Fréttablaðið - 20.06.2006, Side 37

Fréttablaðið - 20.06.2006, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 20. júní 2006 21 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.360 -0,61% Fjöldi viðskipta: 142 Velta: 1.078 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 62,70 +0,48% ... Alfesca 3,46 +0,00%... Atorka 5,75 -0,86% ... Bakkavör 44,30 +0,00% ... Dagsbrún 5,61 -0,53% ... FL Group 17,40 -0,57% ... Flaga 3,81 -1,30% ... Glitnir 17,10 -0,58% ... KB banki 726,00 -1,76% ... Landsbankinn 20,10 +0,50% ... Marel 68,60 +0,00% ... Mosaic Fashions 15,00 +0,00% ... Straumur-Burðarás 17,10 +0,00% ... Össur 104,00 -0,48% MESTA HÆKKUN Vinnslustöðin 1,24% Landsbankinn 0,50% Actavis 0,48% MESTA LÆKKUN KB banki 1,76% Flaga 1,30% Atorka 0,86% Umsjón: nánar á visir.is Tveir kaupsýslumenn, sem eru þekktir í íslensku viðskiptalífi, voru slegnir til riddara um helg- ina. Þetta eru þeir sir Philip Green og sir Stelios Haji-Ioannou. Sá fyrrnefndi er eigandi Arcadia og BHS, en eins og margir muna eftir ætluðu hann og Baugur að skipta með sér Arcadia árið 2002. Green keypti svo fimmtungshlut Baugs í Arcadia eftir að lögregla fram- kvæmdi húsleit í höfuðstöðvum Baugs á Íslandi. „Þegar maður eyðir 25 árum í bransa sem maður ann mjög, og hefur starfað við hlið tugþúsunda manna, þá er þetta ákaflega ánægjulegt,“ segir Green í sam- tali við Daily Telegraph. Stelios er stofnandi og stærsti hluthafinn í lággjaldaflugfélaginu easyJet og kom mikið við sögu í innlendum viðskiptafréttum á meðan FL Group átti stóran hlut í félaginu. FL Group seldi sautján prósenta hlut sinn í easyJet þegar ljóst þótti að hinn grískættaði Stelios myndi ekki selja hlut sinn nema fyrir gott yfirverð. - eþa SIR STELIOS HAJI- IOANNOU Sir Stelios er aðaleigandi easyJet. SIR PHILIP GREEN Sir Philip er aðal- eigandi Arcadia og BHS. Slegnir til riddara Fjárfestarnir Philip Green og Stelios, sem eru þekkt- ir í íslenskri viðskiptasögu, fá nafnbótina sir. Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í inn- lendri mynt er áfram á athugunar- lista og horfur neikvæðar sam- kvæmt uppfærðu lánshæfismati alþjóðlega matsfyrirtækisins Stand- ard & Poor‘s (S&P). Lánshæfiseinkunn Íbúðalána- sjóðs er því enn um sinn AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt. Áætlað er að birta endurskoð- aða niðurstöðu á lánshæfismati sjóðsins í júlí. Fram kemur í yfirlýsingu frá S&P að Íbúðalánasjóður hafi misst stöðu sína sem eina útlánastofnunin á húsnæðismarkaði auk þess sem óvissa ríki um framtíð sjóðsins. Inn- koma bankanna á íbúðalánamarkað hafi orðið til þess að markaðshlut- deild Íbúðalánasjóðs hafi snar- minnkað og ekkert bendi til þess að breyting verði á. S&P telur engu að síður að Íbúða- lánasjóður hafi enn mikilvægu hlut- verki að gegna á húsnæðismarkaði og væntir yfirlýsingar nýuppstokk- aðrar ríkisstjórnar Íslands um framtíð sjóðsins á næstunni. Komi til þess að breyting verði gerð á lánshæfismati Íbúðalána- sjóðs verður það ekki um fleiri þrep en tvö, þannig að lánshæfismat sjóðsins verður ekki lægra en AA-. - jsk Íbúðalánasjóður enn á athugunarlista HÖFUÐSTÖÐVAR ÍBÚÐALÁNASJÓÐS Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í innlendri mynt er áfram á athugunarlista og horfur neikvæðar samkvæmt Standard & Poor. Hugsanlegt er að nýrri kauphöll verði hleypt af stokkunum í Lond- on. Þetta kom fram í viðtali Fin- ancial Times við John Thain, fram- kvæmdastjóra Kauphallarinnar í New York. Fyrr í þessum mánuði féll Euronext-kauphöllin NYSE í skaut fyrir 9,96 milljarða Banda- ríkjadala, um 750 milljarða íslenskra króna. Undir Euronext falla kauphallirnar í París, Amster- dam, Brussel og Lissabon. Skili sameiningin kauphöllunum ekki ásættanlega mörgum alþjóðlegum nýskráningum verður hugsanlega brugðið á það ráð að opna nýja kauphöll í London. Í viðtalinu útilokar Thain ekki að NYSE geti sóst eftir yfirtöku á Kauphöllinnni í London þrátt fyrir að hann sjái það heldur fyrir sér að ný kauphöll verði stofnuð í beinni samkeppni við hana. - hhs NYSE TEYGIR ÚT ANGA SÍNA Ef til vill opnar ný kauphöll í London eftir sameiningar. LSE fær samkeppni Fjarskiptafyrirtæki í eigu Novator, fjárfestingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur fengið til- raunaleyfi hjá Póst- og fjarskipta- stofnun (PFS) til reksturs þriðju kynslóðar farsímakerfis, sem er þráðlaust háhraðanet sem felur í sér mikla bandbreidd og getur flutt sjónvarpsefni í farsíma. Fyrirtækið hefur í bígerð að hefja alhliða fjar- skiptaþjónustu hér á landi. Tómas Ottó Hansson, fram- kvæmdastjóri hjá Novator, segir rekstur hefjast næstkomandi ágúst. Í tilraunaleyfinu felst að fjarskipta- fyrirtæki Novator, sem hefur mikla reynslu af uppbyggingu og rekstri þriðju kynslóðar farsímakerfa í nokkrum Evrópulöndum, fær heim- ild í níu til tólf mánuði til að nýta tíðnina, setja upp búnað og prófa fjarskiptakerfið. Fyrirtækinu er hins vegar ekki heimilt að selja þjónustu sína fyrr en endanlegt fjarskiptaleyfi liggur fyrir. Ekki er vitað hvenær af því verður. Tómas segir fyrirtækið hafa hug á að ræða við Orkuveituna um sam- starf, sem býður upp á aukna mögu- leika. Þá hefur félagið sótt um leyfi til uppsetningar á WiMax gagna- flutningskerfi en það er þráðlaus tækni sem gerir fartölvunotendum kleift að vera sítengdir við netið óháð staðsetningu. - jab BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON Fjarskiptafyrirtæki Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors, hefur fengið tilraunaleyfi til reksturs þriðju kynslóðar farsímakerfis. MYND/VALGARÐUR Þriðja kynslóðin í farvatninu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.