Fréttablaðið - 03.06.2006, Side 34
[ ]Er varadekkið í lagi? Það er fátt meira pirrandi en að húkka far á næsta dekkjaverkstæði því maður var latur skussi.
Áhugasamir bílstjórar fengu að
reyna hinn svokallaða xDrive í
ökuskóla BMW á dögunum.
Í þessari viku og þeirri síðustu
stóð B&L fyrir svokölluðum öku-
skóla BMW. Hingað til lands kom
Michael Caspers frá höfuðstöðv-
um BMW í Þýskalandi og leið-
beindi ökuglöðum gestum í akstri
á BMW með svokölluðu xDrive.
Ökuskólinn hófst með stuttri
kynningu á hinum öfluga fjór-
hjóladrifbúnaði BMW, xDrive.
Þetta er skynvætt fjórhjóladrif
sem svarar á sekúndubrotum
þannig að ef mótstaðan minnkar
undir einu hjóli þá flyst aflið
umsvifalaust á þau sem viðspyrnu
hafa. Þetta tryggir hámarksveg-
grip á hverjum tíma og stuðlar því
að miklu akstursöryggi.
Að lokinni þessari kynningu
var haldið upp í Bláfjöll á bæði
fólksbílum og jeppum sem búnir
eru xDrive. Þegar komið var inn á
Bláfjallaafleggjarann voru öku-
menn hvattir til að reyna grip
drifsins með því að aka í svigi
eftir veginum. Þar kom vel í ljós
hið framúrskarandi veggrip bíl-
anna. Í Bláfjöllum var fólksbílun-
um lagt og hafist handa við brems-
uprófun á BMW X-3 og X-5
jeppum. Fyrirmæli leiðbeinand-
ans hljóðuðu upp á að negla niður
bremsuna á leyfilegum hámarks-
hraða og alls ekki minni ferð. Í
fyrstu atrennu þótti Michael bíl-
stjórarnir heldur ragir við að
negla en smám saman efldist þeim
þor og að minnsta kosti sumum
tókst að sýna fram á það afl sem
vissulega er að finna í hemlunar-
búnaði X-3 og X-5.
Síðari áfangi verklega náms-
ins í ökuskólanum fór fram á
nýgerðri mótorkrossbraut í
Jósepsdal. Ekið var um sand-
gryfjur, farið upp og niður mik-
inn bratta, þar sem unnt var að
reyna HDC kerfið (brekkubrems-
uvörn). Sumum bílstjórum reynd-
ist að minnta kosti í fyrstu örðugt
að sleppa bremsunni í miklum
bratta og leyfa HDC-inu að halda
í við bílinn. Með reynslunni kom-
ust menn þó að því að þetta var
alveg óhætt. Aksturinn á mótor-
krossbrautinni var skemmtilegur
fyrir ökuþóra og vel komu í ljós
eiginleikar xDrive-sins þegar nef
bílanna stungust upp fyrir
brekkubrúnir og eitt hjól missti
alveg viðspyrnu. Þá hætti það um
leið að snúast og aflið fluttist yfir
á þau hjól sem viðpyrnu höfðu.
steinunn@frettabladid.is
Ökuskóli BMW
Bílstjórar í ökuskóla BMW reyna sig á BMW X-3 og X-5 í sandgryfjunum í Jósepsdal.
Borgarjeppar (SUV) eru
ekki stöðugir bílar ef marka
má veltipróf bandarískra
yfirvalda. Ástandið er þó að
batna.
Með tilkomu rafræns stöðugleika-
búnaðar. 7 af 10 nýjum borgar-
jeppum sem koma út á árinu hafa
slíkan búnað sem gerir bílana mun
stöðugri. Bandaríska vegaörygg-
isnefndin prófar nýja bíla árlega
og fá þeir 1 til 5 stjörnur, allt eftir
því hversu öruggir þeir eru. Hing-
að til hefur enginn borgarjeppi
fengið 5 stjörnur en 39 hafa fengið
4 stjörnur.
Talið er að árlega látist í Banda-
ríkjunum einum saman 10.000
manns í slysum þegar bíll hefur
oltið. Yfirvöld vestanhafs leggja
því mikla áherslu á að sem flestir
bílar séu búnir einhvers konar
veltivörn. Opinberar rannsóknir
sýna að hafi nýjar árgerðir sport-
jeppa verið búnar veltivörn fækk-
ar veltum miðað við eldri gerðir
um 35 próent þar sem einn bíll
kemur við sögu og um 67 prósent
þar sem tveir bílar koma við
sögu.
Meðal nýlegra sportjeppa sem
fengið hafa 4 stjörnur má nefna
Chevrolet HHR, Honda Pilot,
Toyota RAV4, Suzuki Grand Vit-
ara og Mercedes-Benz ML Class.
Lista yfir alla bíla er að finna á
www.safercar.org - tg
Borgarjeppar batna
Chevrolet HHR er öruggasti borgarjeppinn hvað varðar stöðugleika.
www.kliptrom.is
KT jeppa & útivistarverslun
S:466-2111
Gæða pallhús
Hilux 2006
Isuzu D-Max
Mitsubishi L200
Nissan Navara
Mazda / Ford
SMM pallhúsin eruviðurkennd af fram-leiðendum Toyota,Isuzu og GM
Opið virka daga 8-18
Gabriel höggdeyfar, AISIN kúplingssett, TRISCAN spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós ofl. Sætaáklæði,
sætahlífar á stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn,
hestamenn o.fl. Kerruljós, bretti og nef-
hjól á kerrur. Bílamottur.
Jeppadekk
Vagnhöfða 6 • 110 Reykjavík • Sími 577 3080
Vortilboð!
31" heilsársdekk
kr. 11.900
(31x10.50R15)
Aðrar stærðir:
27" 215/75R15, kr. 7.900
28" 235/75R15, kr. 8.900
30" 245/75R16, kr. 10.900
32" 265/75R16, kr. 12.900
Sendum frítt um allt land!
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3