Fréttablaðið - 20.06.2006, Síða 44

Fréttablaðið - 20.06.2006, Síða 44
 20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR28 Imperial 42 cl rauðvínsglös 1.924 kr. 12 stk. Smart og létt á fæti – heilsteypt glös á tilboðsverði Maldive 36 cl bjórglös 854 kr. 6 stk. Þórunn Kristjánsdóttir Sölumaður hjá RV R V 62 07 B Rauð vínsg lös, h vítvín sglös og b jórgl ös á tilbo ðsve rði í jún í 200 6 Nostalgía sveif yfir vötnum í Árbæjarsafni á föstudag þegar sýningin Diskó og pönk var opnuð með glæsibrag. Gestir geta fengið sér snúning á dansgólfinu sem er í anda skemmtistaðarins Holly- wood, litið inn í bílskúrsmenningu pönksins, hlustað á hljóðdæmi og skoðað gamla muni í eigu pönkara og diskóbolta landsins. Árbæjar- safn og Gallerí humar eða frægð standa að sýningunni sem verður opin fram á næsta ár í Árbæjar- safni. Samhliða því verður gallerí- ið með hluta sýningarinnar á Laugavegi 59 í sumar. Diskó friskó í Árbæjarsafni EINAR ÖRN BENEDIKTSSON Einar Örn flutti ávarp við opnunina, enda einn fyrsti pönkari landsins. Hann er einnig einn aðstandenda Gallerís humar eða frægð. HOLLYWOOD Skemmtistaðurinn Hollywood er endurvakinn í kornhlöðunni á Árbæjarsafni. PLÖTUSNÚÐUR Vaxmyndasafnið í London má fara að vara sig. GULL OG GERSEMAR Olivia Newton-John og Donna Summer voru toppurinn. FRÆBBBLARNIR Pönkhljómsveitin Fræbbblarnir lék fyrir opnunargesti. NÆSTA PÖNKKYNSLÓÐIN Pönkið og diskóið er í sífelldri endurvinnslu og er sýningin ekki bara fyrir þá sem muna eftir gömlu, góðu dögunum. Bandaríkjakonan Lisa Lynn Hopfer komst í fréttirnar á dögunum þegar hún barði konu ítrekað í hausinn með óhefðbundnu barefli, svo ekki sé fast- ar að orði kveðið, eða dauðum hvolpi. Lisa var nýbúin að kaupa fjögurra vikna gamlan Chihuahua hvolp á tæpar átta þúsund krónur og var á leiðinni með hann til læknis þegar hann skyndilega dó í örmum hennar. Ekki var hún Lisa sátt með að hafa keypt köttinn í sekknum, eða hund- inn í þessu tilfelli, og rauk af stað til seljenda hvolpsins. Ruddi hún sér leið inn í húsið og var á leið niður í kjall- ara í þeim tilgangi að fá sér nýjan hvolp. Þar stöðvuðu húseigendur hana og reyndu að koma henni út úr húsinu. Lisa beið þá ekki boðanna heldur byrjaði að lemja þau með hvolpnum af mikilum ofsa. Þurfti húsfreyjan að fara á sjúkrahús til að láta að gera að sárum sínum en Lisa barði hana með hvolpnum um 30 sinnum í hausinn. Lisa á yfir höfði sér kæru fyrir líkamsárás og að hafa farið inn á lóð hundaeigend- anna í leyfisleysi. Lisu er það ef til vill huggun harmi gegn að eftir öll ósköpin fékk hún átta þúsund krón- urnar, sem hún borgaði fyrir vesal- ings hvolpinn, endurgreiddar en þeir aurar ganga líklega upp í lögfræði- kostnað. SÆTIR HVOLPAR Það er nú betra að nota annars konar barefli en hvolpa þegar maður missir stjórn á skapi sínu. SKRÍTNA FRÉTTIN Barði konu með dauðum hvolpi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.