Fréttablaðið - 30.07.2006, Síða 17

Fréttablaðið - 30.07.2006, Síða 17
SUNNUDAGUR 30. júlí 2006 17 Eftirminnilegustu sjónvarpsatvikin Útsending rofin í fyrsta skipti: „Árið 1986 var forsætisráð- herra Svía, Olof Palme, skotinn til bana á götu í Stokkhólmi. Ómar Ragnarsson heyrði frétt- ina í útvarpinu og brunaði upp í Ríkissjónvarpið og rauf útsend- ingu á einhverri bíómynd sem þá var í gangi til að tilkynna landsmönnum þessar leiðinda fregnir.“ „Ég man eftir því þegar sjónvarpið var að byrja og mik- ill spenningur var hjá mönnum fyrir fyrsta útsendingardag. Daginn áður varð svo uppi fótur og fit þegar prufusend- ingin fór óvart í loftið og lands- menn horfðu á hljóð- og mynd- prufur sem aldrei áttu að fara í loftið.“ „Einn eftirminnilegasti mað- urinn sem kom fram í íslensku sjónvarpi var Halldór Kiljan Laxness en hann kom fram í umræðuþætti um mannréttindi í nóvember 1975 þar sem hann heimtaði að umræðan færi á hærra plan.“ „Eflaust var það þegar Þór- bergur Þórðarson var í drottn- ingarviðtali í sjónvarpssal fyrir mörgum áratugum og verður svo uppnuminn af því sem hann er að segja frá að hann gleymir stað og stund í frásagnar- gleðinni. Hann stóð upp í sviðs- myndinni, stjórnanda og tækni- mönnum til mikillar skelfingar og gekk um sviðið og hélt áfram að segja frá.“ EKKERT MÁL Árið 1982 setti Jón Páll Sigmarsson Evrópumet í sjónvarpssal. Þegar stöngin fór upp lét Jón Páll þessi fleygu orð falla. „Þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál.“ ÞETTA VAR LÍKA NEFNT Ólína Þorvarðardóttir, fyrrum skólastýra. Tinna Gunlaugsdóttir, Þjóðleikhússtjóri. Þorbjörn Broddason, prófessor í fjölmiðlafræði. Birgir Guðmundsson, lektor í fjölmiðlafræði. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði. Þorkell Máni Pétursson, útvarpsmaður. Sigurjón Kjartansson, tónlistarmaður. Illugi Jökulsson, rithöfundur. Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fegurðardrottning Þráinn Bertelsson, rithöfundur. Jón Gnarr, pistlahöfundur. Ásgrímur Sverrisson, ritstjóri logs.is og kvikmyndagerðarmaður. Guðrún Eva Mínervudóttir, rithöfundur. Gerður Kristný, rithöfundur. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður. Álitsgjafarnir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.