Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 8
8 12. júní 2006 MÁNUDAGUR
VEISTU SVARIÐ
1 Hvar fylgist Eiður Smári Guðjohnsen með HM í knattspyrnu?
2 Hvað heitir sjávarútvegsráðherra?
3 Með hverjum syngur Ómar Ragnars-son dúett á nýjum geisladiski?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
STJÓRNMÁL „Ríkisstjórnin er búin
að afsala sér stjórnvaldinu og vísar
á aðra,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar, á flokksstjórnarfundi á
laugardagsmorgun.
Ingibjörg sagði hugmyndaleg-
an grunn ríkisstjórnarinnar upp-
urinn og að ekki væri tekið á
aðsteðjandi vanda í efnahags-,
félags-, og varnarmálum. Sagði
hún stjórnina vísa á Seðlabankann,
viðskiptabankana, aðila vinnu-
markaðarins, bandarísk stjórnvöld
og ál- og orkufyrirtæki í stað þess
að grípa sjálf til aðgerða.
Ingibjörg Sólrún gagnrýndi
ríkisstjórnina harðlega og kallaði
hana blágrænt hræðslubandalag
um völd. Sagði hún bandalagið
teygja sig inn í stjórnkerfið, fjöl-
miðla og fjármála- og eftirlits-
stofnanir. Í ofanálag sagðist hún
ekki sjá betur en að Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur
ætluðu að freista þess að halda
ríkisstjórnarsamstarfinu áfram
eftir næstu kosningar.
„Þetta bandalag er ekki gott
fyrir samfélagsþróunina, það er
ekki gott fyrir lýðræðið, það er
ekki gott fyrir framtíðina, það er
ekki gott fyrir fólkið í landinu og
þetta bandalag þarf annað hvort að
brjóta upp eða á bak aftur.“
Til að sporna við efnahags-
þróuninni vill Ingibjörg Sólrún
hætta við skattalækkanir um ára-
mót, draga úr opinberum fram-
kvæmdum á næsta ári og halda
aftur af hækkun hámarkslána
Íbúðalánasjóðs.
Ingibjörg Sólrún sagðist vilja
að Samfylkingin myndaði ríkis-
stjórn jafnaðarsinna sem meðal
annars endurreisti velferðarþjón-
ustuna og stæði að nýrri mennta-
og atvinnustefnu. Þá vill hún að ný
ríkisstjórn hefji undirbúning að
inngöngu í Evrópusambandið og
upptöku evru. Um þau skref þurfi
þó að ríkja sátt. „Samfylkingunni
er ekkert að vanbúnaði að fara út í
kosningar, við erum tilbúin,“ sagði
Ingibjörg Sólrún.
Í ræðunni ræddi hún einnig um
úrslit nýafstaðinna sveitarstjórnar-
kosninga og sagði Samfylkinguna
hafa fest sig í sessi sem þrjátíu
prósenta flokk. Hún sagði Sam-
fylkinguna hafa gert sér miklar
væntingar um góðan árangur í
kosningunum í Reykjavík og í raun
hefði flokkurinn tapað fyrir eigin
væntingum. Sterkur listi og góð
kosningabarátta hefði ekki dugað
til og taldi hún skýringanna að
hluta til að leita í upplausn Reykja-
víkurlistans. Þá hefði verið uppi
krafa um breytingar í borginni,
sem ekki væri óeðlilegt.
bjorn@frettabladid.is
Samfylkingin myndi
stjórn jafnaðarsinna
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er andvíg lækkun-
um skatta um áramót. Hún segir núverandi ríkisstjórn hafa afsalað sér völdum
og vill að stjórn jöfnuðar, sem hefji undirbúning að inngöngu í ESB, taki við.
RÍKISSTJÓRNIN HEFUR AFSALAÐ SÉR VÖLDUM Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kom víða við í
ræðu sinni á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á laugardag og deildi hart á ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
TÓNLIST Íslensk tónverk vöktu
mikla athygli á Alþjóðlega tón-
skáldaþinginu í París sem lauk á
föstudag. Ríkisútvarpið hafði til-
nefnt tvö verk sem bæði voru í
hópi þeirra tíu verka sem þátt-
takendur á þinginu kusu athygl-
isverðust. Þetta voru verk ATLa
Ingólfssonar, Flecte Lapis II,
fyrir klarinett og hljómborð, og
verk Huga Guðmundssonar,
Equilibirum IV: Windbells, sem
samið var fyrir Caput hópinn
fyrir heimssýninguna í Japan.
Þetta telst mjög góður árang-
ur enda kepptu sextíu verk frá
þrjátíu löndum á þinginu. Þá var
verk Huga einnig valið í hóp
þriggja athyglisverðustu verk-
anna í flokki tónskálda 30 ára og
yngri. Sjaldgæft er að land eigi
tvö verk á topp tíu en að þessu
sinni deildi Ísland heiðrinum
með Eistlandi, sem einnig átti
tvö verk á listanum.
Alþjóðlega tónskáldaþingið er
skipulagt af Alþjóðatónlistarráð-
inu og var fyrst haldið árið 1954.
Á þinginu hittast fulltrúar fjöl-
margra útvarpsstöðva frá öllum
heimshornum og kynna tónverk
frá sínu heimalandi og skiptast á
upptökum.
Þingið beinir þeim tilmælum
til þeirra þrjátíu útvarpsstöðva í
fjórum heimsálfum sem taka
þátt í þinginu að leika verkin í
dagskrá sinni. - sgi
Tónverk Huga Guðmundssonar og Atla Ingólfssonar vekja athygli í París:
Meðal tíu athyglisverðustu
verkanna á tónskáldaþingi
HUGI GUÐMUNDS-
SON Equilibrium
IV: Windbells er í
flokki tónskálda 30
ára og yngri.
ATLI INGÓLFSSON
Flecte Lapis II var
valið eitt af tíu
athyglisverðustu
verkunum á þinginu.
DANMÖRK Danska ríkið mun
tryggja dönskum vændiskonum
fjárstyrk upp á þrjú hundruð þús-
und íslenskar krónur á mánuði ef
hugmyndir Line Barfoed, þing-
manns Einingarlistans, ganga
eftir. Í viðtali við Politiken í gær
segir þingmaðurinn að styrkurinn
muni gera fleiri konum kleift að
finna sér nýjan starfsvettvang án
þess að fjárhagur heimilisins
verði settur úr skorðum. Enda hafi
margar vændiskonur vanið sig og
fjölskyldur sínar við lífsstíl sem
krefjist hárra mánaðarlauna. Hún
vill einnig að konunum verði boðin
sálfræðimeðferð til að vinna á
þeim andlega skaða sem þær hafa
orðið fyrir í vændinu. Talsmaður
Venstre, Hans Andersen, segir
hugmyndina fáranlega og bendir á
að í dag fái starfsfólk í matvöru-
verslunum helmingi lægri laun en
vændiskonunar fengju ef hug-
myndin yrði að veruleika. Hann
telur að fleiri hópar muni gera
kröfu um sama fjárhagslega
stuðning og vændiskonunar, til
dæmis alkóhólistar og eiturlyfja-
neytendur. Hann vill að áhersla
verði lögð á aðrar leiðir til að fá
konunar til að hætta vændi. - ks
Danskur þingmaður vill aðstoða konur við að finna nýjan starfsvettvang:
Vændiskonur fái fjárstyrk
VILL AÐSTOÐA VÆNDISKONUR Hjálpin á
meðal annars að felast í sálfræðimeðferð.
FJARSKIPTI Viðskiptavinir Símans
fengu nýlega send smáskilaboð
frá fyrirtækinu þar sem þeir voru
varaðir við sendingu frá erlendri
stefnumótasíðu.
Ástæða þessa er að nokkuð
hafði borist af kvörtunum vegna
SMS-sendinga sem tilkynntu að
búið væri að skrá viðkomandi á
stefnumótasíðuna www.irreal-
host.com. Þá var einnig greint frá
því að ef viðkomandi vildi ekki
vera rukkaður um tvær evrur á
dag í gegnum símareikning sinn
yrði sá að fara inn á vefsíðuna og
afskrá sig.
Sendingar þessar koma að
sögn frá útlöndum en slíkur SMS-
ruslpóstur er nokkuð algengur.
Er fólki bent á að eyða slíkum
smáskilaboðum og láta alls ekki
glepjast til að fara inn á umrædda
vefsíðu. - sgi
Fólk skráð á stefnumótasíðu:
Varað við rusl-
pósti með SMS
SMS Ruslpóstur í farsíma er veruleiki en
þekkist betur erlendis en hér á landi.
FÉLAGSMÁL Sumarhátíð Einstakra
barna var haldin í Heiðmörk á
laugardag en hátíðin fer fram á
hverju sumri. Um sextíu manns,
börn og foreldrar, tóku þátt í hátíð-
inni þetta árið og að sögn Arnars
Pálssonar, formanns félagsins, var
þátttakan heldur dræm í ár enda
léku veðurguðirnir ekki við land-
ann.
„Mjög gott aðgengi er fyrir
hjólastóla en við vonuðumst auð-
vitað til að sjá fleiri félagsmenn
og reka þannig endahnútinn á
formlegt starf félagsins á síðast-
liðnum vetri,“ segir Arnar. ■
Sumarhátíð Einstakra barna:
Dræm þátttaka
SUMARHÁTÍÐ EINSTAKRA BARNA Börnin
bregða sér á leik í hoppikastala.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SUÐUR-KÓREA, AP Talsmenn Norður-
Kóreu ásökuðu Bandaríkjastjórn í
gær um að njósna um Norður-
Kóreu. Sögðu þeir Bandaríkjamenn
hafa sent njósnaflugvél þrisvar
sinnum yfir landið í síðustu viku og
sögðust telja Bandaríkjastjórn vera
að búa sig undir að ráðast inn í
Norður-Kóreu.
RC-135 flugvél flaug yfir haf-
svæði Norður-Kóreu á þriðjudag,
fimmtudag og laugardag, að því
er kom fram í fréttum ríkisútvarps
Norður-Kóreu. Ráðamenn í Norður-
Kóreu ásaka Bandaríkin reglulega
um njósnaflug, en Bandaríkjaher
svarar þeim ásökunum ekki.
- smk
Norður-Kóreumenn:
Segja Banda-
ríkin njósna
NOREGUR, AP Vinnumálaráðherra
Noregs, Bjarne Haakon Hanssen,
sagðist í gær mundu bregðast við
afleiðingum yfirvofandi verkfalls
bankastarfsmanna. Stjórnendur
bankanna voru reiðubúnir að læsa
úti 15.000 bankastarfsmenn,
skyldu þeir ákveða að fara í verk-
fall vegna deilna um lífeyri, og
mundi það þýða algjöra lokun á
öllum útibúum, hraðbönkum og
heimabönkum.
Upphaf deilnanna var takmörk-
uð verkföll í byrjun júní hjá banka-
starfsmönnum sem kröfðust þess
að vita hvernig lífeyrissjóðirnir
fjárfestu. Ríkisstjórnin hefur áður
bundið enda á verkföll með gerð-
ardómi. - sgj
Norðmenn í viðbragðsstöðu:
Bregðast við
bankaverkfalli
Hverfum lokað Lögreglan í Frankfurt
í Þýskalandi þurfti að loka nokkrum
hverfum í borginni vegna óláta eftir leik
Englendinga og Paragvæ á laugardag.
Englendingar unnu leikinn 1-0. Engan
sakaði í látunum, en glerflöskum rigndi
yfir gangstéttir og lögregla þurfti ítrekað
að hafa afskipti af enskum bullum.
Þá voru tveir Þjóðverjar handteknir
fyrir að mana enska stuðningsmenn til
slagsmála.
ÞÝSKALAND