Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 16
 12. júní 2006 MÁNUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Lykilorðið okkar í öllu okkar starfi er samvinna,“ segir Geir Bjarnason, forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. Þar vísar hann til samráðshópa sem settir voru á laggirnar með fólki sem var að vinna með börnunum. Þar voru málin rædd og reynt að finna út hvað væri hægt að gera betur. Þegar einhver vandamál komu upp í hverfunum fóru hóparnir af stað og reyndu að fá foreldra í lið með sér til þess að gera breyting- ar. Foreldrarölt hefur einmitt verið mikilvægur þáttur í forvörn- um Hafnfirðinga en þá taka nokkr- ir foreldrar sig til og labba um hverfin og spjalla við unglingana. Þetta hefur að sögn Geirs gefist mjög vel og hjálpað til við að brúa bilið á milli unglinganna og for- eldranna. Samstarf við lögreglu er einn af lykilþáttum forvarnarstarfsins að sögn Geirs. „Þau gátu gert ýmislegt, sex, sjö sinnum áður en farið var að gera eitthvað. Þeir sneru þessu við og fóru að vinna með foreldrum við að gera málið sýnilegra.“ „Við teljum okkur eiga mikið inni því að bærinn eyðir tugum milljóna króna í að niðurgreiða gjöld fyrir krakka í íþrótta- og æskulýðsstarfi,“ segir Geir. Börn yngri en tíu ára fá gjöldin greidd og um næstu áramót verður aldurinn hækkaður upp í tólf ár. Þátttakendum í þessu aldurshópi hefur fjölgað um helming og er stefnan fyrir næstu tvö árin að allir undir sextán ára aldri geti nýtt sér þessa þjónustu. Geir segir yfirvöld einnig standa fyrir átaksverkefnum. Eitt þeirra var að koma í veg fyrir að unglingar söfnuðust saman niðri í bæ á gamlárskvöld. Það hefur tek- ist vel og nú sjást fáir á ferli en fyrir nokkrum árum voru hundruð unglinga saman komin á þessu kvöldi. Annað átaksverkefni er að reyna að koma í veg fyrir að ungl- ingar kaupi tóbak með því að senda unglinga undir átján ára aldri á sölustaði í bænum. Nú selja um þrjátíu prósent unglingum tóbak en fyrir nokkrum árum voru það um sextíu prósent. gudrun@frettabladid.is Lykilorðið er samvinna GEIR BJARNASON FORVARNARFULLTRÚI HAFNARFJARÐAR. Geir telur mikilvægt að virkja foreldra og segir að þeim sé ekki sama hvað sé að gerast í hverfunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR UNGLINGAR Í VINNUSKÓLANUM Sumarið er mikill áhættutími fyrir unglinga og vill Geir aukið samstarf við Vinnuskólann. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Hafnfirðingar hafa að undanförnu vakið athygli fyrir vasklega framgöngu í forvörnum fyrir börn og unglinga. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en eftir fjögurra ára starf standa hafnfirskir unglingar nú vel að vígi gagn- vart jafnöldrum sínum annars staðar. Bílddælingar njóta góðs af haf- rannsóknarverkefni sem unnið er að í Arnarfirði. Verkefnið byggist meðal annars á því að þorskurinn er alinn á loðnu á miðjum firði svo hann fari ekki í fjarðarbotninn og leggi sér rækjuna til munns sem þar heldur til en heldur hefur henni fækkað undanfarin ár. Þorskurinn er orðinn svo gæfur að þeir sem gefa honum loðnu í svanginn geta hæglega klappað honum. En hann ætti ekki að treysta mannskepnunni um of því hann er settur í kvíar þegar kom- inn er í sláturstærð. Jón Þórðar- son, sem vinnur að verkefninu með hafrannsóknarmönnum, hefur svo boðið Bílddælingum þennan hjarðfisk í soðið. „Hann hefur oft sett kar á plan- ið með þeim skilaboðum að bæjar- búar geti fengið sér í soðið,“ segir Hannes Friðriksson, eigandi veit- ingahússins Vegamóta á Bíldudal, en hann bauð blaðamanni í eldis- fisk. „Þorskurinn er þybbinn og samanrekinn og alveg sérstaklega bragðgóður eins og gengur og ger- ist með sjávargullið úr Arnar- firði,“ segir Hannes meðan hann handleikur flakið. Hannes er ekki einungis veit- ingamaður heldur var hann einnig iðinn við leiklistina á Bíldudal. Nú hefur verið stofnaður styrktar- sjóður fyrir unga Bílddælinga sem huga á listnám en sjóðurinn ber heitið Hannesörnágúst eftir þeim Hannesi, Erni og Ágústi Gíslason- um sem allir voru ötulir leikarar með leikfélaginu Baldri á Bíldu- dal. Bílddælingar njóta góðs af hafrannsóknarverkefni í Arnarfirði: Bæjarbúar fá eldisfisk í soðið HANNES FRIÐRIKSSON Veitingamaðurinn var eins og aðrir bæjarbúar á Bíldudal hrifinn af eldisfisknum sem hann fékk. Fiskurinn er þybbinn og þéttur og hreint Arnarfjarðarkonfekt, eins og Hannes segir sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR Hefði viljað kosningar „Mér finnst að það hefði átt að kjósa aftur,“ segir Ellen Kristjánsdóttir söngkona um hræringarnar innan ríkisstjórnarinnar eftir afsögn Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. „Þetta er orðið hálf undarlegt þegar skipt- ingarnar eru svona örar. Þetta lyktar af baráttu um eigin hagsmuni frekar en málefni. En úr því sem komið er verður maður að hugsa jákvætt til þeirra sem koma þarna fersk inn og trúa því að þau séu heil í því sem þau eru að gera. En virkjunarmálin eru mér náttúrlega ofarlega í huga og því lagði ég við hlustir þegar Jón Sigurðsson, nýr iðn- aðarráðherra, var inntur eftir því hvað hann hygðist gera og hann virðist ætla að halda sömu stefnu. Þó gaf það mér nokkra von þegar hann lét í veðri vaka að hann væri til í að endurskoða stefnuna ef honum sýndist þörf vera á því. En það er ekki laust við það að ég hafi nokkrar áhyggjur af þessu þjóðfélagi. Mér finnst við vera að fara of geyst inn í auðhyggjuna. Við höfum gengið langt í stóriðju og einkavæðingu en svo er fullt af fólki sem hefur það nokkuð skítt. Hvað með fólkið sem ól okkur upp; gamla fólkið? Ekki er ástandið gott hjá því. Og hvað með unga fólkið sem erfir landið? Nei, ég held það sé kominn tími til að við förum að hægja aðeins á og huga að því sem mestu máli skiptir.“ SJÓNARHÓLL NÝ SKIPAN Í RÍKISSTJÓRN ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4 Skyldurækinn ráðherra „Menn eiga að gera skyldu sína.“ JÓN SIGURÐSSON, VERÐANDI IÐNAÐARRÁÐHERRA, ÞEGAR HANN VAR SPURÐUR UM ÁSTÆÐ- UR ÞESS AÐ HANN TEKUR SÆTI Í STJÓRNINNI. FRÉTTABLAÐIÐ 11. JÚNÍ Útherjinn og umbinn við imbann „Við erum núna staddir hér á Íslandi og ætlum okkur að slaka á og og fylgjast með heims- meistarakeppninni.“ ARNÓR GUÐJOHNSEN, UMBOÐS- MAÐUR OG FAÐIR EIÐS SMÁRA, SEM ER NÚ ORÐAÐUR VIÐ BARCE- LONA. FRÉTTABLAÐIÐ 11. JÚNÍ „Það er alveg nóg að gera,“ sagði Sunna Einarsdóttir, ferðafrömuður og fiskverkunar- kona frá Drangsnesi, sem gaf sér stundarfrí frá akstri í Borgarfirði til að ræða við blaðamann. „Nú er ég á leiðinni suður með dóttur mína til að kaupa útskriftarföt en hún er að útskrifast frá Menntaskólanum á Akureyri. Svo fer ég til Drangsness á þriðjudag og svo til Akureyrar á fimmtudag þannig að það er í nógu að snúast.“ En það er einnig nóg að gera í ferða- mennskunni. „Við hjónin vorum að breyta hálfum kjallaranum í íbúð sem við munum leigja út en ferðamannastraumurinn er að aukast á Ströndum þannig að við Drangnesing- ar verðum að taka við okkur. Einnig segja þeir að þeim mun meira sem framboðið sé, þeim mun meiri sé eftirspurnin í þessum geira. Við vorum að opna í byrjun mánaðarins og það er strax komin smá hreyfing á þetta en góðir hlutir gerast hægt. Ef þetta fer vel munum við svo breyta öðrum hluta bílskúrsins í íbúð en við eigum tvöfaldan bílskúr. Eitthvað verðum við að gera við allt þetta rými sem við höfum eftir að börnin tvö flugu úr hreiðrinu.“ Eiginmaður Sunnu er Halldór Höskuldsson, sjómaður á Grímsey ST 2 sem er dagróðrabát- ur. Sunna vinnur einnig við sjávarútveg en hún starfar hjá fiskvinnslunni Drangi. „Ég sé um bókhaldið fyrir hádegi og svo er ég í verkuninni eftir hádegi eða eins og stöllur mínar segja þá sé ég um bókhald fyrir hádegi og vinn eftir hádegi,“ segir Sunnar og hlær við. „Svo er nóg um að vera á Drangsnesi,“ bætir hún við. „Um helgina voru ung hjón að gifta sig og var mikið um dýrðir. Þá var hátíðar- blær yfir öllu þorpinu.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SUNNA EINARSDÓTTIR FERÐAFRÖMUÐUR OG FISKVERKUNARKONA Bókhald fyrir hádegi og vinna á eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.