Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur
> Gestir listasafna á höfuðborgarsvæðinu
Heimild: Hagstofa Íslands
Svona erum við
2001
27
1.
32
0
24
5.
55
6
23
3.
58
6
25
2.
41
8
2000
1999
1998
FRÉTTASKÝRING
SIGRÚN MARÍA KRISINSDÓTTIR
smk@frettabladid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Stærsta stífla heims er
nú komin í notkun í Kína.
Stjórnvöld segja stífluna
vera til mikilla framfara en
gagnrýnendur segja gífur-
legt umhverfisslys vera í
uppsiglingu.
Kínverjar hleyptu Yangtze-ánni á
stærsta vatnsorkuver sem byggt
hefur verið í heiminum á þriðju-
dag, með því að sprengja tíma-
bundna stíflugarða sem notaðir
voru á meðan Þriggja gljúfra
stíflan var í byggingu.
Stíflan, sem er 2,3 kílómetra
löng og 185 metra há, heldur nú
aftur af straumþungri Yangtze-
ánni og stjórnar flóðum sem herj-
að hafa á landræktarsvæði neðan
stíflunnar árum saman. Flóð þessi
hafa oft verið mannskæð og segja
stjórnvöld stífluna því vera mikla
blessun. Til samanburðar má
nefna að Kárahnjúkastífla mun
verða 193 metra há og 730 metra
löng, en Kelduárstífla verður 26
metra há og 1,65 kílómetra löng.
Að sögn Xinhua-fréttastofunn-
ar sendu starfsmenn virkjunar-
innar væg rafstuð í gegnum vatn-
ið fyrir sprenginguna til að hræða
fiska í burtu frá stíflugarðinum.
Fréttastofan hafði eftir Tan
Xichang að níutíu prósent allra
fiska hefðu flúið við það, en
Xichang starfar sem prófessor
hjá Vatnalíffræðistofnuninni í
Kína.
Smíði Þriggja gljúfra stíflunn-
ar hófst árið 1993 og var hún til-
búin í síðasta mánuði en ekki er
gert ráð fyrir að lokið verði við
þann hluta hennar sem sér um
raforkuvinnsluna fyrr en árið
2008.
Hönnuðir virkjunarinnar segja
að hún muni að lokum geta fram-
leitt 22,4 kílóvött af raforku,
meira en nóg til þess að lýsa alla
Sjanghæ á annasömum degi.
Um 190 tonn af dínamíti voru
notuð til að sprengja tímabundna
stíflugarðinn á þriðjudag, sem
var 580 metra langur, 140 metra
hár og lá í um 100 metra fjarlægð
frá stíflunni sjálfri.
Vatnshæð Þriggja gljúfra lóns-
ins mun rísa úr 135 metrum í 156
metra eftir að sumarflóðunum
lýkur í haust, kom fram í frétt
Xinhua. Mest mun vatnið í lóninu
ná 175 metra dýpt, en sérfræð-
ingar hafa þó varað við því að
ómögulegt sé að segja til um
hversu djúpt lónið muni í raun
verða vegna árframburðar og
óreglulegs landslags svæðisins.
Yfir 1,13 milljónir manns hafa
neyðst til að flytja burt af svæð-
inu vegna stíflugerðarinnar og
lónsins og hafa sumir verið fluttir
brott með valdi.
Gagnrýnendur segja að stíflan
muni valda óafturkræfum breyt-
ingum á náttúrunni og óttast um
framtíð höfrunga Yangtze-
árinnar, sem eru afar sjaldgæfir
ferskvatnshöfrungar.
En stjórnvöld hafa hins vegar
ítrekað reynt að sýna fram á að
þau hafi skilning á áhrifum stífl-
unnar á umhverfið.
Stærsta vatnsaflsvirkjun heims
SPRENGT Í LOFT UPP Kínverjar hleyptu vatni
á stærstu stíflu heims á þriðjudag, með
því að sprengja í loft upp tímabundna
stíflugarða í Yangtze ánni sem notaðir voru
meðan á smíði stíflunnar gríðarlegu stóð.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
© GRAPHIC NEWS
Þriggja gljúfra
stíflan í Kína
Þriggja gljúfra stíflan, sem gerð hefur verið miðja vegu í Yangtze-
ánni, er stærsta vatnsorkuvirkjun heims. Stuðningsmenn hennar
segja að stíflan, sem kostað hefur rúma 2000 milljarða íslenskra
króna, muni veita mikilvæga vernd gegn flóðum og uppfylla sára
þörf fyrir rafmagn, en gagnrýnendur segja að um stórfellt
umhverfisslys sé að ræða.
Heimildir: Þriggja gljúfra stíflan í Kína, ABB Myndir: Associated Press
ORKUVINNSLA:
Tuttugu og sex 700 megavatta raflar gefa allt að
af rafmagni árlega –
sem samsvarar 10%
af rafþörf
Kínverja
árið 2009.
18.200 mv og framleiða 84,7 milljarða kílóvattstunda
Francis-
túrbína
Öxull tengdur
við rafal
Vatnsflæði
Vatns-
innrennsli
Lónið:
175 m
djúpt
Virkjunin
Rafall
Útrennsli
Aðrennslisgöng
ÞVERSKURÐUR
AF VIRKJUNINNI
Hæð
stíflunnar:
185 m Lengd stíflunnar:
2.309 m0 Virkjanir
Skipastigi: Tvöfaldur
fimm þrepa skipastigi
fyrir skip sem vega
allt að 10.000 tonnAfrennslis-
rás
Skipalyfta: Fyrir skip
sem vega allt að 3.000 tonn
FÓLKS-
FLUTNINGAR:
Stíflan hefur neytt 1,13
milljónir manns til að flytja
burt frá heimilum sínum. Stjórnvöld
segja stífluna vernda fimmtán milljónir
manna gegn flóðhættu.
UMHVERFIÐ:
Stjórnvöld segja að virkjunin
muni minnka CO2-losun um
100 milljón tonn og draga þar
með úr gróðurhúsaáhrifum.
Gagnrýnendur telja að Yangtze-áin
muni hætta að geta framleitt súrefni
því stíflan hægi á árflæðinu,
og að uppistöðulónið muni því breytast í risastóra safnþró.
Höfrungar Yangtze-árinnar: Aukin
landeyðing fyrir neðan stífluna gæti haft
slæm áhrif á heimkynni sjaldgæfustu
ferskvatns-
höfrunga
heims.
K í n a
Peking
Sjanghæ
500 km
310 mílur
Yangtze-áin
UPPISTÖÐULÓN
Svæðið sem
fólk var flutt
burt afLengd: 630 km
Land sem flætt
hefur verið yfir:
1.000 km2 –
stærsta land-
væði veraldar
sem flætt hefur
verið yfir vegna
einnar stíflu
Chongqing
Wanxian
Yichang
ÞRIGGJA
GLJÚFRA
STÍFLAN
Qutang-
gljúfur
Wu-gljúfur
Xiling-
gljúfur
Yan
g t z e á i n
Jón Sigurðsson
seðlabankastjóri
tekur sæti iðnað-
ar- og viðskipta-
ráðherra í stjórn
Geirs H. Haarde,
þrátt fyrir að sitja
ekki á þingi. Guðni
Th. Jóhannesson
sagnfræðingur segir
þetta vera sjald-
gæfa skipan mála.
Er það algengt að
ráðherrar sitji ekki á þingi?
Nei, það er ekki algengt. Ólafur Ragnar
Grímsson var fjármálaráðherra utan
þings frá 1988 til 1991. Öll „utan-
þingsstjórnin“ frá 1942-44 var svo
náttúrlega utan þings. Svo hafa einnig
verið nokkur önnur tilfelli.
Hefur það reynst vel að ráðherrar
sitji utan þings?
Þetta hefur talist til undantekninga.
„Utanþingsstjórnin“ var neyðarúrræði
og ekki hefur verið gripið til þess aftur
þó að litlu hafi munað bæði 1979
og 1980. Ég tel að almenna reglan
hafi gefist vel, að ráðherrar komi úr
röðum þingmanna. Ólafur Ragnar var
þingmaður fyrir og eftir að hann var
ráðherra, en einmitt þegar Alþýðu-
bandalagið komst í stjórn 1988 hafði
hann fallið af þingi. Það hefur því
líklega ekki breytt miklu hvort hann
var þingmaður eða ekki.
SPURT & SVARAÐ
RÁÐHERRAR UTAN ÞINGS
Hefur verið
notað í neyð
GUÐNI TH. JÓHANN-
ESSON SAGNFRÆÐ-
INGUR
Svissneski þingmaðurinn Dick Marty, sem stýrði
rannsókn á vegum Evrópuráðsins á ásökunum
um meint leyniflug og leynifangelsi á vegum
bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, í Evrópu,
sagðist í síðustu viku hafa orðið þess vísari að
stjórnvöld í fjórtán Evrópulöndum hefðu verið
í vitorði með hinum bandarísku útsendurum.
Nefndi hann sérstaklega Pólland og Rúmeníu í
þessu sambandi er hann kynnti niðurstöður rann-
sóknarinnar. Stjórnvöld margra landanna hafa
borið af sér ásakanir Martys og Bandaríkjamenn
hafa viðurkennt að hafa sótt menn grunaða um
hryðjuverk til annarra landa, en neita að hafa
sent þá til þriðja lands til að sæta pyntingum.
Bandaríkjastjórn hefur hvorki viðurkennt né
neitað tilvist leynifangelsanna.
Hver eru löndin?
Marty sakaði yfirvöld í fjórtán löndum um að
vera í vitorði með leyniþjónustu Bandaríkjanna
varðandi ólöglegan flutning fólks milli landa. Þau
eru Bretland, Þýskaland, Ítalía, Svíþjóð, Bosnía,
Makedónía, Tyrkland, Spánn, Kýpur, Írland, Grikk-
land, Portúgal, Rúmenía og Pólland.
Hvers vegna að flytja fanga milli landa?
Bandarísk lög um meðferð á föngum gilda ekki í
öðrum löndum. Fyrrverandi fangar hafa sagt CIA
hafa notfært sér það, og hafi þeir sætt pyntinum
af hálfu CIA í löndum þar sem þeir hafi ekki haft
þau réttindi og lagalega vernd sem þeim bæri
sætu þeir í fangelsi á bandarískri grund.
Hvers vegna fór Marty að rannsaka málið?
Fréttir af leynifangelsum CIA í Austur-Evrópu, Taí-
landi og Afganistan voru fyrst birtar í bandaríska
blaðinu Washington Post í nóvember 2005. Blað-
ið sagði þessi leynifangelsi hafa verið sett upp
í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin árið
2001 og kom fram í fréttinni að um 30 manns
sætu enn í þessum fangelsum. Síðan þá hafa
minnst 70 manns verið framseldir til yfirvalda í
Egyptalandi, Jórdaníu, Marokkó, Afganistan og
annarra landa, samkvæmt síðari fréttum blaðsins.
Eftir að fréttin birtist fyrst í Washington Post fóru
evrópskir fjölmiðlar og yfirvöld að rannsaka málið
og uppgötvuðu að flugvélar í erindagjörðum fyrir
CIA hefðu flogið yfir þúsund sinnum um lofthelgi
Evrópuríkja frá árinu 2001.
FBL GREINING: MEINTIR FANGAFLUTNINGAR BANDARÍSKU LEYNIÞJÓNUSTUNNAR
Leynifangelsi og leyniflug