Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.06.2006, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 12.06.2006, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 12. júní 2006 5 Mikil eldhætta getur skapast í sumar- bústöðum. Gakktu vel um ÞAÐ BORGAR SIG AÐ PASSA UPP Á GARÐÁHÖLDIN. Sumarið er komið og margir njóta þess að vinna í garðinum. Hrífur, skóflur, garðklippur og arfasköfur hafa verið dregnar fram í dagsljósið og einhverjir hafa brugðið sér í búð og keypt ný og falleg verkfæri fyrir sumarið. Til þess að lengja líftíma verkfæranna er mikilvægt að ganga vel um þau. Garðáhöldin ætti að geyma á góðum stað og það er ákjósanlegt að hengja þau upp í stað þess að láta þau liggja í haug á gólf- inu. Þú ert fljótari að finna verkfærin ef vel er gengið frá þeim og það eykur einnig endingartíma þeirra því verkfæri sem liggja á gólfinu verða frekar fyrir hnjaski. Þá er líka gott að venja sig á að hreinsa verkfærin vel eftir notkun. Þó ekki viðri til þess þessa dagana má alltaf láta sig dreyma um góðar stundir á sólríkum svölum og sólpöllum. Til að njóta sem best hinna sólríku stunda úti- við á svölum og pöllum landsins eru nokkrir hlutir ómissandi. Þar ber fyrst að nefna góðan stól því öll slökun væri til einskis án hans. Góð bók til að láta tímann líða, sólgleraugu til að geta lesið sem lengst í sterkri sólinni. Hvar væri sumarið án nokkurra blóma? Litrík blóm í pottum eða beðum eru skilyrði fyrir góðri upplifun á íslensku sumri. Þegar hungrið steðjar að er gott að ljúka ljúfum degi útivið með því að skella einhverju girnilegu á grillið og drekka með því ferskan sumardrykk í góðum félagsskap. Notaleg stund á svölunum Öryggi í sumarbú- staðinn NÚ ÞEGAR SUMARBÚSTAÐAFERÐIRN- AR VERÐA TÍÐARI ER MIKILVÆGT AÐ MUNA EFTIR BRUNAVÖRNUM. Í sumarbústaðaferð getur verið huggu- legt að kveikja í arninum, grilla góðan mat eða nota gaseldavél til þess að elda kvöldmatinn. Opinn eldur og gas í timburhúsi getur reynst verulega hættuleg samsetning og því nauð- synlegt fyrir sumarbústaðaeigendur að fara yfir brunavarnir í bústaðnum. Ef þær eru ekki fyrir hendi þarf að sjálfsögðu að festa kaup á slíku. Það þarf að vera reykskynjari í bústaðnum, handslökkvitæki og eldvarnarteppi sem geymist nálægt eldavélinni. Einnig er gott að ræða viðbrögð við eldsvoða innan fjölskyldunnar eða sumarbústaðagesta og mögulegar útgönguleiðir. Njótum þess að vera örugg í sumarbústaðaferð- inni. ráð } Heilsunudd þegar þér hentar Með fullkominni tölvustýringu og hátækni nuddbúnaði framkallar M-CLASS nuddstóllinn áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með því að styðja á hnapp á meðfylgjandi fj arstýringu velur þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni. Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú vilt og þar sem þú vilt. M-CLASS nuddstóllinn er hannaður með þig og þínar þarfi r í huga. Við bjóðum þér að koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu 63 til að sannfærast. ECC Skúlagötu 63 Sími 511 1001 Hágæða MP3 spilari frá Philips fylgir nú M-Class nuddstólnum. Kaupauki!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.