Fréttablaðið - 20.06.2006, Síða 13

Fréttablaðið - 20.06.2006, Síða 13
BAGDAD, AP Nú hillir undir að réttarhöldunum yfir Saddam Hussein og sjö öðrum sakborningum ljúki í Írak. Í gær flutti sækjandi málsins lokaræðu sína þar sem hann krafðist þess að dauðadómur verði kveðinn upp yfir fyrrverandi leiðtoga landsins og tveimur samherjum hans. Réttarhöldin hafa staðið yfir í átta mánuði. Að loknum málflutn- ingi sækjanda í gær var þeim frestað til 10. júlí, en þá verður lokamálflutningur verjenda í málinu. Jaafar al Moussawi aðalsaksókn- ari dró í gær saman rökstuðning sinn fyrir ákærum á hendur sakborningunum átta og fór fram á dauðadóm yfir Saddam Hussein, hálfbróður hans Barzan Ibrahim, sem var yfirmaður leyniþjónust- unnar Mukhabarat, og Taha Yassin Ramadan, fyrrverandi ráðherra. Réttarhöldin snerust um pyntingar og morð á sjía-múslimum árið 1982 í þorpinu Dujail. Árás var gerð á þorpið skömmu eftir að skotið hafði verið á bílalest Saddams Husseins þegar hann heimsótti þorpið. Sakborningarnir eru meðal annars ákærðir fyrir að hafa staðið fyrir glæpum gegn mannkyni þegar þeir létu pynta og myrða fjölda óbreyttra borgara í kjölfar árásar- innar. - gb SAKBORNINGARNIR Saddam Hussein og félagar hans hlýddu á lokamálflutning saksóknara í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Aðalsaksóknari í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein lýkur málflutningi sínum: Fer fram á að Saddam verði líflátinn DANMÖRK, AP Danska lögreglan hefur til rannsóknar um eitt hundrað hótunarbréf sem hafa verið send útlendingum í landinu á síðustu mánuðum. Í bréfunum eru útlendingarnir hvattir til að yfirgefa landið. Sumum bréfanna, sem voru stíluð á fólk sem ber erlend eftir- nöfn og býr á Norður-Jótlandi, fylgdu ljósmyndir af gengnum foringjum nasista, svo sem Adolf Hitler og Rúdolf Hess. Í bréfunum er minnt á að Danmörk sé „aðeins fyrir Dani.“ Jonni Hansen, forystumaður nýnasistaflokksins DNSB, sagðist ekki kannast að hafa sent fjand- samlegan póst til innflytjenda, en sagði að bréfasendingar til útlend- inga sem „á kurteislegan hátt hvetja þá til að yfirgefa Dan- mörku, væru skynsamlegar.“ - kóþ „Danmörk fyrir Dani eina“: Bréfasendingar rannsakaðar NÝNASISTAR Í DANMÖRKU Síðustu ár hafa nýnasistarnir lítt haft sig í frammi, en minntu aftur á sig í Múhameðsteikninga- fárinu. NORDICPHOTOS/AFP SJÁVARÚTVEGUR Síldveiði á miðum austanlands hefur gengið hægt síðan á sjómannadaginn. „Það er ennþá ósköp lítið af henni,“ sagði Aðalsteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar. „Við höfum landað smáræði á Seyðisfirði, en það hefur allt farið í bræðslu. Það er engin mokveiði, en þetta kemur betur í ljós þegar fleiri skip koma á miðin á þessum slóðum.“ Veiðin hefur öll verið sett í bræðslu, enda hefur hún veiðst svo norðanlega að ekki hefur annað komið til greina en að bræða hana eftir svo langa siglingu til lands. Ef síldin veiðist nær landi stendur til boða að frysta hana og fer þá mest á erlendan markað. Aðalsteinn segist engu að síður vera bjartsýnn á veiðina. „Það er nóg af síld, það þarf bara að finna hana.“ - sgj Síldveiði gengur hægt: Enn lítið af síld SILFUR HAFSINS Lítið hefur veiðst af síld undanfarið. FRÉTTABLAÐIÐ/KK DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur venesúelskur karlmaður var á föstu- dag dæmdur í Héraðsdómi Reykja- ness í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundna til þriggja ára, fyrir hættulega líkams- árás fyrir utan skemmtistaðinn Traffic í Keflavík í ágúst síðastliðnum. Maðurinn stakk bandarískan varnarliðsmann nokkrum sinnum í síðuna með brotinni flösku eftir að átök brutust út á milli þeirra. Læknir sagði mikla mildi að ekki fór verr, en varnarliðsmaðurinn slapp án alvarlegra áverka. Árásarmaðurinn neitaði sök en játaði að hafa lent í átökum við varnarliðsmanninn. - sh Dæmdur fyrir líkamsárás: Stakk mann með glerflösku ÞRIÐJUDAGUR 20. júní 2006 13 E N N E M M / S ÍA / N M 2 2 3 4 9 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 Nissan Note hefur alla kosti fjölskyldubíls og meira til: Öryggi, lipurð, kraft og þægindi. Það sem gerir Note að nýrri tegund fjölskyldubíls er sérhannað rými fyrir börnin, öðruvísi útlit og mikill persónuleiki. Note er bíll fyrir alla fjölskylduna, líka krakka með karakter! Geymsluhólf - kælir fyrir drykki - öryggispúðar - dótahólf - borð - rúmgott farangursrými Vél. Hö. Gírskipting Verð NOTE Visia 1,4 88 Beinskiptur 1.740.000 kr. NOTE Visia 1,6 110 Sjálfskiptur 1.950.000 kr. NOTE Tekna 1,6 110 Sjálfskiptur 2.190.000 kr. Nýr fjölskyldubíll frá Nissan KRAKKABÍLL MEÐ KARAKTER! NISSAN NOTE Selfossi 482 3100 Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 461 2960 50.000 kr. kaupauki! 50.000 kr. bensínkort frá fylgir öllum nýjum Nissan bílum!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.