Fréttablaðið - 30.07.2006, Síða 15

Fréttablaðið - 30.07.2006, Síða 15
SUNNUDAGUR 30. júlí 2006 15 umgangast dýr þótt þetta sé mjög frábrugðið því sem ég átti að venjast í sveitinni.“ Mikil aðsókn Þegar átökin milli Ísraela og Hiz- bollah mögnuðust og fólk í norður- hluta Ísraels þurfti að flýja að heiman í stórum stíl og flytja sig sunnar í landið, þá var ákveðið að hafa ókeypis inn í dýragarðinn fyrir alla. „Síðan er búið að vera brjálað að gera, allt troðfullt af fólki upp á hvern einasta dag,“ segir Óttar. Árásarhættan eykst Það að fólk í norðurhluta Ísraels þurfi að flýja heimili sín vegna árása er ekki nýtt en Óttar segir fjöldann sem nú hefur þurft að flýja að heiman miklu meiri en áður. „Það er til dæmis alveg nýtt að fólk þurfi að flýja frá Haifa, það hefur aldrei gerst áður, en þetta er stór hafnarborg og mjög mikilvæg fyrir Ísrael. Og það er vissulega áhyggjuefni að skæru- liðar geti skotið eldflaugum á Haifa, smærri bæir nálægt landa- mærunum við Líbanon hafa hins vegar alltaf af og til orðið fyrir svona árásum. En nú óttast menn að Hizbollah geti komið sér upp enn öflugri vopnum og geti þannig ráðist á skotmörk enn sunnar í landinu.“ Verður að afvopna Hizbollah Þess vegna telur Óttar einu leið- ina fyrir Ísraela til að tryggja öryggi sitt, að reyna að ganga milli bols og höfuðs á Hizbollah í eitt skipti fyrir öll. „Það verður að gera það ef þetta á einhvern tíman að enda,“ segir hann. En er ekki óraunhæft að halda að það sé hægt? „Það getur vel verið en Ísraelar hafa alltaf verið bjart- sýnir,“ segir hann og bendir á að ísraelski herinn sé mjög öflugur, einn sá öflugasti í heimi. „Þetta verður erfitt en það er ekkert annað hægt að gera og ég hef trú á að það sé hægt.“ Mistök að fara frá Líbanon Óttar hefur ákveðnar skoðanir á þessum málum og segir það hafa verið mistök hjá Ísraelum að fara frá Líbanon árið 2000. „Ef ísraelski herinn hefði haldið þessum svæð- um áfram hefði það sem er að ger- ast í dag ekki gerst. Það sama er að gerast í Gaza, herinn er búinn að yfirgefa það svæði og um leið eru allar borgir í suðurhluta Ísraels í hættu vegna eldflaugaárása. Tengda- móðir mín býr í Askelon og það er alveg nýtt að sú borg hefur orðið fyrir árásum, það hefur aldrei gerst áður, þannig að þetta ástand er bara afleiðing þess að herinn yfirgaf þessi svæði. Umheimurinn þrýstir stöðugt á Ísraela um að gefa eftir og reyna að leysa þetta og þetta er það sem kemur út úr því.“ Mikil samstaða Óttar segist ekki verða var við annað en að mikil samstaða sé meðal ísraelsku þjóðarinnar um viðbrögð við árásum Hizbollah og sátt um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til. „Ég sá í sjónvarp- inu um daginn frá einhverri mót- mælagöngu í Jerúsalem þar sem fólk var að mótmæla árásunum á Líbanon. Mér sýndist vera afskap- lega lítil þátttaka í þessum mót- mælum og ég held að þessi mál- staður eigi lítinn stuðning í Ísrael.“ Fólk er á varðbergi En óttast fólk ekki að hörð við- brögð Ísraela í Líbanon geti orðið til þess að hryðjuverk og sjálfs- morðsárásir verði á ný daglegt brauð í Ísrael? „Jújú, það getur alltaf komið upp aftur og vissulega er erfitt að búa við slíkt óöryggi. Ég fer oft með strætó í vinnuna og það er óneitanlega alltaf svolítill beygur í mönnum að fara með strætisvagni enda hafa flestar sjálfsmorðsárásirnar verið gerðar í strætisvögnum. Fólk er alltaf á varðbergi.“ Útilokar ekki heimflutning Óttar býst við að hann og fjöl- skylda hans verði áfram í Ísrael enn um sinn. „Ég á frekar von á því en þó hefur sú umræða komið upp að fara heim til Íslands og ef maður fengi góða vinnu hér í uppsveifl- unni er það ekki útilokað. Ég sakna Íslands alltaf og fjölskyldunnar og þetta ástand í Ísrael núna er auð- vitað erfitt fyrir fjölskyldur sem eiga ættingja þarna suður frá, fólk er skiljanlega áhyggjufullt. Þannig að maður veit aldrei hvað gerist,“ segir Óttar Egilsson. Við lifum í voninni ÍRIS HANNA GRÉTARSDÓTTIR BIGI-LEVI Hefur aldrei hvarflað að henni að fara frá Ísrael þrátt fyrir ótryggt ástand og vill bara fá að lifa þar í friði. „ ...það er óneitanlega alltaf svolítill beygur í mönnum að fara með strætisvagni enda hafa flestar sjálfsmorðs- árásirnar verið gerðar í strætisvögnum.“ ELDFLAUGAÁRÁS Í ÍSRAEL Ísraelskir lögreglumenn að störfum þar sem bíll hefur orðið fyrir eldflaug í norðurhluta Ísraels en eldflaugar Hizbollah-skæruliða hafa náð mun lengra inn í Ísrael í þeim átökum sem nú standa yfir en áður hefur gerst. STRÍÐSÁTÖKIN BITNA MEST Á SAKLAUSU FÓLKI Hundruð þúsunda óbreyttra borgara eiga um sárt að binda vegna stríðátakanna milli Ísraela og Hizbollah. Fjöldinn allur beggja vegna landamæra landanna hefur þurft að flýja heimili sín og hafast við á víðavangi. Íris Hanna Grétarsdóttir Bigi–Levi er 36 ára gömul íslensk kona sem býr í Jerúsalem og hefur búið í Ísra- el undanfarin 13 ár. Hún er gift Sholomo Bigi-Levi og eiga þau þrjú börn 11, 8 og 5 ára gömul. Íris segist ekki beinlínis verða vör við átökin á landa- mærum Ísraels og Líbanon þar sem hún býr í Jerúsalem. „Það fer mikið eftir því hvar í land- inu maður býr og við erum sem betur fer ekki þar sem ástandið er verst í norðurhluta landsins þar sem fjöldi fólks hefur neyðst til að flýja burt; margir hafa dáið og aðrir þurfa að hafast við í neðanjarðarbyrgj- um langtímum saman,“ segir hún. Mikil samstaða Hún kveðst þó hafa upplifað ýmislegt þessi ár sem hún hefur búið í Ísrael. „Þó það hafi ekki alltaf verið stríðsástand hafa einhvers konar átök oft legið í loftinu og það veldur spennu,“ segir hún. Og spennan er mjög áberandi þessa dagana að sögn Írisar, líka í Jerúsalem, en að sama skapi segir hún mikla samstöðu ríkja meðal fólks í landinu vegna átakanna. „Hér eru allir tilbúnir að rétta fram hjálparhönd og mjög margir hafa tekið á móti ættingjum og vinum sem hafa þurft að flýja átakasvæðið.“ Fólk viðbúið öllu Fyrir utan þá spennu sem stríðsátökin skapa meðal almennings í Jerúsalem segir Íris þau enn sem komið er ekki hafa bein áhrif á daglegt líf í borginni. „Fólk er samt ótta- slegið yfir því að þessi átök breiðist út og þó svo að beinar eldflaugaárásir á Jerúsalem séu ekki líklegar þá eykst hætt- an á hermdarverkum eftir því sem átökin dragast á langinn og þau geta dunið yfir hvar og hvenær sem er. Fólk er því við- búið öllu og hefur áhyggjur af framtíðinni,“ segir hún. Ætlaði norður í frí Norðurhluti Ísraels, þar sem átökin eru hvað hörðust og sprengjum rignir á báða bóga, er að öllu jöfnu mikið ferða- mannasvæði, sérstaklega á þessum árstíma, en þangað fer skiljanlega enginn núna að sögn Írisar. Ýmislegt fer því úr skorðum í samfélaginu þegar stríð brýst út. „Við hjónin ætl- uðum til dæmis í frí með börnin okkar norður í land, en af því verður auðvitað ekkert núna.“ Enginn hér vill stríð Íris kvartar yfir því að umheim- urinn hafi takmarkaðan skiln- ing á þeirri stöðu sem Ísraels- menn þurfa að búa við alla daga ársins. „Við viljum ekki stríð, en verðum auðvitað að verja okkur þegar á okkur er ráðist. Það er enginn hér sem vill stríð, enginn vill gera öðrum illt, við viljum bara fá að lifa venjulegu lífi í friði eins og fólk annars staðar í heiminum,“ segir hún. Hún viðurkennir þó að þetta sé ekki einfalt mál en segir að Ísraelsmenn reyni að semja frið við þá sem vilja frið. „Fólk í heiminum skilur ekki alltaf að við erum lítið land sem er umkringt óvinveittum þjóðum og það finnst mér leitt.“ Aldrei viljað fara Íris segir „við“ þegar hún talar um sig og aðra íbúa Ísraels en hún er bæði íslenskur og ísra- elskur ríkisborgari. Hún segir að það hafi aldrei hvarflað að henni að yfirgefa landið þrátt fyrir ótryggt ástand. „Ég er þrjósk að eðlisfari og tel mig einfaldlega eiga rétt á að lifa hér í friði. Þetta er stundum erfitt en ég reyni að gera það besta úr öllu“. Og hún segist bjartsýn þótt það gangi á ýmsu. „Við lifum alltaf í voninni um að þetta lag- ist, en fólk verður að gera sér grein fyrir því að við höfum rétt á að verja okkur, við viljum lifa í friði og höfum reynt að semja frið og vonum að það takist að lokum,“ segir Íris Hanna Grétarsdóttir Bigi-Levi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.