 1977. Ég trúi því að innan Þaö er erfitt aö halda lifandi sambandi milli starfsfólksins svo stóru fyrirtæki, sem Sam band islenzkra samvinnufélaga er. — Svo fórust Þdröi Jóhanni Magnússyni starfsmanni h_á Afuröasölunni orö nýlega i viö tali viö Timann en hann er ann ar tveggja fulltrúa starfsmanna i stjórn Sambandsins og hafa þeir tiliögurétt og máifrelsi á fundum stjórnarinnar, en ekki atkvæöisrétt. Hinn fulltrúinn er Aöalsteinn Halldórsson verk- stjóri i prjónastofunni Hekiu á Akureyri. — Ég er Vestfirðingur i ættir fram, fæddur I Súgandafirði, en ersamtmeiri Onfiröingur,þvi á Flateyri bjuggu þau lengst for- eldrar minir, þau Guörún Guð- bjarl dóttir og Magnús Hall- f'órskon skipstjóri. Þar ólst ég upp i náinni snertingu við sjó- sókn og landbúnað, eins og al- gengt var þá með börn i sjávar- þorpum. Þá voru fráfærur al- gengar i Onundarfirði eins og viðar og fengu margir strákar úr þorpinu að fara i sveit og smala kviaánum á sumrin. Ég fór sem smali til Guðmundar Gilssonar á Innri-Hjarðardal niu ára gamall og var meira og minna á þvi ágæta heimili til fullorðins ára. Sjómennska og skóla- nám — Langt skólanám alþýðu- fólks var sjaldgæft á minum uppvaxtarárum. Hjá mér sem mörgum öörum var það draum- sýn sem óliklegt var að gæti rætzt, ekki kannski sizt fyrir það að faðir minn drukknaði þegar ég var tólf ára og við þrjú systkinin innan fermingar. Barnaskólinn á Flateyri var góður skóli enda kenndi þar og stjórnaði Snorri Sigfússon siðar námsstjóri. — Frá 1930-1939 var ég lengst aftilsjós, þarvarhelzt tekjuvon og á þeim árum rættist að nokkru draumurinn um skóla- göngu, þvi þá fór ég i Laugar- vatnsskólann og var þar i tvo vetur. — Arið 1936 fór ég svo í Sam- vinnuskólann og lauk honum á einum vetri. Skólagangan tak- markaðist af auraleysi en ég átti gott með aö læra og hef siðan reynt á ýmsan hátt að bæta við þekkinguna. Annars var það þá eins og nú, aö þeir sem höfðu samvinnuskólapróf þóttu hæfir til margvislegra starfa i þjóðfélaginu og hafa veriö virkir á mörgum sviðum. Kynntist ungur starf- semi Kaupfélags ön- firðinga — Fyrsta janúar 1939 var ég ráðinn fastur starfsmaöur hjá Kaupfélagi Onfiröinga. Hjörtur Hjartar var þá kaupfélagsstjóri þar og minnist ég ávallt meö ánægju samstarfsins viö þann óhemju duglega ágætismann. Segja má að siðan hafi ég starfað eingöngu hjá samvinnu- hreyfingunni. Fyrri hluta ársins 1944 var ég svo kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Patreksfjarðar að tilmælum Sigurðar Kristins- sonar sem þá var forstjóri Sam- bandsins. Þá um haustið réðst Hjörtur Hjartar sem kaup- félagsstjóri til Siglufjarðar og varð það úr að ég tók við kaup félagsstjórastarfinu af honum 1 Kaupfélagi önfiröinga og var þar þangað til siðla árs 1948. Kaupfélagsstjórastarf er erfitt en afar f jölbreytt og lifrænt og á margan hátt skemmtilegt, og hefði ég haldið þvi áfram ef sér- stakar ástæður hefðu ekki knúið mig til þess að flytja suöur. — Faðir minn heitinn var einn af stofnendum Kaupfélags ön- firðinga árið 1918. Eitt af þvi fyrsta sem ég minnist í sam- bandi við Kaupfélagið er, þegar verið var að skipta vörum, sem pantaðar höfðu verið á óhefluö- um borðum úti i skúr viö hin skamms muni starfsfólkið eiga marga fulltrúa í stjórn SÍS með fullum réttindum Rætt við Þórð Jóhann Magnússon starfsmann Afurðasölu SÍS frumstæðustu skilyrði. En Kaupfélagiö óx og árið 1927 keypti það eignir á Flateyri, þar sem aöal athafnasvæði þorpsins og aðal verzlunin var. Hinar sameinuðu islenzku verzlanir voru þá að hætta störfum á Vestfjöröum, þarsem þær höfðu haftmikilumsvif. Magniis Guö- mundsson mikill athafnamaður var þá kaupfélagsstjóri Kaup- félags önfirðinga og rak félagið mikla fiskverkun á þessum nýju eignum undir hans stjórn. Af- koma allra þorpsbúa byggðist á fiski og verkun hans og eru æskuminningar minar, eins og annarra tengdar þvi lifi. — Um 1930 varð verðfall á saltfiskinum, en K.ö. átti mik- inn saltfisk. Tapaði það miklu og varð að draga úr starfsem- inni, þó að það héldi eignunum. Þannig skiptast á skin og skúrir, en önfiröingar reka enn sitt kaupfélag og hagnýta það sem eitt traustasta tækiö í lifsbarátt- unni eins og gert er hringinn i kringum landiö. Hjá Sambandinu — Vilhjálmur Þór óskaði eftir þvi að ég kæmi til starfa hjá Sambandinu, þegar hann vissi að ég var að flytja suður. Varð það að ráði en þó vann ég fyrsta veturinn við frystihús í Hafnar- firði en sumariö 1949 fór ég svo aðstarfaí gömlu Herðubreiö viö Tjörnina við kjötsöluna en þaðan dreifði þá Sambandið kjötinu um Reykjavfk og Suð- vesturland. Arið 1953 fluttist starfsemin svo inn á Kirkjusand I nýbyggingar Afuröasölunnar. Umsvifin ukust stöðugtekki slzt eftir aö Kjötiðnaöarstöðin tók til starfa. Sést munurinn e.t.v. bezt á þvi, að þegar ég byrjaði i Heröubreið voru innan viö tuttugu starfsmenn en nú nær eitt hundraö og fjörutiu. — Ég er nú hættur i sölunni, en hleyp I skörðin fyrir deildar- stjórana sem nú eru tveir annar i Afurðasölunni og hinn I Kjöt- iðnaðarstööinni, einnig lft ée eftirsjóðum og annast ýmislegt i sambandi við starfsfólkiö. Félagsleg deyfð” nú- timans — Já, ég held að ég hafi alltaf verið félagslyndur. Móðir min heitin vann mikiö í kvenfélaginu svo mér hlýtur aö hafa þótt félagsmál sjálfsagður hlutur. Strax og ég hafði aldur til tók ég þátt I starfsemi ungmenna- félagsins i sveitinni og iþrótta- félagsins á Flateyri. M.a. var ég llka einn af stofnendum verka- lýðsfélagsins „Skjaldar” þar á staðnum. Konan min hefur lika alltaf unnið að félagsmálum og ámeðanvið bjuggum fyrirvest- an mátti heita aö heimiliö væri á kafi i slikri starfsemi. Eftir að égfluttistsuðurhef ég tekið þátt i ýmsum frjálsum félagsskap. Vitanlega hef ég verið i Starfs- mannafélagi Sambandsins frá þvi ég byrjaði aö vinna þar. Þvi miður hefur „hin félagslega deyfð”nútimans verið þaralltof rikjandi þó að segja megi að til þess liggi eðlilegar orsakir. Starfsemi Sambandsins hefur verið i stöðugum vexti og starfs- fólki fjölgað i samræmi við það. Á meðan minna var umleikis og flestir unnu undir sama þaki, þekktist allt starfsfólkið. Starfs- mannafélagið var þá mjög virkt, m.a. byggði það skiða- skála sem haföi verið mikið notaður á þeim tima. Lifeyris- sjóöur Sambandsins tók til starfa 1. janúar 1939, en hann er einn ef elztu „frjálsu” lifeyris- sjóðum i landinu. Margt fleira lét Starfsmannafélagið þá til sin taka. Nú eru deildir Sambands- ins dreifðar um allt landið og starfsfólkið þekkist litið nema það sem vinnur á sama stað. Ég hef verið trúnaðarmaður Starfsmannafélagsins á vinnu- stað og reynt að halda lifrænu sambandi starfsfólksins þar við félagið. Það er erfitt að halda félagslegu starfi uppi I svo stór- um og dreifðum hóp en ég held W) Þórður Jóhann Magnússon að þetta sé að breytast. Þó að mannaskipti séu tið hjá Sam- bandinu, þá verður alltaf eftir viss kjarni sem finnur að starfs- fólkið á samleiðá mörgum svið- um. Hamragarðar og starf- semin þar er þarfur þjónn á þeim vettvangi að leiða fólkið saman og ætti starfsfólkið hér i Reykjavik að notfæra sér það, sem þar er boðið upp á, enn meira en gert hefur verið. Atvinnulýðræði — Þeirri þróun sem oröið hef- ur á siðustu Uu til tuttugu árum, að hluturstarfsfólks vex stöðugt i framleiðslunni, hefur viöa er- lendis verið mætt meö því að starfsfólk fyrirtækja hefur feng- ið aðild að stjórnun þeirra. Þannig er m.a. með samvinnu- samböndin á Norðurlöndunum. Þetta er kallaö atvinnulýðræði og hefur það dálitiö veriö rætt hér á undanförnum árum m.a. var fjallað um það i vinnuhópi hjá Starfsmannafélagi Sam- bandsins.Tekinn varþar saman bæklingur um þetta og er hann eitt það itarlegasta sem um at- vinnulýðræði hefur verið skrifað á islenzku. Forystumenn starfsmanna fóru þess á leit við stjórn Sam- bandsins að fulltrúi starfs- manna tæki sæti i stjórn þess og á aðalfundi 1976 var það sam- þykkt. Þvi miður var starfsfólk- ið ekki búið að átta sig nægilega vel á þeirri ábyrgð sem fylgir þvi aö óska eftir atvinnulýðræði og tók þvi ekki nægan þátt i vali fulltrúa i stjórnipa en vonandi stendur það til bóta. Þá hefur viða verið breytt þeim reglum kaupfélaganna sem bönnuðu starfsfólki setu ístjórn þeirra og sumsstaðar er þá þegar komið starfsfólk i stjórn. Við sam- vinnumenn getum verið ánægðirmeð það að stjórnendur hreyfingarinnarskuli ganga á undan hér á landi I a ð breyta úr- eltum reglum. Ef til vill er slfk viðsýni m.a. orsök geysilegrar eflingar samvinnustarfseminn- ar hér á undanförnum árum. í stjórn Sambandsins — Við Aðalsteinn Halldórsson frá Akureyri sátum fyrsta stjórnarfundinn sem fulltrúar starfsfólksins 15.-17. nóvember 1976, og var okkur tekið þar með mikilli vinsemd og virðingu. Ég hef setið alla stjórnarfundi sið- an og get ekki neitað þvi aö ég hef notið þess og haft gaman af. Það er geysilegur munur að vera allt i einu setztur þar sem allir þræðir samvinnu- hreyfingarinnar liggja saman, eins viötæk og hún er, eftir að hafa eingöngu sinnt afmörkuðu starfi i þrjátiu ár. — Aðlögun aö breyttum að- stæðum hvers tima hefur verið gróskuhvati Sambandsins hingað til. Sú nútimastaðreynd að hlutur starfsfólksins vex stöðugt í verðmætasköpuninni hlýtur að valda þvi að það taki þátt f stjórnarstarfi fyrirtækj- anna. Ég tel að þetta sé rétt þró- un.þannig opnast því leið til þess að láta skoöun sina i ljósi viö stjórnendurna. 1 stórum fyrir- tækjum er skelfilega langt á milli þeirra sem vinna hin dag- legu störf og hinna sem stjórna Þessiskipulagsbreyting á stjórn Sambandsins mun ekki valda neinni byltingu, þetta er aðeins liður i þróun. Framkvæmda- stjórnin hlýtur, eins og hingað til aö vera i höndum sérhæfra manna, sem til þess verða valdir. — Ég trúi þvi að inn- an skamms muni starfsfólkið eiga marga fulltrúa i stjórn Sambandsins með fullum réttindum. S.J..

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.