Fréttablaðið - 09.07.2006, Side 70
30 9. júlí 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
KR er... flottasti klúbburinn.
KR eða Grindavík? KR.
Skora eitt eða leggja upp tvö?
Skora eitt.
Björgólfur, Rógvi eða Garðar?
Skiptir engu máli.
Teitur Þórðarson er... góður
þjálfari.
Voru morgunæfingarnar óþarfar?
Nei.
Hvað er að framherjunum hjá KR?
Þeir skora engin mörk!
Hvernig gastu klúðrað færinu á móti
FH? Úff... ég hef engin svör.
Í hvaða sæti lendir KR í deildinni? 2.
sæti.
Hverjir verða Íslandsmeistarar? Mér
sýnist það ætla að vera FH.
Besti leikmaður deildarinnar? Kristján
Finnbogason á góðum degi.
Erfiðasti andstæðingur? Ætli það sé
ekki ég sjálfur.
Saknarðu hársins? Já, ég er að safna.
Ítalía eða Frakkland? Ítalía.
Zidane eða Ronaldinho? Ronaldinho.
Besti leikmaður heims? Ronaldinho,
ekki spurning.
MEÐ GRÉTARI
HJARTARSYNI60 SEKÚNDUR
Forysta FH á toppi efstu deildar
karla í knattspyrnu á sér ekki
fordæmi og er ekki útlit fyrir
annað en að hún eigi eftir að
stækka. Ef svo á ekki að fara þarf
eitthvað af hinum liðunum níu að
taka af skarið og vinna nokkra
leiki í röð, en það hefur gengið
heldur illa til þessa þar sem aðeins
einu liði fyrir utan FH hefur tekist
að vinna meira en tvo leiki í röð.
Það lið er einmitt það sama og
var í öðru sæti að níu umferðum
loknum, nýliðar Víkings. Það var
spútniklið fyrri umferðarinnar en
eins og sagan hefur sýnt er það
engan veginn búið að forða sér frá
falli. Þvert á móti er deildin svo
jöfn að liðið sem er í fallsæti,
Breiðablik í því níunda, er ekki
nema fjórum stigum á eftir
Víkingum. Aldrei áður í sögu tíu
liða efstu deildar hefur verið jafn
lítill munur á liðinu í öðru og
níunda sæti að mótinu hálfnuðu –
fjögur stig.
Gamla „metið“ var sex stig en
slíkur var munurinn á sama
tímapunkti árin 2002 og 2004.
Tekið skal fram að tíu liða efstu
deild var komið á stofn árið 1977
og hefur árangurinn fram til
ársins 1984 verið endurreiknaður
samkvæmt þriggja stiga reglunni.
Í kvöld mætast Breiðablik, liðið
sem er í níunda sæti deildarinnar
með tíu stig og Valsmenn sem hafa
valdið stuðningsmönnum sínum
þó nokkrum vonbrigðum með sín
tólf stig eftir frábært gengi síð-
asta árs. Að lokinni fyrri umferð-
mótsins í fyrra var Valur í öðru
sæti með 21 stig og ÍBV í því
níunda með sex og munurinn því
fimmtán stig (sem var metjöfn-
un). Munurinn í deildinni í ár og í
fyrra er því í þeim skilningi mjög
mikill.
En aðalatriðið er vissulega
hvaða lið er í efsta sæti og er engin
breyting á því frá síðasta ári. FH-
ingar hafa mikla yfirburði í
deildinni og hafa til þessa ekki
tapað leik á mótinu. Liðið sýnir
geysilega mikinn stöðugleika á
milli leikja og er það lofsvert
vegna þeirra áfalla sem liðið hefur
mátt þola undanfarið vegna
meiðsla leikmanna. FH er í
sérflokki og hin liðin níu í
spennandi fallbaráttu.
Níu lið í fallbaráttunni
NÝLIÐARNIR Víkingur og Breiðablik eru bæði nýliðar í Landsbankadeildinni en þau lið sem
voru í 2. og 9. sæti að mótinu hálfnuðu. Munurinn á liðinum er þó ekki nema fjögur stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Í 30 ára sögu tíu liða
efstu deildar hér á landi
hefur stigamunurinn
á milli liðsins í öðru
og níunda sæti aldrei
verið minni en nú
þegar mótið er hálfnað.
Munurinn var í ár fjögur
stig.
HIN HLIÐIN
ÞAU ÁR ÞAR SEM MUNURINN HEFUR
VERIÐ SEM MESTUR
ÁR 2. SÆTI 9. SÆTI MUNUR
1978 ÍA (21) FH (9) 15
1996 ÍA (21) BREIÐABLIK (6) 15
2005 VALUR (21) ÍBV (6) 15
1977 VALUR (22) KR (8) 14
JAFNT OG SPENNANDI
ÞAU ÁR ÞAR SEM STIGAMUNURINN Á 2.
OG 9. SÆTI HEFUR VERIÐ SEM MINNSTUR.
ÁR 2. SÆTI 9. SÆTI MUNUR
2006 VÍKINGUR (14) BREIÐABLIK (10) 4
2004 FH (16) GRINDAVÍK (10) 6
2002 FYLKIR (15) ÞÓR (9) 6
1979 ÍBV (15) KA (8) 7
ÍÞRÓTTALJÓS
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
FÓTBOLTI Það skyldi þó ekki vera
að það hafi verið Íslendingar sem
stýrðu ítalska landsliðinu á braut-
ina sem á endanum varð til þess
að liðið náði heimsmeistaratign?
Sú er samt einmitt raunin ef Ítalir
leggja Frakka að velli í Berlín í
kvöld því eftir því sem þjálfarinn
Marcello Lippi sagði við ítalska
fjölmiðla í gær var það eftir
vináttuleikinn gegn Íslandi, á
Laugardalsvelli þann 18. ágúst
árið 2004, sem hann gerði sér
grein fyrir því verki sem var
framundan. Leikurinn var sá
fyrsti sem Ítalir léku undir stjórn
Lippi og endaði hann með 2-0 sigri
Íslands, eins og frægt er orðið.
„Þetta kvöld vorum við
niðurlægðir af Íslendingum,“
sagði Lippi í gær. „Það var þá sem
ég áttaði mig á því sem þurfti að
gera,“ bætti þjálfarinn við.
Umræddur leikur gegn
Íslendingum er sá eini sem ítalska
liðið hefur tapað undir stjórn
Lippi í 25 leikjum. Eins og margir
muna þá voru það Gylfi Einarsson
og Eiður Smári Guðjohnsen sem
skoruðu mörk Íslands fyrir
framan 20.204 áhorfendur á
Laugardalsvellinum.
Þegar horft er um öxl má sjá
að það eru ávallt einhver tengsl á
milli Íslendinga og
heimsmeistaranna hverju sinni.
Árin 1994 og 2002, þegar Brasilía
varð heimsmeistari, lék liðið
æfingaleik gegn Íslendingum rétt
fyrir HM og sigraði örugglega, og
árið 1998 léku Frakkar sinn fyrsta
leik sem heimsmeistarar gegn
Íslandi á Laugardalsvellinum, þar
sem leikar enduðu 1-1.
Tengslin, þó fjarlæg séu, eru
svo sannarlega til staðar og þó að
mörgum kunni að þykja það nokk-
uð langsótt má halda því fram að
það yrði „eftir bókinni“ ef Ítalir
yrðu krýndir heimsmeistarar í
kvöld. Sú kenning fær síðan byr
undir báða vængi þegar helsta
áhersluatriði Lippis í viðtali við
íslenska fjölmiðla eftir leikinn
fyrir tveimur árum er rifjað upp.
Þá endaði Lippi á því að segja:
„Fall er fararheill.“ - vig
Marcello Lippi, þjálfari ítalska landsliðsins:
Tapið gegn Íslandi sýndi
mér hvað þurfti að gera FÓTBOLTI Eftir tapið gegn Íslend-
ingum 2004 voru ítalskir fjölmiðl-
ar duglegir við að afsaka sig með
því að minna á að Marcello Lippi
hefði hvílt helstu stjörnur liðsins
og leyft efnilegum og óreyndum
leikmönnum landsins að spreyta
sig á svo ómerkilegum leikmanna-
hópi. Þegar hins vegar er horft til
baka má sjá að sjö byrjunarliðs-
menn Ítala í umræddum leik geta
orðið heimsmeistarar í kvöld.
Þetta eru þeir Gianluigi Buffon,
Massimo Oddo, Gianluca Zam-
brotta, Simeone Perrotta,
Alessandro Nesta, Marco Mater-
azzi og Gennaro Gattuso. Þeir
hafa fengið á sig eitt mark á HM
en áttu engin svör gegn íslenska
landsliðinu á sínum tíma.
Alls tóku átta leikmenn úr
HM-hópi Ítala þátt í leiknum
gegn Íslandi. Sá eini ónefndi er
Luca Toni, sem nú er aðalsóknar-
maður Ítalíu, en hann lék sinn
fyrsta landsleik þegar hann kom
inn á gegn Íslandi á 55. mínútu.
- vig
Lið Ítala gegn Íslandi:
Átta sem eru í
HM-hópnum
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar Breiða-
bliks unnu öruggan sigur á Þór/
KA í Landsbankadeild kvenna í
gær. Leikurinn fór fram fyrir
norðan og sigruðu gestirnir með 3-
0. Það voru þær Erna Björk Sig-
urðardóttir, Greta Mjöll Samúels-
dóttir og Edda Garðarsdóttir sem
skoruðu mörk Blika.
Breiðablik er sem fyrr í 2. sæti
deildarinnar, þremur stigum á
eftir toppliði Vals sem á þó leik til
góða. - vig
Landsbankadeild kvenna:
Létt hjá Blikum
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson
kylfingur úr GKG hefur lokið
þremur hringjum af fjórum á móti
á Murcar-strandvellinum í
Skotlandi sem er hluti af áskor-
endamótaröð Evrópu. Hann hefur
leikið að stærstum hluta mjög vel
og stendur í 12.-20 sæti fyrir loka-
hringinn sem fer fram í dag.
Hann á þó tæpast möguleika á
sigri á mótinu en hvert sæti er
mikilvægt þar sem verðlaunaféð
fer lækkandi eftir því sem neðar
er komið á listann. Um síðustu
helgi vann hann sér inn dágóða
summu á móti á Spáni og gæti nú
endurtekið leikinn ef hann heldur
haus í dag.
Birgir Leifur lék í gær á einu
höggi undir pari vallarins og er
samtals þremur undir pari. Hann
hefur leikið afar vel, fengið ellefu
fugla á mótinu og aðeins fjóra
skolla en tvívegis hefur hann náð
sér í skramba og það hefur reynst
honum dýrkeypt.
Efstu maður mótsins, Sam
Walker frá Englandi, lék í gær á
sjö höggum undir pari og hefur
fjögurra högga forystu á næsta
mann. Walker er samtals á tólf
undir pari.
- esá
Áskorendamótaröð Evrópu:
Birgir Leifur í
12. sæti
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON Hefur staðið
sig vel í Skotlandi.
FÓTBOLTI 1. deildar liðið Þróttur
gerði sér lítið fyrir og lagði enska
2. deildar liðið Millwall af velli, 2-
0, í leik liðanna á Valbjarnarvelli í
gær. Það voru framherjarnir
Sinisa Kekic og Magnús Már Lúð-
víksson sem gerðu mörk Þróttar
en Millwall átti lítið í Þróttara að
gera og var sigur íslenska liðsins
sanngjarn. Millwall er statt hér á
landi í æfingaferð sem er fyrsti
liður félagsins í undirbúningnum
fyrir komandi leiktíð í Englandi.
Þekktustu leikmenn Millwall,
Jody Morris og Barry Hayles,
voru hvorugir í byrjunarliðinu í
leiknum en Hayles kom inn á í síð-
ari hálfleik og sást lítið. - vig
Æfingaleikur í gær:
Þróttur vann
Millwall
BARÁTTA Haukur Páll Sigurðsson sést hér
reyna að ná til knattarins í leiknum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ Byrjunarliðið sem
mætti ítalska landsliðinu í æfingaleik þann
18. ágúst 2004. Á minni myndinni sést
Eiður Smári Guðjohnsen skora annað mark
Íslands án þess að Gianluigi Buffon komi
nokkrum vörnum við. Marco Materazzi,
annar leikmaður Ítala á HM, reynir að ná til
boltans en er einfaldlega of seinn.
> Erfitt verk bíður Keflvíkinga
Keflvíkingar taka á móti norska liðinu
Lilleström á heimavelli sínum í dag í síð-
ari viðureign liðanna í Intertoto-keppn-
inni í fótbolta. Ljóst er að Keflvíkingar
þurfa að eiga sinn allra besta leik til að
eiga möguleika til að komast áfram en
norska liðið sigraði fyrri leikinn fyrir viku
4-1 og er því mun sigurstrang-
legra. Að miklu er að
keppa því liðið sem
fer áfram mun mæta
Newcastle í næstu
umferð og tryggja sér
þar með umtalsverðar
fjárhæðir vegna sjón-
varpsréttar og góðrar
miðasölu. Leikurinn
hefst kl. 14 og eru allir
hvattir til að mæta og
styðja við bakið á Kefl-
víkingum í þessum
mikilvæga leik.
Ásdís vann gull í Svíþjóð
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir
vann í gær til gullverðlauna á
Gautaborgarleikunum í frjálsum
íþróttum er hún kastaði spjótinu 52,10
metra. Fleiri Íslendingar voru meðal
þátttakenda en Einar Daði Lárusson
vann keppni í 300 metra grindahlaupi
og setti um leið Íslandsmet.