Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 70
Vi nn in g a r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 1 49 k r/ sk ey tið . Aðalvinningur er PS2 tölva + Hitman Blood Money Aukavinningar eru: • Hitman Blood Money • Pepsi kippur • DVD myndir • PS2 Stýripinnar • Fullt af öðrum tölvuleikjum og margt fleira 10. HVE R VIN NUR ! Þú sendir SMS skeytið BTC HBF á númerið 1900. Þú gætir unnið! Enska hljómsveitin Keane gefur út sína aðra plötu, Under the Iron Sea, í dag. Freyr Bjarnason leit yfir feril þessarar vinsælu sveit- ar, sem kom til Íslands fyrir tveimur árum. Under the Iron Sea fylgir eftir hinni geysivinsælu Hopes and Fears sem kom út fyrir tveimur árum og hefur selst í fimm millj- ónum eintaka um allan heim. Varð hún næstmestselda plata Bret- lands það árið og seldist í aðeins 502 færri eintökum en fyrsta plata Scissor Sisters. Keane hrúg- aði til sín verðlaunum fyrir plöt- una. Var hún meðal annars kosin besta platan á Brit-verðlaunum auk þess sem hljómsveitin var til- nefnd sem besta nýja sveitin á bandarísku Grammy-verðlaunun- um. Átti að heita Coldplay Keane er skipuð söngvaranum Tom Chaplin, píanó- og bassaleik- aranum Tim Rice-Oxley og trommaranum Richard Hughes. Rice-Oxley stofnaði sveitina árið 1995 ásamt vini sínum Dominic Scott, sem síðar átti eftir að snúa sér að öðrum verkefnum. Fyrst hét sveitin The Lotus Eaters eftir ljóði Tennysons en nafnið breyttist í Keane eftir að Chaplin gekk til liðs við sveitina árið 1997. Reyndar átti hljóm- sveitin upphaflega að heita Cold- play en Rice-Oxley ákvað að bjóða vini sínum úr menntaskóla, Chris Martin, að nota nafnið því honum fannst það of niðurdrep- andi. Hið kaldhæðnislega er að eftir að Keane sló í gegn með Hopes and Fears gagnrýndu margir sveitina fyrir að herma eftir Cildplay. Átján mánaða tónleikaferð Til að fylgja eftir fyrstu plötunni fór Keane í umfangsmikla tón- leikaferð um heiminn sem stóð yfir í átján mánuði. Meðal annars hélt sveitin tónleika í Hafnarhús- inu í Reykjavík á Iceland Airwaves-hátíðinni árið 2004 við góðar undirtektir, auk þess sem hún hitaði upp fyrir átrúnaðargoð sín U2 í Madison Square Garden og spilaði á Live 8-tónleikunum í London. Tóku sjálfa sig í gegn „Tónleikaferðin tók sinn toll. Við þurftum á því að halda að fara aftur í hljóðverið og heim til okkar,“ segja þeir félagar. „Við notuðum hverja pásu sem við fengum til að fara í hljóðver og taka upp efni og í október árið 2005 fórum við í nýja upptökulotu ásamt Andy Green og lukum henni í desember. Á þessari plötu reynd- um við að horfast í augu við okkar mesta ótta. Við reyndum að taka okkur sjálfa í gegn, samskiptin okkar á milli, samskipti okkar við annað fólk og heiminn eins og hann leggur sig. Við vildum ferð- ast inn í myrkustu staðina sem við gátum mögulega fundið,“ segja þeir um vinnuna við nýju plötuna. „Við vorum að semja, syngja og spila af meiri ákafa, metnaði og reiði en við höfðum áður gert.“ Veglegar umbúðir Fyrsta smáskífulag plötunnar, Is It Any Wonder?, fór beint í þriðja sæti breska vinsældalistans en einnig hefur lagið Atlantic verið fáanlegt til niðurhals á netinu. Nýja platan, sem er melódísk og þægileg áheyrnar rétt eins og Hopes and Fears, verður fáanleg í takmarkaðan tíma í viðhafnarum- búðum sem innihalda auka DVD- mynddisk sem hefur að geyma stuttmynd, myndband við nýja smáskífulagið og mynd um gerð þess, auk tólf demólaga sem voru tekin upp á tónleikum. Horfst í augu við óttann KEANE Enska hljómsveitin Keane er að gefa út sína aðra plötu, sem nefnist Under the Iron Sea. ������� ���������������� ����������������������������� �� ��������������������������� ������ ��������� Söng- og leikkonan Jennifer Lopez er enn að íhuga hvort hún eigi að taka að sér hlutverk Sue Ellen í væntanlegri kvikmynd, Dallas. Verður hún byggð á sjónvarps- þáttunum samnefndu sem nutu mikilla vinsælda á níunda ára- tugnum. „Sue Ellen var fegurðar- drottning frá Texas, þannig að ég held ég smellpassi í hlutverkið,“ sagði Lopez í léttum dúr. Hún seg- ist þegar hafa spjallað við John Travolta um myndina, en hann mun leika sjálfan J.R. Ewing. Lopez spáir í Dallas LOPEZ Jennifer Lopez er að íhuga að leika í kvikmyndinni Dallas. Chris Martin, söngvari Coldplay, tónlistarmaðurinn David Bowie og leikarinn Orlando Bloom eru á meðal þeirra sem koma fram í gestahlutverki í annarri þáttaröð- inni af Extras eftir enska grínist- ann Ricky Gervais. Sir Ian McKellen, Daniel Radcliffe, sem leikur Harry Potter og Germaine Greer fengu einnig hlutverk í þáttaröðinni en tökur á henni eru nýhafnar. Í Extras fer Gervais með hlut- verk aukaleikarans Andys Mill- man sem þráir að slá í gegn á hvíta tjaldinu en á í hinum mestu erfið- leikum með það. Á meðal gestaleikara í fyrstu þáttaröðinni, sem naut mikilla vin- sælda, voru Kate Winslet og bandarísku leikararnir Samuel L. Jackson og Ben Stiller. Martin og Bowie í Extras MARTIN Tónlistarmaðurinn Chris Martin er einn þeirra sem koma fram sem gestir í næstu þáttaröð af Extras. THE OMEN kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA X-MEN3 kl. 5.40, 6, 8, 8.30, 10.20 og 10.50 B.I. 12 ÁRA DA VINCI CODE kl. 5, 8, og 11 B.I. 14 ÁRA DA VINCI SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA RAUÐHETTA M/ ÍSL TALI kl. 3.50 ÍSÖLD M/ ÍSL TALI kl. 4 THE OMEN kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA 16 BLOCKS kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 14 ÁRA DA VINCI CODE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA RAUÐHETTA M/ ÍSL TALI kl. 6 RAUÐHETTA M/ ENSKU TALI kl. 10.15 PRIME kl. 8 THE OMEN kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA 16 BLOCKS kl. 6 og 8 B.I. 14 ÁRA X-MEN3 kl. 10 B.I. 12 ÁRA DA VINCI CODE kl. 5.15 B.I. 14 ÁRA !óíbí.rk004 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 S.V. MBL. D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM V.J.V TOPP5.IS S.V. MBL.B.J. BLAÐIÐ V.J.V TOPP5.IS L.I.B TOPP5.IS HÖRKUGÓÐUR SPENNUTRYLLIR FRÁ RICHARD DONNER LEIKSTJÓRA LETHAL WEAPON 50.000 MANNS UPPLIFÐU VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI! LEITIÐ SANNLEIKANS HVERJU TRÚIR ÞÚ? LOKAUPPGJÖRIÐ! MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ? Heims frumsýning Mögnuð endurgerð af hinni klassísku The Omen! Á 6 degi 6. mánaðar árið 2006 mun dagur hans koma, Þorir þú í bíó 2000. KR. AFSLÁTTUR FYRIR XY FÉLAGA 40.000 MANNS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.