Fréttablaðið - 09.07.2006, Side 32
12 9. júlí 2006 SUNNUDAGUR
Starf hjúkrunarfræðinga
er fjölbreytt og mikil
nánd við annað fólk.
„Hjúkrunarfræðingur gerir
það fyrir sjúklinginn sem
hann getur ekki gert sjálf-
ur,“ segir Sigrún Zoëga
hjúkrunarfræðingur. Sig-
rún hefur starfað við
ummönnunarstörf frá
sautján ára aldri og segist,
á léttu nótunum, ekki skilja
hvernig fólk geti valið sér
nokkur önnur störf.
„Ég byrjaði að vinna
ófaglærð með þroskaheft-
um, tók svo sjúkraliðann
með stúdentinum og vann
við það í tvö ár. Um leið og
ég kom inn á sjúkrahús
vissi ég að þetta var málið,“
segir Sigrún sem lauk fjög-
urra ára háskólanámi í
hjúkrunarfræði fyrir fjór-
um árum og vinnur núna á
þvagfæraskurðdeild.
„Ég er svo nýbúin að
ljúka diplómanámi í krabba-
meinshjúkrun og er að
byrja í mastersnámi í haust.
Þetta er svo fjölbreytt starf,
maður getur unnið hvar
sem er og á svo ólíkum svið-
um. Maður getur líka valið
hvort maður verður fræði-
maður, vinnur í beinni
hjúkrun, við forvarnir eða
kennslu.“
Ólíkt mörgum öðrum
faggreinum er hægt að
sækja alla menntun í hjúkr-
un hérlendis. „Framhalds-,
masters- og doktorsnámið
er frekar nýtilkomið en
gæði grunnnámsins hér eru
mjög mikil,“ segir Sigrún.
„Starfið snýst mikið um
samhæfingu, að tengja
saman til dæmis lækna,
sjúkraþjálfara og þess hátt-
ar, en líka um fræðslu. Svo
erum við auðvitað í því að
skipta á sárum og svoleiðis.
Það besta við starfið er
að maður hittir gífurlega
mikið af fólki. Maður öðlast
svolítið aðra sýn á lífið og
tilveruna, kynnist fólki á
viðkvæmum stundum og
sér manneskjuna frá ann-
arri hlið. Það fær mann til
að meta betur fjölskyldu,
vini og annað sem er ekki
hægt að kaupa fyrir pen-
inga. Það er merkilegt að
sjá hvað manneskjan ræður
við erfiðar aðstæður án
þess að kikna.“
Sigrún segir að þó starf-
ið sé erfitt að mörgu leyti sé
það ekki þannig að það
hreki mann frá því. „Launin
mættu vera hærri en það er
auðvitað gömul saga. Fyrir
marga er vaktavinnan líka
erfið. Það er enginn dagur
eins og maður skilur ekki
eftir bunkann á skrifborð-
inu þegar maður fer heim.
Maður er alltaf að hitta nýtt
fólk og standa frammi fyrir
nýjum áskorunum,“ segir
Sigrún að lokum.
einareli@frettabladid.is
Nýtt fólk og
nýjar áskoranir
Sigríður fyrir utan vinnustað sinn á Hringbrautinni. Hún segist ekki skilja
hvernig fólk getur hugsað sér að vinna við annað en ummönnunarstörf.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Umtalsverð hækkun hjá
atvinnulausum.
Þann 1. júlí síðastliðinn
hækkuðu grunnatvinnuleys-
isbætur um 18,5%. Greiðsl-
ur á atvinnuleysisdag
hækka því úr 4.324 krónum
í 5.123 krónur hjá þeim sem
eru með fullar bætur og á
mánuði fara bæturnar úr
93.701 krónu upp í 111.015
krónur.
Atvinnuleysisbætur hækka
Atvinnuleysisbætur hafa hækkað um 18,5%.
VARNARLIÐSSALA
GEYMSLUSVÆÐISINS
Opið:
Laugardaga: 10:00 - 18:00
Sunnudga: 12:00 - 18:00
Virka daga: 10:00 - 18:00
Útboð
á bifreiðum Varnarliðsins
Ökutækin eru til sýnis að Sigtúni 40.
Útboðið mun standa dagana 8. júlí til miðnættis
þann 10. júlí. Upplýsingar um niðurstöðu
útboðsins verða birtar á heimasíðu
Geymslusvæðisins þann 11. júlí.
Hægt er að bjóða í bifreiðirnar á heimasíðu
Geymslusvæðisins: www.geymslusvaedid.is
þar er einnig hægt að skoða myndir
og fá nánari upplýsingar.
Varnarliðssalan Sigtúni 40
ATVINNUTÆKIFÆRI
Til sölu fyrirtæki í innflutningi, heildsölu og smásölu.
Góð álagning. Falleg, hrífandi og auðseljanleg vara.
Verð ca. 12 m.
Svar merkt: „Uppgrip“ sendist á netfangið: galle@isl.is
Útboð - lóðarfrágangur við nýbyggingu
Landbúnaðarstofnunar á Selfossi
Merkiland ehf óskar eftir tilboðum í lóðarfrágang við tvær
nýbyggingar sem m.a. munu hýsa Landbúnaðarstofnun við
Austurveg á Selfossi. Útboðið nær til fullnaðarfrágangs lóðar,
þ.m.t. bílastæða, stétta og gróðursvæða. Jarðvegsskipti fyrir
burðarlagsfyllingu hafa farið fram og lagnavinna er einnig
undanskilin útboðinu.
Helstu magntölur eru:
Jöfnunarlag og malbik: 2194m2
Hellulagnir á bílastæðum: 676m2
Gangstéttar: 1000m2
Kantsteinar: 617m
Gras og gróðursvæði: 1235m2
Uppsetning á ljósum og öðrum götugögnum
Vinna við verkið getur hafi st strax að afl oknu útboði. Verklok eru
14. september fyrir u.þ.b. 2/3 skilgreinda hluta verksins en 14.
október fyrir 1/3 hluta.
Útboðsgögn eru til afhendingar á teiknistofunni Landhönnun að
Austurvegi 42, 2.h. og í afgreiðslu VST að Ármúla 4 í Reykja-
vík. Skilagjald er kr. 2000 sem endurgreiðist við skil tilboða/
tilboðsgagna.
Tilboð skulu berast Landhönnun á Selfossi í síðasta lagi
þriðjudaginn 18. júlí 2006 kl. 11.00 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
F.h. verkkaupa,
Landhönnun slf.
Hermann Ólafsson, landslagsarkitekt FÍLA
s. 482 3300, netfang: hermann@landhonnun.is
A. Þ. Þrif
Framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í þrifum á
nýbyggingum jafnt sem atvinnuhúsnæðum óskar eftir
starfsmönnum í fullt starf vegna mikilla umsvifa.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Umsækjendur
þurfa að vera 20 ára eða eldri.
Upplýsingar gefur Steini í síma 821-9908.
RÉTTINDANÁMSKEIÐ
FYRIR BÍLSTJÓRA UM FLUTNING
Á HÆTTULEGUM FARMI
Fyrirhugað er að halda eftirfarandi námskeið í
Reykjavík í húsnæði Ökuskólans í Mjódd, Þarabakka 3,
kl. 09-17, ef næg þátttaka fæst, fyrir stjórnendur
ökutækja sem vilja öðlast réttindi (ADR-skírteini) til að
flytja tiltekinn hættulegan farm á vegum á Íslandi og
annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu:
Grunnnámskeið (flutningur á stykkjavöru
fyrir utan sprengifim- og geislavirk efni):
12. – 14. júlí 2006
Flutningur í tönkum:
17. -18. júlí 2006
Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiðinu fyrir flutning í
tönkum er að viðkomandi hafi setið grunnnámskeið
(stykkjavöruflutningar) og staðist próf í lok þess.
Greiða skal þátttökugjöld fyrir upphaf námskeiðanna.
Skráning og nánari upplýsingar hjá skrifstofu
Vinnueftirlitsins í Reykjavík,
Bíldshöfða 16, sími: 550 4600.
F.h. Menntasviðs Reykjavíkurborgar:
Akstur nemenda grunnskóla Reykjavíkurborgar,
EES útboð nr. 10807.
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000 í upplýsingaþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 21. ágúst 2006 kl 10:00, í Ráðhúsi Reykja-
víkur.
10807
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fo
rm
at
a
M
ed
iu
m
Fo
rm
at
a
R
eg
ul
ar
RAÐAUGLÝSINGAR