Tíminn - 04.12.1977, Blaðsíða 37

Tíminn - 04.12.1977, Blaðsíða 37
Sunnudagur 4. desember 1977. 37 Bækur frá Ægisútgáfunni Héraðssögur Vestfjarða I Súgfirðingabók Gunnar M. Magnúss skráði. Mikiðrit, fróðlegt og skemmtilegt, 523 bls. með 190 myndum. Rakin er saga byggðar og mannlifs frá landnámi til vorra daga. Af köflum má nefna: Sólarsinnis um Súgandafjörð, Suðureyrartorfan, Spekúlant- ar og kaupmenn, Flotinn, Kynslóðin sem byggði þorpið, And- inn i efninu, Gengið og leikið, Félagslifið og fjölmargt fleira er i ritinu að finna. Upplagið er takmarkað. Dragið þvi ekki að ná i þessa fágætu bók. 8SS1 Afburðamenn og örlagavaldar. IV. Bárður Jakobsson skráði. 4. bindið i þessu stórfróðlega safni, sem er raunar mannkynssaga í svipmyndum. Æviþættir 20 mikil- menna sem hafa átt stóran hlut i að móta nútima veröld. Enn eru öll bindin fáanleg á góðu verði. Þau ættu að vera til á hverju heimili. Alls hafa birst i safninu 80 þættir. í þessu bindi er saga eftirtalinna andans jöfra: Vilhjálmur Sigursæli, Gengis Kahn, Machiavelli, Karl V, Jóhannes Kalvin, Elisabet I„ Richelieu, Oliver Cromwell, Rembrandt, Jóhann Sebastlan Bach, Thomas Paine, Talleyrand, Napóleon Bonaparte, Hans Cristian Andersen, Bismarck, Stanley, Sigmund Freud, George Bernard Shaw, Friðjófur Nansen, Albert Einstein. Æ Islendingar i Vesturheimi II. Eftir Þorstein Matthíasson. Þetta bindi flytur aðallega frásagnir og viðtöl við gamla íslendinga búsetta i Canada. Þeir hafa frá mörgu að segja og dvölin i nýýa land- inu var ekki dans á rósum fyrstu árin. Hörð barátta við óbliða veðráttu skordýraplágur, pestir og alls- leysi var hlutskipti flestra. Þessir segja frá: Fröken Siurbjörg Stefánsson, Arni Kristinsson, Þóröur Þ. Bjarnason, Jóhannes Þóröarsson, Iiallgrimur Staöfeld. Petrína Reglna Péturson Björn Oddgeirsson, Lárus Bjarni Nordal, Þuriöur Steinunn, Jón Páls- son, Magnús Ellasson, Frú Þórunn Vigfússon, Jón Vigfússon, Þor- steinn og Llna, Óli Narfason. Ýmislegt fleira er i ritinu. . .. ... . .. ...... .... ■..... . .. ... ..... 8ÍIMTIIR TUTTUGU MtXlLMENMa SÖGUNHflR IVESTURHEIMI land og fólk .. • d Þórunn Elva Magnúsdóttir: Frá Skó/avörðustígaö Skógum i Öxarfirði Minningar frá bernskuárum höf- undar hér á Skólavörðuholtinu, þeim sögufræga staö. Þar er minnst margra þekktra Reykvlk- inga. Lýst er lífinu á fátæku barnmörgu heimili, leikjum barna og starfi I þann tíö og margt fleira ber á góma. Leiðin liggur svo aö Skógum I öxarfirði, þar seni nú er staöur- inn umflotinn vatni, feröalaginu norður og fyrstu kynnum af þeim staö. Aðalkaflarnir nefnast: Lltil korn frá llfsins morgni, 1 húsi leturgrafarans, og Litill ferða- langur. Bjarna-Disa og Móri Halldór Pétursson skráði og safnaði. Hér segir frá frægum draugum austfirskum. Saga Bjarna-DIsu er harmsaga og aldrei varö hún mikill skaö- valdur þó hrekkjótt væri hún óneitanlega. Um Móra gegnir ööru, Hann var bruggaður úr lyfjasulli og bein- linis til þess geröur aö vinna öörum mein. öll þau ósköp sem Móra tókst aö afreka öörum til óþurftar eru i senn ótrúleg og óskiljanleg. Maöur spyr undr- andi? Hvernig gátu þessi ósköp gerst, Lesandanum veröur aö eftirláta þá gátu. Frá Skólavörðustig að Skógum i Öxarfirði HaTldór Péturxon í sti/lu og stormi Jóhann J.E. Kúld. Upphaf Kúlds ævintýra. Jóhann rekur hér minningar frá æsku til fullorðins- ára. Fjörlegar frásagnir af búsháttum til sveita og sjávar. Jóhann segir skemmtilega frá hefur margt reynt heyrt og séð og fjölmargir þekktir menn koma við sögu. Af efninu má nefna: Brimleikur og fjaran. Danski-Larsen, Jón Vldalln Konsúll, Hesta- sveinn hjá Jóhannesi Nordal, Armanns-Gráni, Kaupstaöarferö, Heljarreiöin á Ólafs-Blesa, Ingimundur fiöla, Róiö úr Selsvör, Haldiö á sildveiöar, Frá Sandgeröi var sótt á miöin, Viöendir skútualdar. Fjölmargt fleira mætti nefna. Skemmtileg og fróð- leg bók. : JÚHANN f % mKulD • % 1 STILLU ¥- « S Hugrún: S trengjakliður Falleg bók aö útliti og innihaldi. 40 kvæöi ljóöræn og hrlfandi, ort I heföbundnum stíl. Hugrún er opin fyrir þvi sem gott er og fagurt, en á samt til aö stinga á kýlunum þótt hin hliðin sé henni hugstæö- ari. Ljóöavinum er þessi bók efalaust aufúsugestur. HUGRUN <5 /EGlSÚTOÁfAN Mennirnir í brúnni l-V Þættir af starfandi skipstjórum, sem allir eru afburða-aflamenn auk sex siglingamanna. Samtals eru þeir 31 skipstjórarnir sem segja frá margháttaðri og lærdómsrikri reynslu sinni á langri sjómannsæfi. Þetta er verk sem öllum sjómannsefnum er nytsöm eign og lesning. Frá mörgu er að segja skemmtilegu og skoplegu eins og sjómönnum einum er lagið. Að ógleymdum þeim atburðum sem tóku á taugarnar og tvisýnt var hvort sykki eða flyti. Sögumenn eru: Hrólfur Gunnarsson, Jóhann Simonarson, Magnús Þórarinsson, Marius Héðinsson, Markús Guðmundsson, Sigurður Árnason, Sigurður Kristjónsson, Sigurjón Stefánsson, Steinar Kristjánsson, Tryggvi Blöndal, Tryggvi Gunnarsson, Þorvaldur Árnason, Þorsteinn Gislason, Þórarinn Ólafsson, Þórður Guðjóns- son, Þórarinn Ingi Sigurðsson, Arinbjörn Sigurðsson, Ásgeir Guðbjartsson, Björgvin Gunnarsson, Bernharð Pálsson, Eggert Gisla- son, Einar Sigurðsson, Finnbogi Magnússon, Gisli Jóhannesson, Gunnar Árnason, Gunnar Hermannsson, Halldór Brynjólfsson, Halldór Halldórsson, Haraldur Ágústsson, Hans Sigur- jónsson Hilmar Rósmundsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.