Fréttablaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 16
 20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Notkun erfðatækni í landbúnaði Fundur haldinn á vegum Bændasamtaka Íslands, landbúnaðarráðuneytisins og Landbúnaðarháskóla Íslands, með tilvísun til ályktunar búnaðarþings 2005. Fundarstaður: Súlnasalur, Radisson SAS Hótel Sögu 21. júní 2006 13.00- 17.00. Dagskrá: 13.00-13.30 Dr. Ólafur S. Andrésson prófessor, Háskóla Íslands: Hvað er erfðatækni og hvernig má beita henni? 13.30-14.10 Dr. Charles Arntzen, prófessor við the Biodesign Institute at Arizona State University. Framleiðsla á lífvirkum lyfjum úr plöntum með áherslu á bóluefni. 14.10-14.30 Dr. Björn Örvar og Dr. Einar Mäntylä, ORF Líftækni: Plöntuerfðatækni og íslenskur landbúnaður – Möguleikar og tækifæri 14.30-14.45 Kaffi 14.45-15.05 Dr. Snorri Baldursson, aðstoðarforstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands Umhverfisleg áhætta í tengslum við ræktun erfðabreyttra plantna á Íslandi. 15.05-15.45 Prof. Chris Pollock, forstjóri IGER (Grasræktar- og umhverfisstofnun í Bretlandi) og formaður ráðgjafar- nefndar bresku ríkisstjórnarinnar um sleppingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið: Varúðarsjónarmið við ræktun erfðabreyttra plantna – Reglur Evrópusambandsins. 16.00-17.00 Fyrirspurnir og pallborðsumræður. Fundarstjóri: Dr. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands Stjórnandi pallborðsumræðna: Dr. Ágústa Guðmundsdóttir prófessor, Háskóla Íslands Ætlar ekki að selja „Orkuveitan verður áfram í eigu borgarinnar og verður ekki seld meðan ég er borgarstjóri.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson um Orkuveitu Reykjavíkur. Fréttablaðið, 19. júní. Gleði og glaumur í Fjarðabyggð „Það er verið að byggja í öllum byggðarkjörnum hérna. Fólk brosir alveg út að eyrum.“ Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, um uppbygginguna á svæðinu. Fréttablaðið, 18. júní. „Það er bara allt bleikt að frétta í dag,“ sagði Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Fem- ínistafélags Íslands, að morgni kvenréttinda- dagsins þegar blaðamaður náði af henni tali. „Dagurinn í dag verður notaður til að kynna bleika daginn og baráttuna fyrir jafnrétti. Svo förum við í heimsókn á fjölmiðlana og afhendum bleiku steinana sem er alltaf jafn gaman. Svo er bara að taka þátt í dagskránni það sem eftir lifir dags og ég ætla að reyna að taka þátt í sem flestu enda dagskráin fjölbreytt og spennandi. Til dæmis er mjög áhugaverður fyrirlestur í Háskóla Íslands um brotthvarf kvenna úr vísindum og finnst mér hann einkar viðeigandi á þessum tímum nú þegar háskólinn hefur nýverið verið dæmdur fyrir að ráða ekki hæfustu konuna í starfið,“ segir Katrín Anna. Næstu daga ætlar Katrín Anna að nota til að safna kröftum. „Það er mikil orka búin að fara í undirbúning þessa dags síðustu vikurnar og þá allra helst síðastu viku sem er búin að vera mjög annasöm.“ Katrín Anna og maðurinn hennar eru að byggja sér hús í Grafarholt- inu og segir Katrín að það sé eilífðarverkefni og því verði hvíldin að öllum líkindum skammvinn, þar að auki sé afmæli í vændum. „Maður- inn minn á afmæli á morgun þannig að ætli ég verði ekki í kökubakstri á morgun svo að hann fái nú eitthvað gott í gogginn á afmælisdaginn,“ segir Katrín Anna og brosir. KATRÍN ANNA GUÐ- MUNDSDÓTTIR Tals- kona Femínistafélags Íslands ætlar að taka lífinu rólega næstu daga eftir kvenrétt- indadaginn. Þrjár hafnfirskar konur sem nýverið höfðu fjárfest í reiðhjólum ákváðu á vor- dögum að kanna hug kyn- systra sinna í bæjarfélaginu til að stofnunar félagsskaps um hjólreiðar. Eiríksína Ásgrímsdóttir, einn stofnenda, segir að hugmyndina að félaginu megi rekja til leti þar sem nýju hjólin hafi staðið nánast óhreyfð í langan tíma og fyrir- heitin sem fylgdu kaupum þeirra löngu gleymd. Hvatningu og hóp- þrýsting þurfi til að koma fólki af stað og viðtökur við félaginu hafa verið frábærar. „Markmiðið með félaginu er að styrkja og efla hafnfirskar konur, hvetja til útivistar og stofna skemmtilegan félagsskap. Við ætlum að reyna að hafa skipu- lagðar hjólaferðir einu sinni í viku, halda kynningar- og fyrir- lestra og fara í bæjarferðir til Garðabæjar, Álftaness og fleiri staða. Einnig viljum við berjast fyrir bættri hjólreiða- og umferð- armenningu en við erum sérstak- lega ánægðar með nýju brúna í Kópavoginum.“ Stofnfundurinn var haldinn í Hellisgerði á kvenréttindadaginn 19. júní og var farið í stutta hjóla- ferð að honum loknum. Hvetur Eiríksína konur til að koma í félagið með viljann að vopni og tekur hún fram að ekki þurfi að eiga hjól til að vera með. - sþs Vilja bætta hjólamenningu STOFNENDUR HJÓLREIÐAFÉLAGSINS Segja hugmyndina hafa komið til vegna leti. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN Má fresta öllu í Reykjavík „Mér finnst mikilvægara að sýna aðhald í fjármálum heldur en að þenja allt út þannig að við fáum ekkert fyrir kaupið okkar,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, trommuleikari Botnleðju, um það hvort fresta eigi stórum framkvæmdum vegna ástandsins í efnahagsmálum. „Mér finnst betra að sýna smá fyrirhyggju ef við ætlum ekki að sigla þessari skútu í strand. Ég vil ekki að það verði hérna bullandi verðbólga til þess að við getum fengið tónlistarhús sem við getum alveg verið án.“ Haraldur, sem býr í Hafnarfirði, segist litlar áhyggjur hafa af frestun framkvæmda í Reykjavík. „Ég bý í Hafnarfirði og reyni sem minnst að fara inn í Reykjavík. Ég hef lítið þangað að sækja. Þeir mega fresta þessum framkvæmdum þar svo framarlega sem þeir fresta ekki neinu í Hafnarfirði. Ég vil reyndar ekki láta stækka álverið í Hafnarfirði þótt ég sé ekkert harður andstæðingur stóriðju. Við megum samt ekki missa okkur í stóriðjuframkvæmdum. Ef það kæmi sér vel fyrir efnahaginn að slá stóriðjuframkvæmdum á frest þá mætti fresta þeim um nokkur ár eða áratugi.“ SJÓNARHÓLL FRESTUN FRAMKVÆMDA HARALDUR FREYR GÍSLASON KENNARASKÓLANEMI OG TROMMARI Ljósmyndari Fréttablaðsins kom auga á þetta fallega fiðrildi við Skarð í Landsveit á dögunum og smellti af því mynd við tækifærið. Tegundin kallast „rauður aðmíráll“ og býr ekki á Íslandi þótt hún komi hér ein- staka sinnum í heimsókn yfir sumarið. Tegundina má finna víða um norð- urhvel jarðar, suður til Norður-Afríku og frá Síberíu til Alaska. Fullorðið er dýrið oft mikið flökkudýr og þvælist víða, en aðalfæði þess er blómasafi ýmissa blóma. Lirfan nærist hins vegar eingöngu á jurtum, þá helst brenninetlum. - sþs Aðmíráll heimsækir landið RAUÐI AÐMÍRÁLLINN Hæglega má þekkja tegundina á sérstöku mynstri á vængjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Nú þegar sumarið er hafið er ekki úr vegi að skoða þær reglur sem gilda um umgengni í náttúrunni, för manna um eignarland og hvar tjalda má á ferðalagi, en Neytendablað- ið gerði nýver- ið samantekt á þessum reglum. Lög um nátt- úruvernd sem tóku gildi í júlí 1999 heimila að tjaldað sé í byggð á óræktuðu landi til einnar nætur, en leita þarf leyfis ef tjöldin eru fleiri en þrjú eða ef landið er ræktað. Í óbyggðum við alfaraleið og utan alfaraleiðar er leyfilegt að tjalda, hvort sem er á þjóðlendu eða eignarlandi, án fjölda- eða tímamarka. Öllum er leyfilegt að fara gegnum land landeiganda án sérstaks leyfis og dvelja þar, sé það óræktað. Sé landið hins vegar ræktað er förin háð samþykki landeiganda. Tínsla sveppa, berja og gróðurs er leyfileg á þjóðlendum, en háð leyfi eiganda eignarlands, nema hún sé einungis ætluð til neyslu á staðnum. Veiði á villtum dýrum er hins vegar háð öðrum reglum. Mikilvægast er þó að ganga vel um, aka ekki utan vega og valda ekki tjóni á náttúrunni. - sgj Tjaldað til einnar nætur HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? KATRÍN ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR TALSKONA FEMÍNISTAFÉLAGS ÍSLANDS Ætlar að nota daginn í kökubakstur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.