Fréttablaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 2
2 30. júlí 2006 SUNNUDAGUR VIÐSKIPTI Fasteignaverð hækkaði um 0,6 prósent í júní samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Fasteignaverð hefur hækkað um rúm þrettán prósent undanfarna tólf mánuði, 0,6 pró- senta hækkun á mánuði jafngildir 7,4 prósenta hækkun á ársgrund- velli. Verð á sérbýli hækkaði um 1,3 prósent í júní en fjölbýli um 0,4 prósent. Verð á sérbýli hefur hækkað um tæplega áttatíu pró- sent undanfarin tvö ár en verð fjölbýlis um rúm fimmtíu pró- sent. Fermetraverð á höfuðborgar- svæðinu er nú 223 þúsund krónur og hefur hækkað um ríflega ellefu prósent frá áramótum. - jsk Fasteignaverð lítillega upp NÝBYGGINGAR Fasteignaverð hækkaði um 0,6 prósent í júní. Hækkunin jafngildir 7,4 prósenta hækkun á ársgrundvelli. BRETLAND Samkynhneigðar konur fá að meðaltali ellefu prósentum hærri laun en gagnkynhneigðar konur. Þetta kemur fram í niður- stöðum nýrrar breskrar rannsókn- ar. Þar segir jafnframt að samkyn- hneigðar konur búi almennt við mun minna atvinnuleysi en gagn- kynhneigðar konur. Rannsakendur skýra þennan mun með því að barneignir hindri síður starfsframa lesbía en gagn- kynhneigðra kvenna. Dæmið snýst hins vegar við þegar kemur að körlunum. Gagn- kynhneigðir þéna sex prósentum meira en samkynhneigðir. Atvinnuleysi er einnig meira meðal homma. - eþa Ný bresk rannsókn: Lesbíur eru á hærri launum Mengun í norðurhöfum Kanadískir vísindamenn spá því að með vaxandi skipaumferð um norðurskautið þegar hafís bráðnar eins og spár segja til um sé líklegt að mengun af mannanna völdum aukist þrefalt frá því sem nú er. Svefnleysi rýrir heilastarfsemi Karlmenn verða vitlausari af því að deila rúmi með öðrum, samkvæmt þýskri könnun. Sofa þeir verr fyrir vikið og eru því daginn eftir þreyttari en ella og heilastarfsemi minnkar í kjölfarið. Vandamálið er minna hjá konum. TÆKNI OG VÍSINDI SEATTLE, AP Ein kona lést og fimm konur eru slasaðar, þar af þrjár í lífshættu, eftir að maður hóf skot- árás í miðstöð gyðinga í Seattle í Bandaríkjunum. Að sögn starfsmanna miðstöðv- arinnar sagðist maðurinn vera bandarískur múslimi sem væri reiður út í Ísrael áður en hann hóf skothríðina. Maðurinn gafst mótspyrnu- laust upp þegar lögreglan mætti á svæðið. Lögregla hafði eftirlit með moskum í nágrenninu af ótta við hefndaraðgerðir. - sdg Skotárás í miðstöð gyðinga: Sagðist vera reiður Ísrael LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru fluttir á sjúkrahús og fimm gista fangageymslur lögreglunnar á Selfossi eftir hópslagsmál á heim- ili þeirra slösuðu í fyrrinótt. Beitt var keðjum og bareflum í átökun- um og er annar hinna slösuðu höf- uðkúpubrotinn. Lögreglan á Selfossi var kölluð að iðnaðarhúsnæði í Gagnheiði á Selfossi vegna hópslagsmálanna klukkan hálf fjögur um nóttina og þegar lögregluþjóna bar að lá maður í blóði sínu utan við húsið og félagi hans lá slasaður inni fyrir. Árásarmennirnir fimm voru á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. Lögreglan kallaði þegar á sjúkrabíla sem fluttu hina slösuðu á sjúkrahúsið á Selfossi og slysadeild Landspítalans í Reykja- vík. Fimmmenningarnir voru handteknir þegar þeir leituðu sér læknisaðstoðar á heilsugæslustöð- inni á Selfossi. Aðdragandi að árásinni er í rannsókn en vitað er að hópurinn hafði deilt og lent í ryskingum utan við skemmtistaðinn Pakkhús- ið á Selfossi. Eftir þau samskipti eltu fimmmenningarnir þá sem lágu sárir eftir og réðust á þá þegar annar þeirra kom til dyra. Félagi kom honum til hjálpar vopnaður keðjubút með ofan- greindum afleiðingum. Fimmmenningarnir sem hand- teknir voru eru á aldrinum 18 til 22 ára og voru yfirheyrðir í gær. Ekki lá fyrir hvort hinir slösuðu ætluðu að kæra atvikið. - shá Tveir fluttir mikið slasaðir á sjúkrahús eftir hópslagsmál á Selfossi í fyrrinótt: Beittu keðjum og bareflum FRÁ SELFOSSI Sjö menn slógust með keðjum og öðrum bareflum í fyrrinótt. Tveir voru fluttir á sjúkrahús, annar höfðukúpu- brotinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Ólafs- firði stöðvaði í gærmorgun rúm- lega tvítugan ökumann vegna ölv- unarakstur. Var hann að keyra frá Akureyri og á leið til Siglufjarðar. Barst lögreglunni ábending um ferðir mannsins frá vegfaranda. Maðurinn var verulega ölvaður og má búast við að hann verði svipt- ur ökuleyfi. Þá stöðvaði lögreglan í Kópa- vogi tvo bíla vegna gruns um ölv- unarakstur í fyrrinótt og lögregl- an á Akranesi stöðvaði einn ökumann innanbæjar, en hann var verulega ölvaður og var sendur í blóðprufu. Var honum sleppt að lokinni skýrslutöku. - öhö Töluvert um ölvunarakstur: Keyrði ölvaður á milli bæja SPURNING DAGSINS Ólafur, er Mjólka að feta í fót- spor Osta- og smjörsölunnar? „Nei, Mjólka er feti framar í vöruþróun á osti sem gæðir salatið nýju lífi.“ Ólafur Magnússon er framkvæmdastjóri Mjólku, en Osta- og smjörsalan sakar Mjólku um að herma eftir umbúðum sínum um fetaost. Vara Mjólku kallast Feti en Osta- og smjörsalan selur ost undir nafninu Feta. Nýr formaður Birna Svavarsdóttir hjúkrunarforstjóri verður formaður stjórnarnefndar Landspítala – háskóla- sjúkrahúss eftir næsta fund nefnd- arinnar. Birna hefur verið varamaður Pálma R. Pálmasonar sem lætur þá af formennsku. LANDSPÍTALI SAMFÉLAGSMÁL Starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins sem Sólveig Pétursdóttir, þáver- andi dóms- og kirkjumálaráðherra, skipaði árið 2002 komst að þeirri niðurstöðu að ekki skyldi miða ald- ursmörk á útihátíðum við lögræðis- aldur sem er átján ár. Lögræðis- aldur var hækkaður úr sextán árum árið 1998 og tóku aldurs- mörk á útihátíðum mið af því. Ekki var samstaða innan starfshópsins um hver aldursmörk skyldu vera en fjölmargir álitsgjafar sem vinna að velferðarmálum barna og unglinga hvöttu eindregið til þess að þau yrðu hækkuð. Í séráliti við skýrslu starfshóps- ins segja fulltrúar frá Stígamótum og Neyðarmóttöku vegna nauðg- ana, það umhugsunarvert að forstjóri Barnaverndarstofu, umboðsmaður barna og félags- málaráðuneytið mæltu öll gegn því að aldursmörk fyrir aðgang að útihátíðum yrði hækkuð. Rökin voru einkum þau að ekki myndi takast að koma böndum á samkom- urnar með aldursmörkum, börnin sem ekki fengju aðgang myndu safnast saman annars staðar þar sem eftirlit væri lítið eða ekkert. Foreldrahús, sem er hluti af foreldrasamtökum Vímulausrar æsku, og foreldrar unglinga sem þar kynntust komu fram á dögun- um og hvöttu foreldra til að virða lög og reglur sem varða börn og unglinga. Þau spyrja öll hvort ekki sé ástæða til að hækka aldurs- mörk inn á útihátíðir til að sporna við þeirri neyslu ungmenna sem er staðreynd á öllum þeim stöðum sem slíkar hátíðir eru haldnar, sérstaklega um verslunarmanna- helgina. Þorlákur Jónsson segir að það myndi auðvelda samskipti ungl- inga og foreldra ef miðað væri við átján ára lögræðisaldur. „Mér finnst mjög gott að geta útskýrt mitt mál með því að vísa í lög og reglur. Við höfum notað mikið lög- ræðisaldur og sagt við okkar son að hann megi gera vissa hluti þegar hann nær þeim aldri. Mér finnst að ég gæti gert það sama með þessar útihátíðir. Það er á ábyrgð foreldranna að leyfa börn- unum að fara á útihátíðir þar sem þau hafa aðgang að mörgu sem er óæskilegt og jafnvel hættulegt. Fyrst og síðast er ábyrgðin hjá for- eldrunum.“ Signý Pétursdóttir og Díana Ósk Óskarsdóttir eru sammála um að á meðan aldurstakmarkið er undir lögræðisaldri sé mun erfiðara að gefa skýr skilaboð til unglinganna. Þær hvetja for- eldra til að vera óhrædd við að neita börnum og unglingum um að fara á útihátíðir án fylgdar fullorðinna. svavar@frettabladid.is Aldursmörk inn á útihátíðir eru of lág Starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu árið 2002 að hækka ekki aldursmörk á útihátíðum úr 16 í 18 ár. Foreldrahús og for- eldrar unglinga sem þar kynntust telja of lág aldursmörk skapa vandamál. HVETJA FORELDRA Díana, Signý og Þorlákur hvetja foreldra til að vera óhrædd við að segja nei. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN PEKING, AP Kínverskur bóndi, sem fékk andlit grætt á sig að hluta, hefur verið útskrifaður af sjúkra- húsi. Hinn þrítugi Li Guoxing missti nánast helming andlitsins árið 2003 þegar björn réðst á hann eftir að Guoxing hafði reynt að flæma hann burt frá kúm sínum með priki. Guoxing gekkst í apríl undir 15 klukkustunda aðgerð, sem 15 læknar komu að, þar sem nef, efri vör, kinn og augabrún voru grædd á hann. Aðgerðin gekk vonum framar að sögn lækna. - sdg Útskrifaður með nýja ásjónu: Missti andlit í bjarnarárás LI GUOXING SKOÐAR ÁRANGURINN Aðeins einu sinni áður hefur slík aðgerð verið reynd að sögn sjúkrahúsyfirvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TEHERAN, AP Stjórnvöld í Íran munu hafna ályktun Sameinuðu þjóðanna um að auðgun úrans verði frestað til loka ágústs eða ella sæta við- skiptaþvingun- um. Þetta kom fram á ríkisrek- inni útvarpsstöð í Íran í gær. Fram kom að Íran myndi ekki sætta sig við óréttlátar ákvarð- anir, jafnvel þó þær kæmu í formi ályktana frá alþjóðlegum stofnunum. Engin viðbrögð hafa borist frá Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, vegna ályktunarinnar sem var mótuð á föstudag og verður líklega samþykkt í næstu viku. - sdg Frestun á auðgun úrans: Íran myndi hafna ályktun SAMGÖNGUMÁL Samgönguráðherra hyggst láta meta hvort rétt sé að leggja í meiri rannsóknir vegna hugsanlegra jarðganga í kjölfar nýrrar skýrslu sem Ægisdyr, félag áhugamanna um jarðgöng milli lands og Eyja, lét vinna. Skýrslan var kostuð af Vest- mannaeyjabæ og fyrirtækjum í Vestmannaeyjum. Í skýrslunni, sem norska ráðgjafarfyrirtækið Multiconsult vann, kemur fram að áætlaður kostnaður við gerð 18 kílómetra jarðganga milli Vestmannaeyja og Landeyjarsands sé 19,4 milljarðar króna. Kostnaðarmatið er mun lægra en það sem kom fram í nið- urstöðum nefndar samgönguráðu- neytis um framtíðarlausnir í sam- göngumálum Vestmannaeyja. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir stóra málið snúast um ákveðna óvissu- þætti. „Það þarf að kjarnabora bæði Klif í Eyjum og við bæinn Kross í Land- eyjum. Reynist niðurstöður þeirr- ar rannsóknar jákvæðar telur Multiconsult að kostnaður við jarðgangagerð verði innan þeirra marka sem hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur talið þjóðhagslega hagkvæmt sem eru 25 til 30 milljarðar.“ Starfshópur á vegum sam- gönguráðuneytisins vinnur nú að frekari undirbúningi hafnargerðar og vali á ferju í samræmi við tillög- ur fyrrgreindrar nefndar. - sdg Ný skýrsla um gerð jarðganga milli lands og Eyja: Meiri rannsóknir á göngum HERJÓLFUR Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, vill láta rannsaka samhliða kosti ganga og ferjulægis í Bakkafjöru. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ELLIÐI VIGNISSON MAHMOUD AHMADINEJAD ÞJÓÐHÁTÍÐ Meirihluti unglinga sem sækir útihátíðir skemmtir sér hið besta og er til fyrir- myndar. Engu að síður liggja hætturnar í hverju horni. Myndin er úr safni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.