Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 6
6 12. júní 2006 MÁNUDAGUR
Félagar í Vildarþjónustu
fá 50% afslátt
hjá Flugfélagi Íslands
Skoðaðu sumartilboð Vildarþjónustu Sparisjóðsins á spar.isFí
t
o
n
/
S
Í
A
Skordýr í Elliðaárdal
Orkuveitan efnir til göngu- og fræðsluferðar í
Elliðaárdal undir leiðsögn Guðmundar Halldórssonar,
skordýrafræðings, þriðjudagskvöldið 13. júní kl. 19.30.
Gengið verður um dalinn og hugað
að þeim smádýrum sem þar búa.
Þátttakendur eru hvattir til að hafa
með sér stækkunargler. Gangan hefst
við Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur.
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
3
30
97
06
/2
00
6
SAKAMÁL Uni Pétursson, faðir
mannsins sem ákærður er fyrir
undanskot eigna á Hofsósi, er
mjög ósáttur við vinnubrögð lög-
reglu. Maðurinn var ákærður á
dögunum fyrir að fjarlægja hluti,
þar á meðal vél, úr báti í sinni
vörslu sem átti að fara á uppboð
hjá lögreglu. Í kjölfarið gerði lög-
reglan húsleit hjá manninum
þegar hann var fjarverandi, braut
upp hurð og tók í vörslu sína ýmsa
hluti sem voru taldir varða málið.
Uni segir lögreglumennina
fingralanga og segir þá hafa tekið
hluti sem varða málið ekki á
nokkurn hátt, þar með talið þrjá
snjósleða, jeppa og kerrur. Einnig
sakar hann lögregluna um að hafa
farið í bát bróður ákærða og tekið
þaðan dýptarmæli og ferilrita.
Hafa feðgarnir íhugað að leita
réttar síns í málinu, enda telja þeir
lögreglu hafa tekið eignir
þeirra ófrjálsri hendi og ákærði sé
búinn að greiða að fullu þær van-
goldnu upphæðir sem leiddu til
þess að bátinn átti að setja á upp-
boð.
Lögreglan á Sauðárkróki segir
málið vera í rannsókn og verið sé
að skera úr um hvort hlutirnir sem
teknir voru varði málið. Að sögn
Björns Mikaelssonar yfirlögreglu-
þjóns verður þeim umsvifalaust
skilað varði þeir ekki málið og hafi
lögreglan haft fulla heimild til að
leggja hald á þá. Bátinn átti að
bjóða upp vegna vangoldinna
greiðslna og er ákærði sakaður
um undanskot þeirra muna sem
átti að bjóða upp, enda báturinn
nær beinagrind án þeirra. Því sé
eðlilegt að ákæra hann, jafnvel þó
að búið sé að greiða þær upphæðir
sem hann skuldaði. Kæran er yfir-
gripsmikil og varðar ekki einungis
bátinn, heldur einnig aðrar eignir
úr þrotabúi, að sögn Björns, og
það sé dómstóla að skera úr um
það ef ákærði telji lögreglu hafa
brotið af sér. - sgj
Faðir ákærða líkir
lögreglunni við bófa
Uni Pétursson er ósáttur við lögregluna á Hofsósi. Lögreglan hafi ekki haft leyfi
til að taka ákveðna hluti við húsleit. Lögreglan segir málið vera í rannsókn.
FRÁ HOFSÓSI Málið er í rannsókn og skýrist von bráðar, segir lögreglan á Hofsósi.
UMHVERFISMÁL Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, kynnti í
gær alþjóðlegt Samráðsþing um
loftslagsbreytingar sem hefst á
Nordica hóteli í dag en 200 fulltrúar
um hundrað stórfyrirtækja, háskóla
og vísindastofnanna víða að úr ver-
öldinni sækja þingið. Markmið þess
er að ná samstöðu um hvaða leiðir
séu vænlegar til að mæta orkuþörf
framtíðar án þess að lífríki jarðar
eða loftslagi sé ógnað.
Forsetinn hefur undanfarið beitt
sér fyrir samræðum áhrifafólks,
vísindamanna og sérfræðinga í
loftslagsbreytingum og leggur
áherslu á fimm þætti í glímunni við
hlýnun jarðar.
Í fyrsta lagi er það samráðsþing-
ið sem áður var nefnt. Í öðru lagi
fyrirlestraröðin Nýir straumar sem
forsetinn stofnaði til fyrr á þessu
ári. Í þriðja lagi býður forsetinn til
Íslands í haust hópi ungra leiðtoga á
alþjóðavettvangi úr ýmsum geirum
samfélagsins en þá verður efnt til
samráðsfundar um orkugjafa fram-
tíðar.
Í fjórða lagi mun Ólafur Ragnar
beita sér fyrir því að koma á víð-
tækri samvinnu milli íslenska
vísindasamfélagsins og ýmissa virt-
ustu háskóla veraldar. Í fimmta lagi
hefur Rannsóknarþing norðursins
fjallað ítarlega um breytingar á
umhverfi og loftslagi á norðurslóð-
um en þingið var stofnað árið 2000 á
grundvelli tillagna frá Ólafi Ragn-
ari. - sgi
Forsetinn beitir sér fyrir samræðum áhrifafólks, vísindamanna og sérfræðinga:
Hlýnun jarðar í brennidepli
KJÖRKASSINN
Ertu sátt(ur) við nýja ríkisstjórn
Geirs Haarde?
Já 32,8%
Nei 67,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Munu Íslendingar vinna sigur á
Svíum á heimavelli?
Segðu þína skoðun á visir.is
EGYPTALAND, AP Meðlimir al-Kaída
hryðjuverkanetsins hóta stórfelld-
um árásum í Írak og segja netið
enn afar voldugt, þrátt fyrir lát
foringjans, Abu Musab al-Zarqawi,
í síðustu viku. Þetta kom fram á
heimasíðu herskárra múslima í
gær.
Arftaki al-Zarqawi var ekki
nefndur en fram kom að meðlimir
al-Kaída í Írak hefðu endurnýjað
bandalag sitt við Osama bin
Laden.
Talsmenn Bandaríkjahers hafa
orðið tvísaga um dauða al-Zarqawi
og hefur vitni gefið sig fram sem
segir hermenn hafa barið hann til
bana. - smk
Al-Kaída í Írak:
Hótar stórfelld-
um árásum
EFNAHAGSMÁL Hagstofa Íslands
birtir verðbólgutölur í dag. Grein-
ingardeild KB banka spáir 0,8 pró-
senta hækkun á vísitölu neyslu-
verðs í júní, sem jafngildir 7,7
prósenta verðbólgu á tólf mánaða
tímabili.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir tölurnar
sennilega munu vera í samræmi
við spár sambandsins og þess
vegna ólíklegt að þær hafi áhrif á
kjaraviðræður þess við stjórn-
völd. Von er á formlegum við-
brögðum stjórnvalda við tillögum
forystu ASÍ á morgun. Gylfi segir
þó ólíklegt að niðurstaða fáist fyrr
en í fyrsta lagi í lok vikunnar.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segist ekki eiga von á neinu
góðu þegar tölur Hagstofunnar
verði birtar. Aðilar vinnumarkað-
arins munu halda áfram kjaravið-
ræðum sama hvað þær tölur sýna.
Greiningardeildin spáir því að
hækkun á innfluttum varningi og
hækkandi húsnæðisverð muni
leggja mest til hækkunar á vísitöl-
unni. Þá verði fasteignaliðurinn
drjúgur og muni leggja 0,25 til 0,3
prósentustig til hækkunar vísitöl-
unnar. Gengisveiking krónunnar
muni einnig hafa áhrif, þar sem
aukið launaskrið hefur leitt til
verðskrárhækkana á ýmiss konar
þjónustu undanfarið. - sh
Hagstofan birtir nýjar verðbólgutölur í dag:
Mun hafa lítil áhrif
KJARAVIÐRÆÐUR HALDA ÁFRAM Gylfi
Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir
að verðbólgutölur, sem birtar verða í dag,
muni hafa lítil áhrif á framhald kjaravið-
ræðna.
ÞÝSKALAND, AP Um 1.200 þýskir
gyðingar og stjórnmálamenn mót-
mæltu orðum Mahmoud Ahmadin-
ejad Íransforesta um helför nas-
ista í Nürnberg fyrir fótboltaleik
Írans og Mexíkó í gær.
Ahmadinejad hefur hneykslað
marga með því að segja að helför-
in sé bara þjóðsaga. Jafnframt
hefur hann dregið tilverurétt
Ísraelsríkis í efa.
Hann hafði gefið til kynna að
hann myndi mæta á fótboltaleik-
inn en mætti ekki þegar til kom.
Mexíkó vann leikinn með þrem-
ur mörkum á móti einu. - smk
Þýskir gyðingar:
Íransforseta
mótmælt í HM
ÍRAK, AP Yfir 200 föngum var
sleppt úr fangelsum í Írak í gær,
en það er í samræmi við stefnu
stjórnvalda þar í landi um að
sleppa úr haldi þúsundum fanga
sem handteknir voru í stríði.
Varaforseti Íraks, Tariq al-
Hashimi, samgladdist föngum úr
Abu Ghraib-fangelsinu, sem voru
frelsinu fegnir, - sgj
Áætlun Íraka heldur áfram:
Tvö hundruð
föngum sleppt
Á BLAÐAMANNAFUNDI Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, kynnti á blaða-
mannafundi samráðsþing um loftslags-
breytingar sem hefst í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR