Fréttablaðið - 12.06.2006, Page 74
12. júní 2006 MÁNUDAGUR34
Undankeppni HM:
SVÍÞJÓÐ-ÍSLAND 28-32
Mörk Íslands, (skot): Snorri Steinn Guðjónsson
7/5 (10/5), Einar Hólmgeirsson 6 (7), Róbert
Gunnarsson 5 (7), Arnór Atlason 5 (10), Alex-
ander Petersson 3 (5), Guðjón Valur Sigurðsson
3 (6), Sigfús Sigurðsson 2 (2), Ólafur Stefánsson
1 (8/1).
Hraðaupphlaup: 6 (Snorri 2, Guðjón 2, Alexander,
Sigfús).
Fiskuð víti: 6 (Alexander 2, Ólafur, Róbert, Guð-
jón, Snorri)
Utan vallar: Ísland í 16 mín. Svíþjóð í 10 mín.
Mörk Svíþjóðar, (skot): Kim Andersson 8 (17),
Stefan Lövgren 6/2 (11/2), Ljubomir Vranjes 5
(8), Fredrik Lindahl 4 (5), Mathias Franzen 2 (3),
Marcus Ahlm 2 (2).
LEIKIR GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Hart var barist í öðrum
leikjum í undankeppni heims-
meistaramótsins um helgina.
Norðmenn unnu Rúmena 30-29 á
útivelli og Rússar burstuðu Sviss-
lendinga 41-26 og má eiginlega
segja að úrslitin séu ráðin í þeirri
viðureign.
Tékkar gerðu góða ferð til
Serbíu/Svartfjallalands og unnu
sex marka sigur og þá vann Ung-
verjaland níu marka sigur í Slóvak-
íu. Í Grikklandi unnu heimamenn
27-22 sigur á Póllandi og Slóvenía
átti ekki í vandræðum með að vinna
Austurríki á heimavelli en úrslitin
þar voru 36-26. - egm
Aðrir leikir í undankeppni HM:
Norðmenn
unnu á útivelli
HANDBOLTI Fyrri hálfleikur var
fyrir margra hluta sakir mjög
áhugaverður. Alfreð byrjaði á því
að klippa út hægri vænginn hjá
Svíum en hann klippti út vinstri
vænginn gegn Dönum og líklegt
að Svíar hafi búist við því sama í
Globen. Sænska markvarðagrýlan
lét á sér kræla strax í upphafi en
Peter Gentzel gerði sér lítið fyrir
og varði átta fyrstu skot íslenska
liðsins. Hann varði alls fjórtán
skot í hálfleiknum. Til samanburð-
ar varði Birkir Ívar fimm skot í
hálfleiknum.
Fyrsta mark íslenska liðsins
kom ekki fyrr en eftir rúmar átta
mínútur er Arnór Atlason minnk-
aði muninn í 3-1. Það var fyrst og
fremst stórkostlegur varnarleikur
íslenska liðsins sem gerði það að
verkum að Svíar stungu ekki af í
upphafi leiks. Svíar áttu í miklum
vandræðum með að brjóta niður
íslenska varnarmúrinn og oftar en
ekki misstu þeir boltann eða
þröngvuðu erfiðu skoti á markið.
Það var ekki bara Peter Gentzel
sem gerði íslenska liðinu erfitt
fyrir í hálfleiknum því strákarnir
voru tveim mönnum færri í eitt
skiptið en stóðust samt pressuna.
Svo náði Ólafur Stefánsson sér
engan veginn á strik í hálfleiknum
og því var það ótrúlegt að Ísland
skyldi ganga með jafna stöðu til
leikhlés, 13-13.
Svíarnir freistuðu þess að
keyra upp hraðann í síðari hálfleik
og sóknir þeirra styttust verulega.
Sjálfstraust íslenska strákanna
jókst með hverri mínútu og þeir
komust yfir í fyrsta skipti, 17-18,
þegar Ólafur Stefánsson skoraði
sitt eina mark í leiknum.
Liðið héldust í hendur eftir það
en þegar um tíu mínútur lifðu
leiks náðu Svíar tveggja marka
forskoti, 26-24, og virtust líklegir
til að stinga af. Einar Hólmgeirs-
son skoraði þá gríðarlega mikið
mark fyrir Ísland og um leið virt-
ist allur vindur fara úr Svíum.
Íslensku strákarnir færðust að
sama skapi allir í aukana og loka-
kafli leiksins var hreint ótrúlegur.
Svíar voru að flýta sér fullmikið
og klúðruðu boltanum klaufalega
á meðan Ísland raðaði inn mörk-
um. Þegar upp var staðið fagnaði
Ísland fjögurra marka sigri, 28-32,
en þetta er klárlega einn frækn-
asti sigur landsliðsins í háa
herrans tíð.
Það má í raun segja að allt sem
Alfreð þjálfari lagði upp með hafi
gengið upp. Varnarleikurinn var í
einu orði sagt stórkostlegur og
undirritaður man ekki eftir að
hafa séð íslenska handboltalands-
liðið spila álíka varnarleik áður.
Birkir Ívar stóð síðan fyllilega
fyrir sínu í markinu. Það er erfitt
að taka menn út eftir slíkan leik
enda var liðsheildin gríðarlega
sterk og liðið sýndi mikinn karakt-
er með því að halda haus eftir
mjög erfiða byrjun. Allir lögðu
sitt á vogarskálarnar og voru
klárir í verkefnið. Ísland er komið
með annan fótinn til Þýskalands
og vonandi verður Höllin full í
seinni leiknum þegar strákarnir
klára verkefnið.
Ísland á hraðferð til Þýskalands
Íslenska handboltalandsliðið er komið með annan fótinn á HM í Þýskalandi eftir hreint út sagt magnaðan
sigur á Svíum í Globen, 28-32. Síðari leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni hinn 17. júní.
HANDBOLTI „Ég gat ekki leyft mér
að dreyma um fjögurra marka
sigur. Ég er mjög ánægður því það
gekk eiginlega allt upp sem við
vorum að æfa og allar breytingar
sem við gerðum skiluðu sér í leikn-
um. Það voru allir að skila sínu og
þó að byrjunin hafi verið erfið ótt-
aðist ég ekki neitt því færslan á
vörninni var góð og menn voru
einbeittir. Ég vissi að við kæm-
umst aftur inn í leikinn,“ sagði
Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari
vígreifur í leikslok en hann telur
sig hafa komið Svíum í opna
skjöldu í leiknum.
„Ég held það hafi komið Svíun-
um mjög á óvart að við skyldum
klippa á hægri vænginn hjá þeim
en ekki þann vinstri. Þeir hafa
eflaust búið sig undir að við tækj-
um vinstri vænginn og því urðu
þeir svolítið hissa. Ég held þeir
hafi aðeins vanmetið okkur en
þeir gera það ekki lengur. Þetta
hljómar kannski asnalega en ég
tel að við eigum samt eitthvað
inni.“
Síðari leikur liðanna fer fram í
Laugardalshöll á þjóðhátíðardag-
inn og Alfreðs bíður það erfiða
verkefni að halda mönnum á jörð-
inni.
„Hættan liggur í Íslendingun-
um því núna verður væntanlega
byrjað að selja ferðir á HM í
Þýskalandi í vikunni ef ég þekki
þjóðina rétt. Annars sagði ég við
strákana fyrir leikinn að þótt við
myndum tapa með 7-8 mörkum
værum við ekki dottnir út og við
værum heldur ekki komnir áfram
þótt við myndum vinna með fimm.
Það stendur enn og ég lít svo á að
það séu enn helmingslíkur hjá
báðum að komast áfram. Svíarnir
eiga mikið inni sóknarlega og við
verðum að hafa varann á. Til að
fara áfram tel ég okkur þurfa að
spila betri leik í Höllinni en hér í
dag,“ sagði Alfreð Gíslason lands-
liðsþjálfari í leikslok. - hbg
Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari var að vonum kampakátur með sigur Íslands að loknum leik í Globen í gær:
Það gekk eiginlega allt upp hjá okkur
HANDBOLTI Einar Hólmgeirsson
átti frábæra innkomu í leikinn og
skoraði sex glæsileg mörk. „Þetta
var mjög gott og það datt flest inn
í dag. Þetta er einn af þessum
dögum þar sem maður finnur að
maður er mjúkur og vill því fara
inn á völlinn. Verst hvað ég var
lengi fyrir utan,“ sagði Einar og
hló. „Þetta var flott og hreint út
sagt rosalega gaman. Við áttum
nóg inni á meðan þeir voru þreytt-
ir. Maður lét sig ekki beint dreyma
um svona sigur en þessi fer í sögu-
bækurnar.“ - hbg
Einar Hólmgeirsson:
Þetta fer í
sögubækurnar
HANDBOLTI „Ég vil hrósa öllu liðinu,
sem sýndi mikinn karakter og allir
voru að vinna hver fyrir annan,“
sagði Sigfús Sigurðsson, sem fór
mikinn í vörn Íslands. „Ég var
búinn að segja það áður og ég segi
það aftur að við erum betri. Það er
mjög einfalt og sást í dag. Við verð-
um samt að bæta við í seinni leikn-
um því þeir munu koma alveg vit-
lausir til Íslands.“ - hbg
Sigfús Sigurðsson:
Við erum betri
HANDBOLTI „Við fórum hingað til að
vinna enda vitum við vel hvað við
getum og við sýndum styrk okkar í
dag,“ sagði miðjumaðurinn Snorri
Steinn Guðjónsson, sem átti flott-
an leik en hann stýrði sóknarleikn-
um eins og hershöfðingi og var
öruggur á vítapunktinum.
„Við erum góðir og hittum á
rosaleik í dag. Það er hálfur sigur
unninn og við þurfum að eiga álíka
leik á laugardaginn til að komast á
HM. Við megum ekki missa ein-
beitinguna og vonandi fjölmennir
fólk og styður við bakið á okkur.“
Snorri Steinn Guðjónsson:
Við erum góðir
GÓÐIR Herbergisfélagarnir og stórvinirnir
Snorri Steinn og Róbert Gunnarsson voru
kátir í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SVÍÞJÓÐ - ÍSLAND
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
skrifar frá Stokkhólmi.
henry@frettabladid.is
HLEMMAR Það fundust skruðningar um
alla Globen-höllina þegar þetta faðmlag
stóð sem hæst hjá Sigfúsi og Alfreð.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÁTÖK Hún var ekki lítil baráttan í Globen-höllinni glæsilegu í gær en bæði lið tóku vel á
andstæðingnum. Hér sækir Arnór Atlason að marki Svía en er tekinn föstum tökum. Arnór
átti góðan leik í gær og skoraði fimm mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EINAR Gerði Svíunum grikk með þrumu-
fleygum sínum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Í SKÝJUNUM Alfreð var virkilega ánægður enda með gott veganesti fyrir síðari leikinn í
næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÍF Á BEKKNUM Það var líf og fjör á íslenska bekknum allan leikinn gegn Svíum. Alfreð
Gíslason er hér hreykinn á svip á meðan Guðmundur Guðmundsson fylgist spenntur með.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
X
KLÓKUR Ólafur Stefánsson skoraði ekki flest mörkin í leiknum í gær en hann var duglegur
að finna félaga sína úti um allan völl auk þess sem hann stóð vaktina frábærlega í vörn-
inni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR