Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 73

Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 73
MÁNUDAGUR 12. júní 2006 Air Pegasus N2/WNTR Útilíf / Sportver / Toppmenn / K-sport / Skóbúð Selfoss / Axel Ó / Maraþon / Fjölsport Ozone / SÚN búðin / Blómsturvellir / Íþróttabúðin / Brúarsport / Siglósport / Skógar Leiðb. verð kr. 11.990.- Air Pegasus N2/WNTR Leiðb. verð kr. 11.990.- Útilíf / Sportver / Toppmenn / K-sport / Skóbúð Selfoss / Axel Ó Maraþon / Fjölsport / Íþóttabúðin / Skógar Sterk yfirbygging með öndun. TPU stöðugleikaplata ásamt mjúkri/léttri Phylon dempun í miðsóla. Níðsterkur BRS 1000 sóli. Leiðb. verð kr. 7.490.- Sportver / Toppmenn / Maraþon / K-sport / Veiðiflugan Fjölsport / Ozone / Skógar / jói Útiherji Air N´Sight Útilíf / Sportver / Toppmenn / Marþon / K-sport / Fjölsport Ozone / Veiðiflugan / SÚN búðin Air N´Sight Loftsóli í fullri lengd 2ja laga vatnsvörn og öndun Loftsóli í fullri lengd 2ja laga vatnsvörn og öndun Loftpúði í hæl Loftpúði í hæl Sterk yfirbygging með öndun. TPU stöðugleikaplata ásamt mjúkri/léttri Phylon dempun í miðsóla. Níðsterkur BRS 1000 sóli. Leiðb. verð kr. 7.490.- nikerunning.com Topplínan í hlaupaskóm Topplínan í hlaupaskóm FÓTBOLTI Í dag verða fyrstu leikirn- ir í E-riðlinum á HM en margir hafa talað um hann sem hinn svo- kallaða dauðariðil keppninnar. Tékkland var eitt skemmtilegasta liðið á síðasta Evrópumóti og mætir Bandaríkjunum klukkan fjögur. Tékkar gátu glaðst þegar Pavel Nedved tilkynnti að hann ætlaði að spila með á mótinu en hann var búinn að ákveða að leggja landsliðsskóna á hilluna. Tékkar hafa marga leikmenn í fremstu röð og má þar nefna mark- vörðinn Petr Cech, Tomas Rosicky, nýjasta liðsmann Arsenal, og Milan Baros sem var markakóng- ur á EM fyrir tveimur árum. „Á síðustu fjórum árum höfum við unnið lið eins og Ítalíu, Frakk- land og Holland. Ef við náum góðum leik getum við unnið alla en fyrsta markmiðið er náttúrlega að komast upp úr riðlinum. Það er mikil pressa á okkur að heiman enda er talað um okkur sem gull- kynslóð Tékklands,“ sagð mark- vörðurinn Cech. Bandaríkin eru með lið sem ekki má vanmeta og eru með leikmenn innanborðs sem spila í bestu deildum Evrópu. Liðið hefur aldrei unnið leik á HM í Evr- ópu en er ákveðið að breyta þeirri staðreynd í Þýskalandi í ár. Ítalía og Gana eru einnig í E- riðli en þessar þjóðir etja kappi í kvöld. Miklar væntingar eru gerð- ar til ítalska liðsins undir stjórn Marcelo Lippi en að vanda er helsti styrkur liðsins fólginn í vörninni. Hins vegar eru athyglisverðir leik- menn framar á vellinum og má þar nefna Luca Toni, sem skoraði þrjá- tíu mörk í ítölsku deildinni í vetur fyrir Fiorentina. Gana er rísandi fótboltaveldi í Afríku og tekur þátt í HM í fyrsta sinn. Liðið er sérstak- lega vel sett á miðsvæðinu með þá Stephen Appiah, leikmann Fener- bache, og Michael Essien stjörnu- leikmann Chelsea. Keppni í riðli Brasilíumanna, F- riðli, hefst einnig í dag þegar Ástr- alía og Japan eigast við en sjálfir heimsmeistararnir leika gegn Króatíu á morgun. Ástralar eru óskrifað blað en Guus Hiddink, þjálfari þeirra, er þekktur fyrir að ná því besta út úr sínum mönnum. Japan hefur nokkra athyglisverða leikmenn innan sinna raða eins og Hidetoshi Nakata. Þá er hinn brasilíski Zico að stýra liðinu og aldrei að vita nema það sýni samba- takta. - egm Tékkland mætir Bandaríkjunum í dag og Ítalir mæta hinu rísandi veldi Ghana: Dauðariðillinn fer af stað NEDVED Pavel Nedved er farinn að leika fyrir Tékkland á ný. NORDICPHOTOS/AFP GOLF Ólafur Már Sigurðsson, kylf- ingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, vann annað mótið í Íslandsmót- inu í höggleik karla um helgina þegar leikið var í KB-bankamóta- röðinni í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir leiðinlegt veður, mikla rign- ingu og háváðarok, sýndu kylf- ingar lipur tilþrif en vissulega komu aðstæður niður á spila- mennskunni. Ólafur hafði betur gegn Ottó Sigurðssyni úr GKG í æsispenn- andi bráðabana en eftir 54 holur voru þeir efstir og jafnir og léku því 18. holu vallarins á nýjan leik. Holan er par 5 hola og náði Ólaf- ur pari eftir örugga spilamennsku en hann setti niður pútt af stuttu færi fyrir sigrinum þar sem Ottó fékk sex á holuna, eftir að hafa lent í vandræðum eftir upphafs- högg sitt. Ólafur og Ottó voru jafnir eftir fyrri daginn þar sem leikn- ar voru 36 holur en eftir þær voru þeir báðir á þremur höggum undir pari, Ólafur lék á 69 og 68 höggum en Ottó á 70 og 67. Þeir héldur áfram að spila hönd í hönd í gær og spiluðu báðir á 74 högg- um áður en Ólafur hafði betur í bráðabananum. Tinna Jóhannsdóttir, kylfing- ur úr Kili, sigraði í kvennaflokkn- um. Tinna er þar með búin að sigra á báðum mótunum í ár í KB bankamótaröðinni eftir sigur á Akranesi og í Vestmannaeyjum. Tinna lék á 78 höggum á þriðja og síðasta hringnum í gær, á átta höggum yfir pari. Tinna lék fyrsta hringinn á 80 höggum, þann annan á 76 og endaði því á 234 höggum. Nína Björk Geirs- dóttir úr GKj varði í öðru sæti, tveimur höggum á eftir Tinnu en Nína Björk lék hringina þrjá á 83, 75 og 78 höggum, samanlagt á 236 höggum. Helena Árnadóttir úr GR, sem var í forystu ásamt Tinnu eftir fyrri hringina tvo, hafnaði svo í þriðja sæti. Hún lék á samtals 241 höggi en Ragnhildur Sigurð- ardóttir var aðeins á einu höggi á eftir henni. - hþh Slagviðri setti svip sinn á Carlsberg-mótið í Vestmannaeyjum um helgina: Ólafur og Tinna hrósuðu sigri HANDBOLTI Handboltaparið Gunn- ar Berg Viktorsson og Dagný Skúladóttir munu spila í Dan- mörku á næstu leiktíð en þau hafa bæði gert samning við Holstebro. Gunnar lék með Kronau/Östring- en í þýsku úrvalsdeildinni í vetur en hann ákvað að vera ekki áfram hjá félaginu og færa sig um set. Eftir margra vikna vangaveltur eru mál hans komin á hreint og Danmörk varð fyrir valinu. Það er kærkomin viðbót að Dagný kona hans skrifaði einnig undir hjá Holstebro en hún hefur ekki spilað handbolta um nokkra hríð. Þau voru stödd í fríi á Spáni þegar Fréttablaðið náði sambandi við þau í gær, þar sem afslöppun var þeim efst í huga. Gunnar Berg, sem verður þrítugur í júlí, átti við slæm meiðsli að stríða lengst af í vetur og var í tvö ár hjá Kronau en spilaði áður með ÍBV, Fram, París St. Germain í Frakklandi og Wetzlar í Þýskalandi. „Við kláruðum þetta bara rétt fyrir helgina og þetta er mikill léttir. Við fórum til Danmerkur og skoðuðum aðstæður hjá þeim og þeir eru með sterk lið bæði í karla- og kvennaflokki. Það var ekki síst mikilvægt fyrir okkur að Dagný kæmist að hjá liði líka en Dan- mörk er með eina sterkustu kvennadeild í heiminum í dag. Við erum því hæstánægð með þetta,“ sagði Gunnar í gær. „Okkur leist vel á aðstæður hjá félaginu. Það er með ágætt lið í karlaflokki og hefur á ungu liði að skipa með nokkra eldri jálka inni á milli. Það endaði í níunda sæti á síðasta tímabili en ætlar sér stærri hluti í ár og ég held að það sé ekki óraunhæft að stefna á Evrópu- sæti, þó svo að ég sé ekki að setja nein markmið á þessu stigi,“ sagði Gunnar. Sigfús Sigurðsson var í viðræð- um við félagið um tíma en hann hætti við að ganga til liðs við það eftir langar samningaviðræður þar sem félagið fór á bak orða sinna. Það gerðist þó ekki með Gunnar og Dagnýju. „Þetta tók sinn tíma og við vorum lengi að ræða saman. Auðvitað vilja þeir borga sem minnst en við fá sem mest og þannig gengur þetta í öllum samningaviðræðum,“ sagði Gunnar en undirbúningstímabilið hefst hinn 23. júlí. Gunnar var orðaður við nokkur lið á Íslandi en það stóð aldrei til að skötuhjúin kæmu heim. „Það kom aldrei til greina að koma til Íslands. Það höfðu nokkur lið sam- band við mig en ég ákvað að prófa að vera aðeins lengur úti og fá öxl- ina almennilega í gang, hún virkar fínt í golfinu núna. Vissulega mun ég þó koma heim á einhverju stigi og spila heima,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson. hjalti@frettabladid.is Gunnar Berg og Dagný skrifa undir hjá Holstebro Gunnar Berg Viktorsson og kona hans Dagný Skúladóttir hafa skrifað undir samninga við danska liðið Holstebro. Þau flytja því til Danmerkur í sumar. DAGNÝ OG GUNNAR BERG Eru í skýjunum yfir því að hafa fundið félag sem þau geta bæði spilað með. Þau leika undir merkjum Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN - FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.