Fréttablaðið - 20.06.2006, Síða 42
20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR26
29. júní Frumsýning – Uppselt
30. júní – Örfá sæti laus
1. júlí – Uppselt
6. júlí – laus sæti
7. júlí – laus sæti
8. júlí – laus sæti
Miðasalan er í síma 568 8000
www.borgarleikhus.is
www.minnsirkus.is/footloose
Á ÞAKINU
menning@frettabladid.is
Kl. 16.15
Danski stjarneðlisfræðingurinn
Anja Andersen heldur erindi á
vegum raunvísindadeildar Há-
skóla Íslands undir yfirskriftinni
Líf í alheimi. Erindið verður flutt
í hátíðarsal skólans og er opinn
öllum áhugasömum gestum.
!
> Ekki missa af...
sumrinu á Árbæjarsafni. Sögu-
legir viðburðir og allra handa
uppákomur fyrir alla fjölskyld-
una. Um helgina opnaði líka
forvitnileg sýning um diskó- og
pönkárin á Íslandi. Safnið er
opið frá 10-17 alla daga.
Marteini Lúther og Roald
Amundsen í Þjóðminjasafninu.
Á þriðju hæðinni er vaxmynda-
sýning þar sem kappar þessir
eru í góðum félagsskap Napó-
leons og Óskars Halldórssonar.
söngleiknum Footloose sem
verður frumsýndur í Borgarleik-
húsinu í júní. Það er kominn
tími til að taka fram grifflurnar.
Rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir er umsetin af
erlendum útgefendum en forlagið Veröld hefur
gengið frá samningum um útgáfu á spennusögu
hennar, Þriðja tákninu, á tuttugu tungumálum.
Bandarískir og breskir útgefendur keppast við að
bjóða í bókina auk þess sem þeir hafa fest sér
útgáfurétt á næsta verki þrátt fyrir að höfundurinn
sé vart farinn að setja stafkrók á blað. Á dögunum
kom fyrsta þýðingin út á Spáni.
Þriðja táknið kom fyrir síðustu jól og er fyrsta
spennusaga Yrsu en hún hefur áður sent frá sér
fimm barnabækur, þar á meðal bókina Bíóbörn
sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2003
og Við viljum jólin í júlí sem hlaut viðurkenningu
IBBY-samtakanna árið 2000. Spennusagan fjallar
um rannsókn á morði þýsks sagnfræðinema sem
ferðaðist hingað til lands til þess að stunda rann-
sóknir á galdrafári í Evrópu en íslenskur lögfræðing-
ur vinnur að málinu ásamt þýskum reynslubolta.
Í sameiningu reyna þau að komast að því hvernig
þessi háskólanemi endaði skelfilega útleikinn og
augnalaus í Árnagarði.
YRSA SIGURÐARDÓTTIR RITHÖFUNDUR Spennusagan
Þriðja táknið slær í gegn á erlendri grund.
Keppst um Þriðja táknið
Í bókinni Íslandslag: Íslensk-kana-
dískar bókmenntir frá 1870 til
nútímans má finna safn smásagna,
ljóða og sögukafla úr bókmennt-
um eftir Vestur-Íslendinga en í rit-
inu er leitast við að gefa sannferð-
uga mynd af þessum bókmenntaarfi
sem að mörgu leyti sker sig frá
þeim íslensku bókmenntum sem
skrifaðar hafa verið á Íslandi.
Þar eru birt sýnishorn af verk-
um sem íslenskir eða íslenskætt-
aðir höfundar skrifuðu bæði á
íslensku og ensku. Sum verkanna
hafa birst áður, til dæmis í safnrit-
unum Vestan um haf sem kom út
árið 1930, og hefti tímaritsins Jón
á Bægisá – Tímarit þýðenda árið
1997, en þau rit eru bæði löngu
uppseld. Meðal höfunda efnis bók-
arinnar eru Júlíana Jónsdóttir,
Káinn, Stephan G. Stephansson,
Undína, William D. Valgardson og
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson.
Ritstjóri Íslandslags er Garðar
Baldvinsson en hann ritar jafn-
framt formála bókarinnar þar sem
verkin eru kynnt og sett í bók-
menntasögulegt samhengi. Garð-
ar er einn helsti sérfræðingur
Íslands í íslensk-kanadískum bók-
menntum og hefur unnið að riti
þessu í nokkur ár en hann starfar
sem fræðimaður, þýðandi og
útgefandi. Aukinheldur hefur
hann sent frá sér fimm ljóðabæk-
ur en sú nýjasta, Höfðaborg, kom
út á síðasta ári.
Um þessar mundir ferðast hann
um söguslóðir Íslendinga í Vestur-
heimi. Hann mun ferðast til
Manitoba í Kanada og Norður-
Dakota í Bandaríkjunum þar sem
hann mun kynna bókina fyrir
áhugasömum lesendum, íslensk-
um innflytjendum og afkomend-
um þeirra. - khh
Safnrit um sögulegan bókmenntaarf
GARÐAR BALDVINSSON RITSTJÓRI Gefur út
yfirgripsmikið safnrit um íslensk-kanadískar
bókmenntir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Árlegir sólstöðutónleikar
Páls Óskars og Moniku
verða haldnir á Café Flóru í
Grasagarðinum í Laugardal
annað kvöld. Síðast bættist
þeim vængjaður liðsauki
svo gestir mega búast við
töfrandi stemningu og
himneskri tónlist.
Þetta er í fimmta sinn sem Páll
Óskar syngur með Moniku á sól-
stöðutónleikum en hún stóð áður
fyrir hörputónleikum af þessu til-
efni. „Þetta hefur mælst mjög vel
fyrir og við höfum ákveðið að
halda þessu áfram. Við höldum
alltaf tónleikana á þessum degi,
lengsta degi ársins. Stemningin
getur verið alveg ólýsanleg, við
spilum fram yfir miðnætti og tón-
leikagestir ganga síðan út í sumar-
nóttina,“ segir Páll Óskar.
Að hans sögn eru síðustu tón-
leikar hreint kostulegir í minning-
unni. „Það var alveg grenjandi
rigning svo það tók undir í gróður-
húsinu. Það varð svo mikill raki að
harpan varð fölsk og Monika
þurfti að stilla hana svona fimmt-
án sinnum. Það var samt allt í lagi
því við stoppuðum bara milli laga
og gerðum grín að öllu saman. Svo
þegar tónleikarnir voru hálfnaðir
þá flaug fugl inn í gróðurhúsið og
fór að syngja með okkur, hann
söng alveg á réttum stöðum og
þannig var það þar til tónleikarnir
voru búnir. Við sjálf og áheyrend-
urnir sprungum úr hlátri,“ útskýr-
ir Páll Óskar kíminn.
Tónleikarnir hefjast kl. tíu og
Páll segist vera búinn að kíkja á
spána. „Þetta á að vera hið besta
mál en það skiptir samt engu máli
hvernig veðrið er – þetta er alltaf
jafn yndislegt.“ Á efnisskránni er
bæði nýtt og eldra efni eftir
íslenska og erlenda höfunda, þar á
meðal eftir Hreiðar Inga Þor-
steinsson, Burt Bacharach og
Magnús Þór. „Við vorum að taka
upp glænýtt lag eftir Magnús Þór
sem mun koma út á plötu til styrkt-
ar MND sjúklingum. Lagið heitir
„Lilja“ en það samdi hann við
minningarljóð sem Gunnar Dal
orti um eiginkonu sína. Þetta er
alveg ofsalega fallegt lag og Magn-
ús hefur hitt á einhvern streng
enn einu sinni – hann er svo slyng-
ur lagahöfundur,“ segir söngvar-
inn og segir að lagið muni án efa
hitta fólk í hjartastað.
Páll Óskar útskýrir að ekki sé
um neina stórtónleika að ræða og
oft komist færri að en vilja á sól-
stöðutónleikana. „Því fyrr sem
fólk mætir þeim mun meiri séns
er að ná góðu sæti.“ Fyrir þá sem
ekki komast annað kvöld má benda
á að þau munu halda tvenna tón-
leika í öðrum huggulegum tón-
leikasal, á Menningarnótt, en þá
leika þau í Listasafni Einars
Jónssonar. kristrun@frettabladid.is
Árviss töfrandi stemning
PÁLL ÓSKAR OG MONIKA ABENDROTH Leika og syngja á lengsta degi ársins í Grasagarðin-
um í Laugardal annað kvöld.
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
������������������������������
�������������� �����������������
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
Þ
ú
ve
rð
u
r
b
ar
a
lík
a…
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Sjallinn Akureyri
22. og 23. júní
Miðasala: Penninn Glerártorgi
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI