Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 2
2 12. júní 2006 MÁNUDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
������� ���������������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
SJÓMANNADAGURINN Einar K. Guð-
finnsson sjávarútvegsráðherra var
fyrsti ræðumaður á setningu hátíð-
arhalda Sjómannadagsins á Mið-
bakka Reykjavíkurhafnar klukkan
tvö í gær. Einar fagnaði minnkun
brottkasts á fiski og kynnti því
næst niðurstöður könnunar IMG-
Gallup um viðhorf sjómanna til
starfs síns. 84 af hundraði sjó-
manna sögðust ánægðir með starf
sitt og svipaður fjöldi sagðist stolt-
ur af því að vera sjómaður. Þá
stefndu tveir þriðju þeirra sem nú
eru á sjó að því að sjómennska yrði
starf þeirra næstu tvö til fimm árin
eða þaðan af lengur. Ráðherra fagn-
aði þessum niðurstöðum og sagði
það næsta einstakt að þjóð hefði
byggt upp efnahag sinn á aðeins
einni atvinnugrein.
Hins vegar lýsti Einar yfir von-
brigðum yfir því að uppbygging
þorskstofnsins hefði ekki gengið
sem skyldi og stóra verkefni fisk-
veiðistjórnunarinnar á komandi
tímum væri sú vinna, sem mundi þó
líklega kosta tímabundnar fórnir.
Að lokum minntist ráðherra
þess fjölda sem nú hvílir í votri
gröf og tilkynnti að nú hefðu nöfn
þeirra íslensku sjómanna sem fór-
ust í seinni heimsstyrjöldinni verið
skráð á minnisvarðann Minningar-
öldur sjómannadagsins í Fossvogs-
kirkjugarði. - sgj
Sjávarútvegsráðherra sagði stóra verkefnið fram undan að byggja upp þorskstofninn á Íslandsmiðum:
Meirihluti sjómanna ánægður í starfi
EINAR K. GUÐFINNSSON SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Ráðherra fagnaði þeim niðurstöðum
skoðanakönnunar IMG-Gallup, að sjómenn væru hamingjusöm og stolt starfstétt.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS
Guðmundur, voru þetta sjó-
blaut hátíðahöld?
„Sjómannahóf var á laugardagskvöld
og þá blotnuðu menn aðeins innvortis
en í gær blotnuðu sjómenn útvortis.“
Guðmundur Hallvarðsson er formaður sjó-
mannadagsráðs en Sjómannadagurinn var
haldinn hátíðlegur í gær í beljandi rigningu.
SJÓMANNADAGURINN Helgi Laxdal,
formaður Vélstjórafélagsins, talaði
fyrir hönd sjómanna á setningu
hátíðarhalda Sjómannadagsins.
Hann hvatti sjómenn til að standa
saman í kjarabaráttunni og sagði að
endurskoða þurfi hlutaskiptakerfið
að mörgu leiti. Til dæmis valdi
hækkun olíuverðs lækkunar skipta-
prósentu sjómanna.
Þetta kerfi sé meingallað, því
það taki ekki tillit til útgerða sem
noti orkuvæn veiðafæri. Þær geti
hreinlega hagnast á hækkun olíu-
verðs, því lækkun launagreiðsla sé
meiri en hækkun kostnaðar við olíu-
kaup. Auka þurfi rannsóknir á orku-
vænum veiðafærum, enda krefjist
nútíminn lausna í þeim málum. - sgj
Formaður Vélstjórafélagsins:
Skiptakerfið
meingallað
SJÓMANNADAGURINN Mikið rigndi
yfir gesti setningar hátíðarhalda
Sjómannadagsins á Miðbakka við
Reykjavíkurhöfn klukkan tvö í gær.
Guðmundur Hallvarðsson, formað-
ur sjómannadagsráðs, setti athöfn-
ina og því næst kynnti Hálfdán
Henrýsson fundarstjóri Einar K.
Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra
til máls.
Eggert Bene-
dikt Guðmunds-
son, forstjóri HB
Granda hf., tók
til máls á eftir
Einari. Hann
sagði sjávar-
útveg enn vera
mikilvæga
atvinnugrein
fyrir þjóðarbúið,
þó að margir
teldu gróðatæki-
færin helst liggja
hjá bönkum,
verslun og þjón-
ustu. „Samkvæmt
skýrslu Hagstof-
unnar fluttu
Íslendingar út
vörur á síðasta
ári fyrir 194
milljarða króna,“
sagði Eggert. „57
prósent alls
útflutningsins voru sjávarafurðir.“
Hann sagði því næst að fiskveiði-
stjórnunarkerfi Íslands væri eitt
það besta í heimi og lofaði sjávarút-
vegsráðherra fyrir að hvika ekki
frá afstöðu sinni um að viðhalda
kvótakerfinu.
Eggert nefndi einnig að taka
þyrfti upp hvalveiðar sem fyrst,
enda ætu hvalir á Íslandsmiðum
tífalt það magn af loðnu sem sjó-
mönnum væri heimilt að veiða.
„Það mundi um leið minnka þann
ágang sem aðrir stofnar verða fyrir
af hálfu ótakmarkaðs vaxtar tiltek-
inna hvalastofna,“ sagði Eggert að
lokum. Sjávarútvegsráðherra sagð-
ist í samtali við blaðamann vera
mikill áhugamaður um hvalveiðar,
þó engin pólitísk ákvörðun hefði
enn verið tekin í þeim efnum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
stjórnarmaður í hafnarstjórn
Faxaflóahafna og verðandi borg-
arstjóri í Reykjavík, minntist
þess hve margir hefðu látist á sjó
og hversu margir hefðu glaðst
þegar hætt komnir sjómenn
björguðust. Hann sagði að styrkja
þyrfti björgunarsveitirnar og
fella niður virðisaukaskatt á þau
tól og tæki sem sveitirnar þyrftu
til að halda uppi góðri þjónustu.
Vilhjálmur sagði það mikilvægt
að Íslendingar töpuðu ekki sjálf-
stæði yfir fiskimiðunum. „Sporin
sem tekin hafa verið innan ESB
hræða, enda vel flestir fræðimenn
sammála því að sú sjávarútvegs-
stefna sem þar er rekin sé í algjörri
andstöðu við skynsamlega nýtingu
viðkvæmrar náttúruauðlindar sem
fiskimiðin eru,“ sagði Vilhjálmur.
„Brussel getur því ekki verið á dag-
skrá íslenskra stjórnvalda, svo
lengi sem hin sameiginlega sjávar-
útvegsstefna Evrópusambandsins
er við lýði.“
Hann minnti fólk á að gleyma
því ekki hvað forræði yfir íslensk-
um fiskimiðum hefði kostað þjóð-
ina og sagði Íslendinga standa í
þakkarskuld við Landhelgisgæsl-
una fyrir hennar framlag.
steindor@frettabladid.is
Mæla gegn ESB og
hvalveiðabanninu
Ræðumenn við setningu hátíðarhalda Sjómannadagsins lofuðu sjómennskuna
og þátt hennar í efnahagsuppsveiflu Íslands á 20. öld. Einnig lögðu þeir fram
hugmyndir um framtíð sjávarútvegsins og bar hvalveiðar og ESB á góma.
EGGERT BENEDIKT
GUÐMUNDSSON
KAPPRÓÐUR Á SJÓMANNADAGINN Sjómannadagurinn hefur verið haldinn árlega frá 1938,
en mikið var um dýrðir þrátt fyrir rigningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
SLYS Ung stúlka er á batavegi eftir
árekstur í Ártúnsbrekkunni klukk-
an tvö aðfaranótt sunnudags. Stúlk-
an var farþegi í bíl sem ekið var í
vestur þegar réttindalaus ökumað-
ur hans missti stjórn á bifreiðinni
og ók henni á staur. Fimm voru í
bílnum, öll á aldrinum fjórtán til
sextán ára.
Stúlkan hlaut alvarlega höfuð-
áverka og var haldið sofandi í önd-
unarvél en losnaði úr henni á
sunnudagskvöld. Að sögn lögreglu
leikur ekki grunur á að ökumaður
hafi verið undir áhrifum áfengis eða
lyfja, líklegra sé að reynsluleysi
hafi orsakað slysið. - sgi
Bílslys í Ártúnsbrekku:
Á batavegi
eftir slæmt slys
ALVARLEGT SLYS Réttindalaus ökumaður
missti stjórn á bílnum sem ekið var í vestur
í Ártúnsbrekku. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SPÁNN, AP Ættingjar fórnarlamba
aðskilnaðarsamtaka Baska, ETA,
auk fjölda annarra, mótmæltu í
Madríd á laugardag fyrirhuguð-
um samningaviðræðum spænsku
ríkisstjórnarinnar við ráðmenn
ETA. Um 200 þúsund manns
mættu á mótmælafundinn.
Í mars boðuðu talsmenn ETA
varanlegt vopnahlé, en hópnum er
kennt um að hafa banað yfir 800
manns síðan árið 1968.
Forsætisráðherrann, Jose Luis
Rodriguez Zapatero, hefur lýst
yfir vilja til að veita stjórnum 17
héraða Spánar meira vald á heima-
velli, þar með talið stjórnum
Baskahéraðanna og Katalóníu, og
hefur lofað að ræða þessi mál við
ETA, svo framarlega sem þeir
haldi vopnahléð, og hefur spænska
þingið stutt hann í því. Margir
hægrisinnaðir Spánverjar telja
slíkt tal auka á óstöðugleikann og
segja það muni á endanum leysa
upp spænska ríkið.
Fjölmargir hægrisinnaðir
stjórnmálamenn mættu í gönguna
á laugardag, og sagði aðstoðarfor-
sætisráðherra, Maria Teresa Fern-
andez de la Vega, að á meðan fórn-
arlömb og ættingjar eigi fulla
samúð skilda, þá væri það ámælis-
vert að nýta sér sársauka þeirra í
pólítískum skilningi. - smk
Fyrirhugaðar samningaviðræðum við aðskilnaðarsamtaka Baska verkja viðbrögð:
200.000 mótmæla í Madríd
MÓTMÆLIFjölmargir Spánverjar mótmæltu á laugardag fyrirhuguðum viðræðum stjórnar-
innar við aðskilnaðarsamtök Baska. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKEMMTUN Forsvarsmenn skemmti-
staðarins Óliver á Laugavegi voru
himinlifandi í gær þegar umboðs-
menn Roger Waters, fyrrverandi
forsprakka Pink Floyd, höfðu sam-
band. Vildu þeir panta borð fyrir
rokkarann í mat auk þess sem
gefið var í skyn að tónlistamaður-
inn, sem ætlar að halda tónleika í
Egilshöll í kvöld, myndi taka lagið
með hljómsveitinni Jazzy Havanas
sem spilar á Óliver á sunnudags-
kvöldum.
Framkvæmdastjóri Ólivers
sagðist eiga von á talsverðum
fjölda fólks enda var fréttinni
lekið í útvarpsstöðvarnar. Aðgangs-
eyrir var enginn en hins vegar
komust örugglega færri að en
vildu enda er hámarksfjöldi á
skemmtistaðnum 300 manns. - sgi
Roger Waters í Reykjavík:
Pantaði óvænt
borð á Óliver
WATERS Fólk gat fengið forskot á sæluna
í gær þegar Roger Waters var staddur á
skemmtistaðnum Óliver daginn fyrir stór-
tónleika hans í Egilshöllinni.
LÖGREGLAN Mikill fjöldi fólk er nú
saman kominn á Patreksfirði til að
halda upp á sjómannadaginn og
gerir lögreglan þar ráð fyrir því að
íbúafjöldinn hafi tvöfaldast yfir
helgina. Til einhverja slagsmála
kom á dansleik þar á föstudag en
þau leystust upp áður en til kasta
lögreglunar kom. Í gær var svo efnt
til dansleiks í félagsheimilinu. - jse
Patreksfjörður:
Ryskingar
á dansleik