Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 48
32 20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
LEIKMAÐUR
UMFERÐARINN
AR
LIÐ UMFERÐARINNAR
Gunnlaugur Jónsson (2)
Christian Christiansen
Sævar Þór Gíslason
Grétar Ólafur Hjartarson
Sigmundur Kristjánsson (2)
Colin Stewart
Páll Einarsson (2)
Árni Thor Guðmundsson Ragnar Sigurðsson
Atli Viðar Björnsson (2)
Bjarni Guðjónsson (2)
3-4-3
Traustur tækjabúnaður
Valtarar Malbikunarvélar Fræsarar
Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogi
Sími 535 3500 · Fax 535 3501
www.kraftvelar.isJarðvegsþjöppur
A
RG
U
S
/
06
-0
34
9
Markakóngur Landsbankadeildarinnar, Marel Jóhann Bald-
vinsson hjá Breiðablik, keyrir um á glænýju Harley Davidson
mótorhjóli sem kostar víst um 2,5 milljónir króna. Marel kom
heim fyrir tímabilið eftir að hafa verið í atvinnumennskunni
hjá Lokeren í Belgíu. „Eftir að ég kom heim vildi ég nú
aðeins fá að gera eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á og
ákvað að skella mér á mótorhjól. Þessi draumur hefur
blundað í mér lengi en þegar ég var atvinnumaður úti
þá mátti maður þetta ekki, það kom bara sérstaklega
fram í samningnum,“ sagði Marel.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Blika, hoppaði ekki
hæð sína af kæti þegar Marel vildi fá sér
mótorhjól. „Bjarna finnst að ég hafi alveg
fengið betri hugmyndir en að fá mér mót-
orhjól. En hann samþykkti þetta þó á end-
anum þótt hann hefði ekki verið of hrifinn.
Hann sagði mér bara að fara varlega en þetta
er náttúrulega stórhættulegt samt sem áður.“
Marel notar hvert tækifæri til að skella sér á hjólið.
„Það er bara búið að vera svo leiðinlegt veður, sumarið er ekki
enn komið svo maður hefur ekki getað nýtt þetta alveg í botn,“
sagði Marel sem er vel græjaður. „Það er bara helmingurinn
að kaupa sér hjólið, svo þarf að finna sér fínan hjálm og
rétta klæðnaðinn. Maður er alveg leðraður frá toppi til
táar.“
Hann fer nánast allar sínar leiðir á hjólinu, meðal
annars á útileiki og æfingar hjá Blikum. Hann
starfar sem fasteignasali en mætir þó ekki
á hjólinu til vinnu. „Ég held að það virki
ekki vel að selja hús í leðri, Það er þó
ljóst að maður gæti alveg
veitt eitthvað út á þetta ef
maður ætti ekki konu,“
sagði Marel og hló, rétt
áður en hann fagnaði
því að göturnar væru
þurrar og skellti sér í
einn hjólatúr.
MAREL JÓHANN BALDVINSSON HJÁ BREIÐABLIK: VEKUR MIKLA ATHYGLI Á NÝJA MÓTORHJÓLINU
Virkar ekki að selja hús í leðrinu
FÓTBOLTI Það er ekki mikið um
spennandi leiki í sextán liða úrslit-
um VISA-bikars karla en dregið
var í gær. Aðeins tvær Lands-
bankadeildarrimmur eru í boði
þar sem Fylkir og ÍBV mætast
rétt eins og FH og Víkingur.
Áhugaverðasta viðureignin er þó
líklega rimma 1. deildarliðs Fram
og ÍA. Leikirnir fara fram 2. og 3.
júlí.
DRÁTTURINN:
Þróttur-Grindavík
Fram-ÍA
Leiknir-Keflavík
Fylkir-ÍBV
Fjarðabyggð-Valur
FH-Víkingur
Njarðvík-KR
Breiðablik-KA
VISA-bikarinn:
Fram fær ÍA í
heimsókn
ERFIÐIR LEIKIR Fram og Leiknir eiga erfitt
verkefni fyrir höndum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Grindvíkingar gerðu 1-1
jafntefli gegn Valsmönnum í síð-
ustu umferð Landsbankadeildar-
innar. Besti leikmaður vallarins
var skoski markvörðurinn Colin
Stewart í Grindavíkurliðinu en
hann hefur spilað í markinu í síð-
ustu fjórum leikjum liðsins og
fengið á sig þrjú mörk. Hann hefur
haldið markinu hreinu í tveim-
ur af leikjunum fjórum og
greinilegt að þarna hefur
Grindavík krækt í góðan
leikmann.
„Við vorum ósáttir við
að fá bara stig út úr
leiknum, okkur fannst sem við
hefðum vel getað tekið öll stigin
úr þessum leik. Byrjunin hjá
okkur í deildinni hefur verið
þokkaleg bara. Við höfum gert
fjögur jafntefli það sem af er en ef
tveir af þeim leikjum hefðu dottið
okkur í hag værum við í öðru sæti.
Við erum því ekki langt frá þessu.
Árangur okkar er því alls ekki
slæmur en hann getur vissulega
verið betri,“ sagði Stewart.
Hann kom hingað til lands fyrir
tilstuðlan landa síns David Hannah
sem einnig er í röðum Grindvík-
inga. Sigurður Jónsson, þjálfari
Grindavíkur, talaði við Hannah
sem síðan hafði samband við Stew-
art. „Síðasta tímabil hjá mér í
Skotlandi, 2005-06, gekk ekki vel
og ég fékk lítið að spreyta mig.
Svo hafði David Hannah samband
við mig en Siggi var búinn að
spyrja hann hvort hann vissi um
einhverja markverði. Þar með var
komið gott tækifæri til þess
að fá að spila eitthvað
og ég ákvað að grípa
það. Mér fannst ég hafa
engu að tapa, það er
gott að vera farinn að
spila á ný og svo kemur bara
í ljós hvað gerist í framhald-
inu.“
Hann gerir meira en að spila
fyrir Grindavík því einnig sér
hann um markmannsþjálfun yngri
markvarða hjá félaginu. „Það er
mjög gaman að fá tækifæri til að
þjálfa þessa ungu markverði. Ég
hef mjög gaman af því og þá er
þetta einnig dýrmæt reynsla sem
ég er að öðlast fyrir framtíðina,“
sagði Colin Stewart. Faðir hans
heitir Tim Stewart og er gamall
skoskur landsliðsmaður. Hann lék
á sínum tíma fyrir Middlesbrough
og Glasgow Rangers og hefur
einnig komið að
markmannsþjálf-
un fyrir skoska
knattspyrnusam-
bandið.
Stewart var
í röðum Patr-
ick Thistle í
heima-
landinu áður
en hann
kom til
Grindavík-
ur en hann
segist svo sannarlega ekki sjá
eftir þeirri ákvörðun sinni að
koma til Íslands. Þrátt fyrir að
vera aðeins 25 ára hefur hann
komið víða við á sínum ferli og var
m.a. í röðum Ipswich á sínum tíma.
„Ég hef notið mín vel hérna og líst
vel á íslenska fótboltann. Fólkið í
Grindavík hefur tekið vel á móti
mér og mér fannst ég vera vel-
kominn frá byrjun. Það er frábært
fólk í þessu félagi, bæði leikmenn
og starfsfólk. Fólkið í bænum
sjálfum er líka mjög vinalegt,“
sagði Stewart sem sendi Helga Má
Helgason á varamannabekkinn
með komu sinni.
Næsti leikur Grindavíkur er
gegn KR á fimmtudaginn en með
sigri í þeim leik kemst liðið upp
fyrir Vesturbæjarliðið á töflunni
og gæti jafnvel komist upp í annað
sætið ef önnur úrslit verða liðinu
hagstæð. elvar@frettabladid.is
Tækifæri sem ég ákvað að grípa
Markvörðurinn Colin Stewart frá Skotlandi gekk til liðs við Grindavík fyrir rúmum mánuði. Hann hefur
leikið vel í marki liðsins og hefur Fréttablaðið valið hann leikmann sjöundu umferðar.
FRÁBÆR GEGN VAL Skotinn Colin Stewart átti stórleik í marki Grindavíkur gegn bikarmeist-
urum Vals. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
> Ísland í 2. styrkleikaflokki
Íslenska handboltalandsliðið verður
í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið
verður í riðla fyrir HM í Þýskalandi
þann 14. júlí í Berlín. Dregið verður í
sex riðla en alls eru fjórir styrkleika-
flokkar. Ísland er í
styrkleikaflokki með
Rússum, Slóvenum,
Tékkum, Pólverjum
og Norðmönnum. Í
efsta styrkleika-
flokki eru
Spánverjar,
Frakkar,
Danir, Túnisar, Króatar
og Þjóðverjar.
GOLF „Draumur hefur ræst, ég
trúi þessu eiginlega ekki ennþá,“
sagði kylfingurinn Geoff Ogilvy
sem sigraði á opna bandaríska
meistaramótinu í golfi á sunnu-
dagskvöld. Mikil gleði ríkir í
heimalandi hans, Ástralíu, þar
sem mikill golfáhugi er til staðar.
Sigur hans í New York var sá
fyrsti á risamóti sem ástralskur
kylfingur nær í ellefu ár og sá
fyrsti á opna bandaríska síðan
David Graham sigraði 1981.
„Þetta er stórkostlegt, ég var
orðinn ansi leiður á því að vera
bara einn í þessum klúbbi,“ sagði
Graham sem orðinn er sextugur
og er hættur að spila golf vegna
hjartveiki.
Geoff Ogilvy lék lokahringinn
um helgina á tveimur höggum
yfir pari og endaði samtals á
fimm yfir. Hann var því með
höggi minna en þeir Phil Mickel-
son, Colin Montgomerie og Jim
Furyk. Þeir tveir fyrrnefndu fóru
báðir lokaholuna á tveimur högg-
um yfir pari og klúðruðu því
möguleikum sínum á sigri.
Mickelson þurfti að leika á
pari á lokaholunni en skaut í tré í
öðru höggi sínu og svo í sand-
gloppu í því þriðja.
Ogilvy er 29 ára en hann spil-
aði af mikilli skynsemi á mótinu.
- egm
Geoff Ogilvy bar sigur úr býtum á opna bandaríska meistaramótinu:
Langþráður sigur hjá áströlskum kylfingi
GLEÐI Geoff Ogilvy fagnar sigri sínum af
mikilli innlifun. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Svo gæti farið að Harry
Kewell yrði í leikbanni í mikil-
vægum lokaleik Ástralíu í G-riðli
sem er gegn Króatíu. Markus
Merk, sem dæmdi leik liðsins
gegn Brasilíu á sunnudag, tók það
fram í skýrslu sinni að Kewell
hefði farið yfir strikið í mótmæl-
um sínum við dómaratríó leiksins
og verið of harkalegur í orðavali
sínu. Ástralía þarf á sigri að halda
gegn Króatíu til að vera öruggur
um að komast í úrslitakeppnina.
„Það fór í taugarnar á mér að
við vorum að tapa og því varð ég
svona reiður. Þetta er samt bara
hluti af leiknum og þetta var ekk-
ert illa meint gegn Merk persónu-
lega. Það var bara svo sárt að spila
svona vel gegn heimsmeisturun-
um en fá ekkert út úr leiknum,“
sagði Kewell. - egm
Ástralska landsliðið:
Enginn Kewell
gegn Króatíu?
Ingimundur í Ajax
Stórskyttan Ingimundur Ingimundarson
er á leið til danska félagsins Ajax frá
svissneska félaginu Winterthur. Hjá Ajax
hittir Ingimundur fyrir meðal annars
gamla félaga sinn hjá ÍR, Hannes Jón
Jónsson.