Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.07.2006, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 30.07.2006, Qupperneq 26
ATVINNA 8 30. júlí 2006 SUNNUDAGUR Oscar Bjarnason er grafískur hönnuður hjá auglýsingastofunni Fíton. Hann segir starfið mjög fjölbreytt og að aðeins lítill hluti af hans tíma fari í að gera auglýsingar. „Grafískir hönnuðir búa til dæmis til merki, hanna útlit fyrirtækja, setja upp bæk- linga og auglýsingar. Við erum í miklum samskiptum við viðskiptavininn. Hann þarf að samþykkja allt og hönnunin fer eftir þörfum hans og óskum,“ segir Oscar. „Sjálfur er ég ekki svo mikið í auglýsingum, aðallega í almennri hönnun og að gera merki fyrir fyrir- tæki og leggja grunn að útliti sem þau nota.“ Oscar hóf á sínum tíma nám í tækniteiknun og fékk þar meðal annars áhuga á myndvinnsluforritinu Photo- shop. „Þaðan fór ég í prent- smíði og lærði hana í smá tíma og fór svo á auglýs- ingastofuna GSP almanna- tengsl snemma árs 2000. Ég fann að það var skemmti- legra en það sem ég hafði verið að fást við áður.“ Oscar er mjög ánægður í starfi og segir grafíska hönnun vera skemmtilega og gefandi. „Maður er alltaf að gera eitthvað nýtt. Það er líka mikill hasar inn á milli og það getur verið gaman. Það er margt sem getur hjálpað manni til að vera góður í þessu starfi, til dæmis að vera fljótur að hugsa, góður í að sjá hlutina myndrænt fyrir sér og koma hlutum fyrir á skil- virkan hátt. Aðalatriðið er svo að hafa áhuga,“ segir Oscar. „Það besta við starfið er hvað verkefnin eru fjöl- breytt, maður er ekki að gera það sama alla daga. Maður fær hins vegar oft lítinn tíma til að klára verk- efni og það getur verið leiðinlegt. Ég held að það sé mjög algengt á auglýsinga- stofum að lítill tími sé skammtaður í hvert verk,“ segir Oscar að lokum og snýr sér aftur að hönnun- inni. einareli@frettabladid.is Ekki alltaf að gera það sama Oscar segir grafíska hönnun vera skemmtilega og gefandi. Laun verslunarfólks eiga að hafa hækkað um hálft sjötta prósent frá því í júlí í fyrra. Launin hjá VR hafa hækkað um 5,5 prósent á einu ári. Allir innan Verslunar- mannafélags Reykjavíkur sem starfa samkvæmt kjarasamningi félagsins við Samtök atvinnulífsins eiga að hafa fengið launahækk- un sem nemur 5,5 prósent- um milli júlímánaða árin 2005 og 2006. Þó því aðeins að hafa starfað hjá sama vinnuveitanda á tímabilinu. Launahækkunin gildir frá 1. júlí síðastliðnum en kemur til útborgunar 1. ágúst. Þetta kemur fram á vef VR, www.vr.is. Launahækkun hjá VR F.h. Reykjavíkurborgar: Rammasamningur um kaup á ferskum og frystum fiski og unnum fiskvörum “EES útboð”. Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur. Opnun tilboða: 21. ágúst 2006, kl 14:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. 10662 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Starfsmenn í Frístundasel í Mosfellsbæ Mosfellsbæjar óskar eftir að ráða starfsmenn í Frístundasel. Lausar eru tvær stöðu í Frístundaseli við Lágafellsskóla frá 14:00 til 17:00 alla virka daga. Frístundaselin bjóða upp á ýmsa þjónustu fyrir nemendur í 2. - 4. bekk grunnskóla eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Starfsmenn í hlutastörfum: Hæfniskröfur: Uppeldismenntun og/eða, reynsla af starfi með börnum. Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni í samskiptum. Umsóknum má skila inn á skrifstofu Mosfellsbæjar, 1.hæð. Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig er hægt að senda inn umsóknir á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is Laun greidd samkv. kjarasamningum starfmannafélags Mosfellsbæjar. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurdur Guðmundsson Íþróttafulltrúi í s: 6600750 / 5666754 sgl@mos.is Fræðslu og menningarsvið Mosfellsbæjar. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Setbergsskóli Staða bókasafns- og upplýsingafræðings er laus til umsóknar. Um er að ræða spennandi starf í skóla þar sem ríkir metn- aður og eru mörg metnaðarfull verkefni í gangi sem tengj- ast sérstaklega starfi á bókasafni. Allar upplýsingar veitir skólastjóri, Guðríður Óskarsdóttir í síma 664 5880. Umsóknarfrestur er til 6. ágúst. Fræðslustjórinn í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, SHS, þarf á slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum að halda. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga, slökkvistörf og reykköfun, björgun og neyðarflutninga með möguleika á starfsmenntun og þjálfun erlendis og innanlands. Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Umsækjendur með reynslu: Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn með reynslu eru sérstaklega hvattir til að sækja um. Gott væri ef þeir gætu hafið störf sem fyrst en annars eftir nánara samkomulagi. Umsækjendur þurfa að: • Vera reglusamir og háttvísir. • Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera lausir við lofthræðslu og innilokunarkennd. • Hafa aukin réttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið. Nóg er að umsækjandi hafi öðlast aukin ökuréttindi þremur mánuðum eftir ákvörðun um ráðningu. • Hafa iðnmenntun (sveins- eða vélstjórapróf) sem nýtist í starfi eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu. Umsóknir Umsóknareyðublöð eru hjá þjónustuveri SHS og á www.shs.is. Umsóknum og fylgigögnum skal skila til þjónustuvers SHS, Skógarhlíð 14, eigi síðar en 22. ágúst nk. Fylgigögn: Læknis- vottorð um almennt heilbrigði, sakavottorð, prófskírteini, ljósrit af ökuskírteini og ökuferilsskrá, passamynd. Konur eru hvattar til að sækja um. Ráðningarferlið Reynsluráðning er áætluð frá 1. nóvember 2006. Að loknum sex mánaða reynslutíma verður tekin ákvörðun um fastráðningu. Þeir sem uppfylla almenn skilyrði þurfa að vera reiðubúnir að gangast meðal annars undir: • Styrkleikapróf, 3.000 m hlaup og sund • Aksturspróf • Próf vegna lofthræðslu og innilokunarkenndar • Göngupróf á bretti í eldgalla með reykköfunartæki á bakinu • Próf í almennri þekkingu og tungumálum • Læknisskoðun, hjóla- og áreynslupróf Nánari upplýsingar: Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 10. ágúst kl. 16.00 á slökkvistöðinni Skútahrauni 6, Hafnarfirði. Frekari upplýsingar veitir Kristín Þorsteinsdóttir starfsmannastjóri (kristin.thorsteinsdottir@shs.is) í síma 528 3000 á skrifstofutíma. Einnig á www.shs.is. SHS er byggðasamlag sem sinnir slökkvistarfi, sjúkraflutningum, viðbrögðum við mengunaróhöppum, forvörnum, almannavörnum og öðrum verkefnum sem stjórn SHS ákveður hverju sinni og varða velferð íbúa. Að rekstri SHS standa sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarneskaupstaður og Álftanes. Framkvæmdastjórar sveitarfélaganna skipa stjórn SHS. Skógarh l íð 14 105 Reyk jav ík s ím i 528 3000 shs@shs . i s www.shs . i s G A R Ð A R G U Ð JÓ N S S O N / F O R S T O F A N 0 7 /0 6 Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 11, 101 Reykjavík, sími: 510 6600, fax: 510 6610, netfang: itr@itr.is, vefslóð: www.itr.is Við leitum að hressu og duglegu fólki til starfa á frístundaheimili ÍTR. Frístundaheimilin eru opin allan daginn í jólafríi grunnskólanna nema rauðu dagana. Möguleiki á hlutastarfi með skóla eftir áramót. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ÍTR, www.itr.is og hjá starfsmannaþjónustu ÍTR í síma 411 5044. Ertu að komast í jólafrí frá skólanum og viltu fara að syngja jólalög og baka piparkökur?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.