Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 12. júní 2006 11 HVAÐ ER... VERIÐ AÐ BYGGJA? Pláss fyrir fjórar bifreiðar verður í húsinu en alls verða sautján bílastæði fyrir utan húsið. Glæsilegt átta íbúða hús rís nú í miðri Reykjavík. Íbúðirnar átta sem nú rísa í Skipholti 29b eru nú þegar komnar á sölu hjá Fasteignasöl- unni Hofi og hafa einhverjar þeirra verið seldar. Verslunar- rýminu hefur hins vegar ekki verið deilt út. Bæði er hægt að kaupa rýmið og fá það á leigu. Framkvæmdirnar hafa gengið rösklega fyrir sig og mun þeim ljúka í janúar á næsta ári. Nútíma íbúðir á besta stað Verslunarrými húsnæðisins verður á neðstu hæðinni en alls eru hæðirnar fjórar. Lyfta verður í húsinu. Framkvæmdir eru nú í fullum gangi í Skipholti en þær hófust í janúar. Þrátt fyrir umfang þeirra hafa þær ekki raskað umferðinni við götuna. Húsnæðið í Skipholti 29b rís þar sem áður var bílastæði. Stærstu íbúðirnar hafa svalir sem snúa bæði til suðurs og til austurs. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Síðan árás var gerð á World Trade Center 11. september 2001 hefur verið unnið að upp- byggingu á svæðinu. Í stað tvíburaturnanna miklu á að rísa jafnvel enn mikilfengri bygg- ing og mun hún setja gríðarlega mikinn svip á andlit borgarinnar. Hinn nýi turn, sem fengið hefur nafnið The Freedom Tower eða Frelsisturninn, verður alls um 521 metri á hæð eða sem samsvarar 1.776 fetum. Þessi fjölmörgu fet eiga vera til heiðurs árinu 1776 þegar Bandaríkjamenn skrifuðu undir frelsisyfirlýsingu landsins. Útlit Frelsisturnsins hefur breyst og þróast mjög að undan- förnu og hefur orðið að hálfgerðri borgardeilu þar sem menn á borð við Donald Trump hafa blandað sér í málin. Sagt er að rými bygg- ingarinnar sé ekki nóg miðað við stærð og einnig að ríkisstjóri New York hafi haft áhrif á hverjir yrðu valdir til þess að að hanna bygg- inguna. Framkvæmdir við byggingu eru þó hafnar og allt virðist nokkurn veginn liggja ljóst fyrir. Aðrar byggingar munu einnig rísa í kring, sem og ýmis minn- ingarmerki. Talið er að fram- kvæmdum muni ljúka árið 2012. Frelsisturninn verður þá hæsti turn Bandaríkjanna en væntan- lega ekki lengi því stefnt er að smíði enn stærri turns í Chicago á næsta áratug. steinthor@frettabladid.is Frelsisturninn rís NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES „Hann er svona stór!“ gæti David Childs, einn af arkitektum Frelsisturnsins, verið að segja þegar hann kynnti bygginguna á blaðamannafundi í New York í fyrra. NORDICPHOTOS/AFP Hinn nýi og magnaði Frelsisturn gæti sómt sér nokkuð vel meðal háhýsa Manhattan-eyju. Þó eru ekki allir á eitt sáttir um útlit hans. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Fr um Sigrún Gissurardóttir, lögg. fasteignasali Steinar S. Jónsson, sími 898 5254 Daníel Björnsson, sími 897 2593 Þorsteinn Austir, sími 820 3466 OPIÐ mánud. - fimmtud. frá kl. 9-18 föstud. frá kl. 9-16. Svo er GSM-inn alltaf opinn NÝBYGGINGAR TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR ÁLFKONUHVARF - NÝBYGGING Til sölu 3ja herbergja íbúðir með eða án stæðis í bílageymslu. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna nema baðherbergi verð- ur með flísalagt gólf og veggi upp í ca 2,10 m. hæð. Þvottahús verður með flísalögðu gólfi. Húsið verður fullbúið að utan, lóð frá- gengin og bílastæði malbikuð. Stærð íbúða er 90,5 til 107,2 fm. Verð frá 21,0 m. AKURVELLIR HAFNARFIRÐI Nýj- ar 4ra-5 herbegja íbúðir 157,7 fm í sex íbúða húsi. Allar íbúðirnar hafa sér inngang frá opnu stigahúsi. Íbúðunum verður skila fullbúnum án gólfefna nema á baði sem verður flísalagt. Húsið verður fullbúið að utan og lóð frágeng- in. Allar nánri uplýsingar á skrifstofu Lyngvík, S: 588-9490 Verð 29,4 m. Stutt í afhendingu. ENDURBYGGINGAR AMTMANNSSTÍGUR - TIL UPP- GERÐAR Heil húseign á þessum frábæra stað fyrir verktaka/iðnarðarmenn til að gera upp. Í húsinu eru fimm íbúðir á bilinu 50 til 110 fm að stærð. Húsið þarfnast verulegra endurbóta. Húsið selst í einu lagi, ásett verð 90,0 m. áhv. ca 68,0 m. LANDIÐ SIGLUFJÖRÐUR - EYRARGATA Um er að ræða tvær 66,7 fm 3ja herbergja íbúðir í tvíbýli á Siglufirði. Íbúð skiptist í for- stofu, eldhús með eldri innréttingu og borð- krók, tvö svefnh., baðherbergi með sturtu og stofu. V. 2,9 m hvor íbúð. EINB - RAÐ- OG PARHÚS LANGAGERÐI MEÐ BÍLSKÚR OG ÚTSÝNI Einbýli 170,8 fm, 42,5 fm bíl- skúr alls 213,3 fm. Húsið er á tveimur hæðum. Neðri hæð; er forstofa, hol, 2 herb., stofur með arinn og sólstofa með arinn, eldhús og baðh. Efri hæð; er geymlsa, gangur, 3 herb. og möguleiki að setja upp eldhús í einu þeirra, dagstofa og baðherb. Bílskúrinn er með hita, rafmagni, vatni og sjálfvirkum hurðaropnara. Innaf bílskúr er gott vinnuherbergi. húsinu hefur alltaf verið velviðhaldið. HÚSIÐ ER LAUST VIÐ KAUPSAMNING. TILBOÐ ÓSKAST. HÆÐIR BORGARHOLTSBRAUT - HÆÐ M/BÍLSKÚR. Mjög vel staðsetta 4ra her- bergja sérhæð í 3ja íbúða húsi. Hæðinni fylgir sérstæður 34 fm bílskúr. V. 26,8 m. ÞINGHÓLSBRAUT - NEÐRI SÉRHÆÐ Vorum að fá í sölu mjög góða mikið endurnýjaða 112 fm neðri sérhæð. Eld- hús og baðherbergi ný endurýjað. Þrjú svefn- herbergi. Afgirt sér suður verönd. Samþykkt- ar teikningar fyrir Bílskúr. Verð. 26,9 m. MELABRAUT - SELTJARNAR- NES Vorum að fá í sölu vel staðsetta og mikið endurnýjaða 119 fm jarðhæð með 3-4 svefnherb. og sérinngangi. Góður suður garður. Möguleiki á stuttum afhendingartíma. 3JA HERB. FELLSMÚLI Góð ca 74 fm íbúð í kjallara. Húsið er allt nýklætt að utan, nýir gluggar og gler. Íbúðin er stofa og tvö herbergi með dúk- flísum á gólfi. Eldhús m. dúkflísum á gólfi, innréttingu og borðkróki. Baðherbergi með flísum uppá miðja veggi og baðkari. Í sam- eign er þvottahús, hjóla- og vagnageymsla. Verð 14,9 millj. FRÓÐENGI 3JA herb. 103 fm mjög fal- lega og rúmgóða íbúð á annari hæð á þess- um eftirsótta stað í Grafarvogi. Baðh. endur- nýjað á mjög smekklegan hátt. V. 20,9 m ÆSUFELL - MEÐ ÚTSÝNI Mjög góð 99 fm 3 herbergja íbúð á fjórðu hæð í góðu lyftuhúsi, mikið útsýni, góð sameign. Húsið er allt nýklætt að utan og málað. Gengið verður frá lóð og bílastæðum í sumar á kostnað seljanda. Verð kr. 16,9 M. íbúðin getur losnað fljótlega. Húsvörður er í húsinu. (1689) PARHÚS Í SMÁRANUM Í KÓPAVOGI. Vorum að fá í sölu mjög gott 180 fm parhús með innbyggðum bílskúr í Grófarsmára í Kópavogi. Fjögur til fimm svefnher- bergi. Arinn í stofu. Fallegur garður, ásamt suður verönd. V. 48,9 m. VESTURGATA LYFTUHÚS Vorum að fá til sölu 4ra herbegja 103,3 fm íbúð á þessum vin- sæla stað vestast í vesturbænum. Tvær samliggjandi stofur og er gengið út á suður svalir frá annari. Hægt er að loka á milli þeirra með rennihurð. Tvö góð svefnherbergi annað með’ skáp. Eldhús með góðri innréttingu og borðkrók. Bað- herbergi með baðkari, flísum upp á miðja veggi og glugga. Góð sameign. Í kkjallara er þvottahús og ségeymsla. HRÍSRIMI MEÐ SÉRINNGANG. Vorum að fá í sölu 4ra herbegja jarðhæð með sérinngang og sér- verönd. Þrjú góð herbergi með parketi á gólfum og eitt með skápum. Flísalgt baðherbergi með innréttingu, glugga og tengi fyrir þvottavél. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi og gengið út á verönd. Eldhús með fallegri inn- réttingu og góðum borðkrók. KRÓKHÁLS - ATVINNUHÚSNÆÐI Gott atvinnuhúsnæði ca 690 fm sem samanstendur af tveimur einingum en er einn salur í dag. Auðvelt að breyta í margar littlar einingar eða skrifstofur. Getur orðið til afhendingar mjög fljótlega. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Lyngvík sími 588-9490 ÞORLÁKSGEISLI - GRAFARHOLTI TILBÚIÐ TIL AFH. 3ja og 4ra herbergja íbúðir í sextán íbúða lyftuhúsi. Íbúðirnar eru frá 101 fm til 140 fm, öllum íbúðunum fylgir stæði í bílageymslu. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna en bað- herbergi og þvottahúsgólf eru flísalögð. Innréttingar og skápar frá HTH. Í eldhúsi er keramik helluborð og blást- urofn frá AEG. Veggháfur frá Airforce með viftu. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar Verð frá 24.500.000 KÓPAVOGUR- VERSLUNARHÚSNÆÐI Vorum að fá í sölu 200 fm verslunarhúsnæði á mjög góðum stað í nýbyggingarhverfi í Kópavogi. Í húsinu verður einnig stór matvöruverslun. Húsnæðið verður til afhendingar í ágúst/september n.k. KIRKJUVELLIR HAFNARFIRÐI � � � � � Sölumenn á staðnum kl. 16 - 18 í dag! � � � � � Höfum fengið til sölumeðferðar einstaklega vandaðar 2ja. 3ja og 4ra herbegja íbúðir frá 76 fm til 117 fm. í 6. hæða fjölbýlishúsi. Íbúðunum verður öllum skilað fullbúnum án gólfefna nema á baði og þvottahús verða flísalögð. Allar innréttingar frá Brúnási spónlagðar með eik, skápar ná upp í loft. Tæki í eldhúsi er frá AEG blásturofn, háfur og keramikhelluborð með snertitökkum. Baðherbergi er með flísalagt gólf og veggi upp í hurðarhæð með innréttingum og vönduðum tækjum. Í kjallara er bílageymsla sem er innan- gengt úr stigagangi og lyftu. Húsið verður til afhendingar í september nk. lóð verður tyrfð og bílastæði malbikuð. Verð frá kr. 16,1 m. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Lyngvík sími: 588-9490 TORFUFELL Mjög falleg 3ja herbergja 79 fm íbúð á þriðju hæð. Parket og flísar á gólfum, íbúðin er mjög snyrtileg og vel um gengin. Verð. 13,9 m KRISTNIBRAUT MEÐ STÆÐI Í BÍLSKÝLI Mjög góð 82,1 fm íbúð og geymlsa 14,7 fm alls 96,8 fm. með stæði í bílageymsu. Í eldhúsi er glæsileg innrétting með flísum á milli skápa og borðkrók. Borð- stofa og stofa með parketi og suður svölum með góðu útsýni. Baðherbergi flísalagt með innréttingu og baðkari. Þvottahús í íbúð. Tvö góð herbergi með parketi og skápum. í sam- eign í kjallara er góð geymsla hjóla og vanga geymsla. Stutt í alla þjónustu svo sem leik- skóla og grunnskóla. Verð. 22,9 m 4RA HERB HOFTEIGUR - SÉRINNGANGUR Rúmgóð og vel staðsetta 137 fm 4-5 her- bergja íbúð í kjallara með sér inngangi. stór og góð herbergi. V. 24,9 m VALLARHÚS 4-5 HERBERGJA Um er að ræða mikið endurnýjaða 120 fm íbúð á tveimur hæðum með sér inngangi. Á neðri hæð er forstofa, þvottahús, stofa, eld- hús og snyrting. Á efri hæð eru þrjú herbergi og baðherbergi, yfir íbúðinni er risloft sem búið er að gera að herbergi. Eignin er mikið endurnýjuð þ.e. eldhús, gólfefni, snyrting og fleira. V. 25,9 m GULLSMÁRI - GÓÐ STAÐSETN- ING Mjög góð 4ra herbergja íbúð á 2.hæð í fal- legu litlu fjölbýlishúsi á einum besta stað í Smáranum. Stórar suður svalir. Hús og sam- eign nýlega máluð. Afhending í júní-júlí n.k. V. 22,9 m ATVINNUHÚSNÆÐI TRÖNUHRAUN - LAUST STRAX Vorum að fá í sölu 140 fm iðnaðarhúsnæði með góðum innkeyrsludyrum á einni hæð. Verð 19,8 m SUMARBÚSTAÐIR SUMARHÚS - VIÐ LAUGAR- VATN Um er að ræða mjög vel staðsettan 46 fm sumarhús, ásamt 6 fm aukahúsi. Búsaðurinn stendur í fallega ræktuðu 11 þúsnund fer- metra eignarlandi rétt vestanmegin við Laug- arvatn á skjólgóðum og rólegum stað. V. 12,7 m VERSLUNARHÚSNÆÐI VESTURBERG VERSLUNAR- HÚSNÆÐI Gott 517 fm verslunarhúsnæði á einni með góðum bílastæðum. Húsnæðið gefur mikla möguleika til breytinga. Í dag er rekin mat- vöruverslun í húsnæðinu. Allar nánari upplýs- ingar á skrifstofu Lyngvík S: 588-9490 OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.