Tíminn - 16.09.1977, Qupperneq 11
Föstudagur 16 . september 1977.
n
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Stein-
grfmur Gíslason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Verö I
lausasölu kr. 80.00. Áskriftargjald kr. 1.500 á mánuöi.
Blaðaprent h.f.
Kaupið og
álögurnar
Á undan förnum mánuðum hafa miklar um-
ræður orðið um laun og kjör á íslandi i saman-
burði við Skandinaviu og hafa menn furðað sig á
þeim mismun sem virðist vera á milli landanna
og á þvi hve samanburðurinn sýnist íslendingum
óhagstæður.
Það liggur fyrir i umræðunum að aðstæður eru á
margan hátt ólikar i þessum löndum, jafnt land-
fræðilegar sem efnahagslegar. Það liggur og fyr-
ir að þjóðarframleiðsla er i Skandinaviu allt að
fjórðungi meiri á einstakling en hér á landi. Allt
um það er hér um að ræða málefni sem alla Is-
lendinga varðar, og það eru ekki sizt launþegarn-
ir sem fullan hug hafa á að vita hið sanna.
Fyrir nokkrum dögum birti Timinn grein eftir
Árna Benediktsson um þessi efni. Grein hans er
hið skilmerkilegasta framlag til umræðnanna. í
grein sinni segir Árni meðal annars:
„Kauptaxtar á íslandi 45-60 á móti 100 á
Norðurlöndum. Greidd vinnulaun á unna klst.
ásamt sérkröfukostnaði 60-100 á móti 100 á
Norðurlöndum. Launakostnaður á framleidda
einingu er 90-130 á íslandi á móti 100 á Norður-
löndum. Heildarlaun með launakostnaði og yfir-
vinnu eru 60-120 á íslandi á móti 100 á Norður-
löndunum.”
í umræðunum um þessi mál hefur komið fram
að vinnuskipulagi er i mörgu áfátt á Islandi mið-
að við Skandinaviu, nýting vinnuafls og vinnu-
tima virðist lakari hér en þar, en þetta hlýtur að
leiða af sér verri aðstöðu og hag jafnt fyrirtækja
sem launþega. Það sem þó vekur mesta athygli i
samanburðinum er sú staðreynd að hér á landi
gengur miklu minni hluti launakostnaðar til laun-
þegans sjálfs en i Skandinaviu.
Það hlýtur að vekja athygli islenzkra launþega
ef á sannast að launakostnaður fyrirtækja sé hér-
lendis sambærilegur við það sem gerist i ná-
grannalöndum um leið og grunnlaun eru hér
miklu lægri en þar á sér stað.
Það er ljóst að það fé sem þarna er á milli fer til
ýmissa félagslegra þarfa sem launþegar munu
telja til þjóðþrifa. Hins vegar er það álitamál
hvort skynsamlegt er að eyrnamerkja svo stóran
hluta vinnulauna i stað þess að leggja það ein-
faldlega i dóm launþegans sjálfs hvernig hann
kýs að ráðstafa sjálfsaflafé sinu. Ef álögur á
taxtakaup og eyrnamerkingar nema á íslandi allt
að 48% ofan á grunnlaun, en aðeins um 12% i
Færeyjum t.d., hljóta menn að spyrja hvort svo
mikill munur sé eðlilegur.
Það hlýtur að vera hagsmunamál launþega að
ekkert fari á milli mála i þessum efnum. Það
hlýtur að vera krafa launþeganna að samtök
þeirra taki þessi mál til athugunar. Og það hlýtur
að vera brýnt fyrir verkalýðssamtökin að hafa
alveg hreinan skjöld i þessum málum, svo að þvi
verði ekki haldið fram með neinum sanni að laun-
þegasamtökin leggi meiri áherzlu á sérkröfur en
grunnlaunin, á eyrnamerkingar á sjálfsaflafé
fólksins en á góð og stöðug lifskjör sjálfstæðra
þegna sem ráðstafa fé sinu sjálfir til sameigin-
legra félagslegra og menningarlegra þarfa.
Eins og mál standa nú virðist full ástæða til að
taka undir með Árna Benediktssyni þegar hann
hvetur til þess að samtök launþega og vinnuveit-
enda, ásamt rikisvaldinu, ,,taki vinnumálin i
heild til gagngerðrar endurskoðunar,” eins og
hann kemst að orði i grein sinni.
JS
ERLENT YFIRLIT
Katalónía mun
fá heimastjórn
Hyggileg ákvörðun Jóhanns Karls og Suarez
RÚMLEGA ein milljón
manna tók þátt i skrúögöngu i
Barcelona á sunnudaginn var.
Til göngunnar var efnt i tilefni
af þvi að hinn 11. september
1714 réðist sameinaður her
Frakka og Spánverja inn i
Katalóniu og braut á bak aftur
sjálfstjórn, sem Katalóniu
menn höfðu notið öldum
saman. Eftir þetta var Kata-
lónia innlimaður hluti Spánar-
veldis. Katalóniumenn undu
illa yfirstjórn valdhafanna i
Madrid, og vonin um endur-
heimt heimastjórnar hélzt
stöðugt lifandi. Þegar konung-
dæmið var afnumið á Spáni
um 1930 og lýðveldi sett á
laggirnar, gripu Katalóniu-
menn tækifærið og fengu þvi
framgengt, að Katalónia fékk
allviðtæka heimastjórn. Þetta
leiddi m.a. til þess, að Kata-
lóniumenn fylgdu lýðveldis-
hernum að málum, eftir að
borgarastyrjöldin hófst 1936,
þar sem þeir töldu sig tryggja
bezt hina endurheimtu heima-
stjórn á þann hátt. Það átti og
sinn þátt i þessu, að jafnaðar-
menn voru þá öflugasti
flokkurinn i Katalóniu. Sigur
Francos leiddi til þess, aö
heimastjórnin var afnumin og
Luis Compánys, sem var for-
seti hennar, var tekinn af lifi.
Katalóniumenn gáfust samt
ekki upp. Þeir þeirra, sem
gátu flúið land i lok borgara-
styrjaldarinnar, mynduðu út-
lagastjórn i Frakklandi, sem
hefur siðan 1954 verið undir
forustu Josep Tarradellas,
sem er nú 78 ára gamall, en
vann sér mikið orð fyrir
hreystilega framgöngu i borg-
arastyrjöldinni. Tarradellas
og aðrir ráðherrar út-
lagastjórnarinnar eru enn bú-
settir erlendis, enda mætti
dæma þá sem uppreisnar-
menn, ef þeir héldu heimleiðis
að óbreyttum lögum, sem sett
voru i tið Francos, og m.a.
var ætlað að kveða niður sjálf-
stæðishreyfingar i Baska-
héruðunum og Katalóniu.
ÞAÐ kom i ljós i þingkosn
ingunum, sem fóru fram á
Spáni um miðjan júni, að
heimastjórnarhreyfingin á
enn sterk itök meðal Kata-
lóniumanna. Flokkar, sem
gerðu heimastjórn að aðal-
máli sinu, fengu talsvert fylgi,
en langmest fylgi fékk þó
Sósialistaflokkurinn, sem lýsti
stuðningi sinum við heima-
stjórn. Jóhann Karl konungur
og Adolfo Suarez forsætisráð-
herravirðast hafa verið fljótir
að átta sig á þvi, að hyggilegra
væri að koma til móts við
þessa hreyfingu, heldur en að
snúast beint gegn henni. Að
undirlagi þeirra Jóhanns
Karls og Suarez, fór leiðtogi
Miðflokkabandalagsins i
Barcelona, Carlos Sentis, til
Parisar og ræddi þar við
Tarradellas. Niöurstaða við-
ræðna þeirra varð sú, að
Tarradellas féllst á að fara til
Madrid til viðræðna við
Suarez. Tarradellas lét i ljós
mikla ánægju yfir afstöðu
Suarez eftir viðræðurnar við
hann. Suarez skildi mig, er
haft eftir Tarradellas, og ég
skildi hann. Þá átti Tarra-
dellas einnig viðræður við
-konung, og lét vel af þeim.
Hann sagðist ekki sjá neina
fyrirstöðu á þvi, að ekki mætti
samræma konungdæmið og
sjálfstjórn Katalóniu.
AÐ DÖMI fréttaskýrenda,
sem eru kunnugir málefnum
Spánar,hafa þeir Jóhann Karl
og Suarez farið hér hyggilega
að málum. Að visu mun gæta
nokkurrar tortryggni hjá
hernum i sambandi við
væntanlega sjálfstjórn Kata-
lóniu og veldur henni mest, að
Katalóniumenn stóðu með lýð-
veldishernum á sinum tíma.
Liklegt er talið, að Jóhann
Karl og Suarez hafi þegar
sannfært helztu ráðamenn
hersins um, að þegar allt
komi til alls, sé það bezta
lausnin að veita Katalóníu-
mönnum sjálfstjórn og eining
Spánar verði bezt tryggð á
þann hátt. Hitt gæti frekar
stutt aö upplausn rikisins, ef
reynt væri að bæla niður sjálf-
staeðishreyfingar i Katalóniu
og Baskahéruðunum. Heppi-
legast sé að jafna ágreining-
inn áður en hann verður meiri.
Þrátt fyrir hinar vinsam-
legu samræður milli Jóhanns
Karls og Suarez annars vegar
og Tarradellas hins vegar
tókst ekki að ganga frá endan-
legu samkomulagi um sjálf-
stjórn Katalóniu fyrir hinn 11.
september eins og stefnt hafði
verið að. Enn er eftir að jafna
viss ágreiningsatriði, en full-
vist þykir, að það muni takast.
1 boðskap frá útlagastjórninni
sem var lesinn i útvarpið i
Barcelona 11. september, var
komizt svo að orði, að þetta
myndi verða i siðasta sinn,
sem hún þyrfti að ávarpa
landa sina erlendis frá. Það
vakti samt nokkur vonbrigði,
að samkomulag tókst ekki
fyrir 11. september, og kom
þvi til nokkurra óeirða i lok
göngunnar.
Suarez hefur heitið Böskum
að fallast á óskir þeirra um
heimastjórn, en formlegar
viðræður við þá eru ekki
hafnar enn. Sennilega munu
konungur og Suarez telja, að
hyggilegra sé að ná sam-
komulagi við Katalóniumenn
fyrst og nota það til fyrir-
myndar i viðræðunum við
Baska.
Suarez er sagður hafa haft
náin samráð við Felipe
Gonzales, leiðtoga Sósialista-
flokksins, um þessi mál, enda
er Sósialistaflokkurinn lang-
stærsti flokkurinn i Katalóniu.
Þá er sagt, að þeir hafi rætt
um samstarf á fleiri sviðum.
Þ.Þ.
Uppdráttur, sem sýnir Katalónlu meö dökkum lit.