Tíminn - 16.09.1977, Blaðsíða 12

Tíminn - 16.09.1977, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 16 . september 1977. Merki UMFl [ Ungmennafélag íslands 70 ára j Félags- málaskóli þj óðarinnar rætt við nokkra fulltrúa á 30. þingi UMFÍ á þingvöllum: liafsteinn Þorvaldsson Valhöll á Þingvöllum þar sem afmælisþingíb var haldið. í yfirgripsm ikilli skýrslu stjórnar UMFÍ sem lögð var fram á 30. þingi samtakanna á Þingvöllum kom fram að starf- semin er mikil og sífellt fjölgar félögum i ungmennafélögunum. A siðustu átta árum hefur félög- um fjölgað úr 10.200 i 19.130. Starfsemin hefur vaxið að sama skapi og fátt er það sem ung- mennafélagar láta sér óviðkom- andi. A þinginu voru fjölmargar á lyktanir samþykkatr og i þing loksagöi Hafsteinn Þorvaldssor formaður UMFÍ, að þetta þing hefði einkennzt af mikilli festu og vinsemd. En þinghaldið hefði verið meö glæsibrag og teknar hefðu verið djarfar ákvaröanir. Menn væru sammála um aö halda glæsilegt landsmótá Sel- fossi næsta sumar og mikill hugur væri i félögunum að eign- ast eigið húsnæöi fyrirþjónustu- miðstöð samtakanna i Reykja- vik. Aform væru uppi um enn frekari uppbyggingu i Þrastar- lundi og fjölmargt fleira mætti nefna sem á dagskrá væri. Ungmennafélagshreyfingin stendur nú traustum fótum i flestum héruðum landsins. Ný félög eru stofnuð og önnur endurreist og félagsmönnum fjölgar stöðugt. Hafsteinn sagði að stjórn UMFI og fram- kvæmdastjóri hefðu lagt mikla vinnu i erindrekstur og út- breiðslustarf og væri takmarkið aö komast i persónuleg kynni viö sem flest> forustumenn hreyfingarinnar sem viðast um land. 1 þinglok ræddi blaðamaður Timans viö nokkra fulltrúa á þinginu og spurði þá hvaö þeim væri efst i hug á 70 ára afmæli Ungmennafélags Islands og hver væri stærstu mál ung- mennafélaganna á næstu árum. Fyrst tókum við tali Guöjón Ingimundarson frá Sauðár- króki. Guðjón Ingimundarson Árangurinn blasir hvarvetna við — Arangur stefnu og starfs ungmennafélaganna I landinu blasir hvarvetna viö augum sagði Guðjón. Hugmyndimar sem skutu upp kollinum á fyrstu árum félaganna um félagslegar og verklegar framkvæmdir hafa smátt og smátt verið að komast i framkvæmd. Þessar framfarir bera vott um fram- sýni þeirra sem mótað hafa störf og stefnu samtakanna frá upphafi. Mestu varðar þó þau þrosk- andi uppeldisáhrif sem starfiö i félögunum hefur veitt öllum þeim, sem þar vinna að áhuga- málum sinum og félaganna. Það er einnig ánægjulegt til þess að vita að þrátt fyrir breytinga-og byltingatima sið- ustu áratuga, stendur ung- mennafélagshreyfingin nú í dag föstum fótum i Islenzku þjóölifi og hefur virkari samstöðu og sterkari tengsl um allt land en nokkru sinni fyrr. Það er því augljóst að hún hefur miklu hlutverki að gegna i framti'öinni ekki síður en á liðnum tímum. Mörg vandamál steðja að i þjóöfélaginu sem ungmenna- félögin geta og eiga að láta sig varða og leitast við að beina á réttar brautir. Eitt þeirra verkefna sem framundan eru, er að eignast eigið húsnæði yfir höfuöstöðvar UMFI. Nú verður að leggja mikla áherzlu á það mál og það verður að fá framgang. Þá þarf aö halda áfram þvi starfi sem að hefur verið unnið varðandi útbreiðslustarfið, stuðla aö vaxandi samskiptum félaga og sambanda og auka enn samstarf við hliðstæð félög á Norðurlöndum. Slik samskipti geta oröið kveikjan að nýjum og góðum hugmyndum til að vinna að. Persónulega er ég mjög þakk- látur fyrir að hafa átt þess kost að starfa innan þessara sam- taka um áratugi. Af þvi starfi hef ég haft mikla ánægju. Oft hefur manni þó fundizt að áhugaverö verkefni hafi gengið mjög seint og þótterfitt við það að una. Aðallega er um að kenna að fjármagn hefur skort. Þvi er það eins Og alltaf hefur verið eitt höfuöviðfangsefnið að tryggja nægjanlegt f jármagn til starfseminnar. Glæsilegur árangur á iþróttasviðinu Næst tókum við tali Berg Torfason Felli i V. Isafjarðar- sýslu. Hann sagði m.a.: — A þessum timamótum er mér efst i huga sá mikli sam- taka- og samstarfshugur þess glæsilega hóps æskufólks, sem Bergur Torfason nú skipar sér i forustusveit is- lenzkra ungmennafélaga. Hann ber þess ljósast vitni að starf frumherjanna var reist á traustum grunni og allar úrtölu- spár sem skotið hafa upp kollin- um á siðustu árum hafa reynzt rangar. Starf samtakanna i heild hef- ur aldrei verið meira eða fjöl- breyttara á sviði fþróttamála, félagsmála, fræðslu, leikstarf- semi, unglingastarfs auk fjiS- margra annarra smærri mála- flokka, sem eru nær jafn margir og félögin. Að visu verður að viðurkenna að ekki er starfið alls staðar jafn öflugt og nokkur félög eiga við ýmsa erfiðleika að etja. Það minnir okkur aöeins á þd staðreynd aö aldrei má slaka á sókninni i útbreiöslustarfinu né vikja af verðinum. Við höfum aldrei lokaö að fullu þeim verkefnum, sem ung- Myndir og texti Magnús Ólafsson mennafélögin hafa unnið að. Þvi verða þau siung og þörfin fyrir að að þeim se unnið ætið hin sama. Það er þvi ekki hætta á verkefnaskorti hjá UMFI, hér- aðssamböndunum eða ein- stökum félögum. Sé litið til þess hvar mestur árangur hef ur náðst i starfi ung- mennafélaganna er það tvi- mælalaust á iþróttasviðinu. Á fyrstu áratugum hreyf ingarinn- arbar meira á öðrum þáttum i starfinu, en á siðari árum hafa Iþróttirnarsótt á. Landsbyggðin hefur nú á að skipa glæsilegu iþróttafólki þrátt fyrir að viða skortir tilfinnanlega á aöstöðu til iþróttaiðkana. Framtfðarverkefnin eru mörg ogerfitt að gera upp á milli hver þeirra eru mest aðkallandi. En forsenda fyrir öflugu starfi ung- mennafélaganna um land allt er, að öllum þáttum starfsins sé sinnt og hvergi á slakað. Útbreiðslustarfinu þarf að halda áfram af fullum krafti og treysta enn betur tengsl UMFÍ, héraðssambanda og félaga. En stærsta verkefni okkar á þessu afmælisári er aö eignast eigið húsnæði fyrir þjónustumiðstöð samtakanna. Þetta er brýnt verkefni og verðug afmælisgjöf ungmennafélagshreyfingunni til handa.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.