Fréttablaðið - 20.06.2006, Qupperneq 44
20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR28
Imperial 42 cl rauðvínsglös
1.924 kr.
12 stk.
Smart og létt á fæti
– heilsteypt glös á tilboðsverði
Maldive 36 cl bjórglös
854 kr.
6 stk.
Þórunn Kristjánsdóttir
Sölumaður hjá RV
R
V
62
07
B
Rauð
vínsg
lös, h
vítvín
sglös
og b
jórgl
ös á
tilbo
ðsve
rði
í jún
í 200
6
Nostalgía sveif yfir vötnum í
Árbæjarsafni á föstudag þegar
sýningin Diskó og pönk var opnuð
með glæsibrag. Gestir geta fengið
sér snúning á dansgólfinu sem er í
anda skemmtistaðarins Holly-
wood, litið inn í bílskúrsmenningu
pönksins, hlustað á hljóðdæmi og
skoðað gamla muni í eigu pönkara
og diskóbolta landsins. Árbæjar-
safn og Gallerí humar eða frægð
standa að sýningunni sem verður
opin fram á næsta ár í Árbæjar-
safni. Samhliða því verður gallerí-
ið með hluta sýningarinnar
á Laugavegi 59 í sumar.
Diskó friskó í Árbæjarsafni
EINAR ÖRN BENEDIKTSSON Einar Örn
flutti ávarp við opnunina, enda einn fyrsti
pönkari landsins. Hann er einnig einn
aðstandenda Gallerís humar eða frægð.
HOLLYWOOD Skemmtistaðurinn Hollywood er endurvakinn í kornhlöðunni á Árbæjarsafni.
PLÖTUSNÚÐUR Vaxmyndasafnið í London
má fara að vara sig.
GULL OG GERSEMAR Olivia Newton-John og Donna Summer voru toppurinn.
FRÆBBBLARNIR Pönkhljómsveitin Fræbbblarnir lék fyrir opnunargesti.
NÆSTA PÖNKKYNSLÓÐIN Pönkið og diskóið er í sífelldri endurvinnslu og er sýningin ekki
bara fyrir þá sem muna eftir gömlu, góðu dögunum.
Bandaríkjakonan Lisa Lynn Hopfer
komst í fréttirnar á dögunum þegar
hún barði konu ítrekað í hausinn með
óhefðbundnu barefli, svo ekki sé fast-
ar að orði kveðið, eða dauðum hvolpi.
Lisa var nýbúin að kaupa fjögurra
vikna gamlan Chihuahua hvolp á
tæpar átta þúsund krónur og var á
leiðinni með hann til læknis þegar
hann skyndilega dó í örmum hennar.
Ekki var hún Lisa sátt með að hafa
keypt köttinn í sekknum, eða hund-
inn í þessu tilfelli, og rauk af stað til
seljenda hvolpsins. Ruddi hún sér leið
inn í húsið og var á leið niður í kjall-
ara í þeim tilgangi að fá sér nýjan
hvolp. Þar stöðvuðu húseigendur
hana og reyndu að koma henni út úr
húsinu. Lisa beið þá ekki boðanna
heldur byrjaði að lemja þau með
hvolpnum af mikilum ofsa. Þurfti
húsfreyjan að fara á sjúkrahús til að
láta að gera að sárum sínum en Lisa
barði hana með hvolpnum um 30
sinnum í hausinn. Lisa á yfir höfði
sér kæru fyrir líkamsárás og að
hafa farið inn á lóð hundaeigend-
anna í leyfisleysi. Lisu er það ef til
vill huggun harmi gegn að eftir öll
ósköpin fékk hún átta þúsund krón-
urnar, sem hún borgaði fyrir vesal-
ings hvolpinn, endurgreiddar en þeir
aurar ganga líklega upp í lögfræði-
kostnað.
SÆTIR HVOLPAR Það er nú betra að nota annars konar barefli en hvolpa þegar maður
missir stjórn á skapi sínu.
SKRÍTNA FRÉTTIN
Barði konu með dauðum hvolpi