Fréttablaðið - 20.06.2006, Page 54
20. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Fyrir
hornið…
1 Katrín Anna Guðmundsdóttir
2 Jörundur Áki Sveinsson
3 Hamas-samtökin
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
Guðjón Valur og aðrir leikmenn
íslenska hand-
boltalandsliðsins
mættu í einkapartí á
efri hæð Sólon ásamt
sænsku leikmönnun-
um eftir landsleik-
inn á laugardag.
Sáust þeir sænsku
skála ótt og títt
í Bacardi Breezer
sem kom gestum
spánskt fyrir sjónir
enda Breezerinn
álitinn stelpudrykkur
af flestum íslenskum
karlmönnum. Partíið
var skipulagt af fótboltakappanum Her-
manni Hreiðarssyni og eiginkonu hans
Rögnu Lóu og þar mátti sjá mikið af
góðvinum þeirra úr fótboltaheiminum,
bæði aðra landsliðsmenn sem og mikið
af þrusuhressum fótboltakonum úr KR.
Virtust sænsku piltarnir skemmta sér
vel í þessum félagsskap og voru hinir
hressustu þrátt fyrir þá staðreynd að
Svíþjóð kemst ekki áfram á heimsmeist-
aramótið.
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT 2 land 6 í röð 8 þjófnað-
ur 9 tækifæri 11 í röð 12 mók 14
jarðsögutímabil 16 samtök 17 kletta-
sprunga 18 þangað til 20 bardagi 21
á fæti.
LÓÐRÉTT 1 mylsna 3 klukka 4 hjá-
trú 5 á móti 7 apategund 10 loft
13 reglur 15 hermaður 16 drulla 19
vörumerki. LAUSN
LÁRÉTT: 2 kúba, 6 áb, 8 rán, 9 lag, 11
bd, 12 dvali, 14 ísöld, 16 aa, 17 gjá, 18
uns, 20 at, 21 rist.
LÓÐRÉTT: 1 sáld, 3 úr, 4 bábilja, 5
and, 7 bavíani, 10 gas, 13 lög, 15 dáti,
16 aur, 19 ss.
Uppáhaldstónlist: Ég er alæta á tónlist
og finnst nánast allt skemmtilegt, frá
Bubba upp í hip hop.
Uppáhaldsbókin: Segjum bara Da
Vinci Code, hún var ágæt. Mér fannst
myndin ekki eins góð, en hún var samt
allt í lagi.
Uppáhaldsborgin: Ég held að það sé
París og Berlín, ég hef verið í báðum
borgum í vikutíma. Eiffelturninn er
náttúrulega glæsilegt mannvirki og
svo eru svo fallegar byggingar í Berlín.
Báðar borgirnar hafa mikla sögu sem
mér finnst skemmtilegt.
Bíómyndin: Ég er mikið fyrir grín-
myndir eins og Zoolander. Svo eru það
náttúrulega Lord of the Rings, það eru
flottustu myndirnar, rosalega vel gerðar.
Búðin: Ætli það sé ekki Sautján og
Deres. Svo er það náttúrulega Puma
búðin, hún verður að vera í uppáhaldi
líka.
Verkefnið: Bara fótboltinn í heild sinni,
þetta er mjög skemmtilegt. Annars var
ég að útskrifast úr Menntaskólanum í
Kópavogi þannig að það er bara allt að
ganga upp.
AÐ MÍNU SKAPI: MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR KNATTSPYRNUKONA
Zoolander, hip hop og fótbolti
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR
Margrét stóð sig vel í landsleikn-
um á sunnudag.
„Ég held að í framtíðinni verði
hljóðbækurnar jafnvinsælar og
bækur,“ segir Kristján Hrannar
Pálsson í hljómsveitinni Loftvarn-
ir, sem hefur verið önnum kafin í
sumar við að semja bakgrunnstón-
list við þekktar bækur á borð við
Veröld ný og góð (e. Brave New
World) eftir Aldous Huxley og
Hringadróttinssögu eftir Tolkien.
„Það eru margir farnir að hlusta á
hljóðbækur og með því að hlusta á
tónlist spilaða undir er hægt að
krydda áhrifin miklu betur,“ bætir
Kristján við en ásamt honum skipa
þeir Daníel Friðrik Böðvarsson og
nafni hans Smárason hljómsveit-
ina, sem var stofnuð í maí.
Loftvarnir hefur einnig samið
tónlist við leikritið þekkta Faust, en
Atli Freyr Steinþórsson, þulur hjá
Rúv, las einmitt upp úr leikritinu á
þjóðhátíðardaginn á meðan Loft-
varnir léku undir dulræna tóna.
Til stendur að fá fleiri aðila til
að lesa upp úr bókum á meðan
hljómsveitin spilar undir. en það
fari vitaskuld allt eftir innihaldi
bókanna hvernig tónlistin hljómar í
hvert skipti. Ekki hefur verið
ákveðið hvort gefnar verða út
hljóðbækur með tónlistinni, enda
spilar hljómsveitin aðeins undir við
brot úr bókunum, en það mun þó
ekki vera fjarlægur möguleiki.
Þeir félagar fengu styrk frá
Reykjavíkurborg í gegnum Hitt
húsið til að búa til tónlistina. Þeir
koma fram alla fimmtudaga frá 16 til
17 í Vesturbæjarlauginni auk þess
sem þeir hafa stigið á svið við hátíð-
leg tækifæri eins og á 17. júní. Reyna
þeir jafnframt að vera sem mest
áberandi þegar veðrið er gott og
sólin leikur við borgarbúa.
Þrátt fyrir ungan aldur eru þeir
Kristján, Daníel og Daníel síður en
svo græningjar í tónlistinni því á síð-
asta ári fluttu þeir Bítlaplötur í heild
sinni á Laugaveginum við góðar und-
irtektir auk þess sem þeir hafa samið
tónlist fyrir herranótt MR.
„Ég hef tekið eftir því með
hljóðbækur að allir eiga tölvur og
ipod með endalausu rými og núna
er hægt að eiga hljóðbækur án þess
að þurfa að geyma þær á hundrað
diskum,“ segir Kristján Hrannar,
sem hefur mikla trú á hljóðbókum
í framtíðinni. „Þetta er sívaxandi
markaður. Nú er hægt að endur-
vekja upprunalegu áhrifin frá því í
gamla daga með því að láta segja
sér sögu.“ Vonast Kristján jafn-
framt eftir því að geta spilað tón-
list við verk eftir þekkta íslenska
höfunda í framtíðinni á borð við
Halldór Laxness og Þórberg Þórð-
arson.
Loftvarnir verða starfandi í allt
sumar og hugsanlega eitthvað
lengur ef allt gengur að óskum.
„Það er draumur að geta unnið við
tónlist og algjör forréttindi ef hann
rætist,“ segir Kristján, sem er
nýútskrifaður úr MR og var áður í
hljómsveitinni Dixieland-Dverg-
arnir. freyr@frettabladid.is
HLJÓMSVEITIN LOFTVARNIR: SPILAR TÓNLIST UNDIR UPPLESTRI Á BÓKUM
Áhrifin krydduð í sumar
LOFTVARNIR Hljómsveitin Loftvarnir, sem er skipuð þremur ungum herramönnum, mun spila bakgrunnstónlist við upplestur á hinum
ýmsu bókum í allt sumar.
Veitingastaðurinn Silfur á Hótel Borg verður opnaður formlega með
pomp og prakt fimmtudaginn næst-
komandi. Starfsemin er þó þegar hafin
og hefur laðað að ófáa sælkera og
fagurkera, sem ólmir vilja prófa eitthvað
nýtt. Greinilegt er að mikið hefur verið
í lagt til að gera staðinn sem glæsileg-
astan og ekki aðeins fyrir munn, maga
og augu því eyrun fá líka sitt. Einn gesta
staðarins sagði við Fréttablaðið að
hann hefði til dæmis heyrt torkennilegt
suð inni á salerni staðarins. Í fyrstu taldi
hann að loftræstingin léti illa og skap-
aði þennan hávaða. Þegar hann lagði
betur við hlustir heyrði hann hins vegar
að þetta var sjávarniður og fuglatíst
sem leikið var af bandi, sjálfsagt í þeim
tilgangi að bæta melting-
una. - snæ/bs
„Við erum nú búnir að gefa út
Reykjavik Grapevine í þrjú ár og
fannst okkur því vel við hæfi að
gefa út ferðabók sem lýsir Reykja-
vík í nútímamynd,“ segir
Hilmar Steinn Grétars-
son, útgefandi Reykjavik
Grapevine, um væntan-
lega ferðabók frá þeim
Grapevine félögum í
samstarfi við Eddu
útgáfu.
Bókin ber nafnið
Inside Reykjavik – The
Grapevine guide og rit-
stýrir Bart Cameron
bókinni en hann er einn-
ig ritstjóri blaðsins.
Bókin kemur út í byrjun júlí og
verður seld úti um allt land.
Skemmtilegar myndir prýða síður
bókarinnar en þær eru teknar af
Guðmundi Frey Vigfússyni. Eins
og titillinn ber með sér er þetta
leiðarbók um Reykjavík þar sem
lífinu á Íslandi er lýst af
nákvæmni. Ferðamönnum og
gestum er bent á hvert best sé að
fara og hvernig þeir eiga að bera
sig að til að fá menningu og dag-
legan lífsstíl okkar
þjóðar beint í æð.
Einnig eru leiðbein-
ingar um það hvar
hægt er fá flottasta
dótið og íslenskri tón-
list er gerð góð skil í
bókinni.
Bókin er stíluð inn á
fólk milli tvítugs og þrí-
tugs en Grapevinemenn
telja þó bókina skemmti-
lega aflestrar fyrir alla,
Íslendinga jafnt sem
útlendinga. „Við erum óbeint að
stíla inn á þennan nýja ferða-
mannahóp sem farinn er að leggja
leið sína til landsins, ungt fólk
sem kemur hingað yfir langa helgi
og vill nýta tímann sem best. Með
tilkomu ódýrra fargjalda til lands-
ins er þetta að aukast og Reykja-
vik þykir með svalari borgum í
Evrópu í augnablikinu. Inside
Reykjavik er leiðarbók fyrir
ferðamann 21 aldarinnar.“ segir
Hilmar að lokum.
Fyrir ferðalanga 21. aldarinnar
HILMAR STEINN GRÉTARSSON Gefur út bók
með leiðbeiningum um hvert sé best að
fara og hvernig hægt sé að fá Ísland beint
í æð.
HRÓSIÐ FÆR
... Jón Sæmundur Auðarson fyrir
að ætla að rokka Bandaríkja-
menn almennilega upp með
DEAD fatalínu sinni.