Fréttablaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 61
MÁNUDAGUR 12. júní 2006 21
Lysing_leikfangabíll_4x300mm
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
H
in
ri
k
Pé
tu
rs
so
n
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
Má bjóða þér einn?
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
“Hrö› og fagleg fljónusta eru einkunnaror›
okkar hjá L‡singu. Ef flig vantar fjármögnun
á atvinnutæki flá ábyrgjumst vi› svar á innan
vi› sólarhring frá flví a› öll gögn liggja fyrir.
Einfaldara getur fla› ekki veri›.“
Elvar Da›i Eiríksson
Rá›gjafi, Fjármögnun atvinnutækja
Dagana 25.-28. maí var haldin ráð-
stefna í Helsinki um sáttamiðlun á
vegum Nordisk Forum for Mek-
ling. Samhliða ráðstefnunni er
venja að halda aðalfund félagsins
og var Íslendingur kjörinn í stjórn-
ina í fyrsta sinn, sem er Ingibjörg
Bjarnardóttir hdl. formaður Sátt-
ar.
Íslendingar komu í fyrsta sinn
að félaginu á ráðstefnu þess árið
2004 og í framhaldi af ráðstefnunni
kom aukinn kraftur í óformlegt
starf áhugafólks um sáttamiðlun á
Íslandi. Í haust sem leið stofnuðu
þverfaglegur hópur formlegt félag
um sáttamiðlun á Íslandi og nefnist
félagið Sátt. Sáttamiðlun hefur
ekki verið viðhöfð á Íslandi nema
að litlu leyti, þ.e. svokallaður
Hringur sem er starfræktur í
tveim þjónustumiðstöðvum í
Reykjavík byggir á hugmynd sátta-
miðlunar. Nýverið ákváðu íslensk
stjórnvöld að koma í gagnið til-
raunaverkefni þar sem lögreglu-
mönnum er gert að vinna sem
sáttamenn í afbrotamálum. Á
hinum Norðurlöndunum og í fjöl-
mörgum löndum Evrópu og víðar í
heiminum er sáttamiðlun beitt þar
sem deilur tveggja eða fleiri aðila
eiga sér stað.
Á nýafstaðinni ráðstefnu
Nordisk Forum for Mekling í Hels-
inki var fjallað um sáttamiðlun í
skólum, á vinnumarkaði, deilum
milli ólíkra menningarheima, í
milliríkjadeilum, í fjölskyldumál-
um, einkamálum og afbrotamálum.
Ráðstefnuna sátu átta Íslendingar
sem starfa við ólíkar stofnanir þ.e.
félagsráðgjafar, lögfræðingar, sál-
fræðingar og sérfræðingar úr
fleiri fagstéttum. Athyglisvert er
að víða, m.a. í Evrópu og á Norður-
löndunum, hefur sáttamiðlun verið
í boði í skilnaðarmálum um ára-
tugaskeið. Hjón sem skilja eiga
kost á nokkrum tímum hjá sátta-
miðlara sér að kostnaðarlausu, sem
í mörgum tilfellum leysir ýmsan
ágreining á nokkrum klukkustund-
um og báðir aðilar eru sáttir.
Ágreiningur sem annars hefði
verið meðhöndlaður hjá dómstól-
um og tekið langan tíma og ekki
öruggt að báðir aðilar séu sáttir að
loknum málaferlunum.
Sáttamiðlun á Íslandi og Nordisk Forum for Mekling
UMRÆÐAN
ERLA SIGURÐARDÓTTIR FÉLAGSRÁÐGJAFI
SKRIFAR UM SÁTTAMIÐLUN
Hjón sem skilja eiga kost á
nokkrum tímum hjá sáttamiðl-
ara sér að kostnaðarlausu,
sem í mörgum tilfellum leysir
ýmsan ágreining á nokkrum
klukkustundum og báðir aðilar
eru sáttir.
Hverfisnefnd Brekkuskólahverfis
vill koma á framfæri eftirfarandi
ályktun sem varðar umferðarmál
á Brekkunni:
Nefndarfólki hverfisnefndar
Brekkuskólahverfis þykir sér-
staklega brýnt að staðið verði
betur að umferðarmálum á Brekk-
unni, þá sérstaklega í Þórunnar-
stræti með tilliti til þeirra barna
sem sækja Brekkuskóla og leik-
skólann Hólmasól. Við erum afar
ósátt við þær breytingar á gatna-
mótum Þórunnarstrætis og Mið-
húsabrautar sem samþykktar
voru í umhverfisráði nýlega (155.
fundur 27.3.2006, 7. liður) og þegar
hefur verið hafist handa við, enda
muni það fyrirkomulag aðeins
auka umferðarflæði um Þórunnar-
stræti. Við fögnum því að bæjar-
stjórn leggi til að lagningu Mið-
húsabrautar skuli lokið á árinu
2006. Mikilvægt er að gerð Mið-
húsabrautar verði lokið sem fyrst
og það eins og upphaflega var
áætlað eða austan við og neðan við
Jólasveinabrekku og Mjólkursam-
lagið.
Við teljum að með fullgerðri
Miðhúsabraut beinist þungaflutn-
ingaumferð vegna uppbyggingar í
Naustahverfi að mestu leyti af
Mýrarvegi og öðrum götum innan
hverfisins. Hins vegar teljum við
að Miðhúsabraut taki ekki við
þeirri aukningu á almennri umferð
í gegnum hverfið okkar sem búast
má við vegna fjölgunar íbúa
Naustahverfis og fyrirhugaðrar
uppbyggingar á þjónustustarf-
semi á Glerársvæðinu á komandi
árum og því verði nauðsynlegt að
framkvæma lagningu Dalsbraut-
ar.
Meirihluti hverfisnefndarinnar
er hlynntur því að farið verði í
lagningu Dalsbrautar sem fyrst
eða samhliða lagningu Miðhúsa-
brautar. Við vitnum í niðurstöður
könnunar Félagsvísindadeildar
H.A. sem birtar voru í Vikudegi
s.l. fimmtudag, en þar kemur fram
að 60% bæjarbúa vilja láta leggja
brautina (Vikudagur 27.4. 2006.,
bls. 2). Með lagningu Dalsbrautar
verður því komið til móts við óskir
meirihluta íbúa bæjarins. Við telj-
um brýnt að undirbúningsvinna
við framkvæmd Dalsbrautar hefj-
ist sem fyrst til að taka við aukinni
almennri umferð á svæðinu.
Ályktun
UMRÆÐAN
HJÖRLEIFUR HALLGRÍMSSON BLAÐA-
MAÐUR SKRIFAR UM UMFERÐARÖRYGGI
Á AKUREYRI
Við teljum að með fullgerðri
Miðhúsabraut beinist þunga-
flutningaumferð vegna
uppbyggingar í Naustahverfi
að mestu leyti af Mýrarvegi og
öðrum götum innan hverfisins.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
��������������
�������
����������
����
��������������
��������������
����
�������
������
��������
�����
��������
����������
��� ��