Fréttablaðið - 12.06.2006, Side 31
MÁNUDAGUR 12. júní 2006 11
HVAÐ ER... VERIÐ AÐ BYGGJA?
Pláss fyrir fjórar bifreiðar verður í húsinu en alls verða sautján bílastæði fyrir utan
húsið.
Glæsilegt átta íbúða hús rís
nú í miðri Reykjavík.
Íbúðirnar átta sem nú rísa í
Skipholti 29b eru nú þegar
komnar á sölu hjá Fasteignasöl-
unni Hofi og hafa einhverjar
þeirra verið seldar. Verslunar-
rýminu hefur hins vegar ekki
verið deilt út. Bæði er hægt að
kaupa rýmið og fá það á leigu.
Framkvæmdirnar hafa gengið
rösklega fyrir sig og mun þeim
ljúka í janúar á næsta ári.
Nútíma íbúðir á
besta stað
Verslunarrými húsnæðisins verður á neðstu hæðinni en alls eru hæðirnar fjórar.
Lyfta verður í húsinu.
Framkvæmdir eru nú í fullum gangi í Skipholti en þær hófust í janúar. Þrátt fyrir
umfang þeirra hafa þær ekki raskað umferðinni við götuna.
Húsnæðið í Skipholti 29b rís þar sem áður var bílastæði. Stærstu íbúðirnar hafa
svalir sem snúa bæði til suðurs og til austurs. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Síðan árás var gerð á World
Trade Center 11. september
2001 hefur verið unnið að upp-
byggingu á svæðinu.
Í stað tvíburaturnanna miklu á að
rísa jafnvel enn mikilfengri bygg-
ing og mun hún setja gríðarlega
mikinn svip á andlit borgarinnar.
Hinn nýi turn, sem fengið hefur
nafnið The Freedom Tower eða
Frelsisturninn, verður alls um 521
metri á hæð eða sem samsvarar
1.776 fetum. Þessi fjölmörgu fet
eiga vera til heiðurs árinu 1776
þegar Bandaríkjamenn skrifuðu
undir frelsisyfirlýsingu landsins.
Útlit Frelsisturnsins hefur
breyst og þróast mjög að undan-
förnu og hefur orðið að hálfgerðri
borgardeilu þar sem menn á borð
við Donald Trump hafa blandað
sér í málin. Sagt er að rými bygg-
ingarinnar sé ekki nóg miðað við
stærð og einnig að ríkisstjóri New
York hafi haft áhrif á hverjir yrðu
valdir til þess að að hanna bygg-
inguna.
Framkvæmdir við byggingu
eru þó hafnar og allt virðist
nokkurn veginn liggja ljóst fyrir.
Aðrar byggingar munu einnig
rísa í kring, sem og ýmis minn-
ingarmerki. Talið er að fram-
kvæmdum muni ljúka árið 2012.
Frelsisturninn verður þá hæsti
turn Bandaríkjanna en væntan-
lega ekki lengi því stefnt er að
smíði enn stærri turns í Chicago á
næsta áratug.
steinthor@frettabladid.is
Frelsisturninn rís
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
„Hann er svona stór!“ gæti David Childs,
einn af arkitektum Frelsisturnsins, verið
að segja þegar hann kynnti bygginguna á
blaðamannafundi í New York í fyrra.
NORDICPHOTOS/AFP
Hinn nýi og magnaði Frelsisturn gæti sómt sér nokkuð vel meðal háhýsa Manhattan-eyju.
Þó eru ekki allir á eitt sáttir um útlit hans. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Fr
um
Sigrún Gissurardóttir,
lögg. fasteignasali
Steinar S. Jónsson,
sími 898 5254
Daníel Björnsson,
sími 897 2593
Þorsteinn Austir,
sími 820 3466
OPIÐ
mánud. - fimmtud. frá kl. 9-18
föstud. frá kl. 9-16. Svo er GSM-inn alltaf opinn
NÝBYGGINGAR
TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR
ÁLFKONUHVARF - NÝBYGGING
Til sölu 3ja herbergja íbúðir með eða án
stæðis í bílageymslu. Íbúðirnar eru afhentar
fullbúnar án gólfefna nema baðherbergi verð-
ur með flísalagt gólf og veggi upp í ca 2,10
m. hæð. Þvottahús verður með flísalögðu
gólfi. Húsið verður fullbúið að utan, lóð frá-
gengin og bílastæði malbikuð. Stærð íbúða
er 90,5 til 107,2 fm. Verð frá 21,0 m.
AKURVELLIR HAFNARFIRÐI Nýj-
ar 4ra-5 herbegja íbúðir 157,7 fm í sex íbúða
húsi. Allar íbúðirnar hafa sér inngang frá opnu
stigahúsi. Íbúðunum verður skila fullbúnum
án gólfefna nema á baði sem verður flísalagt.
Húsið verður fullbúið að utan og lóð frágeng-
in. Allar nánri uplýsingar á skrifstofu Lyngvík,
S: 588-9490 Verð 29,4 m. Stutt í afhendingu.
ENDURBYGGINGAR
AMTMANNSSTÍGUR - TIL UPP-
GERÐAR Heil húseign á þessum frábæra
stað fyrir verktaka/iðnarðarmenn til að gera
upp. Í húsinu eru fimm íbúðir á bilinu 50 til
110 fm að stærð. Húsið þarfnast verulegra
endurbóta. Húsið selst í einu lagi, ásett verð
90,0 m. áhv. ca 68,0 m.
LANDIÐ
SIGLUFJÖRÐUR - EYRARGATA
Um er að ræða tvær 66,7 fm 3ja herbergja
íbúðir í tvíbýli á Siglufirði. Íbúð skiptist í for-
stofu, eldhús með eldri innréttingu og borð-
krók, tvö svefnh., baðherbergi með sturtu og
stofu. V. 2,9 m hvor íbúð.
EINB - RAÐ- OG PARHÚS
LANGAGERÐI MEÐ BÍLSKÚR
OG ÚTSÝNI Einbýli 170,8 fm, 42,5 fm bíl-
skúr alls 213,3 fm. Húsið er á tveimur hæðum.
Neðri hæð; er forstofa, hol, 2 herb., stofur með
arinn og sólstofa með arinn, eldhús og baðh.
Efri hæð; er geymlsa, gangur, 3 herb. og
möguleiki að setja upp eldhús í einu þeirra,
dagstofa og baðherb. Bílskúrinn er með hita,
rafmagni, vatni og sjálfvirkum hurðaropnara.
Innaf bílskúr er gott vinnuherbergi. húsinu hefur
alltaf verið velviðhaldið. HÚSIÐ ER LAUST VIÐ
KAUPSAMNING. TILBOÐ ÓSKAST.
HÆÐIR
BORGARHOLTSBRAUT - HÆÐ
M/BÍLSKÚR. Mjög vel staðsetta 4ra her-
bergja sérhæð í 3ja íbúða húsi. Hæðinni fylgir
sérstæður 34 fm bílskúr. V. 26,8 m.
ÞINGHÓLSBRAUT - NEÐRI
SÉRHÆÐ Vorum að fá í sölu mjög góða
mikið endurnýjaða 112 fm neðri sérhæð. Eld-
hús og baðherbergi ný endurýjað. Þrjú svefn-
herbergi. Afgirt sér suður verönd. Samþykkt-
ar teikningar fyrir Bílskúr. Verð. 26,9 m.
MELABRAUT - SELTJARNAR-
NES Vorum að fá í sölu vel staðsetta og
mikið endurnýjaða 119 fm jarðhæð með 3-4
svefnherb. og sérinngangi. Góður suður
garður. Möguleiki á stuttum afhendingartíma.
3JA HERB.
FELLSMÚLI Góð ca 74 fm íbúð í kjallara.
Húsið er allt nýklætt að utan, nýir gluggar og
gler. Íbúðin er stofa og tvö herbergi með dúk-
flísum á gólfi. Eldhús m. dúkflísum á gólfi,
innréttingu og borðkróki. Baðherbergi með
flísum uppá miðja veggi og baðkari. Í sam-
eign er þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Verð 14,9 millj.
FRÓÐENGI 3JA herb. 103 fm mjög fal-
lega og rúmgóða íbúð á annari hæð á þess-
um eftirsótta stað í Grafarvogi. Baðh. endur-
nýjað á mjög smekklegan hátt. V. 20,9 m
ÆSUFELL - MEÐ ÚTSÝNI Mjög
góð 99 fm 3 herbergja íbúð á fjórðu hæð í
góðu lyftuhúsi, mikið útsýni, góð sameign.
Húsið er allt nýklætt að utan og málað.
Gengið verður frá lóð og bílastæðum í sumar
á kostnað seljanda. Verð kr. 16,9 M. íbúðin
getur losnað fljótlega. Húsvörður er í húsinu.
(1689)
PARHÚS Í SMÁRANUM Í KÓPAVOGI.
Vorum að fá í sölu mjög gott 180 fm parhús með innbyggðum
bílskúr í Grófarsmára í Kópavogi. Fjögur til fimm svefnher-
bergi. Arinn í stofu. Fallegur garður, ásamt suður verönd. V.
48,9 m.
VESTURGATA LYFTUHÚS
Vorum að fá til sölu 4ra herbegja 103,3 fm íbúð á þessum vin-
sæla stað vestast í vesturbænum. Tvær samliggjandi stofur og
er gengið út á suður svalir frá annari. Hægt er að loka á
milli þeirra með rennihurð. Tvö góð svefnherbergi annað
með’ skáp. Eldhús með góðri innréttingu og borðkrók. Bað-
herbergi með baðkari, flísum upp á miðja veggi og glugga.
Góð sameign. Í kkjallara er þvottahús og ségeymsla.
HRÍSRIMI MEÐ SÉRINNGANG.
Vorum að fá í sölu 4ra herbegja jarðhæð með sérinngang og sér-
verönd. Þrjú góð herbergi með parketi á gólfum og eitt með
skápum. Flísalgt baðherbergi með innréttingu, glugga og
tengi fyrir þvottavél. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa
með parketi og gengið út á verönd. Eldhús með fallegri inn-
réttingu og góðum borðkrók.
KRÓKHÁLS - ATVINNUHÚSNÆÐI
Gott atvinnuhúsnæði ca 690 fm sem samanstendur af tveimur
einingum en er einn salur í dag. Auðvelt að breyta í margar
littlar einingar eða skrifstofur. Getur orðið til afhendingar
mjög fljótlega. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Lyngvík
sími 588-9490
ÞORLÁKSGEISLI - GRAFARHOLTI TILBÚIÐ TIL AFH.
3ja og 4ra herbergja íbúðir í sextán íbúða lyftuhúsi. Íbúðirnar
eru frá 101 fm til 140 fm, öllum íbúðunum fylgir stæði í
bílageymslu. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna en bað-
herbergi og þvottahúsgólf eru flísalögð. Innréttingar og
skápar frá HTH. Í eldhúsi er keramik helluborð og blást-
urofn frá AEG. Veggháfur frá Airforce með viftu. Íbúðirnar
eru tilbúnar til afhendingar Verð frá 24.500.000
KÓPAVOGUR- VERSLUNARHÚSNÆÐI
Vorum að fá í sölu 200 fm verslunarhúsnæði á mjög góðum stað
í nýbyggingarhverfi í Kópavogi. Í húsinu verður einnig stór
matvöruverslun. Húsnæðið verður til afhendingar í
ágúst/september n.k.
KIRKJUVELLIR HAFNARFIRÐI
� � � � � Sölumenn á staðnum kl. 16 - 18 í dag! � � � � �
Höfum fengið til sölumeðferðar einstaklega vandaðar 2ja. 3ja og 4ra herbegja íbúðir frá 76 fm til 117 fm.
í 6. hæða fjölbýlishúsi. Íbúðunum verður öllum skilað fullbúnum án gólfefna nema á baði og þvottahús
verða flísalögð. Allar innréttingar frá Brúnási spónlagðar með eik, skápar ná upp í loft. Tæki í eldhúsi er
frá AEG blásturofn, háfur og keramikhelluborð með snertitökkum. Baðherbergi er með flísalagt gólf og
veggi upp í hurðarhæð með innréttingum og vönduðum tækjum. Í kjallara er bílageymsla sem er innan-
gengt úr stigagangi og lyftu. Húsið verður til afhendingar í september nk. lóð verður tyrfð og bílastæði
malbikuð. Verð frá kr. 16,1 m. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Lyngvík sími: 588-9490
TORFUFELL Mjög falleg 3ja herbergja
79 fm íbúð á þriðju hæð. Parket og flísar á
gólfum, íbúðin er mjög snyrtileg og vel um
gengin. Verð. 13,9 m
KRISTNIBRAUT MEÐ STÆÐI Í
BÍLSKÝLI Mjög góð 82,1 fm íbúð og
geymlsa 14,7 fm alls 96,8 fm. með stæði í
bílageymsu. Í eldhúsi er glæsileg innrétting
með flísum á milli skápa og borðkrók. Borð-
stofa og stofa með parketi og suður svölum
með góðu útsýni. Baðherbergi flísalagt með
innréttingu og baðkari. Þvottahús í íbúð. Tvö
góð herbergi með parketi og skápum. í sam-
eign í kjallara er góð geymsla hjóla og vanga
geymsla. Stutt í alla þjónustu svo sem leik-
skóla og grunnskóla. Verð. 22,9 m
4RA HERB
HOFTEIGUR - SÉRINNGANGUR
Rúmgóð og vel staðsetta 137 fm 4-5 her-
bergja íbúð í kjallara með sér inngangi. stór
og góð herbergi. V. 24,9 m
VALLARHÚS 4-5 HERBERGJA
Um er að ræða mikið endurnýjaða 120 fm
íbúð á tveimur hæðum með sér inngangi. Á
neðri hæð er forstofa, þvottahús, stofa, eld-
hús og snyrting. Á efri hæð eru þrjú herbergi
og baðherbergi, yfir íbúðinni er risloft sem
búið er að gera að herbergi. Eignin er mikið
endurnýjuð þ.e. eldhús, gólfefni, snyrting og
fleira. V. 25,9 m
GULLSMÁRI - GÓÐ STAÐSETN-
ING
Mjög góð 4ra herbergja íbúð á 2.hæð í fal-
legu litlu fjölbýlishúsi á einum besta stað í
Smáranum. Stórar suður svalir. Hús og sam-
eign nýlega máluð. Afhending í júní-júlí n.k. V.
22,9 m
ATVINNUHÚSNÆÐI
TRÖNUHRAUN - LAUST STRAX
Vorum að fá í sölu 140 fm iðnaðarhúsnæði
með góðum innkeyrsludyrum á einni hæð.
Verð 19,8 m
SUMARBÚSTAÐIR
SUMARHÚS - VIÐ LAUGAR-
VATN
Um er að ræða mjög vel staðsettan 46 fm
sumarhús, ásamt 6 fm aukahúsi. Búsaðurinn
stendur í fallega ræktuðu 11 þúsnund fer-
metra eignarlandi rétt vestanmegin við Laug-
arvatn á skjólgóðum og rólegum stað. V. 12,7
m
VERSLUNARHÚSNÆÐI
VESTURBERG VERSLUNAR-
HÚSNÆÐI
Gott 517 fm verslunarhúsnæði á einni með
góðum bílastæðum. Húsnæðið gefur mikla
möguleika til breytinga. Í dag er rekin mat-
vöruverslun í húsnæðinu. Allar nánari upplýs-
ingar á skrifstofu Lyngvík S: 588-9490
OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG - OPIÐ HÚS Í DAG