Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 2
2 20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR
����������������������������������������� �����������
�������������
������������
���������
����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
SPURNING DAGSINS
Katrín, sástu nokkuð bleika
fíla í gær?
Við máluðum allt bleikt í gær, fíla jafnt
sem fjölmiðla.
Fjölmargir skörtuðu bleika litnum í gær í
tilefni kvenréttindadagsins, 19. júní. Katrín
Anna Guðmundsdóttir er talskona Fem-
ínistafélags Íslands sem stóð fyrir átakinu
Málum bæinn bleikan.
DÓMSMÁL Í nýrri ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins er Skífan, sem
nú heyrir undir Dag Group, fundin
sek um að hafa misnotað markaðs-
ráðandi stöðu sína og dæmd til að
greiða 65 milljónir króna í ríkis-
sjóð.
Fyrirtækið gerði á árunum 2003
og 2004 samninga við Hagkaup um
sölu á geisladiskum og tölvuleikjum
sem gerði það að verkum að keppi-
nautar Skífunnar voru nánast úti-
lokaðir frá viðskiptum við Hag-
kaup. Samkeppniseftirlitið komst
að þeirri niðurstöðu að samningarn-
ir stæðust ekki lög, en árið 2001 var
Skífan dæmd til að greiða tólf millj-
ónir króna fyrir svipuð brot. - sþs
Samkeppniseftirlit fellir dóm:
Skífan braut
samkeppnislög
SAMGÖNGUR Starfshópur, sem Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
skipaði fyrir rúmlega tveimur árum
til að skoða möguleika á betri sam-
göngum milli lands og Vestmanna-
eyja, telur skynsamlegasta kostinn
felast í nýrri ferjuhöfn í Bakkafjöru
auk betra skips í stað Herjólfs.
Starfshópurinn leggur til að
kannað verði nánar hvort raunhæft
sé að byggja höfn í Bakkafjöru, og
til þess verði fengnir erlendir sér-
fræðingar. Hópurinn leggur til að
áhættumat á siglingum milli Vest-
mannaeyja og Bakkafjöru fari
fram, auk þarfagreiningar á nýrri
ferju sem sigla myndi milli Vest-
mannaeyja og Bakkafjöru til að
tryggja að hún anni flutningaþörf-
inni.
Með lausn starfshópsins ætti
ferðatíminn milli Reykjavíkur og
Vestamannaeyja að styttast um eina
klukkustund og korter, en miðað við
núverandi aðstæður er ferðatíminn
um þrjár klukkustundir og 30 mín-
útur. Í áliti hópsins kemur fram að
þó að jarðgangagerð sé möguleg þá
séu jarðfræðilegar aðstæður erfið-
ar og raunhæfur kostnaður við
göngin ekki minni en 40 milljarðar.
Árni Johnsen, sem beitt sér hefur
fyrir því að ráðist verði í jarðganga-
gerð til Eyja, vildi ekki tjá sig um
starf hópsins að svo stöddu en taldi
mikið við það að athuga. - mh
Starfshópur á vegum samgönguráðherra leggur til höfn fyrir Vestmannaeyjaferju:
Leggja til höfn í Bakkafjöru
Ekið á stúlku Ekið var á unga stúlku á
reiðhjóli á Hafnarfjarðarvegi um tvöleyt-
ið í gær. Stúlkan meiddist ekki alvarlega
en kenndi sér mein í fæti og hálsi og var
flutt á sjúkrahús til skoðunar.
LÖGREGLUMÁL
Ætlar að falla Nemandi í Tyrklandi
sýnir óvenjulegan metnað á skólagöngu
sinni. Hann ætlar að falla með stæl
og skrá nafn sitt í sögubækur með því
svara hverri einustu spurningu vitlaust á
inntökuprófi í Háskólann í Ankara. Þessi
áætlun er erfiðari í framkvæmd en virð-
ast kann því til þess að tryggja að hann
svari ekki óvart rétt, þarf nemandinn að
læra öll réttu svörin utan að.
TYRKLAND
ATVINNUMÁL Yfir Landspítala-
háskólasjúkrahúsi vofir nú höfð-
un skaðabótamáls upp á allt að
eitt hundrað milljónum króna, að
sögn Karls Axelssonar hrl. lög-
manns Tómasar Zoega læknis.
Tómas mun ganga út af spítalan-
um á föstudag hafi forstjóri og
lækningaforstjóri LSH ekki end-
urskoðað afstöðu sína fyrir þann
tíma. Skaðabótakrafan mun
byggð á ætluðum launum hans
sem yfirlæknis til sjötugs, auk
miskabóta.
Í bréfi sem Magnús Pétursson
forstjóri og Jóhannes M. Gunn-
arsson lækningaforstjóri skrif-
uðu Tómasi um helgina segir að
samkvæmt dómi Hæstaréttar
eigi hann ekki rétt á að fara aftur
í starf yfirlæknis meðfram því að
reka læknastofu úti í bæ. Tómas
var sem kunnugt er færður úr
yfirmannsstöðu í starf sérfræði-
læknis þar sem hann hafnaði því
að fara að nýrri stefnu fram-
kvæmdastjórnar LSH í starfsfyr-
irkomulagi yfirlækna. Héraðs-
dómur dæmdi þá ákvörðun
framkvæmdastjórnarinnar
ógilda, en Hæstiréttur taldi hana
ólögmæta.
Lögmaður Tómasar sendi í
gær svarbréf fyrir hönd skjól-
stæðings síns þar sem þeim eru
kynnt þau úrræði sem fyrirhug-
að er að grípa til, verði hundrað
prósent starfskröfunni ekki
breytt hvað Tómas varðar, þar
sem Hæstiréttur hafi dæmt hana
ólögmæta. - jss
TÓMAS
ZOEGA
Aukin harka hlaupin í deilumál Tómasar Zoega læknis og Landspítala:
100 milljóna skaðabótakrafa
NOREGUR, AP Grynnka þarf á birgð-
um háauðgaðs úrans í heiminum
til að koma í veg fyrir að það kom-
ist í hendur hryðjuverkamanna.
Þetta sagði Mohamed ElBaradei,
forstöðumaður Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar, á málþingi í
Osló.
Háauðgað úran má nýta til að
búa til kjarnorkusprengjur og eru
til um 1.850 tonn af því í heimin-
um, þar af milli fimmtíu og eitt-
hundrað tonn í um eitthundrað
borgaralegum stöðvum. Sumar
þeirra eru með slaka öryggis-
gæslu og hætta á að hryðjuverka-
menn reyni að brjótast inn í þær.
- kóþ
ElBaradei á málþingi:
Háauðguðu úr-
ani skuli eytt
Í KJARNORKUVERI Tæknimaður í kjarnorku-
verinu Angra í Brasilíu klæðist geislavarna-
búningi við störf sín. NORDICPHOTOS/AFP
UTANRÍKISMÁL Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra hitti
James L. Jones, yfirhershöfðingja
Atlantshafsbandalagsins, á stutt-
um fundi í gær.
„Þessi fundur var almennt um
aðlögun Atlantshafsbandalagsins
að breyttri heimsmynd og það sem
Íslendingar eru að taka þátt í til að
tryggja meiri frið og öryggi í
heiminum,“ segir Valgerður. Hún
gerði yfirhershöfðingjanum einn-
ig grein fyrir stöðu mála í viðræð-
um við Bandaríkjamenn um varn-
arsamninginn en tók fram að það
hefði ekki verið ástæða fundar-
ins. - sdg
Fundur með fulltrúa NATO:
Ræddu þátt-
töku Íslands
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR OG JAMES L.
JONES, YFIRHERSHÖFÐINGI NATO
Heilsast hér fyrir fundinn sem fór fram í
utanríkisráðuneytinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VARNARMÁL Tæplega 54 prósent
Íslendinga eru hlynnt uppsögn á
varnarsamningi Íslands og Banda-
ríkjanna samkvæmt könnun sem
IMG Gallup vann að beiðni Helga
Hjörvar, alþingismanns Samfylk-
ingarinnar.
Tæplega 25 prósent eru andvíg
uppsögn og rúm 21 prósent taka
ekki afstöðu. Þegar skoðaðir eru
þeir sem eru mjög hlynntir eða
mjög andvígir eru skilin skarpari
því þriðjungur svarenda segist
mjög hlynntur uppsögn meðan
innan við tíundi hver er mjög and-
vígur.
Helgi segir það koma sér á
óvart hversu afgerandi stuðning-
ur er við uppsögn samningsins.
„Ég held það sé mikilvægt að vilji
þjóðarinnar liggi skýrt fyrir í
þeim viðræðum sem núna eru að
fara fram.“ Helgi segir það undr-
unarefni hversu linkulega haldið
hafi verið á þessum málum eftir
að Davíð Oddsson fór í Seðlabank-
ann. „Skilaboð núverandi forsæt-
isráðherra hafa verið mjög óskýr,“
segir Helgi og bætir við að ríkis-
stjórnin hafi gefið út að ef flugvél-
arnar færu þá yrði samningnum
sagt upp. „Það hlýtur að líta
ankannalega út á alþjóðavettvangi
að engin alvara virðist vera á bak
við slíkar yfirlýsingar í grundvall-
armáli eins og þessu.“
„Ég held að meginatriðið í sam-
skiptum við Bandaríkin sé að sjö-
unda grein varnarsamningsins
verði virkjuð og Atlantshafs-
bandalagið komi inn í ferlið með
formlegum hætti sem getur síðan
leitt til uppsagnar samningsins
eins og Samfylkingin hefur bent
á,“ segir Helgi. Greinin fjallar um
að hvor ríkisstjórnin getur farið
þess á leit við ráð Norður-Atlants-
hafsbandalagsins að það endur-
skoði hvort það þurfi lengur á
þeirri aðstöðu að halda sem til-
greind er í samningnum og komi
með tillögur um það hvort samn-
ingurinn skuli gilda áfram. Ef slík
málaleitan um endurskoðun leiðir
ekki til þess að ríkisstjórnirnar
verði ásáttar innan sex mánaða
frá því að málaleitunin var borin
fram getur hvor ríkisstjórnin sagt
upp samningnum og skal hann þá
falla úr gildi 12 mánuðum síðar.
Valgerður Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra segir þessar niður-
stöður ekki koma sér á óvart miðað
við ástandið eins og það er í dag.
„Það ríkir alger óvissa um varnir
Íslands og viðræðurnar við Banda-
ríkjamenn hafa gengið hægt.“ Val-
gerður segir að þær séu þó í full-
um gangi og næsti fundur muni
fara fram 7. júlí. „Við bindum
vonir við að á þeim fundi eða í
framhaldinu liðkist um í þessum
viðræðum og við náum bærilegri
niðurstöðu. En að fara að segja
upp varnarsamningnum á þessu
stigi málsins væri ekki skynsam-
legt.“ Aðspurð um hugsanlega
virkjun sjöundu greinar varnar-
samningsins segir Valgerður aug-
ljóst, miðað við fundi við tvo af
æðstu mönnum Atlantshafsbanda-
lagsins nýlega, að þeir vilji ekki
blanda sér í þessa umræðu meðan
tvíhliða viðræður við Bandaríkin
eiga sér stað. „Meðan þær viðræð-
ur eru í gangi þá grípum við ekki
til þeirra aðgerða.“
sdg@frettabladid.is
Fleiri vilja segja upp
varnarsamningnum
Þriðjungur er mjög hlynntur uppsögn samkvæmt könnun. Þingmaður Sam-
fylkingar vill virkja grein varnarsamningsins sem getur leitt til uppsagnar hans.
Utanríkisráðherra segir að það verði ekki gert meðan á viðræðum stendur.
VIÐRÆÐUR UM VARNARSAMNINGINN Hér sitja fulltrúar bandarískra og íslenskra stjórnvalda
á fundi um varnarsamninginn í mars síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
LÖGREGLUMÁL Lögreglunni í Vest-
mannaeyjum var tilkynnt um að
bifreið hefði verið stolið í síðustu
viku. Bifreiðinni hafði verið lagt á
Vestmannabraut, en þegar eigand-
inn ætlaði að vitja hennar var hún
horfin.
Stuttu síðar fann lögreglan bif-
reiðina þar sem hún stóð á vegar-
slóða sem liggur að moto-cross
brautinni á Nýjahrauni.
Að lokinni rannsókn kom í ljós
að fjórir drengir á aldrinum fjór-
tán til sextán ára höfðu tekið bif-
reiðina ófrjálsri hendi. Mál þeirra
er í skoðun. - æþe
Ungir bílaþjófar í eyjum:
Fjórir ungling-
ar stálu bíl
MAGNÚS
PÉTURSSON
LÍKAN AÐ BAKKAFJÖRU Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra sést
hér fjarstýra litlum báti inn í líkan að
Bakkafjöru. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN