Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 4

Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 4
4 20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR KVENRÉTTINDI Kvenréttindadagurinn var haldinn hátíðlegur í gær en þá var 91 ár liðið frá því konur fengu kosningarétt á Íslandi. Þetta er í þriðja sinn sem dagurinn er haldinn undir formerkjunum „Málum bæinn bleikan,“ en þá er fólk hvatt til að bera eitthvað bleikt til þess að vekja athygli á jafnrétti. Aðstandendur dagsins veittu fjölmiðlum hvatningarverðlaun þar sem fjölmiðlar eru hvattir til þess að gera betur. Þær Marín Þórsdóttir og Sif Traustadóttir félagar í Femínistafélagi Íslands sögðu að verðlaunin, sem er bleikur steinn, væri áminning fyrir fjölmiðla. „Hugsunin með þessu er að þeir sem fá verðlaunin hafi steininn uppivið og hann minni þá á að hafa jafnrétti að leiðarljósi,“ segir Sif og Marín bætir við að „bleiki liturinn er náttúrulega litur femínistans þannig að sjálfsögðu er hann bleikur.“ Í tilefni dagsins var boðið upp á veglega dagskrá, meðal annars fyrirlestur í Háskóla Íslands þar sem fjallað var um hvarf kvenna úr vísindum, tónleika, og kvennamessu. Þær segja að dagurinn hafi tekist mjög vel undanfarin ár og eru ánægðar með hversu margir klæddust bleiku í tilefni dagsins. Að lokum hvetja þær fólk til þess að mála bæinn bleikan alla daga. - gþg Kvenréttindadagurinn var í gær undir yfirskriftinni „Málum bæinn bleikan“: Fjölmiðlar hvattir til að gera betur HVATNINGARVERÐLAUNIN AFHENT Femínistar afhenda Sigurjóni M. Egilssyni, fréttaritstjóra Fréttablaðsins, hvatningarverðlaunin, f.v. Katrín Anna Guðmundsdóttir, Gísli Hrafn Atlason, Ásta Lilja Heimisdóttir, Sif Traustadóttir og Marín Þórsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN ATVINNUMÁL Íslenska þjónustufyr- irtækið InPro ehf. hefur verið valið öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisteymi ársins innan verktakafyrirtækisins Bechtel Inc. og allra dótturfélaga þess. Bechtel er helst þekkt fyrir að standa að byggingu álversins við Reyðarfjörð, en fyrirtækið er eitt það stærsta sinnar tegundar með um sjötíu þúsund starfsmenn um allan heim. Þessi verðlaun eru nú veitt und- irverktaka í fyrsta sinn í yfir hundrað ára sögu fyrirtækisins. InPro sér meðal annars um örygg- isstjórnun, starfsmannaheilsu- gæslu og eldvarnir fyrir Bechtel á Austurlandi. - sþs Bechtel veitir öryggisverðlaun: Íslenskt fyrir- tæki valið BELFAST, AP Lögreglan á Norður- Írlandi gerði skyndiáhlaup á nokkur fyrirtæki og húsleit á heimilum grunaðra andófsmanna í gær. Andófsmennirnir eru fyrrum fylgismenn IRA, Írska lýðveldishersins, en eftir að þau samtök drógu í land með vopnaða baráttu sína hafa orðið til sprotahreyfingar eins og „Hið raunverulega IRA“ og „Framhald IRA.“ Þessar hreyfingar og ýmsir vopnaðir hópar eru taldir bera ábyrgð á allt að 75 prósentum glæpa á Norður-Írlandi. - kóþ Lögreglan á Norður-Írlandi: Stórátak gegn arftökum IRA ÁTÖK Skyndiáhlaup lögreglu á Norður- Írlandi beindist gegn arftökum IRA. WASHINGTON, AP Norður-Kóreu- mönnum hefur tekist að fylla lang- drægt flugskeyti af eldsneyti. Flug- skeytið er nógu langdrægt til að ná til Bandaríkjanna, og ýmislegt þykir benda til þess að Norður- Kóreumenn hyggist gera tilraunir með skeytið á næstunni. Þessu heldur bandarískur embættismaður fram, en hann vill þó ekki láta nafns síns getið. Tony Snow, talsmaður Hvíta hússins, seg- ist vonast til þess að Norður-Kóreu- menn standi við yfirlýsingar um að engar tilraunir verði gerðar. - gb Norður-kóresk flugskeyti: Ná alla leið til Bandaríkjanna NORÐUR-KÓRESK FLUGSKEYTI Myndin er tekin á sýningu í Seúl í Suður-Kóreu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FJARSKIPTI Forval vegna framkvæmda við áframhaldandi uppbyggingu á gsm farsímakerfinu á hringveginum og fimm fjallvegum var kynnt í gær á Evrópska efnahagssvæðinu. Verkefnið er liður í fjarskiptaáætlun 2005 til 2010. Um fjögur hundruð kílómetra kafli á hringveginum er án gsm- sambands í dag. Þessir vegakaflar eru allt frá rúmum fjórum kílómetrum upp í yfir níutíu kílómetra. Hluta af söluandvirði Símans, 2,5 milljörðum króna, verður varið í að hrinda þessari áætlun í framkvæmd og er gsm útboðið fyrsta verkefni fjarskiptasjóðs. - sdg Farsímakerfi á hringveginum: 400 kílómetrar án sambands EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Sjávarútvegs- ráðherrar Evrópusambandsland- anna náðu loks samkomulagi í gær um nýjan þróunarsjóð, sem á að veita allt að 3,8 milljörðum evra, andvirði um 360 milljarða króna, til að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum og tengdri starfsemi á árabilinu 2007-2013. Sjóðurinn er hluti af atvinnu- og þróunarstyrkjakerfi ESB, en samkomulag um fjármögnun þess fyrir tímabilið 2007-2013 náðist nýlega. Deilur um úthlutunarreglur úr sjóðnum höfðu staðið í tvö ár. Meginmarkmið sjóðsins er að draga úr veiðigetu í lögsögu ESB. „Það verður að minnka fiskveiði- flotann ef við eigum að komast nær markmiðinu um sjálfbærar fiskveiðar,“ sagði Joe Borg, sem fer með sjávarútvegsmál í fram- kvæmdastjórn ESB, eftir að niður- staða ráðherrafundarins lá fyrir. Bretar, Þjóðverjar, Danir, Svíar og Hollendingar höfðu fram til þessa ekki viljað fallast á reglurn- ar sem gilda eiga um sjóðinn vegna ákvæða sem fyrirhuguð voru um niðurgreiðslur til endurnýjunar á vélum í fiskiskipum. Borg sagði að málamiðlun hefði náðst um að niðurgreiðslur skyldu leyfðar fyrir báta undir tólf metrum á lengd. Stærri bátar geta líka notið slíkra styrkja ef þeir um leið minnka veiðigetuna um tuttugu prósent, að sögn Borg. Rétt til greiðslna úr sjóðnum eiga líka útgerðarmenn sem koma sér upp vistvænni veiðibúnaði og sjómenn sem láta af störfum í greininni áður en þeir ná eftir- launaaldri, svo dæmi séu nefnd. Talsmenn náttúruverndarsam- taka voru ekki sáttir. „Það er ekki ljóst hvernig á að vera mögulegt að gera sjávarútveginn bæði sam- keppnishæfari og sjálfbæran með því að niðurgreiða starfsemi sem skaðar vistkerfið í sjónum,“ hefur AP eftir Markus Knigge, tals- manni samtakanna World Wildlife Fund. Látlaus ofveiði hefur verið á helstu fiskistofnum í lögsögu aðildarríkja ESB á undanförnum árum. Alvarlegast er ástandið í Norðursjónum. audunn@frettabladid.is STEFNT AÐ SJÁLFFBÆRUM VEIÐUM Nýi sjóðurinn á að stuðla að því að veiðigeta flota ESB-ríkja minnki niður í sjálfbært umfang. NORDICPHOTOS/AFP Sátt um milljarðasjóð Sjávarútvegsráðherrar ESB hafa náð samkomulagi um sjóð sem á að veita and- virði 360 milljarða króna til að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum í lögsögu ESB. GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 19.6.2006 Bandaríkjadalur 74,93 75,29 Sterlingspund 138,2 138,88 Evra 94,24 94,76 Dönsk króna 12,639 12,713 Norsk króna 12,004 12,074 Sænsk króna 10,147 10,207 Japanskt jen 0,6479 0,6517 SDR 110,35 111,01 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 130,9102 Gengisvísitala krónunnar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.